Morgunblaðið - 16.01.1991, Side 29
MORGUNBLÁÐIÐ MIÐVIKUÐAGUR' 16. JANÚÁR 1991
29
Slysavarnaskóli sjómanna:
Engin gagnrýni en
nokkrar ábendingar
ÁRNI Gunnarsson (A-Ne) mælti í gær fyrir lagafrumvarpi því sem
hann lagði fram á síðasta haustþingi, um Slysavarnaskóla sjómanna.
Nokkrir þingmenn tóku til máls, allir voru fylgjandi málinu. Um
gagnrýni var tæpast að ræða, einungis ábendingar um hvernig best
yrði staðið að öryggismálum sjómannastéttarinnar.
í máli framsögumanns kom fram Árni Gunnarsson þakkaði þing-
að tilgangur þessa frumvarps væri mönnum góðar undirtektir og
að löggilda Slysavarnaskólann og ábendingar. Hann var þess fullviss
tryggja að allir sjómenn sem lög-
skráðir yrðu á íslensk skip hefðu
lokið þar námi og námskeiðum um
öryggismál og slysavarnir. Slysa-
varnaskólinn hefur fengið rekstr-
arfé á fjárlögum en löggilding
tryggði fremur fastar fjáiveitingar
og veiti öryggi við allan rekstur
skólans.
Slysavamaskólanum er ætlað að
verða miðstöð almennrar fræðslu
um öryggismál sjómanna, veita
fræðslu um meðferð björgunar- og
öryggisbúnaðar, um slysavarnir
o.fl. Slysavarnafélag íslands fer
með yfirstjórn skólans.
Frumvarpið kveður á um að það
verði skilyrði fyrir lögskráningu á
skip að sjómaður hafi lokið grunn-
námi í skólanum. Þó ex gert ráð
fyrir því að ákvæði um þetta komi
ekki að fullu til framkvæmda fyrr
en að fimm árum liðnum.
Framsögumaður greindi frá
stuðningi og velvilja fjölmargra
aðila við skólann. Árni rakti með
mörgum tölum þörfina á áfram-
haldandi starfi skólans, t.d. hefur
rannsóknarnefnd sjóslysa upplýst
að tilkynnt slys sem orðið hefðu til
sjós á árinu 1989 hefðu verið 631
og banaslys verið 7.
Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf),
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra, Alexander Stef-
ánsson (F-Vl), Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir og Matthías Á. Math-
iesen (S-Rn) lýstu stuðningi og
velvild við málið og töldu tímabært
að binda starf Slysavarnaskólans
meiri fastmælum, nú þegar hann
hefði starfað við góðan orðstír í 5
ár. Allir ræðumenn lögðu áherslu á
mikilvægi þess að viðhalda þeirri
samstöðu, einhug og áhuga sem
ríkt hefði um skólann. Athugasemd-
ir voru einna helst um að tryggja
yrði að námskeið skólans væru
haldin sem víðast um landið svo
sjómenn þyrftu ekki að sækja
fræðsluna um langan veg. Ólafur
Þ. Þórðarson lagði áherslu á að
hafa yrði samráð við alla aðila,
ekki mætti drepa niður áhuga en
slíkt hefði stundum gerst þegar
fijálst áhugastarf yrði að stofnun.
Stuttar
þingfrettir
Fangelsismál
Frumvarp um breytingu á
lögum um fangelsismál nr. 48
19. maí 1988 var afgreidd tii
3. umræðu í neðri deild í gær.
Önnur umræða átti sér stað á
næturfundi í þingönnum rétt
fyrir jól en atkvæðagreiðslu var
þá frestað.
Allsherjarnefnd er klofin í
afstöðu sinni til frumvarpsins.
