Morgunblaðið - 17.11.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAUGÁRDAGUR 17. NÓVEMBER 1990
47
Steinþór
Guöbjartsson
skrífar
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Fátt um fína drætti
Eyjamenn voru með tvö stig í höndunum, þegar stundaifjórðungur var
til leiksloka gegn KR-ingum í gærkvöídi. Staðan 19:13 þeim í hag
eftir ákveðinn leik í seinni hálfleik og KR-liðið hvorki fugl né fiskur fram
að þjí. En gestirnir skoruðu ekki fyrr en á síðustu mínútu, þegar þeir
jöfnuðu 20:20 — einum færri vegna rangrar skiptingar.
Gífurleg spenna ríkti til loka, bæði lið fengu tækifæri til
að gera út um leikinn, en markverðimir, Sigmar Þröstur
hjá IBV, sem var besti maður vallarins — lokaði markinu
í fyrri hluta seinni hálfleiks — og Leifur, sáu um að stigin
skiptust bróðurlega. Annars var viðureignin afspyrnu léleg og ekki mátti
merkja að liðin væru að berjast um sæti í efri hluta deildarinnar. Áhuga-
leysið var algjört fyrir hlé, markvarslan í molum og óðagotið mikið, eink-
um síðustu tvær mínúturnar, þegar liðin fengu samtals átta sóknir.
KR - ÍBV 20:20
Laugardalshöll, 1. deild karla í handknattleik — VÍS-keppnin — föstudaginn 16. nóvemb-
er 1590.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 3:3, 3:6, 5:5, 6:8, 8:8, 10:10, 12:10, 12:13, 12:15, 13:15,
13:19, 20:19, 20:20.
Mörk KR: Páll Óiafsson 5, Sigurður Sveinsson 5, Konráð Olavson 5, Guðmundur Pálma-
son 2, Willum Þór Þórsson 1, Björgvin Barðdal 1, Þórður Sigurðsson 1.
Varin skot: Leifur Dagfinnsson 8, Ámi Harðarson 1.
Dtan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Þorsteinn Viktorsson 5, Jóhann Pétursson 3, Sigurður Friðriksson 3, Gylfi
Birgisson3, Sigurður Gunnarsson 3/1, Guðfinnur Kristmannsson 2, Sigbjöm Óskarsson 1.
Varin' skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 17/1 (þar af 3 er boltinn fór aftur til mótheija),
Ingólfur Amarson 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Gunnlaugur Hjálmarsson.
Áhorfendur: 111.
Mikilvægur sigur FH
FH sigraði KA í gærkvöldi í afar slökum leik á Akureyri, 27:24. Sigur-
inn var mikilvægur fyrir FH liðið, eftir slæmt tap gegn Fram. FH-
inga vantar enn þrjá lykilmenn, Gunnar Beinteinsson, Óskar Ármannsson
og Jón Erling Ragnarsson og Þorgils Óttar stjómaði sóknarleik liðsins.
í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum en FH hafði þó
ReynirB. yfirleitt frumkvæðið. í leikhléi hafði FH þriggja marka
Eiríksson forskoti. Um miðjan síðari hálfleik náðu FH-ingar fimm
marka forskoti, er þeir gerðu fjögur mörk í röð, og má
segja að þarmeð hafi úrslitin verið ráðin.
KA - FH 24:27
íþróttahöllin Akureyri, íslandsmótið í handknattleik, 1. deild — VÍS-keppnin — föstudag-
inn 16. nóvember 1990.
Gangur leiksins: 0:1, 4:4, 7:7, 8:10, 10:13, 11:15, 14:16, 16:18, 17:22, 21:24, 24:27.
Mörk KA: Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 7/1, Pétur Bjamason 6, Hans Guðmundsson 5,
Erlingur Kristjánsson 5, Andrés Magnússon 1.
Varin skot: Áxel Stefánsson 5/1, Bjöm Bjömsson 5. Utan valiar: 8 mínútur.
