Morgunblaðið - 16.01.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
17
ekki bekkir. Sætaverðið er býsna
*■" misjafnt, gerist ódýrara eftir því
sem ofar dregur, hræódýrt efst. í
hverri stúku eru svo tvær sætarað-
ir í miðri stúkunni, með þremur eða
fjórum sætum hvor og til hliðar eru
ódýrari sæti, þijú hvoru megin, þar
sem maður situr og snýr hliðinni
að sviðinu og svo enn önnur sæti
innst og ódýrust. Eftir að hafa kom-
ið plastpoka með kvöldmatnum,
sprengþroskuðum melónum, fyrir á
gólfinu hófst sýningin. Himnesk
uppfærsla á Maddömu Butterfly
Puccinis rann yfir sviðið. Tónlistin
blandaðist vel þungum og höfugum
ilmi melónanna, sem fyllti stúkuna
og leið út yfir salinn.
í hléi liggur beint við að ganga
niður í salinn á fyrstu hæð, þar sem
er hægt að hressa sig á drykkjar-
föngum og virða fyrir sér prúðbúna
Napólíbúa. Fyrir þá sem hafa gam-
an af klæðaburði og manngerðum
er það heillandi viðfangsefni að
virða Itali fyrir sér. Það er engin
Evrópuþjóð, sem eyðir jafn miklu í
föt og þeir og það sér á. Og svo
er látæði þeirra slíkt að það er aldr-
ei dauflegt í námunda við þá. En
það ætti enginn að heimsækja San
Carlo-óperuna án þess að koma við
á snyrtingunni. Ég veit ekki hvort
þær eru allar eins en þarna uppi á
annarri hæð var hún heimsóknar
virði. Það þarf að biðja um lykilinn
í fatageymslunni. Þetta var stórt
marmaraklætt herbergi og ég skil
ekkert í af hveiju hluti plássins er
ekki notaður undir sturtu. Nóg er
rýmið,'en Napólíbúar sjálfir eiga
auðvitað ekki í néinum vandræðum
með að líta frísklega út. Úr stórum
glugga var dýrlegt útsýni yfir nær-
liggjandi torg og fagurlega skreytt-
ar byggingar.
Kristján hressti upp
á annars dauflega sýningu
Umsögnum blaðanna ber saman
um að sýningin sjálf hafi ekki verið
eins og best getur orðið. Shirley
Verrett söng hlutverk Santuzzu.
Verrett er gamalreynd söngkona
og þetta hlutverk hefur verið eitt
af hennar glansnúmerum. í þetta
skiptið þótt glansinn ekki jafn mik-
ill og oft áður. í II mattino segir
að hátíðarkvöldið hafi verið stutt
og án sérlegrar ákefðar. Kristján
Jóhannsson hafi fengið mesta
klappið, enda runnið inn í hlutverk-
ið af blóði og ástríðu. Um hlut
Verrett hafi menn ekki verið eins
sammála, þó að henni hafi tekist
með reynslu sinni að bregðast við
rödd, sem á köflum hafi ekki verið
heil. I blaðinu segir að sýningarinn-
ar hafi verið beðið með eftirvænt-
ingu, sem þó ekki rættist. Síðan er
sagt frá því að eftir sýninguna
blandaði Verrett sér í hóp gesta og
sagði þá að svona væri þetta alltaf
á frumsýningu, en henni hefði þó
fundist allt fara vel. Á morgun
gerðu þau betur og svo hefði hún
brosað fallega, þó að brosið hefði
ekki verið áreynslulaust. Um Krist-
ján segir ennfremur að allir söngv-
ararnir hafi notið góðs af viðurvist
hans vegna stíls hans og túlkunar,
en ekki síst fyrir raddgæði hans.
í blaðinu Roma segir að Verrett
hafi verið sannfærandi og henni
tekist að holdgera þjáningu og
ástríðu Santuzzu. Hinn norræni
tenór, Kristján Jóhannsson, ljós-
hærður og bláeygður dragi sannar-
lega að sér athygli á sviði, fraser-
aði fallega og hefði þróttmikla rödd.
