Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 1991
39
Tryggvi R. Guðmunds
son — Kveðjuorð
Fæddur 19. mars 1913
Dáinn 23. desember 1990
Drottinn gefur og Drottinn tek-
ur. Hann ákvarðar upphaf lífs okk-
ar og lok þess, um þetta tvennt
gefum við engu ráðið sjálf.
Tryggvi mágur minn hefur lokið
vegferð sinni hér á jörð og leggur
nú á vit nýrrar reynslu í bjartari
og betri heimi, laus úr viðjum sjúk-
dóma og erfiðleika sem þeim fylgja.
Flestir munu vilja halda sem lengst
í það líf sem þeir þekkja hér á jörð,
þrátt fyrir líkamlegan vanmátt, en
Drottinn spyr ekki um hvað við
kjósum sjálf eða þeir sem næstir
standa. Hann velur stund og stað
þegar réttum áfanga er náð og ein-
staklingurinn hefur lokið sínu hlut-
verki.
Það er ekki okkar sterkasta hlið,
jarðarbarna, að sjá fram í tímann
eða vita hvað okkur er fyrir bestu
í því efni, samt er okkur svo gjarnt
á að gagnrýna gjörðir Guðs á ýms-
an máta, óskir okkar ganga oftar
en ekki þvert á vilja hans.
En það að kveðja þennan heim
er í mínum huga eins og það að
ganga fram úr skugganum og út í
sólarljósið úti fyrir. Jarðneskt líf
okkar, hve gott og fagurt sem það
kann að vera, getur aldrei orðið
annað en skuggi af því lífi sem við
eigum í vændum, því það er hið
raunverulega líf, þó að fáir vilji trúa
því nema með dræmingi. Okkur
finnst jarðnesk fegurð oft stórkost-
leg, því við eigum þess ekki kost
að sjá aðra meiri, en mun ekki jafn-
vel hún blikna við hlið hinnar him-
nesku fegurðar sem augu okkar eiu
ekki sköpuð til að sjá fyrr en við
höfum lokið göngu okkar um mis-
grýttan og ofttorfarinn vegjarðlífs-
ins?
Og hvað um kærleikann sem er
af svo skornum skammti í heimi
efnis- og gróðahyggju, fordóma og
þröngsýni? Guð er kærleikur og
þegar við höfum afklæðst efnislík-
ama okkar, eigum við auðveldara
með að skynjaþennan kærleika sem
reynir að umvefja okkur og gefa
okkur þann frið sem við öll þráum.
Að hverfa úr þessum heimi er alltaf
ávinningur þrátt fyrir allt, ekki síst
fyrir þá sem hafa verið trúir því
lífsstarfi sem þeim var úthlutað.
Tryggvi Guðmundsson var einn
af þeim fáu núorðið, sem vann hús-
bændum sínum af stakri hollustu
og trúmennsku. Hann var með af-
brigðum duglegur og ósérhlífinn,
var oftast til starfa og dró hvergi
af. Greiðvikinn var hann næstum
um of og hjálpsamur þeim semáttu
í einhverskonar erfiðleikum, mun
eiginkona hans, Svafa Kristjáns-
dóttir, hvergi hafa látt hann til
góðra verka, og voru þau mjög sam-
hent í því efni.
Tryggvi var mikill skapstillingar-
maður og fátt gat raskað rólyndi
hans, enda vinsæll af vinnufélögum
sínum og öðrum sem þekktu hann.
Sjómennskan var honum í blóð bor-
in og hann stundaði hana mestallt
sitt líf, eða á meðan heilsan entist.
Síðustu æviár sín átti hann við erf-
iðan sjúkdóm að etja sem kom í veg
fyrir að meðfædd athafnasemi og
löngun til vinnu fengju útrás. Þó
virtist viljinn stundum bera getuna
til athafna ofurliði og var ekki laust
við að maður sjálfur undraðist þann
viljakraft.
Tryggvi Guðmundsson og Svafa
Kristjánsdóttir gengu í hjónaband
fyrir réttum fjörutíu árum. Það mun
flestum sýnast langur tími ef litið
er fram á veginn, en samt líða jafn-
vel Ijörutíu ár undrafljótt, ekki síst
þegar nóg er að starfa og litið er
til baka yfir annasama ævi og liðn-
ar gleðistundir. En tíminn staðnar
ekki, hann líður fram með óhaggan-
legu öryggi og áður en varir er
stundaglas okkar runnið út. Við
verðum að nema staðar þar sem
við erum stödd og gegna því kalli
sem boðar okkur til þjónustu í æðri
veröld.
Eiginkonu og öðrum ættingjum
votta ég dýpstu samúð.
í Guðs friði.
Dagrún Kristjánsdóttir
Kveðjuorð:
00
Gunnar O. Svavars-
son, Bolungarvík
Fæddur 3. janúar 1961
Dáinn 18. desember 1990
Mig langar að minnast vinar
míns og frænda, Gunnars Arnar
Svavarssonar, sem fórst í sjóslysi
ásamt tengdaföður sínum, Vagni
Hrólfssyni, í ísaijarðardjúpi 18.
desember sl.
Eg get vart lýst því hve harmi
slegin við hjónin urðum er við frétt-
um að Gunnar og Vagn hefði tekið
út af Hauki ÍS. Það hellist yfir
mann sársauki, dofi og reiði. Reiði
mín beindist að hafinu sem hafði
svo miskunnarlaust hrifsað til sín
menn í blóma lífsins.
