Morgunblaðið - 14.11.1990, Síða 48
mk ■
Atviium reks t ra rt rygging
y-Xa T\Tryggðu öruggan
/Á./'TTxv' \ atvinnurekstur
PC MAGAZINE UM
IBM OS/2:
„ÞETTA ER
FRAMTÍÐIN"
MIÐVIKUDAGUR 14. NOVEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Vaxtahækkun húsnæðislána:
Skuldbreyting við
eigendaskipti íbúða
JOHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra kveðst fá lögfræðilegt
álit í dag um þær leiðir, sem hún hefur kynnt til vaxtahækkunar á
húsnæðislánum frá Byggingarsjóði ríkisins. Þar á meðal er, að við
eigendaskipti íbúða falli niður öll áhvílandi húsnæðislán, en í staðinn
verði gefið út eitt skuldabréf með breyttum vaxtakjörum. Jóhanna
segist munu kynna álit lögfræðinganna í ríkisstjórn á morgun, fimmtu-
dag.
Nefnd sem félagsmálaráðherra
skipaði til að gera tillögur um að-
gerðir vegna fjárhagsstöðu Bygg-
ingarsjóðs ríkisins lagði meðal ann-
ars til að vextir af húsnæðislánum,
sem veitt hafa verið eftir 1. júlí
1984, verði hækkaðir í 5% og.að
r_jjlagaákvæði um greiðslujöfnun, þess
efnis að hækkun raunvaxta leiði
ekki til hækkunar á greiðslubyrði,
verði fellt niður.
Jóhanna óskaði eftir lögfræðilegu
áliti á því, hvort þessar leiðir væru
Olíumeng-
að vatn
í sjóinn
SKIPSTJÓRINN á olíuskip-
inu Kyndli tilkynnti Siglinga-
málastofnun í gærmorgun að
olíumenguðu vatni, svoköll-
uðu slammi, hefði fyrir mis-
tök verið dælt úr tönkum
skipsins og í sjóinn á Sundun-
um við Reykjavík.
Olíubrák sást á sjónum, en
'að sögn Magnúsar Jóhannes-
sonar siglingamálastjóra er um
mjög lítið magn olíu að ræða.
Rannsókn fer nú fram á því
hvernig mistökin áttu sér stað.
færar. Hún segir að verið sé að skoða
áhrifin af greiðslujöfnuninni, bæði
að því er varðar skuldabréf sem eru
í gangi og eru með ákvæði þess efn-
is að vaxtakjör þeirra taki mið af
greiðslujöfnun og eins gagnvart því
hvort þetta muni bæta greiðslustöðu
sjóðsins eða eingöngu bæta bók-
haldslega eiginflárstöðu hans ef
greiðslujöfnunin hækkar bara höfuð-
stól skuldarinnar og greiðist í lok
lánstímans.
„Síðan er verið að skoða þessa
leið sem ég hef reifað, það er að
segja að vextirnir hækki eingöngu
við íbúðaskipti þegar nýr eigandi
tekur við skuldunum, að þá ver^i
lánum, sem stundum eru tvö til þrjú
á íbúð, breytt í eitt fasteignaveðbréf
með nýjum vaxtakjörum. Það mundi
skila sér að mínu mati fyrr til þess
að bæta greiðslustöðu sjóðsins. Þetta
er verið að skoða hvort er hægt,
lögfræðilega, og ég mun væntanlega
fá niðurstöðu í allt þetta á morgun,"
sagði félagsmálaráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Sjá einnig þingsíðu, bls. 28.
Farmuraf jólatrjám úrÞjórsárdal
Morgunblaðið/Sverrir
Þeir sem selja jólatré eru farnir að undirbúa söluna.
í gær kom flutningabíll á vegum Landgræðslusjóðs
í bæinn fullur af jólatrjám úr Þjórsárdal. Myndin
var tekin þegar bíllinn var affermdur. Trén eru flest
stór og verða sett upp úti á vegum bæjarfélaga,
fyrirtækja og stofnana.
"Þriðja slysið á
nokkrum dögum
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar í gærkvöldi, á sama
stað og tvö umferðarslys áttu sér
stað um síðustu helgi.
Tvær bifreiðar rákust saman á
gatnamótunum og voru báðar óöku-
færar eftir og fluttar burt með
krana. Einn maður var fluttur á
slysadeild með sjúkrabíl, en talið vai-
að hann væri ekki alvarlega slasað-
Tilboð íslands í GATT-viðræðunum um landbúnað:
Losað verði um höft
á innflutningi búvara
I TILBOÐI íslensku ríkisstjórnar-
innar í yfirstandandi viðræðum
innan GATT um viðskipti með
búvörur lýsir hún sig reiðubúna
til að draga úr lögbundnum tak-
mörkunum á innflutningi unninna
landbúnaðarvara og beita í þess
stað jöfnunargjöldum sem vega
upp muninn á niðurgreiddu
heimsmarkaðsverði og heima-
markaðsverði. Tilboðið var lagt
fram í höfuðstöðvun GATT í Genf
í gær en þá hafði náðst samkomu-
lag á milli utanríkisráðherra, for-
sætisráðherra og landbúnaðar-
ráðherra um málið. Haukur Hall-'
dórsson, formaður Stéttarsam-
bands bænda, sagðist í gær ekki
geta sagt álit sitt á tilboðinu þar
sem hann væri ekki búinn að
kynna sér það til hlítar. Hann
sagði þó að ýmislegt í því væri
til bóta frá fyrri tilboðsdrögum.
