Morgunblaðið - 16.01.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
27
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1.janúar1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ............... 11.497
’/z hjónalífeyrir ................................... 10.347
Full tekjutrygging .................................. 21.154
Heimilisuppbót ....................................... 7.191
Sérstök heimilisuppbót ............................... 4.946
Barnalífeyrir v/1 barns .............................. 7.042
Meðlag v/1 barns ..................................... 7.042
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns .........................4.412
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna .................... 11.562
Mæðralaun/feðralaunv/3jabarnaeðafleiri .............. 20.507
Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ..................... 14.406
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða .................... 10.802
Fullur ekkjulífeyrir ................................ 11.497
Dánarbæturí8ár(v/slysa) ............................. 14.406
Fæðingarstyrkur .................................... 23.398
Vasapeningarvistmanna ................................. 7.089
Vasapeningarv/sjúkratrygginga .......................; 5.957
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar ........................... 981,00
Sjúkradagpeningareinstaklings ....................... 490,70
Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ........... 133,15
Slysadagpeningareinstaklings ........................ 620,80
Slysadagpeningarfyrirhvert barn áframfæri ........... 133,15
/
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÓRKUÐUM - HEIMA
15. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verS verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 125,00 87,00 122,76 7,138 876.240
Þorskur(óst) 82,00 80,00 80,96 0,724 58.614
Smáþorskur(ósl.) 75,00 •75,00 75,00 0,484 36.325
Ýsa 116,00 91,00 113,87 4,960 564.749
Ýsa (ósl.) 94,00 89,00 91,05 0,900 81.945
Karfi 50,00 46,00 47,57 23,162 1.101.702
Ufsi 53,00 51,00 52,48 3,768 876.240
Steinbítur 69,00 69,00 69,00 0,666 45.989
Steinbítur (ósl.) 69,00 69,00 69,00 0,003 207
Langa 69,00 69,00 69,00 0,305 21.042
Lúða 435,00 300,00 382,13 0,070 26.558
Koli 80,00 50,00 79,43 1,202 95.490
Keila 45,00 45,00 45,00 0,071 3.195
Skata 92,00 92,00 92,00 0,054 4.968
Skötuselur 181,00 181,00 181,00 0,023 4.163
Skötuselur 425,00 425,00 425,00 0,021 8.925
Samtals 71,82 43,550 3.127.815
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 114,00 77,00 98,72 46,759 4.616.067
Þorskur (ósl.) 90,00 80,00 86,15 13,236 1.140.217
Smáþorskur 90,00 90,00 90,00 5,541 498.690
Ýsa 117,00 81,00 99,24 4,263 423.073
Ýsa (ósl.) 105,00 79,00 84,83 0,775 65.742
Karfi 45,00 33,00 44,44 1,597 70.965
Ufsi 47,00 33,00 44,41 0,394 17.496
Steinbítur 69,00 65,00 67,92 3,422 232.414
Langa 73,00 57,00 69,89 13,206 922.951
Lúða 395,00 255,00 317,11 0,598 189.630
Skarkoli 85,00 70,00 81,25 0,080 6.500
Sólkoli 110,00 110,00 110,00 0,048 5.280
Lifur 32,00 20,00 26,81 0,145 3.888
Keila 43,00 38,00 39,14 1,296 50.727
Skata 105,00 105,00 105,00 0,032 3.360
Kinnar 215,00 205,00 210,00 0,040 8.400
Gellur 350,00 350,00 350,00 0,009 3.080
Hrogn 315,00 190,00 272,42 0,271 73.825
Blandað 63,00 50,00 50,75 0,279 14.158
Undirmál 82,00 65,00 80,76 0,659 53.222
Samtals 90,66 92,650 8.399.685
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 81,00 81,00 81,00 0,033 2.673
Þorskur (ósl.) 127,00 100,00 114,45 22,000 2.518
Ýsa (ósl.) 120,00 50,00 114,14 1,472 168.008
Karfi 47,00 44,00 46,47 1,190 55.303
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,705 10.575
Langa 60,00 44,00 52,73 0,739 38.970
Blálanga 80,00 80,00 80,00 2,483 198.638
Lúöa 620,00 270,00 445,76 0,564 251.410
Skarkoli 99,00 61,00 76,54 0,317 24.263
Keila 27,00 15,00 25,99 1,092 28.380
Skata 99,00 99,00 99,00 0,052 5.148
Náskata ■ 10,00 10,00- 10,00 0,044 440
Blandaö 10,00 10,00 10,00 0,022 220
Undirmál 70,00 70,00 70,00 0,055 3.850
Samtals 107,45 30,767 3.305.878
Selt var úr Búrfelli, Albert Ólafssyni og dagróðrabátum. í dag verður selt
úr dagróðrabátum.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
11. - 14.janúar
Tvö umferðarslys urðu um
helgina. Stúlka varð fyrir bifreið
á Völundarhúsi við V.esturhús um
miðjan dag á föstudag. Hún var
flutt á slysadeildina.
Aðfaranótt sunnudags um kl.