Breytingartillaga meirihluta
var samþykkt en breytingart.il-
lögur minnihluta voru dregnar
til baka í þeim tilgangi að þær
væru betur ræddar við 3. um-
ræðu. Ágreiningurinn snýst um
hvernig réttur fanga verði sem
best tryggður. Meirihluti alls-
heijarnefndar vill að ákvarðan-
ir fangelsisstjóra um einangrun
og agaviðurlög fanga sæti
kæru beint til dómsmálaráðu-
neytis. Minnihlutinn, sem full-
trúar vSjálfstæðisflokks og
Kvennalista skipa, vill hins veg-
ar að ákvörðun um þessi efni
sæti kæru til Fangelsismála-
stofnunar fyrst, ákvörðun
stofnunarinnar sæti síðan kæru
til dómsmálaráðuneytis. Máls-
meðferð er jafnlöng í báðum
tilvikum, tekur tvo daga.
að Slysavarnaskólinn myndi ekki
síður njóta velvildar og áhuga eftir
að hann yrði viðurkenndur að lög-
um. Árni ræddi einnig nokkuð al-
mennt um öryggismál sjómanna og
greindi frá áhyggjum sínum, m.a.
vegna hugsanlegrar vinnuhörku á
frystitogurum. Að endingu lagði
framsögumaður til að frumvarpinu
yrði vísað til annarrar umræðu og
samgöngunefndar. Atkvæða-
greiðslu var frestað.
Þingsályktunartillaga um íslenska heilbrigðisáætlun:
Marki stefnuna til ársins 2000
TILLAGA til þingsályktunar um
íslenska heilbrigðisáætlun var
lögð fram á Alþingi nýlega.Á-
lyktuninni er ætlað að vera
stefnumarkandi fram til ársins
2000. í tillögunni eru sett fram
32 markmið í heilbrigðismálum
þjóðarinnar.
Vorið 1986 á fundi ríkisstjórnar-
innar var að forgöngu þáverandi
heilbrigðisráðherra Ragnhildar
Helgadóttur samþykkt að vinna
landsáætlun í heilbrigðismálum
með hliðsjón af stefnu Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar sem nefnd er
„heilbrigði allra árið 2000“. Unnið
hefur verið að samningu landsáætl-
unar í sérstökum starfs- og vinnu-
hópum og einnig á sérstöku heil-
brigðisþingi 1988. í framhaldi af
því starfí, var samin þingsályktun-
artillaga sem lögð var fram á 111.
og 112. löggjafarþingi en náði ekki
fram að ganga þar sem þingnefnd-
in sem um hana ijallaði taldi á henni
formgalla.
Bæta lífi við árin
í skýringum með tillögunni segir
m.a. að höfuðmarkmið sé að stuðla
að og bæta heilbrigði einstaklings-
ins og megi skipta því í þijá þætti.
Að bæta árum við lífið. Að bæta
heilbrigði við lífið. Að bæta lífi við
árin. Til að ná þessu þríþætta höf-
uðmarkmiði eru sett fram 32 mark-
mið, m.a: Stefnt skal að því að sam-
an fari í heilbrigðisþjónustu ábyrgð
á fjármögnun og rekstri. Heimilt
verði að géra samninga við félög
og samtök um að annast afmarkaða
rekstrarþætti í heilbrigðisþjónustu,
sé’ það hagkvæmt. Heilsugæslu-
stöðvar skulu vera hornsteinar
heilsugæslunnar hver á sínu starfs-
svæði. Koma skal á fót stofnun
forvarna- og heilbrigðisfræðslu'.
Talin er þörf á því að efla að-
stöðu almennings til íþróttaiðkana
innan dyra og byggja í því skyni
almenningsíþróttahús eða samnýta
betur en nú er tiltæk íþróttamann-
virki. Einnig er hvatt til þess að
fólk fái betri tækifæri til að hreyfa
sig utan dyra; settar verði upp sér-
stakar gangbrautir og hjólreiða-
brautir í þéttbýli.
