Morgunblaðið - 16.01.1991, Side 44

Morgunblaðið - 16.01.1991, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991 1990 Jim Unger/Distributed by Universal Press Syndicate ,þetta ertconan p'in-. hún wLL skiLnctc).'' Með morgimkafftnu Varstu að hugsa um gamla reikninginn frá þér? þú GBJOR BKia hORFT'A SJÓNV^RP/E> - - - -OG GERT HEI/V1AVeR>CEFMíN Þi'm Röng efnahagsstefna Til Velvakanda. Ég var að lesa grein Ólínu Þor- varðardóttur í Morgunblaðinu. Þar koma fram furðulegir hugarórar. Eins og hún hlakki nú yfir að vanda- mál skuli vera komin upp í hitalögn- um af völdum Nesjavallavirkjunar og þetta séu jafnvel prettir borgar- stjórnar til að styðjast við um hækk- un hitaveitugjalda vegna aukins kostnaðar. Ólína gerir því líka skóna, að stjóm hitaveitunnar kæri sig lítt .um að fréttamenn séu að snapa fréttir af atvikum varðandi þessi mál. Allt eru þetta óráðnar gátur Ól- ínu og myndi í því sambandi vera hægt að giska á að hún gerði þetta í beinum hefndarhug vegna ófar- anna í borgarstjórnarkosningum, nú skyldi koma höggi á framkvæði sjálfstæðismanna í borgarstjóm Reykjavíkurborgar að drífa í for- gang virkun Nesjavallahitans fyrir borgarbúa, sem er að mínum dómi tímabært og þarft framtak, líklega gæti víða orðið kalt í húsum á næstu kuldaskeiðum ef hans nyti ekki við. Ég skal ekkert segja um, að útiloka hefði mátt þau óhöpp sem komið hafa upp. Ólína Þorvarðardóttir bendir á að peningar borgarinnar séu illa komnir í óþarfa uppátækjum eins og hún vildi orða það, eins og ligg- ur bak við orðavalið. En ég hef séð framkvæmdir vinstri manna í borg- arstjóm Reykjavíkurborgar, þær eru síður en svo þeim til hróss. Ég vil bæta hér við vegna þess að Olína talar um í grein sinni að borgarstjórn sækist eftir að seilast í vasa almennings, eða láta sig litlu varða þó borgarbúar verði fyrir útl- átum fyrir atvik sem jafnvel væra HEILRÆÐI Munið! Börnin í umferðinni eru börnin okkar. möguleikar að koma í veg fyrir, séu jafnvel af skömmum sínum að ná sér í tilefni til hækkaðra hitaveitu- gjalda, þá vil ég minna hana á að hún skammast sín ekkert fyrir að þiggja úr vasa skattborgaranna tugi, jafnvel að slagað geti yfir milljón krónur á fjölskyldu á ári, eins þó að sá hinn sami hafi marg- ar milljónir í laun á ári hveiju, hirða þetta úr vösum þeirra sem mest leggja á sig til að komast af á eig- in spýtur til að halda sóma sínum sem fullgildir þjóðfélagsþegnar, en með svona ítökum halda margir sér í sæmilegum efnum án þátttöku í rekstri þjóðfélagsins, gegnum fé- lagsþjónustuna, þarmeð takajitla ábyrgð á uppeldi barna sinna. Ólína var nefnilega að hæla sér eða kvarta yfir að að hún ætti tvö börn og gæti átt fleiri, þetta lagði hún áherslu á í borgarstjórnarkosninga- slagnum í vor. Það get ég fullyrt að sú stjórn sem nú situr að völdum er mesta arðránsstjórn sem á íslandi hefur setið og af völdum hennar liggur við hrani og er sambærilegt við afleiðingar kommúnistastjórna A-Evrópu. Þeir hæla sér af þjóðar- sátt sem ekki er, þegar hópur þegn- anna er beittur lögþvingun sem er andstætt við reglur sem það hefur tekið sér og fengið viðurkennt. Þetta era nefnilega þvingunarlög kommúnismans þar sem hann ræð- ur ríkjum, þetta er framkvæmt af stjórn félagshyggjunnar, svo öfugsnúið er það. Aftur á móti er ég þeirrar skoðunar að laun ríkis- starfsmanna eigi ekki að vera miklu hærri en laun annarra og þar að auki sitja að miklum