3.40 fannst 18 ára gamall maður
fótbrotinn á Vesturgötu. Vegfar-
endur höfðu komið að manninum
þar sem hann lá þar á götunni.
Hann virtist hafa legið þar nokk-
urn tíma, enda orðinn blautur og
kaldur. Maðurinn var fluttur á
slysadeildina. Hann sagðist hafa
verið að ganga yfír götuna á
móts við hús nr. 38 þegar ekið
hefði verið á hann. Ökumaðurinn,
á svörtum BMW, hefði stöðvað,
ekið spölkorn aftur á bak, stigið
úr úr bílnum án þess að huga
nánar að honum þar sem hann lá
í götunni, kallað eitthvað í 'attina
til hans. og ekið síðan á brott.
Talið er að gangandi vegfarand-
inn hafi fótbrotnað. Ökumaður
svarta BMW-bílsins er beðinn um
að hafa samband við slysarann-
sóknardeild lögreglunnar vegna
þessa atviks.
10 ökumenn, sem stöðvaðir
voru í akstri um helgina, eru grun-
aðir um ölvun við akstur. Einn
af þeim hafði lent í umferðaró-
happi.
Einungis um 30 manns gistu
fangageymslur lögreglunnar um
helgina. Þriðjungur þeirra var þar
að eigin frumkvæði þar sem þeir
áttu ekki í önnur hús að venda.
Svo virðist þó sem dregið hafi
nokkuð úr gistingum aðseturs-
lausra í fangageymslunum á
síðasta ári ef miðað er við fyrri
ár, en þó er talsvert langt í land
að viðunandi lausn fáist á að-
stöðuleysi þeirra.
Tilkynnt var um 14 innbrot og
9 þjófnaði. M.a. var brotist inn í
bakarí við Skúlagötu, verslun við
Gnoðarvog, blómabúð við Hvera-
fold, verslun í Skipholti, íbúð við
Yrsufell, í geymslu við Eyjabakka,
í verslun við Rofabæ, í rakara-
stofu við Skúlagötu, í söluturn og
fyrirtæki við Bíldshöfða og í bíó
við Kleppsveg.
Kvartað var yfir fressketti, sem
komið hafði óboðinn í kjallaraíbúð
í vesturbænum. Kötturinn, stór
og svartur, hefur margsinnis kom-
ið inn í íbúðina í óþökk húsráð-
anda, gert þarfir sínar þar innan
dyra og skilið önnur óþrif eftir
sig. Húsráðandi hefur þurft að
leggja á sig mikla vinnu í hvert
sinn við að hreinsa til eftir köttinn
eftir að hafa haft fyrir að koma
honum út. Nú var þolinmæði húsr-
áðanda á þrotum, en áður en lög-
reglan kom á vettvang hafði hon-
um tekist að koma kettinum út.
Köttur þessi er með hálsól og á
sennilega heimili á Grímstaðar-
holtinu. Af og til koma slíkar
kvartanir til lögi-eglu og er reynt
að bregðast við þeim eftir því sem
við á.
Hvassviðri og úrkoma var á
sunndudagsmorgun og talsvert
um að lausir hlutir tækjust á loft
og fastir legðust á hliðina. Þannig
urðu t.d. skemmdir á húsi í Þver-
ási vegna foks á járnplötum frá
nýbyggingu, umferðarljósavitar
við gatnamót Bæjarháls og Bæj-
arbrautar fúku um koll, girðing
við gamla Verslunarskólann við
Grundarstíg lagðist niður, jám-
plötur fuku í Borgartúni, jeppa-
kerra fauk út á götu í Hraunbæ,
plötur af gróðurhúsi fuku af gróð-
urhúsi við Hjallasel, kúpull fauk
af ljósastaur við Reykjanesbraut,
ljósastaur fauk um koll við Sæ-
braut og timbur fauk við nýbygg-
ingu við Nethyl. Úrkomunni fylgdi
mikill vatnselgur, bæði í gatna-
kerfinu og annars staðar.
Þrír menn vom handteknir í
verslun í Skipholti snemma á
sunnudagsmorgun. Þeir höfðu
brotist þar inn til þess að ná sér
í peninga. Einn þeirra er gmnaður
um að hafa brotist inn.
Um 80 manns mótmæltu að-
gerðunum í Sovétríkjunum við
sovéska sendiráðið á sunnudag.
Allt fór friðsamlega fram.
Vélsleða var ekið á girðingu
við Seljaskóla á sunnudag. Öku-
maðurinn meiddist ekki, en hann
var réttindalaus.
Ökumaður var stöðvaður í
akstri síðdegis á sunnudag. Sá
hafði neyðarljósavita á þaki bif-
reiðarinnar, en eins og sæmilega
upplýstu fólki má vera kunnugt
er slíkt óheimilt, nema sérstaklega
sé kveðið á um að það sé heimilt
samkvæmt reglum þar að lútandi.