Mörk FH: Guðjón Ámason 8, Stefán Kristjánsson 8/3, Knútur Sigurðsson 4, Pétur Peter-
sen 3, Hálfdán Þórðarson 2, Þorgils Óttar Mathiesen 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 12. Utan vallar: 10 mínútur. Stefán Kristjánsson
rautt spjald.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og Guðjón L. Sigurðsson. Áhorfendur: Um 200.
skrífarfrá
Akureyrí
Mm
FOLK
■ PÁLL Kolbeinsson hefur verið
kjörinn körfuknattleiksmaður árs-
ins af stjórn KKI. Hann var einn
besti maður íslandsmeistara KR og
landsliðsins, auk þess að vera valinn
í Norðurlandaúrvalið fyrir skömmu.
■ BJARNI Sigurðsson er knatt-
spyrnumaður ársins, samkvæmt
útnefningu KSÍ. Bjarni lék mjög
vel með bikarmeisturum Vals, og
landsliðinu í undankeppni EM.
■ FRAKKAR mæta Albönum í
dag í 1. riðli undankeppni EM.
Frakkar geta þó ekki stillt upp
sterkasta liði sínu vegna meiðsla.
Jean-Pierre Papin og Eric Can-
tona, sem skoruðu fyrir Frakka á
Laugardalsvellinum í september,
eru meiddir og Philippe Vercru-
ysse og Manuel Amoros verða
heldur ekki með. „Ég sætti mig við
l:0-sigur með marki á 89. mínútu,“
sagði Michel Platini, þjálfari
franska landsliðsins.
■ STEPHEN Hendry, heims-
meistari í snóker, hefur hætt við
að keppa í sterku móti í janúar.
Hann segist ekki vilja keppa á sama
móti og ólátabelgurinn Alex Higg-
ins sem var dæmdur í árs bann í
maí sl. „Higgins er snjall leikmaður
en bann er bann,“ sagði Hendry.
Higgins var dæmdur í bann eftir
röð brota þar sem hann hótaði m.a.
landa sínum, Denis Taylor, lífláti.
URSLIT
Handknattleikur:
2. dcild karla:
Breiðablik—ÍBK.............29:15
Njarðvik—Ármann............22:21
ÍS—Völsungur...............16:20
1. deild kvenna:
ÍBV-FH.....................13:23
Blak
1. deild kvenna:
Breiðablik—Víkingur..........1:3
Völsungur—HK.....3:0 (15:9 15:4 15:6)
1. DEILD KARLA
VÍKINGUR 11 11 0 0 272: 227 22
VALUR 11 9 1 1 264: 229 19
STJARNAN 11 8 0 3 267: 250 16
FH 12 6 2 4 280: 271 14
KR 12 3 6 3 271: 275 12
HAUKAR 10 6 0 4 226: 230 12
ÍBV 11 4 2 5 269: 262 10
KA 12 4 1 7 284: 270 9
GRÓTTA 11 3 1 7 238: 250 7
ÍR 11 2 1 8 234: 266 5
FRAM 1 1 1 2 8 225: 261 4
SELFOSS 11 1 2 8 223: 262 4
KNATTSPYRNA
„Eitt núll! Eitt núll! Rodrigues og Toulon taka [Arnór] Guðjohnsen hjá Bordeaux í fyrstu kennslustundina í frönsku.
Það er engu líkara en nefndur leikmaður Toulon sé að kalla í eyra Arnórs - en Toulon vann leikinn einmitt 1:0...
Jón Grétar leikur med
Val—Ormarr þjálfar KA
Jón Grétar Jónsson, leikmaður
KA á Akureyri, hefur ákveðið
að ganga til liðs við sitt gamla
félag, Val.' Svo gaéti farið að hann
léki með Valsliðsinu strax á morg-
un, á punktamóti KSÍ sem fram
fer á Ákranesi.
Jón Grétar hefur leikið með
KA síðastliðin tvö keppnistímabil;
og varð íslandsmeistari með Ak-
ureyrarliðinu i fyrra.
