Morgunblaðið - 16.01.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
"Tv-
15
„Alvísmál“ hæsta-
réttarlögmamisins
eftir Hörð Pálsson
Mikið var skemmtilegt að lesa
grein Gunnlaugs Þórðarsonar
hæstaréttarlögmanns í Morgun-
blaðinu 11. janúar. Sumir menn
eru nefnilega svo vel af Guði gerð-
ir að þeir vita flesta hluti betur
en aðrir, að minnsta kosti áð eigin
dómi.
Ég hafði löngum haldið að
áfengisneysla og akstur færi illa
saman. En það hlýtur að vera
misskilningur fyrst hæstaréttar-
lögmaðurinn er á öðru máli.
Ég hafði haldið að bjórvambir
og skorpulifrar Dana sýndu annað
en raunsæi „til fyrirmyndar í lög-
gjafarstarfi“. Það hlýtur líka að
vera rangt úr því að hæstaréttar-
lögmaðurinn er annarrar skoðun-
ar.
Samkvæmt skýrslum, sem lög-
reglan í Reykjavík birtir í Morgun-
blaðinu hvern þriðjudag, er
drykkjá helsta orsök illinda,
skemmdarverka, ofbeldis og ann-
arra afbrota. „Vín er og verður
mannsættir,“ segir hæstaréttar-
lögmaðurinn og veit að sjálfsögðú
betur en lögreglan.'
Margan fjörugan og ánægjuleg-
an mannfagnað hef ég setið þar
sem áfengi var ekki um hönd haft.
Aldrei enduðu þau samkvæmi með
rifrildi eða áflogum og aldrei varð
þar neinn ófær fyrir drykkju sak-
ir. 'Sjálfsagt er þetta misminni hjá
mér því að hæstaréttarlögmaður-
inn segir slíka mannfundi „ömur-
legar gleðisamkomur“ — hvernig
sem ber nú að skilja það orðafar.
„Varla er hægt að hugsa sér
dapurlegra brúðkaup en þar sem
engu vínglasi er lyft,“ skrifar
hæstaréttarlögmaðurinn og veit
það náttúrlega manna best eins
og annað. Hann telur víndrykkju
þá líklega gott veganesti í hjóna-
bandinu. Það er þá líklega mis-
skilningur að drykkja valdi oft ill-
deilum hjóna, sundurþykkju og
skilnaði?
Eitt skemmtilegasta atriðið í
grein hæstaréttarlögmannsins og
það sem sýnir hvað best skarp-
skyggni hans er kaflinn um hand-
tökur þeirfa sem grunaðir eru um
ölvun við akstur. Þar segir: „Að
mínu áliti geta lögreglumenn ekki
tekið mann fastan við akstur og
farið með í áfengisprufu bóta-
Breski tog-
arinn bleytti
trollið ekki
EKKI varð af því að breski
togarinn Arctic Ranger
bleytti veiðarfæri sín innan
íslenskrar landhelgi um
helgina, en það hefði verið
í fyrsta sinn frá 1976 sem
breskur togari hefði sett út
troll í 200 mílna landhelg-
inni.
Eins og skýrt var frá í
Morgunblaðinu á laugardag
hafði verið veitt heimild fyrir
því að togarinn fengi að bleyta
veiðarfærin, til að kanna hvort
viðgerð á spilinu um borð hefði
tekist sem skyldi. Ætlunin var
að senda eftirlitsmann frá
Landhelgisgæslunni um borð.
„Af einhveijum ástæðum
sigldi togarinn á laugardag,
áleiðis á miðin við Nýfundna-
land, án þess að skipveijar
kveddu kóng eða prest og því
varð ekkert úr þessu,“ sagði
Helgi Hallvarðsson, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni.
Hörður Pálsson
„Margan fjörugan og
ánægjulegan mann-
fagnað hef ég setið þar
sem áfengi var ekki um
hönd haft.“
laust, ef hinn handtekni reynist
vera með undir 0,50%o í blóðinu.“
Lögreglumenn eiga sem sé að sjá
af hyggjuviti sínu einu hvort öku-
maður, grunaður um ölvun, er með
0,40%o eða 0,60%o áfengis í blóði.
Enda er það náttúrlega óþörf af-
skiptasemi af lögreglu að vera að
skipta sér af því hvort ökumaður
hefur „lyft glasi“ til að kasta af
sér eðlislægri geðvonsku og
drunganum og „komast í hátíða-
skap“.
Hæstaréttarlögmaðurinn telur í
þessum alvísmálum sínum að
vondir frumvarpsflytjendur liggi á
því lúalagi að leitast við að blekkja
saklausa alþingismenn og svokall-
aðan almenning. Það er hins vegar
hægt að fullyrða — og vonandi
hæstaréttarlögmanninum til léttis
— að þessi kátlega grein hans
blekkir sjálfsagt fáa — og áreiðan-
lega ekki nema þá allra fátækustu
í andanum.
Höfundur er bakarameistari.
Sparileiðir
íslandsbanka
fœra þér væna ávöxtun!
Á síbustlibnu ári nutu sporifjáreigendur góbro vaxtakjara hjá íslandsbanka.
Ávöxtun Sparileibanna árib 7 990 var þessi:
Sparileiö
Ársávöxtun Raunávöxtun
10,8% - 11,4% 3,4% - 3,9%
Sparileib
Sparileiö
Sparileiö*
>
>
>
11,1%- 12,0%
13,31%
3,7% - 4,6%
5,75%
10,17% 6,10%
Sparileib 4 var hleypt af stokkunum 7 .september 1990.
Ávaxtaðu sparifé þitt á árangursríkan hátt.
Farðu þínar eigin leiðir í sparnaði!
ISLANDSBANKI
- i takt við nýja tíma!
Fullkomn un
fíak við sérhverja hönnun liggur leitun nó fornii öp eins og sést A egginu er
þad oftast náttúran sjálf sem kemst næst hinm eftinNtu FULLKOMNUN
YDDA F26.67 / SÍA