Smásprengjur voru teknar af
strákum við Seljakaup á sunnu-
dagskvöld. Þá voru flugeldar
teknir af farþegum í bifreið í mið-
bænum á föstudagskvöldið. Þeir
höfðu gert sér það að leik að
skjóta þeim að gangandi vegfar-
endum.
Eldur kom upp í þvottavél í
húsi á föstudag. Það eru því ekki
einungis sjónvörp, sem fólk þarf
að fylgjast með heldur og önnur
heimilistæki.
Eitt atriði úr myndinni.
Laugarásbíó:
Sturluð lögga 2 frumsýnd
Ríkisstjóm-
in styður
Norrænt
dagsverk
Á ríkisstjórnarfundi í gær var
samþykkt að tillögu forsætisráð-
herra að veita fé til svokallaðs
„Norræns dagsvcrks," sem er
vinna unglinga á Norðurlöndun-
um í einn dag þar sem afrakstrin-
um er varið til stuðnings bág-
stöddum unglingum í öðrum
heimshlutum.
Skólanemar á öðrum Norðurlönd-
um hafa nokkrum sinnum fengið frí
úr skóla f einn dag og farið út á
vinnumarkaðinn til að safna fé fyrir
bágstadda unglinga undir heitinu
„Norrænt dagsverk," en íslenskir
unglingar hafa ekki verið þátttak-
endur.
Að sögn Steingríms Hermanns-
sonar, forsætisráðherra, hefur nú
fengist nauðsynlegt leyfi fyrir ungl-
inga hér á landi til að vera með og
því gengu nokkrir nemendur á fund
forsætis- og menntamálaráðherra
fyrir skömmu til að biðja um fjár-
hagsaðstoð til að hleypa þessu af
stokkunum. „Það var samþykkt í
ríkisstjórninni að verða við þessari
beiðni og mun menntamálaráðherra
annast framkvæmd málsins. Þarna
er um eina milljón að ræða,“ sagði
forsætisráðherra.
LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni „Sturluð lögga
2“. Með aðalhlutverk fara Robert
Davi og Robert Z’Dar. Leikstjóri
myndarinnar er William Lustig.
Myndin fjallar um tvo raðmorð-
ingja í New York sem leika þar
lausum hala. Þessir tveir menn eiga
þó fátt sameiginlegt nema nafnið
því að annar hefur sérhæft sig í
að myrða strípidansmeyjar en hin-
um er einkum í nöp við lögreglu-
menn.
Fyrrnefndi morðinginn lítur á sig
sem krossafara næturinnar gegn
þeirri spillingu sem þar birtist en
hinn er enn meiri ráðgáta því að
það er hald sumra að þar sé um
afturgöngu að ræða, lögreglumann
sem dæmdur var fyrir brot í starfí
en andaðist meðan hann var að
afplána refsinguna.
Blús á Púlsinum
Stuðmaðurinn Egill Ólafsson
verður gestur kvöldsins á blús-
kvöldi í veitingahúsinu Púlsinum
í kvöld, miðvikudaginn 16. jan-
úar.
Blúshljómsveit Kristjáns Kristj-
ánssonar ásamt munnhörpuleikar-
anum Derrik Big Walker, mun bera
hita og þunga kvöldsins, en tónleik-
ar þeirra félaga á Púlsinum að und-
anförnu hafa verið vel sóttir.
Auk Kristjáns og Walkers skipa
hljómsveitina Þorleifur Guðjónsson
og Ásgeir Óskarsson.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 5. nóv. -14. jan., dollarar hvert tonn
BENSÍN ÞOTU ELDSNEYTI GASOLÍA SVARTOLÍA 325
500 500 425 OAA
475 475 400 ouu 07C
450 450 O (í) 320/ c/D
425 425 350 31 5 225
400 400 3 58/ “ A. Jfhu 1 200 155/ 17c 154
375 375 353 1 /D 1
350v» ouper 310/ T \jk 1 r—r\jT 150 125 ^ Y-
325 rtV 250 : T vn mn ■
300 Ji 3oo 225 ÍUU
275 - 'W*— 200 75
250— Diyiau 0111=^15^==*—— 250 175 <CA. , —— 50 oc--— -— ..,, — ,
225 298/293 225 1 DU -J—1 .1 ... 1 1 1 1 1 1 1 1 1 j i . j 1 1 1 1 1 | 1
+—1 1 1 1 1 1 1 1 1 H~ 9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11. H—1 1 1 1 1 1 1 1 1 H~ 9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 I 9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11. 9.N 16. 23. 30. 7.D 14. 21. 28. 4.J 11.
Leiðrétting
Mistök urðu í frétt frá Þorláks-
höfn er birtist í blaðinu í gær. Hluti
setningar í frétt um vígslu nýs
íþróttahúss féll niður þannig að
tenging varð röng og birtist máls-
greinin aftur.
„Einar Sigurðsson oddviti setti
samkomuna. Guðmundur Her-
mannsson sveitarstjóri rakti bygg-
ingarsögu hússins og séra Tómas
Guðmundsson flutti bæn og bless-
aði húsið og söngfélag Þorlákshafn-
ar söng.“