í blaðinu Repubblica er talað «m
frumsýningarkvöld með hæðum og
lægðum, stútfullu húsi og volgri
Cavalleria ... „og Jóhannsson dró
klappið frá Verrett". Uppfærslan
hefði verið án tilfinninga og hefði
þó vakið lófatak, en ekki ákaft lófa-
tak. „Hinn sanni sigurvegari
kvöldsins var Kristján Jóhannsson."
Hann hefði sannað sig vel og hefði
að lokum einnig skyggt á frammi-
stöðu Verrett. Frammistaða stjórn-
andans, Vjekoslav Sutejs, væri ekki
til að minnast og henni hefði fylgt
hefðbundið „buuuuu".
Um langa hríð hefur verið spenn-
andi að fylgjast með ferli Kristjáns
Jóhannssonar. Af frammistöðu
hans í San Carlo er ljóst að það
verður ekki minna spennandi á
næstunni.
Texti: Sigrún Davíðsdóttir.
Fjörufuglar aö vetrarlagi
FJÓRÐI rabbfundur um náttúru íslands verður haldinn á vegum
Náttúrufræðistofu Kópavogs og Náttúruverndarfélags Suðvestur-
lands í Náttúrufræðistofu Kópavogs fimmtudaginn 17. janúar kl.
21.00.
Að þessu sinni verður fjallað
um þær tegundur fugla sem unnt
er að skoða við strendur landsins
um þetta leyti. Þegar grannt er
skoðað eru það furðu margar teg-
undir. Hamir fugla munu liggja
frammi til að auðvelda greiningu.
Reyndir fuglaskoðarar verða á
fundinum.
Laugardaginn 19. janúar verður
gengið á fjörur og fuglalífið skoð-
að. Mæting við Olíustöð Skeljungs
í Skeijafirði kl. 13.30.
(Fréttatilkynning)
Skúfandapar
STAÐGREIÐS LA
Skatthlutfall
og persónuafsláttur
árið 1991
Áríðandi er að launagreiðendur kynni sér
rétt skatthlutfall og skattafslátt 1991
Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt-
hlutfalli og persónuafslætti veröa ný
skattkort ekki gefin út til þeirra sem
þegar hafa fengið skattkort.
Frá og með 1. janúar 1991 ber launa-
greiðanda því að reikna staðgreiðslu af
launum miðað við auglýst skatthlutfall
og upphæð persónuafsláttar og taka
tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar
sem tilgreint er á skattkorti launamanns.
Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991
verða einungis gefin út til þeirra sem
öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Á þeim
verður aðeins tilgreint hlutfall persónu-
afsláttar auk persónubundinna upplýs-
inga um launamanninn en skatthlutfall
og upphæð persónuafsláttar kemur þar
ekki fram.
Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr
gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort
með uppsöfnuðum persónuafslætti og
námsmannaskattkort útgefin 1988-1990.
Skatthlutfall
staðgreiðslu er 39,79%
Á árinu 1991 verður skatthlutfall
staðgreiðslu 39.79%. SkatthIutfa11
barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða
síðar, verður 6%.
Persónuafsláttur
er22.831 kr.
Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið
ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur
persónuafsláttur verður þá 22.831 kr.
Sjómannaafsláttur
er 630 kr.
Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður
630 kr. fyrir hvern dag sem maður telst
stunda sjómannsstörf.
Breytingar siðar á árinu
Breytingar sem kunna að verða á upp-
hæð persónu- og sjómannaafsláttar
síðar á þessu ári verða auglýstar sér-
staklega. Auk þess fá allir launagreið-
endur sem hafa tilkynnt sig til launa-
greiðendaskrár RSK orðsendingu um
breytingar á fjárhæðum.
HVÍTA HÚSIÐ / SlA