Morgunblaðið - 16.01.1991, Síða 33

Morgunblaðið - 16.01.1991, Síða 33
' MÓK(ÍUX'BIAD'IL) 'MIDVlKÚDkdl'K íc! 'jÁNt'AR 19§1 33 Enn eitt báknið Skrifstofutækni Fyrir aðeins kr. 4750' á mánuði. eftir Björn S. Lárusson Rétt fyrir jól var lögð fyrir al- þingi tillaga til þingsályktunar um ferðamálastefnu og í kjölfar hennar kom frumvarp til laga um skipulag ferðamála. Þegar þessi mál höfðu verið lögð fyrir þingið lofuðu og dásömuðu þingmenn verkið i há- stert utan einn — forseti þingsins. Tillögunni er áfátt í grundvallar- atriðum og lögin fela í sér verulegt valdaafsal til framkvæmdavaldsins þar sem gert er ráð fyrir setningu a.m.k. 8 reglugerða í tengslum við lögin. Auk þessa eru alvarlegir ágallar á lögunum að mati undirrit- aðs sem nánar verður gerð grein fyrir. Það hefur alltaf verið rík til- hneiging embættismanna og fram- kvæmdavalds að sölsa undir sig völd löggjafans og búa til stjórnir, ráð og sjóði sem þeir stýra alfarið án möguleika löggjafans til af- skipta. Ekki er tekið á málum sem skipta sköpum fyrir atvinnugrein- ina eins og fjármálum og stjórnun, né heldur er reynt að nálgast það sem fjallað er um, nefnilega atvinn- ugreinina sjálfa. Lítum nánar á málið. Hvað er ferðaþjónusta? Þessari spurningu er ekki svarað í tillögunni. M.ö.o. atvinnugreinin er ekki skilgreind. Hvaða fyrir- tæki, starfsmenn eða stofnanir til- heyra ferðaþjónustu? Um það er ekkert að finna í tillögunni. Til þess að búa til stefnu þarf að skil- greina viðfangsefnið, að öðrum kosti er verið að búa til stefnu út í loftið. Til að skýra þetta nánar má taka landbúnaðinn sem dæmi. Ef alþingi hugkvæmdist einhvern- tíma að móta stefnu í landbúnaði þá kæmist það ekki hjá því að taka afstöðu til þess hvað landbúnaður er. Er stangveiði landbúnaður eða afþreying og þar með ferðaþjón- usta? Er eggjaframleiðsla landbún- aður eða iðnaður? Þessum spurn- ingum verður að svara til þess að móta stefnuna. Norska stórþingið skipaði nefnd til þess að móta stefnu í ferðamáh um og sú nefnd skilaði áliti í svo- kallaðri hvítbók árið 1983. Fyrsti kaflinn er skilgreining á viðfangs- efninu. Þar er atvinnugreinin ferða- þjónusta skilgreind út frá fram- bóði. „Sú atvinnugrein sem miðar að því að koma til móts við þarfir fólks fyrir gistingu, veitingar, af- þreyingu og tengda þjónustu á meðan á dvöl fjarri heimili stend- ur.“ Þessi skilgreining tekur mið af því hvemig færustu sérfræðing- ar á sviði ferðamála skilgreina at- vinnugreinina út frá eftirspurn: Dvöl utan fasts bústaðar í að minnsta kosti 24 tíma og kaup á vörum og þjónustu á meðan ferð og dvöl varir. Áðurnefndar skil- greiningar em víðastar á þessu sviði. Engin tilraun er gerð til þess að skýra út hvað verið er að móta stefnu fyrir eða um hvað lögin fjalla. Ur verður einhvers konar óskalisti og málamiðlun þar- sem öllum mikilvaégum málum er sópað undir teppið og framkvæmdavald- inu falið .að búa til reglugerðir. Stjórnun ferðamála Forseti sameinaðs alþingis sagði að verið væri að búa til nýtt bákn með hveija sifkihúfuna upp af ann- arri. Það er laukrétt. Úr 23 manna ferðamálaráði er búið til 9 manna ráð og enn stærri skrifstofa ferða- mála. í ráðinu munu eiga sæti full- trúar Flugleiða, Sambands veit- inga- og gistihúsaeigenda, Félags ferðaskrifstofa og Náttúruverndar- ráðs auk þess sem fulltrúar verða kjörnir á ferðamálaþingi sem eng- inn veit hvernig verður skipað (reglugerð). Hvað mundi gerast ef búið yrði til sjávarútvegsráð með fulltrúum frá SÍS, SÍF, útgerðar- mönnum og fulltrúum kjörnum á viðskiptavina íslandsbanka Lögfrœðideild íslandsbanka hefur flutt aðsetur sitt að Laugavegi 31, 3.hœð. Nýtt símanúmer lögfrœðideildar ei 626230 og faxnúmer 626235. Björn S. Lárusson „Stjórnun ferðamála á að vera sem mest í höndum atvinnugrein- arinnar sjálfrar og á hennar ábyrgð. Það er kominn tími til að stjórnvöld hætti að ráðskast með heila at- vinnugrein rétt eins og hún hafi þegar verið þjóðnýtt.“ fiskiþingi með svipuðu verksviði og ferðamálaráð. Hvað segðu sjó- menn, fiskverkendur, verkafólk í frystihúsum, sjálfstæðir útflytjend- ur og fleiri. Á sama hátt má spyija; hvað segir starfsfólk í ferðaþjón- ustu, leiðsögumenn, ferðamála- samtök landshlutanna, sérleyfísha- far og önnur flugfélög? Þessari spurningu voga ég mér ekki að sVara. Ferðamálaráð eins og það er í dag eða er ætlað að verða á sér engann tilverurétt. Skrifstofa ferðamála á heima í því ráðuneyti sem fjallar um ferðamál og verk- efni hennar á að takmarka við það að gæta hagsmuna heildarinnar og sameiginleg verkefni ríkis og at- vinnugreinarinnar. Stjórnun ferða- mála á að vera sem mest í höndum atvinnugreinarinnar sjálfrar og á hennar ábyrgð. Það er kominn tími til að stjórnvöld hætti að ráðskast með heila atvinnugrein rétt eins og hún hafi þegar verið þjóðnýtt. Fjármögnun Gert er ráð fyrir því að áfram verði lagt 10% gjald á sölu Fríhafn- arinnar á Keflavíkurflugvelli til að fjármagna þau verkefni sem frum- varpið (og núverandi lög) gera ráð fyrir. Það hefur marg sannast að þessi leið er ekki fær. Á sama tíma- og þetta frumvarp er lagt fram er þessi tekjustofn skertur. Bent hefur verið á aðrar leiðir. M.a. hefur undirritaður bent á að launaskattur sem greiddur er af fyrirtækjum í ferðaþjónustu (nú tryggingagjald) verði greiddur beint til ferðamála- ráðs eða til sameiginlegra verkefna ríkis og atvinnugreinarinnar. Þess- ari leið var hafnað og þau rök færð, að ekki sé greinilegt hvaða fyrirtæki teljist til ferðaþjónustu. Ef nefndin, sem samdi frum- varpið og þingsályktunina, hefði unnið sitt verk og skilgreint ferða- þjónustuna sem slíka þá er það vandamál ekki fyrir hendi. í Noregi teljast þau fyrirtæki til ferðaþjón- ustu sem hafa meira en 50% tekna af ferðamönnum. Þau fyrirtæki sem hafa 25-50% tekna af ferða- mönnum geta talið sig til ferðaþjón- ustu og eru skattlögð sem slík. Svo tekið sé aftur dæmi úr öðr- um atvinnugreinum þá er undirrit- aður sannfærður um það, að sjávar- útvegurinn myndi aldrei samþykkja það að lagður yrði 10% skattur á þorskblokk til þess að fjármagna starfsemi ráðuneyta, Hafrannsókn- astofnunnar, Stýrimannaskólans, Landhelgisgæslunnar, hafnir og framlög til Fiskveiðisjóðs svo eitt- hvað sé nefnt. Gjaldið af sölunni í Fríhöfninni er skattur á íslenska ferðamenn til útlanda. Nefndar- menn virðast hafa haft einhveijar óljósar hugmyndir um sameiginleg- an niarkað EBE árið 1992 sem gerir fríhafnir að úreltu fyrirbrigði og þar með tekjur þeirra að engu en þeir virðast ekki hafa kynnt sér málið nægilega vel. Vitið þér enn eða hvað? Ég hafði þá trú eftir langt sam- tal við núverandi samgönguráð- herra árið 1989 að loks færi að birta til í ferðamálum eftir áratuga sinnuleysi. Mér skjátlaðist hrapal- lega. Upp hófst einn allsheijar skrípaleikur þar sem byijað var að bola ferðamálastjóra frá og búið til handa honum nýtt starf með tilheyrandi kostnaði. Skrifstofu- stjóra ferðamálaráðs var einnig fórnað og kostuðu þessar tilfæring- ar 2 milljónir í aukafjárveitingar á þessu ári auk nýja starfsins. Ekki verður lagður dómur á störf þessa fólks en starf markaðsstjóra ferða- málaráðs var endurvakið. Það hef- ur verið notað til þess að koma nýjum manni í stól ferðamálastjóra áður. Yfir 50 manns sóttu um starf ferðamálastjóra (undirritaður var ejtki á meðal þeirra) en fyrrverandi markaðsstjóra Arnarflugs (blessuð sé minning þess) var ætlað starfið áður en það var auglýst. Menn • mega nú vart vatni halda af hrifn- ingu yfir því að ferðamálastjóri er farinn að vinna verk sitt eins og honum ber. Rannsóknarstarf og -öflun tölfræðilegra upplýsinga eru háð duttlungum ferðamálaráðs hveiju sinni og skipulag lítið. Eftirmáli Einstök atriði eru til bóta í frum- varpinu og tillögunni eins og kaflinn um ferðamiðlun þó hann sé útflattur af málamiðlunum. í umræðum á alþingi kom fram að pólitík hefði ekki verið rædd á fund- um nefndarinnar sem samdi frum- varpið og tillöguna. Lifa menn virk- ilega í þeirri blekkingu að lög og þingsályktanir sem samdar eru af pólitískt kjörinni nefnd og sam- þykktar eru af pólitískt kjörinni þjóðarsamkundu séu ópólitískt fyr- irbæri? Verði þessi tillaga sam- þykkt og frumvarpið að lögum verður undirritaður að beygja sig undir vilja meirihlutans og vinna í því umhverfi sem gert er ráð fyrir þó vonast sé til að mestu gallarnir verði sniðriir af. Fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í nefndinni lét eitt sinn svo um mælt að gömlu lögin hafi verið ágæt. Það var bara aldrei farið eftir þeim. Undirrituðum sýn- ist á öllu að það verði örlög þess- ara mála. Höfundur er ferðamálafulltrúi ú Suðurnesjum. Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis: Bókfærsla Tölvubókhald Ritvinnsla Tollskýrslugerð V ersl unarreikni ngur Verðið miðast viö skuldabréf til tveggja ára. ^ Tölvuskóli Islands Sími: 67 14 66, opið til kl. 22 AIH'OCAD Vandað og ítarlegt byrjendanámskeið í tölvuteiknun með nýjustu útgáfu af AutoCAD, einu útbreiddasta teikniforritinu á PC-tölvur. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur nái góð- um tökum á tölvuteiknun og geti starfað sjálfstætt að sínum verkefnum. Leiðbeinandi: Höskuldur Sveinsson arkitekt. Innritun stendur yfir. Tölvuskóli Reyhiavíkur Borgartúni 28, sími 91-687590

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.