Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.11.1990, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NOVEMBER 1990 45 Góð sýning Leikhúsgestur hringdi: „Ég vil þakka fyrir frábæra sýningu, Medea, hjá Alþýðuleik- húsinu. Vil ég hvetja sem flesta til að sjá þessa sýningu.“ Gleraugu Gleraugu með bandi töpuðust við Landakotsspítala 7. nóvember. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 36792. Gleraugu Kvengleraugu fundust mánu- daginn 5. nóvember í versluninni Símsen, Hafnarstræti 21 oggetur eigandinn vitjað þeirra þar. Köttur Svartur hálfvaxinn fressköttur með hvíta bringu og hvítar loppur er í óskilum í Seljahverfi. Eigand- inn er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 72784. Ónæði Móðir hringdi: „Riddarar götunnar, þ.e.a.s. mótorhjólatöffararnir, eru að gera mig gráhærða. Ég bý í Hraun- bænum og höfum við orðið fyrir miklu ónæði af þessu að undan- fömu. Verst er þetta fyrir þá sem eru með ung börn á tanntöku- aldri, þau vakna upp við djöfla- ganginn og það getur kostað vöku hálfa nóttina. Lögreglan hefur komið nokkrum sinnum en það hefur reynst árangurslítið. Ekki veit ég hvort það er tillitsleysi eða hugsunarleysi sem býra að baki þessarar framkomu riddaranna, en vil biðja þá að hugsa málið og sýna meiri tillitssemi." Gleraugu Karlmannsgleraugu með rauð- brúnni umgerð fundust við Ár- múla 2 sunnudaginn 11. nóvem- ber. Upplýsingar í síma 30617. Lyklakippa Lyklakippa fannst í Hafnarfirði fyrir skömmu. Á henni eru m.a. þrír smekkláslyklar. Upplýsingar í síma 50665. Sértrúarsöfnuður, hvað er nú það? Til Velvakanda. Á meðal þess sem fjölmiðlar greina frá úr umræðum á Kirkju- þingi er vitnað í orð biskups þar sem hann fjallar m.a. um muninn á þjóðkirkju og sértrúarsöfnuðum. Oft verður mér á að brosa þegar ég heyri fólk tala um þjóðkirkjuna og sértrúaröfnuði eins og að þjóð- kirkjan sé eitthvað annað en sértrú- arsöfnuður. Samkvæmt orðabókar- skýringu á hugtakinu „sértrúar- flokkur“ en merkingin þessi: „Flokkur manna með sérstök trúar- brögð eða sérstakt afbrigði trúar- bragða.“ Samkvæmt þessri útlegg- ingu hlýtur þjóðkirkjan að vera sér- trúarflokkur eins og hvert annað trúfélag, ef hún á annað borð kenn- ir og boðar trú. Og þar sem trú þjóðkirkjunnar er frábrugðin því sem önnur trúfélög tileinka sér, verður að telja þjóðkirkjuna á með- al sértrúarsafnaða. Varla hættir trúfélag að vera sértrúarsöfnuður við það eitt að vera fjölmennara en önnur trúfélög nema því aðeins að það hætti að boða trú. Um allan heiminn eru kaþólikkar fjölmennari en þeir sem teljast til hinnar evangelísku lút- ersku kirkju, og samkvæmt höfða- tölureglunni eru lúterstrúarmenn því sértrúarfólk. Og vissulega urðu fylgjendur Marteins Lúters meðlim- ir sértrúarsafnaðar þegar Lúter sagði skilið við kaþólsku kirkjuna á 16. öld og stofnaði þann sértrúar- flokk sem íslenska þjóðkirkjan til- heyrir. Lúter boðaði sérstaka trú, frábrugðna því sem kaþólska kirkj- an boðaði. í sumum Iöndum, eins og t.d. Bandaríkjunum, er engin ríkis- kirkja. Þar er að finna mjög fjöl- menna trúflokka, sértrúarsöfnuði, og þar á meðal eru lúterstrúar- menn, hindúar, búddatrúarmenn og múslímar mynda aðra sértrúarsöfn- uði sem hafa innan sinna vébanda hundruð milljóna einstaklinga. Þeg- ar öllu er á botninn hvolft, kemur í ljós að næstum allir íslendingar tilheyra einum sértrúarsöfnuði eða öðrum. Að sjálfsögðu er stærsti sértrúarsöfnuðurinn á íslandi þjóð- kirkjan. Steinþór Þórðarson SPENNUM BELTIN - hvar sem við sitjum í bílnum. Komum heil heim. Gefðu bókhaldinu líf! íslensk forritaþróun hf. kynnir hinn nýja ópusallt viöskiptahugbúnaö í Sjallanum, Akureyri, 14. rióvember n.k. kl. 16:00. Viljir þú fylgjast meö þróun hugbúnaöar og hvernig hann getur aukiö framlegö fyrirtækisins, þá mætir þú á kynninguna. Kynnt verður: ópiusaWX framtíöar viöskiþtahugbúnaöur ópusáWi myndræn framsetning ópusráWi sveigjanleiki ópusaWt skýrslugerð meö þrívíddar grafík ópusdWt SQL fyrirspurnarmöguleikar Upplýsingar í símum 91-671511 og 96-24922. íslensk forritaþróun hf. TAE KWON - DO SJÁLFSVARNARÍÞRÖTT ★ 1. Eykur sjálfstraust ★ 2. Bardagalist ★ 3. Fyrir bæði kynin ★ 4. Líkamlegur og sálfræðilegur styrkur Námskeið hefjast miðvikudag kl. 18.50-20.30 og laugardag kl. 14.10-16.20 Æfingar fara fram í íþrótta- Þjálfari Michael húsi IR, Túngötu v/Landakot Jorgensen 3. dan Upplýsingar gefur Kolbeinn, sími 15202. SIEMENS Frystikistur og frystiskápar Siemens frystitækin eru eins og aðrar vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki: traust, endingargóð og falleg. Lítið inn til okkar og skoðið úrvalið. SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 Sjálfstæðisfólk í Reykjaneskjördæmi Ég þakka þeim fjölmörgu sem veittu mér brautargengi í prófkjöri Sjölfstœðisflokksins í Reykjaneskjördœmi 10. nóvember síðasttiðinn. Ég hvet alla sjálfstœðismenn til drengilegrar sóknar f komandi kosningum og mun gera mitt besta f baráttunni fyrir betra íslandi. A A. A^

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.