Óhollusta
Þingsálykttmartillagan vill forða
landsmönnum frá margháttaðri vá
og óhollustu s.s. geislun og eiturefn-
um en einnig er horft til fleiri átta,
m.a: Draga ska! úr og helst utrýma
neyslu tóbaks. Auka skal bæði upp-
lýsingar og áróður til að ná þessu
fram en einnig: „Verð á tóbaksvör-
um skal hækka umfram almennar
verðhækkanir.“
Almenna neyslu áfengis skal
minnka og útrýma ofneyslu. Leggja
skal sérstaka áherslu á upplýsinga-
starfsemi og hefja markvisst áróð-
ursstríð gegn slæmum drykkjusið-
um með auglýsingum, stuttum sjón-
varpsþáttum, slagorðum o.fl. Einn-
ig er það markmið sett fram að:
„Verð áfengra drykkja hækki ár-
lega á næstu fimm árum umfram
almennar verðhækkanir og sterkt
áfengi meira en létt vín en bjór
hlutfallslega rninnst."
Borgarráö:
Upplýsingar um ferða-
kostnað lagðar fram
YFIRLIT yfir ferðakostnað kjörinna fulltrúa og starfsmanna borgar-
sjóðs síðustu þijú ár var lagt fram í borgarráði i gær. Á árinu 1988
fóru 210 í ferðir utanlands og innan á vegum borgarsjóðs, 332 árið
1989 og 355 árið 1990. Af starfsmönnum borgarinnar, er ferðakostn-
aður Davíðs Oddssonar borgarstjóra hæstur, eða rúmar 868.000
krónur í þremur ferðum árið 1988, rúmlega 1,576 milljón króna í
sjö ferðum árið 1989 og rúmlega 943.000 krónur í fjórum ferðum
árið 1990.
Af kjörnum fulltrúum er ferða-
kostnaður Hilmars Guðlaugssonar
hæstur árið 1988 eða rúmar
367.000 kró'nur í þremur ferðum,
Siguijóns Péturssonar árið 1989
eða rúmar 490.000 krónur í þremur
ferðum og Jónasar Elíassonar árið
1990 eða rúmar 585.000 krónur í
tveimur ferðum.
Tölurnar ná yfir allan ferða-
Tillaga um matvæla-
aðstoð ekki á dagskrá
„Gorbatsjov hefur valdið þvilikum vonbrigðum að maður er sem
þrumu lostinn." Jón Sæmundur Siguijónsson (A-Nv) ætlar ekki að
halda þingsályktunartillögu sinni um matvælaaðstoð við Sovétríkin
til streitu.
Jón Sæmundur Siguijónsson
lagði fram þingsályktunartillögu
sína nokkru fyrir jól og var hún á
dagskrá sameinaðs þings síðastlið-
inn mánudag. Tillagan var þó ekki
rædd því umræður um skýrslu for-
sætisráðherra og ályktun Alþingis
um „fordæmingu á ofbeldisaðgerð-
um sovésks herliðs í Litháen“
réyndust tímafrekar.
í samtali við Morgunblaðið dró
Jón Sæmundur enga dul á að grein-
argerð sú sem fylgdi tillögunni
væri tvímælalaust úrelt. Þar stend-
ur m.a.: „Stefna Gorbatsjovs for-
'seta og stjórnar hans byggist á því
að gefa þjóðum Sovétríkjanna
sjálfsvirðingu sem byggist á frelsi,
velsæld og samvinnu við vestræn
ríki.“ Jón Sæmundur vænti þess að
fá tækifæri til að gera Alþingi nán-
ar grein fyrir afstöðu sinni á morg-
un, fimmtudag. En hann lá ekkert
á þeirri skoðun sinni að hann hefði
ekki geð í sér til að aðstoða eða
hafa samvinnu við stjórnvöld sem
beittu stalínískum aðferðum. Áform
um aðstoð við Sovétríkin yrði að
endurskoða. Aðspurður kvaðst Jón
Sæmundur ekki útiloka neyðarað-
stoð við sveltandi fólk í Sovétríkjun-
um, þá hugsanlega í samvinnu við
aðila sem virtu mannréttindi og
mannhelgi og fullkomlega yrði
tryggt að hún kæmist í réttar hend-
ur.
kostnað, þar með talinn fargjöld,
gistingu, fæði, þátttökugjöld og
annan tilfallandi kostnað ef um
hann er að ræða, þó ekki aksturs-
kostnað innanlands. Dagpeningar
eru miðaðir við reglur ferðakostnað-
arnefndar ríkisins og eru greiddir
fullir dagpeningar og þá enginn
annar gisti og uppihaldskostnaður.