Fyrstu kynni mín af Gunnari
voru á uppvaxtarárum okkar á
ísafirði þar sem við heilsuðumst á
förnum vegi sem frændur. Kynni
okkar sem vina hófust þegar við
störfuðum saman að leiksýningu
með Leikfélagi Bolungarvíkur. Á
einni af fyrstu æfingunum kom
hann til mín þar sem ég sat með
leikstjóranum. Hann sagði að við
ættum nú að heilsast almennilega
og kynnast betur þar sem við vær-
um frændur.
Þannig er Gunnari vel lýst hvern-
ig hann kom beint að efninu svo
hreinn og beinn sem hann var. Ég
minnist hans sem heilsteypts og'
sterklegs persónuleika með gott og
hlýlegt viðmót. Og umfram allt
traustur og góður vinur sem gaman
var og gott að sækja heim.
Alltaf tók hann mér sem bróður
og átti það til að benda mér á það
sem betur mætti fara í fari mínu
og virti ég hann mikils fyrir hrein-
skilni hans og vináttu.
Það var reglulega hlýlegt og
uppörvandi að heimsækja Gunnar
og Möggu. Við leituðum þangað oft
þegar við bjuggum í Bolungarvík.
Þær stundir eru okkur ógleyman-
legar og við geymum þær í hjörtum
okkar. Það var spjallað um heima
og geima og stundum tekið í spil
langt fram eftir nóttu og var þá
glatt á hjalla og gaman að lifa.
Eftir að við fluttum frá Bolung-
'arvík fannst okkur leitt hvað við
gátum stoppað stutt hjá Gunnari
og Möggu á sumrin.
í þeim heimsóknum var alltaf
verið að ráðgera helgi saman en
ekkert varð úr því, tíminn var fljót-
ur að líða í stuttum heimsóknum
vestur.
Það var gaman að sjá hvað Gunn-
ar var búinn að gera mikið fyrir
nýja húsið þeirra Möggu og hans.
Hann var sérstaklega handlaginn
og góður smiður og s^oltur af verk-
um sínum, enda hafði hann lagt
metnað sinn og alúð í þau.
Það er ekki ofsögum sagt að ég
leit upp til Gunnars og var gott að
eiga hann að vini og frænda.
Gunnar lifði í ástríku hjónabandi
þar sem væntumþykja, hlýja og
gagnkvæm virðing sátu í fyrirrúmi.
Það er erfitt að kveðja góðan vin
og félaga í blóma lífsins og sárt
að sætta sig við þetta.
Elsku Magga mín, Binna, Erna
og Svavar. Missir ykkar er mikill
og ekki síst þinn, Magga mín, og
sorgin þung.
Guð gefi ykkur og fjölskyldum
ykkar styrk til að yfirstíga þennan
mikla ástvinamissi.
Óli Már og Sigga
t
Innilegar þakkirfyrirauðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
ELÍNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Sveinsína Jóramsdóttir,
Valgerður Magnúsdóttir,
Lárus Berg Sigurbergsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu.
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR.
Guðmundur Júlíus Einarsson,
Magnús Einarsson, Helga Steinarsdóttir,
Þröstur Einarsson, Ása K. Karlsdóttir,
Sverrir Einarsson, Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir,
Guðrún Margrét Einarsdóttir
og barnabörn.
t
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
NIKÓLÍNU KONRÁÐSDÓTTUR,
Hrafnistu,
áður Austurbrún 25,
fer fram frá Áskirkju fimmtudaginn 17. febrúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Kristinn M. Sveinsson,
Sveinn Kristinsson, Elín Snorradóttir
og barnabörn.
Kveðjuathöfn föður okkar, tengdaföður og afa,
HAUKS ÞORSTEINSSONAR
formanns Islendingasambandsins i Svíþjóð,
sem lést 27. desember sl., fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudag-
inn 17. janúar nk. kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið.
Sigurveig Hauksdóttir, Pétur Magnússon,
Jóhanna Hauksdóttir, Eiríkur Viggósson,
Brynhildur Hauksdóttir, Ólafur Bjarnason,
Brynjólfur Hauksson, Arndís Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför konu minnar, móður okkar, fósturmóður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR SIGURBERGSDÓTTUR,
Holtsgötu 19,
Hafnarfirði,
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 17. janúar
kl. 13.30.
Guðmundur Guðmundsson,
Hörður Guðmundsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Ólafur K. Guðmundsson, Sigurlaug Jónsdóttir,
Bragi Þorbergsson, Edda Þráinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim fjölmörgu, sem auðsýnt
hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓHÖNNU RÖGNU PÁLMADÓTTUR,
Borgarbraut 5,
Grundarfirði.
Guðmundur Jóhannesson,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar og systur,
SÓLVEIGAR Á. JÚLÍUSDÓTTUR,
Bugðulæk 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A-6, Borgarspítalanum.
Steinar Freysson
Ásgeir E. Steinarsson, Jón F. Steinarsson.
Sigríður Júlfusdóttir, Sigurgísli Eyjólfsson,
Þorbjörg Júlíusdóttir, Þórólfur Magnússon,
Frímann Júlíusson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ERLENDAR INDRIÐASONAR,
Skúlaskeiði 18,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sólvangs fyrir hlýju og umönnun.
Vilhelmína Arngrímsdóttir,
Sigurfljóð Erlendsdóttir,
Anna Erlendsdóttir, Kristján J. Ásgeirsson,
Davíð Erlendsson,
Vignir Erlendsson, Inga Áróra Guðjónsdóttir,
Arngrimur Erlendsson,
Steinar Erlendsson,
Erla M. Erlendsdóttir, Ólafur Örn Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.