Morgunblaðið - 16.01.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
21
Ástandið í Vilnius
tiltölulega rólegt
—segir utanr íkismálaráðgj afi Landsbergis forseta í símaviðtali
VYTAUTAS Landsbergis, forseti Litháens, og aðrir helstu ráðamenn
héldu enn kyrru fyrir í húsakynnum þingsins í Vilnius er síðast frétt-
ist. Morgunblaðið náði símasambandi við Ramunas Bogdanas, helsta
ráðgjafa Landsbergis í utanríkismálum, síðdegis í gær þar sem hann
var staddur í þinghúsinu og spurði hvernig ástandið væri í borginni.
„Hér er allt með tiltölulega róleg-
um hætti núna,“ sagði Bogdanas.
„Sovésk yfirvöld hafa ekki komið
neinum nýjum hótunum á framfæri
um hríð. Viðbrögð umheimsins við
ofbeldisverkum Rauða hersins í
Vilnius hafa verið mjög hörð en svo
virðist sem Sovétmenn kæri sig
kollótta.“
Bogdanas sagði stuðning ís-
lenskra stjórnvalda við málstað Lit-
háa vera mjög mikilvægan, ráða-
menn í Vilnius litu á íslenska kol-
lega sína sem vini. Hann sagði að
enn hefði ekkert ríki tekið upp full-
stjómmálatengsl við stjórnina í Vil-
nius með skiptum á stjórnarerind-
rekum en að því hlyti að koma.
Hann var spurður hvort litháísk
stjórnvöld gætu tryggt starfsemi
erlendra stjómarerindreka í landi
sínu þar sem Sovétherinn héldi því
í raun í heljargreipum. „Fram-
kvæmdaatriði af þessu tagi yrði að
sjálfsögðu að semja um við viðkom-
andi ríki sem vill styðja okkur með
þessum hætti. Stjórn okkar ræður
ríkjum í landinu en við verðum að
horfast í augu við erlent hernám-
slið sem m.a. annast landamæra-
gæslu. Það merkir ekki að liðið
stjómi landinu sjálfu, efnahagslífi
þess eða á öðrum sviðum. Séu sömu
rök og þú nefndir notuð gegn fullum
stjórnmálatengslum ættu þau einn-
ig að gilda um Kúveit sem er her-
Albanía:
Grikkirreyna
að binda enda
á fólksflótta
Aþenu, Tírana. Reuter.
KONSTANTIN Mitsotakis, for-
sætisráðherra Grikklands,
hvatti til þess í heimsókn sinni
til Albaníu á niánudag að endi
yrði bundinn á flóttamanna-
straum Albana af grískum
uppruna til Grikklands. Rúm-
lega 1.100 Albanir flýðu þangað
um helgina og frá í desember
hafa á áttunda þúsund manns
flúið.
Grikkir hafa látið í ljós miklar
áhyggjur vegna flóttamanna-
vandans og hafa heitið Albönum
stuðningi við að koma á pólitískum
og efnahagslegum umbótum geri
þeir ráðstafanir til þess að letja
fólk frá því að flýja.
Albanska stjórnin hefur heitið
Grikkjum því að flóttamennirnir
geti snúið heim án nokkurra eftir-
mála en hafnað ósk um að lýsa
því yfir að flóttamennirnir fengju
sjálfkrafa sakaruppgjöf.
numið, Panama var einnig hernum-
ið um hríð fyrir skemmstu en ekki
var slitið stjórnmálatengslum við
þessönd. Mér finnst þetta því ekki
duga sem lagaleg rök gegn fullum
stjómmálasamskiptum við okkur.
Slík tengsl yrðu okkur gífurlega
mikils virði vegna þess að þá yrði
framferði hernámsliðsins skilgreint
sem brot alþjóðareglum um sam-
skipti ríkja. Ef þetta hefði gerst
áður en til ofbeldisverkanna kom
væri staða mála okkar allt önnur
núna.“
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...
iUHtMM
Söluskrifstofur Flugleiöa:
Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i sima 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum
HELGARFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL ÞRIÐ JUDAGS
HÓTEL MUSEUM
TVEIR í HERB. KR. 38.610 Á MANN
FLUGLEIDIR
Þjónusta alla leið