Fram kenmur að í einstaka tilfellum
er hótelkostnaður greiddur sérstak-
lega og þá skerðast dagpeningar
samkvæmt því.
Árið 1988 fóru 22 kjörnir fulltrú-
ar í ferðir á vegum borgarinnar og
var ferðakostnaður Magnúsar L.
Sveinssonar rúmar 331.000 kr.,
Sigurjóns Péturssonar rúmar
322.000 kr. og Katrínar Fjeldsted
rúmar 317.000 kr. Kostnaður ann-
arra fulltrúa var undir 300.000 kr.,
lægst rúmar 4.000 kr.
Sama ár fóru 182 starfsmenn
borgarinnar í ferðir á hennar veg-
um, þar af fengu þrír hópar ferða-
styrk. Ferðakostnaður tólf starfs-
manna var yfir 300.000 kr. Kostn-
aður vegna tveggja ferða Gunnars
B. Guðmundssonar var rúmar
448.000 kr., og vegna þriggja ferða
Sverris Sigmundssonar var rúmar
400.000 kr. og vegna fjögurra ferða
Jóns G. Tómassonar rúmar 389.000
kr.
Tuttugu og einn kjörinn fulltrúi
ferðaðist á vegum borgarinnar árið
1989. Kostnaður vegna Júlíusar
Hafstein var rúmar 343.000 kr. í
fjórum ferðum, Villvjálms Þ. Vil-
hjálmssonar var rúmar 340.000 kr.
í tveimur ferðum, Guðmundar Hall-
varðssonar var rúmar 338.000 kr.
í einni ferð, Bjarna P. Magnússonar
var rúmar 325.000 kr. í tveimur
ferðum og Elínar G. Ólafsdóttur var
rúmar 325.000 kr. í tveimur ferð-
um. Kostnaður vegna annarra var
undir 300.000 kr.
Það ár ferðuðust 311 starfsmenn
borgarinnar á hennar vegum og var
kostnaður vegna 26 þeirra yfir
300.000 kr. Kostnaður vegna Stef-
áns Hermannssonar var rúmar
739.000 kr. í fjórum ferðum, Þórð-
ar Þ. Þorbjarnarsonar rúmar
634.000 kr. í fjórum ferðum, Gunn-
ars B. Guðmundssonar rúmar
612.000 kr. í þremur ferðum og
Þorvaldar S. Þorvaldssonar rúmar
582.000 kr. í fjórum ferðum.
Tuttugu og fimm kjörnir fulltrúar
fengu greiddan ferðakostnað árið
1990. Kostnaður vegna ferða Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar var rúmar
504.000 kr. í þremur ferðum, Önnu
K. Jónsdóttur var rúmar 393.000
kr. í tveimur ferðum og Guðrúnar
Ágústsdóttur var rúmar 336.000
kr. í tveimur ferðum.
330 starfsmenn borgarinnar
fengu greiddan ferðakostnað árið
1990 og var kostnaður vegna 32
yfir 300.000 kr. Kostnaður vegna
Hannesar Valdimarssonar var rúm-
lega 846.000 kr. í þremur ferðum,
kostnaður vegna Sverris Sigmunds-
sonar var rúmlega 568.000 kr. í
þremur ferðum, kostnaður vegna
Sigurðar Skarphéðinssonar var
rúmar 543.000 kr. vegna fjögurra
ferða, Inga Ú. Magnússonar var
rúmlega 490.000 vegna þriggja
ferða, Þorvaldar S. Þorvaldssonar
var rúmlega 471.000 vegna þriggja
ferða og ferðakostnaður Þórðar Þ.
Þorbjarnarsonar var rúmlega
429.000 kr. í tveimur ferðum.