Tilboðið felur í sér tvö meginat-
riði auk breytinga á innflutnings-
vernd, að sögn Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráðherra:
Ríkisstjórnin býðst til að draga úr
innanlandsstuðningi við landbúnað
um allt að 25% fram að árinu 1996.
Hún býðst til að draga úr útflutn-
ingsbótum um allt að 65% fram til
1996 og að lækka þær áfram í
Hér ganga hlutirnir hægt fyrir
sig og þetta tekur einhvem tíma
- segir Gísli H. Sigurðsson læknir sem dvelst nú á hóteli í Bagdad
GÍSLI H. Sigurðsson læknir, sem varð innlyksa í Kúvæt er írakar
réðust inn í landið i byrjun ágústmánaðar, sagði í samtali við Morg-
unblaðiö í gær að hann hefði allgóðar vonir um að honum yrði á
næstunni leyft að halda frá írak þar sem hann dvelst nú. „Þetta
kemur til með að taka einhvern tíma því að hér í landi ganga hlut-
irnir hægt fyrir sig,“ sagði Gísli en hann býr á hóteli í Bagdad,
höfuðborg íraks, ásamt um 70 Svíum.
Gísli kvaðst vera á nafnalista
sænska sendiráðsins í Bagdad og
kvað stjórnvöld vera að reyna ýms-
ar leiðir til tiyggja brottfararleyfi
þeirra Svía sem í landinu dveldust.
„Það er mjög gott að vera kom-
inn hingað til Bagdad. Hér getur
maður farið allra sinna ferða án
þess að verða fyrir áreiti lögreglu
eða hermanna og það er mikill
rnunur," sagði Gísli. Hann kvaðst
ekki fá betur séð en ástandið_ í
Bagdad væri ótrúlega gott. „Eg
kom hingað tvívegis fyrr á þessu
ári, í maí og júní, og ég fæ ekki
séð að ástandið hafi mikið breyst."
Gísli kvað það rangt vera að
aðild íslendinga að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) spillti á ein-
hvern hátt fyrir möguleikum hans
á að komast frá írak. „Ég komst
að því í fyrradag að aðildin að
NATO kemur þessu máli ekkert
við. Það var kannski eðliiegt að
slíkar vangaveltur kæmu upp þar
sem íslendingar hafa engan her
og tengjast Persaflóadeilunni ekki
á neinn hátt. Staðreyndin er hins
vegar sú að írakar gera í þessu
efni engan greinarmun á einstök-
um ríkjum Vestur-Evrópu.“
Líkt og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra ritað
Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissam-
taka Palestínu (PLO), bréf og beð-
ið hann að tala máli Gísla við íraska
ráðamenn. „Ég er því miður ekki
viss um að svona sambönd hafi svo
mikið að segja núna. Undir venju-
legum kringumstæðum eru þau
mjög mikilvæg en ég þekki mörg
sambærileg dæmi sem ekki hafa
gefið neina niðurstöðu," sagði Gísli.
áföngum með það að markmiði að
afnema þær. Ef samningur næðist
á grundvelli þessa tilboðs gætu
ríkisútgjöld lækkað um 3,5 milljarða
kr. á ári, að sögn utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagði að íslenska til-
boðið markaði tímamót. „í fyrsta
skipti hefur náðst samkomulag inn-
an íslenskrar ríkisstjórnar um að hún
lýsi sig tilbúna til að hverfa frá inn-
flutningsbanni og ganga til samn-
inga um nýtt kerfi, sagði hann.
„Ástæðulaust er að ætla að þetta
muni þýða hrun fyrir íslenskan land-
búnað. Áfram er s.trangt bann í
krafti samræmda heilbrigðisreglu-
gerða á innflutningi á nýmjólk, hráu
kjöti og lifandi dýrum. Þá getur
matvöruiðnaður hvers lands varið
sig með jöfnunargjöldum gegn
undirboðum. Breytingarnar eni
fólgnar í því að opnáð er fyrir inn-
flutning á unnum landbúnaðarvör-
um, til dæmis osti, jógúrt og fleiru.
Vinnslu- og dreifingarkerfi yrði að
mæta samkeppni, í litlum mæli til
að byija með, ef í upphafi yrðu inn-
flutningskvótar, og það myndi kalla
á hagræðingu ogSiðrar aðgerðir til
að lækka framleiðslu- og dreifingar-
kostnað. Það er staða sem gæti opn-
að leiðir til beggja átta, því opnast
gætu möguleikar til að flytja ís-
lenskar landbúnaðarvörur út. Eg kýs
að líta á þetta mál sem gagnmerkt
upphaf að stefnubreytingu sem á
að geta skilað neytendum og bænd-
um betri hlut,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson.