Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 16
16 : ?>' HMMAl .M HUDAOJLMJWIM tílGA..líMöaílQN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991 FileMaker • Macintosh © Námskeiö fyrir alla sem vinna úrupplýsingum! 12 klst hagnýtt gagnasafnsnámskeið!. % Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 - fimm ár í forystu LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 (•) SHOIOKAtf KARh’SE Byrjendanámskeið karatedeildar Breiðabliks eru að hefjast í íþróttahúsinu, Digranesi. Skipteríaldurs- hópa. Þjálfari verður Poh Lim 4. dan ásamt karatefólki úr Breiða- bliki. Mánudaga frá kl. 19.30-22.00 Miðvikudaga frá kl. 19.30-22.00 Föstudaga frákl. 19.30-22.00 Upplýsingaroginnrit- un á staðnum og í sfma 43699 frákl. 18-22 í kvöld og næstu viku. _Dale . Carnegie þjálfun Ræöumennska og mannleg samskipti. Kynningarfundur Verður haldinn fimmtudagskvöld kl. 20:30 að Sogavegi 69, gengið inn að norðanverðu. Námskeiðið getur hjálpaö þér að verða betri ræðumaður og þjálfað þig í mannlegum sam- skiptum. Lífskrafturinn verður meiri og þú heldur áhyggjunum í skefjum og byggir upp meira öryggi. Allir velkomnir. Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. VISAS Innritun og upplýsingar í síma: 82411 0 STJÓRI\IUIUARSKÓLII\II\I Konráö Adolphsson. Einkaumboö fyrir Dale Carnegie námskeiöin'' Lofsyrði og lófatak til Kristjáns Jóhannssonar Kristján á opnunarsýningn vetrarins í San Carlo í Napólí Það er enginn kotungsbragur yfir fullskipuðu sviðinu í Cavelleria rusticana í San Carlo. Sýningin hlaut þó misjafnar viðtökur, en lof- ið til Kristjáns var einróma. Hinn 12. desember hófst vetrr arstarf San Carlo-óperuhússins í Napólí með sýningu á Cavalleria rusticana. Vegna þess hve húsið er utan sjóndeildarhrings íslend- inga, þótt víðfrægt sé, þætti það kannski vart í frásögur færandi ef íslenskur söngvari hefði ekki farið með aðalhlutverkið þar. Krislján Jóhannsson söng hlut- verk Turiddus og hlaut óspart lof fyrir, bæði úr lófum áheyr- enda og úr pennum óperugagn- rýnenda ítalskra dagblaða, eins og getið er hér á eftir. Húsiðvar opnað og salurinn troð- fylltist. Á undan óperunni var sýnd þögul, ítölsk kvikmynd frá 1914, með þekktri stjörnu þess.tíma, Lydu Borelli. Ástæðan fyrir sýningunni var sú að Pietro Mascagni, sem samdi Cavelleria, samdi á sínum tónlist við myndina og hún var í þetta skiptið flutt af hljómsveit hússins. Það virðist í nokkru uppá- haldi þarna að sýna gamlar myndir með undirleik hljómsveitar. í sumar stjórnaði'Vladimir Askenazi flutn- ingi kórs og hljómsveitar Bolsjoi- leikhússins á tónlist Prókoffjeffs við kvikmynd Eisensteíns um ívan grimma í útileikhúsi í Pompeij, rétt utan við Napólí, um leið og_ mynd- inni var rennt yfir tjaldið. Án þess að hafa séð slíka sýningu virðist fyrirtækið óspennandi. Samkvæmt frásögnum ítalskra blað dró þögla myndin að sér litla athygli í San Carlo, allir biðu spenntir eftir Cav- alleria. Saga San Carlo og Cavalleria rusticana er samtvinnuð. Verkið var frumsýnt í Róm árið 1890 og átti því hundað ára afmæli á síðastliðnu • ári. í janúar 1891 var óperan frum- sýnd í San Carlo, aðeins nokkrum mánuðum eftir frumuppfærsluna í Róm og þá með nokkrum höfuð- söngvurum þess tíma. Og síðan hefur hún verið flutt þar oft. Ben- iamino Gigli söng fyrst hlutverk Turiddus þar í uppfærslu 1916 og síðan aftur 1952, þá 62 ára að aldri. San Carlo-óperuhúsið En áður en vikið verður að ítölsk- um umsögrium um sýninguna, sem reyndar var sýnd í íslenska sjón- varpinu um jólin, og einkum hlut Kristjáns, er ekki úr vegi að reika um sjálft óperuhúsið. Napólíbúar segja sjálfír að það sé bæði fallegra og betra en höfuðóperuhús ítala, La Scala í Mílanó. Það var byggt árið 1737, fjórum áratugum á und- an Scala, en endurbyggt árið 1816 eftir eldsvoða. Franski rithöfundur- inn Stendhal lýsti húsinu með þeim orðum að fyrstu áhrifin væru eins og að vera leiddur í höll austur- lensks keisara. Ekkert hús í Evrópu nálgaðist San Carlo eða gæfi svo MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur skipað nefnd sem á að