KA-menn hafa gengið frá ráðn-
ingu Ormarrs Örlygssonar sem
þjálfara — en viðræður hafa verið
í gangi undanfarið — og
mun Ormarr
ión Grétar
hann einnig leika með liðinu. Þar
með hafa öll 1. deildarliðin tíu
ráðið þjálfara fyrir næsta sumar.
Þeir eru:
■Fram: Ásgeir Elíasson.
■KR: Ian Ross.
■ÍBV: Sigurlás Þorleifsson.
■Valur: Ingi Björn Albertsson.
■Stjarnan: Jóhannes Atlason.
■Víkingur: Logi Ólafsson.
■FH: Olafur Jóhannesson.
■KA: Ormarr Örlygsson.
■Breiðablik: Hörður Hilmarsson.
■Víðir: Óskar Ingimundarson.
FRJALSIÞROTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pétri Guðmundssyni voru í gær afhentar 100.000 krónur vegna íslands-
metsins í kúluvarpi, sem hann setti um sl. helgi. Jöfur hf. hét á Pétur ef hann
bætti 13 ára met Hreins Halldórssonar — það gekk eftir og á myndinni afhend-
ir Auðunn Bjarni Ólafsson, sölustjóri hjá Jöfri, íslandsmethafanum 100.000
kr. ávísun.
GETRAUNIR
Van Basten í
4 leikja bann
Markakóngurinn hollenski,
Marco Van Basten, sem leik-
ur með ítalska félaginu AC Mílanó,
var í gær úrskurðaður í fjögurra
leikja bann í Evrópukeppninni.
Ástæðan var sú að hann sló mót-
herja í Evrópuleik gegn Club
Brugge fyrir skömmu.
Van Basten var rekinn út af fyr-
ir að slá Pascal Plovie í leiknum,
sem ítalska liðið vann 1:0, og komst
þar með áfram í keppninni.
—fV4,— Staðan á ýmsum tímum Hálfleikur Úrslit Mín spá 1 x 2 12 réttir 46 leik
/’AM
Arsenal : Southampton
Coventry City : Liverpool
Leeds Utd. : Derby County
Luton Town : Manchester City
Norwich City : Aston Villa
Notth. Forest : Sunderland
Queens Park R. : Crystal Palace
Wimbiedon : Chelsea
Ipswich Town : Notts County
Leicester City : Wolves
Port Vale : Oldham
West Brom.A. : Blackburn
Iþróttir
helgarinnar
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Garðabær. Stjaman - ÍR.......16.30
Laug.d.höll: Víkingur - Haukar.... 16.30
Valsheimili: Valur- Grótta.16.30
1. deild kvenna:
Valsheimili: Valur- Stjaman..17.45
Vestm. eyjar: ÍBV - FH....13.30
2. deild karla:
Varmá: UMFA - Völsungur...14.00
Sunnudagur
1. deild karla:
HöU: Fram - Selfoss.......20.00
1. deild kvenna:
Höll: Fram - Selfoss.........18.30
Seitj.nes: Grótta - Víkingur.18.00
2. deild karla:
Strandgata: ÍH - ÍK.......19.30
Körfuknattleikur
Sunnudagur
Úrvalsdcild:
Akureyri: Þór - Valur....20.00
Keflavík: ÍBK - UMFG.....20.00
Seljaskóli: lR - KR......20.00
Stykkishólmur: Snæfell -Haukar .20.00
Blak
Eaugardagur
Karlar:
Akureyri: KA - HK.........14.30
Konur:
Húsavik: Völsungur - Þróttuur N .14.00
Akureyri: KA - HK.........15.45
Sunnudagur
Konur:
Hagaskóii: Víkingur- ÍS.....14.00
Kariar:
Fram-ÍS..................15.15
Knattspyrna
Sunnudagur
Fyrsta punktamót KSÍ i vetur fer
fram á Akranesi á morgun. Leikið verð-
ur í báðum íþróttahúsum bæjarins; á
Jaðarsbökkum og við Vesturgötu.
Keppni hefst kl. 10.00 í báðum húsum.
Úrslitakeppni hefst kl. 16.00 (þvf síðar-
nefnda.