hlunnindum í lífeyrissjóðsmálum og fleira. Þessir menn hafa verið studdir til mennta af alþjóð. Ef efnahagsmál heillar þjóðar eru í hættu eins og nú er vegna yfir- þyrmandi félagsþjónustu, þá er al- veg skilyrðislaust rétt að vissu marki að lögskipa laun eftir ástæð- um. Ég tek fram að ástandið er afleið- ing rangrar efnahagsstefnu ríkis- stjómarinnar og valdníðslu í skatta- og þjónustumálum. Forsætisráð- herrann er farinn að hæla sér af mikilvægum árangri sem hafi náðst, að halli ríkissjóðs skuli ekki vera hærri en fjórir milljarðar króna, alveg frábær yfirdrepskap- ur. Ríkissjóður á eftir að greiða þjóðinni 47 milljarða kr., hallinn getur því verið yfir 50 milljarðar hér innanlands. Þorleifur Kr. Guðlaugsson HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar Nýlega rakst Víkveiji á frásögn af því í bandarísku blaði, að þeim Bandaríkjamönnum fækkar sem nota tóbak og áfengi. Fyrir- sögnin á fréttinni var á þann veg, að þróunin væri í átt til bindindis- semi, hvort heldur notað væri áfengi eða fíkniefni. Telja sumir, að í Bandaríkjunum sé að vakna þjóðarhreyfing fyrir bindindi. Við þekkjum það af skokki og líkams- rækt, svo að aðeins tvennt sé nefnt, að Bandaríkjamenn eru einstakling- um um allan heim oft gott for- dæmi, þótt hinu sé jafnan meira hampað sem miður fer. Bent var á í þessari frétt, að fólk áttaði sig oft best á þróuninni gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu með því að skoða kvikmyndir frá áttunda áratugnum, þar sem drykkjuskapur og fíkniefni settu mun meiri svip á myndir en nú á tímum. ... A /14EÐ.AN . I Gallup-könnun í Bandaríkjunum í desember sl. kom í ljós, að 57% þeirra sem spurðir voru (yfir 18 ára aldri) sögðust einhvern tíma nota áfengi. 1978 sögðust 71% gera það. I Gallup-könnun í júlí sl. sögð- ust 27% hafa reykt sígarettu vikuna á undan. Þegar sambærilegt hlut- fall reykingarmanna var hæst, 1954, var það 45%. Þá sýna nýjar kannanir að notkun ólögmætra fíkniefna í Bandaríkjunum hefur fallið úr 37% 1982 í 15% í síðasta mánuði. Þetta er gleðileg þróun og ætti að vera þeim hvatning hvarvetna sem vinna að því að vara fólk við tóbaki, áfengi og fíkniefnum. Þessi barátta skilar árangri eins og best sést á þeim sem hafa orðið áfenginu að bráð en tekst að bijóta af sér hlekki þess. Forvarnarstarf er mikilvægt á öllum sviðum heilbrigðismála og vænlegasta leiðin til að draga úr útgjöldum þar er að leggja mikla rækt við forvarnir. Þær geta til dæmis falist í því að hvetja fólk til að fara varlega í umferðinni, gæta sín í hálku eða búa sig vel í kulda. Víkverji hrökk við þegar hann var að hlusta á rás 1 hjá hljóðvarpi ríkisins rétt fyrir klukkan 8.30 að morgni fimmtudagsins 10. janúar og heyrði þulu eða umsjónarmann morgunþáttar minnast á að kalt væri í veðri og rétt fyrir þá, sem ætluðu á útifund síðdegis þennan sama dag vegna Persaflóadeilunnar að búa sig vel; ástæða væri til að geta þessa þar sem margir ætluðu áreiðanlega að sækja fundinn og síðan var staður og stund hans tíun- duð. Samrýmist slík forvörn óhlut- drægni hljóðvarps ríkisins? Þótt umhyggja fyrir væntanlegum fund- argestum væri látin f ljós vakti fyr- ir útvarpsmanninum að auglýsa fundinn. Hvaða reglur gilda um þetta hjá Ríkisútvarpinu? Hafa umsjónarmenn fijálsar hendur um slíka kynningu eða á hún að vera bundin við auglýsinga- og frétta- tíma?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.