fjalla um kynningu á íslenskri menningu erlendis. I nefndinni eiga sæti: Halldór Guðmunds- son, tilnefndur af fjármálaráð- herra, Jakob Frímann Magnús- son, tilnefndur af utanríkisráð- herra, Jón Sveinsson, tilnefndur af forsætisráðherra, og Guðrún Ágústsdóttir, tilnefnd af menntamálaráðherra, í fram- háldi af samþykkt ríkisstjórnar- innar. Ákveðið var á fundi ríkisstjórn- arinnar 30. október sl. að skipa nefnd til að kanna áhuga á sam- vinnu um átak til kynningar á íslenskri list erlendis og samhæf- ingu þeirra krafta sem þegar vinna mikið sem daufa hugmynd um hvemig það væri. Það er nokkur metingur á milli þessara tveggja húsa, San Carlo og La Scala. I viðtali við eitt Napólí- blaðanna sagði Kristján að San Carlo væri frábært óperuhús og það besta sem hann hefði sungið í hing- að til, betra en Scala. í Scala væru staðir sem ekki bæru hljóðið nægi- lega vel, en ekki í þessu húsi. Umfram allt væri sami stórfenglegi endurómurinn í húsinu. Kristján vissi vafalaust hvað hann var að segja og þessi orð hljóta að hafa hljómað sem fegursta tónlist í eyr- um Napólíbúa. Fram á síðustu öld sat konungur í Napólí ásamt hirð sinni og það eimir enn eftir af því andrúmslofti í Napólí, þegar vel er að gáð. Og -það er heldur ekkert smáræðis virð- ulegt, þegar húsið hefur vetrarstarf sitt. Það er landsviðburður og blöð- in keppast við að telja upp alls kyns pótintáta, sem varpa ljóma á kvöld- ið. Og þetta opnunarkvöld var eng- in undantekning. Þar mættu ráð- herrar frá Róm, stjórnmálamenn, að þessu máli hér á landi. Éinnig skal nefndin fjalla sérstaklega um kynningu á íslenskri dægurtónlist erlendis. (Fréttatilkynning) ■ VEGNA deilu stundakennara og fjármálaráðherra um laun fyrir stundakennara á háskólastigi vill stjórn Félags íslenskra fræða beina þeim tilmælum til félags- manna að þeir taki ekki að sér stundakennslu við háskóla, sem greitt er fyrir samkvæmt einhliða ákvörðun fjármálaráðuneytis. Jafn- framt er mælst til þess að félags- menn gangi ekki í störf þeirra stundakennara sem nú deila við fjármálaráðherra. (Fréttatilkynning) leikarar og aðrir listamenn eins og ballettdansarinn rússneski Rudolph Nureyev, svo fáir einir séu tíndir til. Nureyev hefur starfað við bal- lett hússins. En fínheiturrum skýtur ekki að- eins upp á yfirborðið á frumsýning- um. Húsið starfar hluta sumarsins og einnig þá mæta Napólíbúar sjálf- ir á sýningar hússins, en láta það ekki eingöngu ferðamönnum eftir. Jafnvel á síðdegissýningu kl. 17 á sólbökuðum júlídegi streyma inn- fæddir að húsinu, karlmennirnir í jakkafötum, hvítum skyrtum og með silkihálsbindi. Konurnar í drögtum og silkiblússum, í þunnum sokkum og háhæiuðum skóm, vel málaðar og greiddar. Óperuhúsið er í miðbænum og þangað er vart hægt að komast öðruvísi en með því að ryðja sér braut eftir troðfull- um gangstéttum, eða koma á bíl, sem tekur vart minna en hálftíma, sama hve stutt er farið því umferð- in er gífurleg. Það er mér hulin ráðgáta hvemig hægt er að líta svo snyrtilega og frískleg út í miðborg Napóli um hásumarið. Meðan þetta uppábúna og yfir- vegaða fólk streymdi að beið ég félaga míns í súlnagöngunum fyrir utan húsið. Ég hafði verið á randi um borgina frá því snemma um morguninn og bómullarkjóllinn minn var orðinn rækilega þvældur, hárið límt af svita og borgarrykið, svo ekki sé sagt skíturinn, sat eins og skán utan á mér. Meðan ég beið dró ég upp pottflösku með volgu sódavatni og skolaði rykið af fótleggjunum svona eins og vel- sæmið leyfði, af handleggjum .og andliti og greiddi mér. Eftir þvott- inn leið mér mun betur, fannst ég eiginlega bara fín, þar til ég leit aftur upp og sá silkiklæddar döm- urnar skáskjóta sér inn á háhæluð- um skóm, horfandi hneykslaðar á aðfarir mtnar þar sem ég stóð á klossuðum sandölum í sódavatns- pollinum. Sætaskipan hússins er þannig að niðri í salnum eru sæti, eins og lög gera ráð fyrir. Uppi af salnum eru svo nokkrar hæðir og á hverri hæð eru stúkur með lausum stólum, Nefnd fjallar um kynningu á íslenskri menningu erlendis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.