Morgunblaðið - 16.01.1991, Síða 40
40
MORGÚNBLAÐIÐ MÍÐVIKÚDAGUR 16. JÁNÚAR 1991
fclk í
fréttum
TONLIST
Mark Knopfler gerir breiðskífu
með átrúnaðargoðinu
Mark Knopfler, forsprakki fyrr-
um stórhljómsveitarinnar
Dire Straits, upplifði sinn æðsta
draum fyrir stuttu, er hann sendi
frá sér hljómplötu ásamt gamla
bandaríska gítarsnillingnum Chet
Atkins. Platan hreppti nafnið “Neck
to neck“ og er barmafull af frábær-
um gítarleik eins og vænta mátti
þar sem aðrir eins gítarleikarar eru
á ferð.
Knopfler segir það alltaf hafa ver-
ið sinn draum að vinna með Atk-
ins, hann hafi verið fyrirmynd sín
alla tíð. “Þegar ég sá hann fyrst
spila, sat hann og lék tvö lög í einu
á sama gítarinn! Eg hreifst af þessu
og síðan að við hófum að vinna
saman hef ég lært gífurlega mikið.
Við liggur að ég segi að ég hafi
lítið kunnað fyrr. Þó apa ég ekki
eftir Chet. Ég var afar áhugasamur
þegar ég sá hann leika um árið,
en mér fannst ég býsna lítill og ég
myndi aldrei getað leikið af slíkri
snilld. Samt fer það þannig, að
maður byijar og áskapar sér sinn
eigin stíl,“ segir Knopfler.
Platan með Chet Atkins er' nú frá
og Knopfler er samt fyrri félögum
í Dire Straits í óða önn að undirbúa
það sem kallað er “come back“.
Þeir eru sem sagt að endurreisa
sveitina sem átti fáheyrðum vin-
hljómleika,“ segir Knopfler. Þess
má geta, að hljómleikahölduður á
íslandi hefur verið í sambandi við
umboðsmenn Dire Straits og ætlar
að reyna að ná þeim hingað. Myndi
það þá heyra undir einn af hinum
“ómögulegu stöðum“.
Atkins og Knopfler.
sældum að fagna á sínum tíma.
“Það kemur breiðskífa frá okkur í
mai, sú fyrsta síðan 1985. Við ætl-
um að fylgja henni eftir með heims-
reisu þar sem leikið verður fy'ölluin
mögulegum og ómögulegum stöð-
um. ÞEgar er búið að bóka 225
UTVARP
Jólarásin
í Ejjum
Vestmannaeyjum.
UNGLINGAR í Eyjum ráku
útvarpsstöð í félagsheimil
inu meðan jólafrí var í skólunum.
Út varpið kölluðu þau jólarásina
og var sent út á FM 102. Útvarps-
reksturinn var á vegum tómstund-
aráðs Vestmannaeyjabæjar en
krakkamir sáu um alla vinnu og
undirbúning auk þess sem þau
seldu auglýsingar í útvarpinu og
fjármögnuðu reksturinn með því.
Útvarpað var frá klukkan níu á
morgnana og fram yfir miðnætti.
Krakkarnir sáu um alla dagskrár-
Upprennandi útvarpsmenn.
gerð sem var fjölbreytt.
Eyjamenn kunnu greinilega vel
að meta jólarásina því víða var
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
hlustað á útvarpsstöð unglinganna
í Eyjum.
Grímur
t
Fatnaður frá Mansfield, Escada
og Fink kjólar í stærðum 44-66
TÍZKAN
LAUGAVEGI 71 • 2. HÆÐ
SÍMI 10770
HUGPRYÐI
Fergie heiðrar tíu
lítil hörkutól
Breska kóngaíjölskyldan heiðraði
sérstaklega tíu böm skömmu
eftir jól. Börn þessi þóttu hafa borið
af öðrum í hugprýði sem mætti verða
öðrum til eftirbreytni og hvatningar
er erfiðleikar steðja að. Það var
Sarah Ferguson hertogaynja af Jór-
vík sem tók á móti börnunum í
Westminster Abbey og afhenti þeim
heiðurmerki sín.
Eitt þessara barna var Michelle
Pratt sem fæddist með vanskapaðar
mjaðmir, fótleggi og fætur. Læknar
spáðu því að hún myndi aldrei svo
mikið sem geta sest upp í rúminu
hvað þá meira. En þrotlaus vinna í
gegnum árin og hugprýði hefur skil-
að sínu. Michelle gekk með aðstoð
hækju og spelku upp að altari
Westminster Ábbey til að veita verð-
launum sínum móttöku. David Turn-
er hljóp upp að altarinu. Síðasta sum-
ar missti hann þó annan fótinn í
heybindivél úti á akri. Nokkrum dög-
um eftir aðgerðina var hann kominn
á ról, neitaði að setjast í hjólastól,
en skeiðaði um allan spítalann á
hækjum. Hann notar nú gervilim og
haltrar ekki einu sinni. Af öðrum
HJONABAND
Cruise og Kidman
g’iftu sig á laun
Hjartaknúsarinn Tom Cruise og
ástralska leikkonan Nicole
Kidman gengu í það heilaga i kyrr-
þey um hátíðirnar. Þau héldu jólin
fjarri skarkala stórborga og veislu-
halda, í Ijallakofa í Klettafjöllum.
Eigi allijarri var þó bæjarfélag og
þar með talinn fógeti sem fenginn
var til að gefa þau saman með borg-
aralegri athöfn. Svo mikil leynd
hvíldi yfír áætlun þeirra hjóna-
korna, að nánustu ættingjar og vin-
ir fengu að vita um brúðkaupið
aðeins fáeinum klukkustundum eða
svo áður en það fór fram. Aðeins
um 10 nánum skyldmennum og vin-
um var boðið og þeir rétt náðu í
dauðans ofboði að skila sér svo lít-
ill var fyrirvarinn.
Cruise er eitt af stærstu nöfnunum
í kvikmyndum vestan hafs, hefur
leikið aðalhlutverk af stakri prýði
í hverri stórmyndinni af annarri,
en Kidman er ung og efnileg leik-
kona á uppleið. Leiðir þeirra lágu
saman er bæði léku í kvikmyndinni
“Days of thunder" þar sem þau
áttu að fella saman hugi á tjaldinu.
Svo fór að þau létu ekki þar við
sitja og í kjölfarið af því skildi Cru-
ise við eiginkonu sínam, leikkonuna
Mimi Rogers, en hjónaband þeirra
hafði þótt með þeim kærleiksríkari
í Hollywood þótt á köflum storma-
samt væri. Skilnaðurinn kom Ro-
gers í opna skjöldu og veltu slúður-
blöðin sér hressilega upp úr öllu
saman. Sár þykja þó gróa með tím-
anum, Cruise var fljótur að jafna
sig og Mimi Rogers er trúlega einn-
ig á batavegi, að minnsta kosti sést
hún æ oftar í fylgd með nýjum vini
sínum. Sá hefur eigi verið nafn-
greindur, er sem sagt ekki þekkt
nafn, en hann þykir þó ótrúlega lík-
ur Tom Cruise bæði í útliti, aldri
og talanda.
Þau hjónin nýbökuðu herra og frú Cruise.