Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1990
41
HEILABROT
Þjálfið heilann með þrautum!
Erno Rubik, prófessor í bygg-
ingarlist, ávann sér heims-
frægð fyrir nokkrum árum
með kubbinum, sem við hann er
kenndur og hefur valdið mörgum
hugarangri. Rubik er ekki sestur
í helgan stein og heldur áfram að
hanna þrautir til heilabrota. Telur
hann að þjálfun hugans sé ekki
síður mikilvæg en líkamsþjálfun.
Spáir Rubik því, að nú taki við
tími gestaþrauta eftir að trimm
hefur verið í tísku um skeið.
sem hann taldi að verðandi arki-
tektar þyrftu að þjálfa getu sína
til að skoða hlutina í tvívídd og
þrívídd.
Reynslan af Kubbnum er sú,
að fæstir vilja leggja hann frá sér
fyrr en þeir hafa leyst þrautina.
Prófessorinn segir, að aðalatriðið
sé ekki að leysa þrautir heldur að
glíma við þær, með því þjálfi menn
andlegan kraft sinn og virkni heil-
ans. Næstum allar þrautir Rubiks
byggjast á stærðfræðilegum lög-
málum og takist mönnum að finna
formúluna er lausnin barnalega
einföld. Rökrétt hugsun er lykill-
inn að öllum þrautum hins ung-
verska pröfessors.
Prófessorinn hefur nýlega
kynnt fjögur ný leiktæki sem eiga
að styrkja hugarorkuna. Þau eru
pýramídi sem er gerður úr 10 hlut-
um og kallast hann Triamid. Þá
er það Flækjan, sem er gerð úr
25 hlutum, síðan Fimmtán og loks
Teningur.
Rubik segir, að leikirnir séu
hannaðir með það fyrir augum að
þeir falli að mismunandi skapgerð
fólks. Hann hefur fjórtan manns
í vinnu hjá sér við að fullsmíða
hugmyndir sínar, sem hann segir
fæðast þegar hann hafi eitthvað
á milli handanna en ekki við teikni-
borðið. Hann bjó til Kubbinn
fræga fyrir nemendur sína, þar
Erno Rubik, sem fann upp hinn fræga Rubik-kubb. Hér heldur hann
á nýjum leiktækjum eða gestaþrautum sem hann hefur hannað.
Telur hann framlag sitt stuðla að því að fólk þjálfi heila sinn ekki
síður en likama.
Truflaði kennslustund
vatnsgreiddur og í smókíng
í síðustu viku átti uug Verslunarskólastúlka afmæli og uunusti henn-
ar ákvað að sjá til þess að dagurinn yrði minnisstæður ineð óvenju-
legum hætti.
Eg fékk vin minn Egil Sigurðsson
til þess að klæða sig upp og
fara í skólastofuna í miðjum tíma
og færa henni blóm,“ sagði unnust-
inn Kristján Kristjánsson í samtali
við Morgunblaðið. Uppátækið kom
unnustunni Guðrúnu Reynisdóttur í
opna skjöldu. Einnig sambekkingun-
um, en þeir gátu þó glaðst, því þeir
fengu allir konfektmola í tilefni dags-
ins.
Kristján hafði áður fengið leyl'i
skólayfirvalda til þess að trufla
kennslustundina með þessum hætti.
Engum öðrum var sagt neitt, því
ráku allir upp stór augu er Egill
gekk í 'salinn íklæddur smókíngfötum
og vatnsgreiddur. Gekk hann fyrst
á röðina og bauð öllum konfekt.
Síðan stillti hann sér upp fyrir fram-
an Guðrúnu og færði henni blóm-
vöndinn og var stúlkuna þá farið að
gruna sitthvað. Ekki hefur frést
meira af hátíðisdeginum, en reikna
má með að þessi 18. afmælisdagur
Guðrúnar verði einn af hinum minni-
stæðari í lífi hennar ...
Drauma-
hlutverk
Madonnu
Popparinn og leikkonan Ma-
donna hefur lengi látið að því
liggja að þrátt fyrir ýmis hlutverk
í kvikmyndum til þessa hafi hún
aldrei farið með hlutverk sem hún
hafi virkilega verið spennt fyrir.
Nú hafi það hins vegar gerst, en
nýlega var hún valin til að leika
hlutverk Evitu Peron í kvikmynd
sem verður gerð bráðlega og byggð
á hinum fræga söngleik Andrews
Lloyds Webbers. Segir Madonna að
allt frá því að það spurðist að kvik-
mynd þessi væri á döfinni hafi hún
óskað sér og látið sig dreyma um
titilhlutverkið. Þegar til kastanna
kom var Madonna ein þriggja sem
valið stóð um, hinar voru Meryl
Streep og Elain Page.
Egill afliendir Guðrúnu blóinin.
Morgunblaðið/Þorkell
GLAÐNINGUR
POPP
Madonna.
COSPER
© PIB
t t 1 Ö t
COSPER.
Við skulum fara liingað inn og halda upp á demantsbrúðkaupið
okkar.
Bestur þakkir og kveðjur til allra þeirra mörgu'
er ýmist með gjöfum, blómum, skeytum eða á
annan hátt sýndu mér sóma á 75 ára afmcvli
minu þann 9. þ.m.
Lifið heil.
Guðbrandur E. Hlídar,
dýralæknir.
Minar bestu þakkir til allra þeirra, sem sendu
mér kveðjur og gjafir á 85 ára afmœlinu þann
6. nóvember. '
Margrét Finnbjörnsdóttir.
"
m.a. vattfóðraðirog meðlausu %
ullarfóðri. yí
Kuldaúlpur- nýsending. %
10tegundir af herrabuxum. «
QEísiB
Ath.: Greitt er fyrir við-
skiptavini í bifreiða-
geymslu, Vesturgötu 7