Morgunblaðið - 16.01.1991, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. JANUAR 1991
-ss^sm-
f\ »
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
b „Ég hef nú öðlast
mikið sjálfstraust
WKEPPNIN
ÍSLENSKI HANDBOLTINN
16. UMFERÐ
Miðvikudagur 16.01.
ÍBV - ÍR
Kl. 20:00
Vestmannaeyjar
17. UMFERÐ
Föstudagur 18.01.
KA - Stjarnan
Kl. 20:00
íþróttahöllin, Akureyri
Laugardagur 19.01.
Fram - Víkingur
Kl. 16:30
Laugardalshöll
Laugardagur 19.01.
Selfoss - KR
Kl. 16:30
íþróttahús Selfoss
Laugardagur 19.01.
Grótta - ÍR
Kl. 16:30
íþróttahús Seltjarnarness
Laugardagur 19.01.
Haukar - FH
Kl. 16:30
Strandgata, Hafnarfirði
Laugardagur 19.01.
Valur - ÍBV
Kl. 16:30
Hlíðarendi
^ér VÁTRYGCINGAFÉLAG ÍSLAND8 HF
íí
- sagði Girardelli, sem sigraði í stórsvigi með miklum yfirburðum
x
„ÉG hef nú öðlast mikið sjálf-
straust og það gerði það að
verkum að ég gat tekið mikla
áhættu íbáðum umferðum,"
sagði Marc Girardelli, sem
keppir fyrir Luxemborg, eftir
sigurinn í stórsvigi heimsbik-
arsins í Adelboden í Sviss í
gær. Hann náði besta brautart-
ímanum í báðum umferðum og
vann með ótrúlegum yfirburð-
um. Alberto Tomba, Ítalíu, varð
annar og Rudolf Mierlich, Aust-
urríki, þriðji.
Girardelli kann- greinilega vel
við sig í Adelboden því hann
sigraði í stórsvigi síðast er það var
haldið þar 1989. Sigurinn í gær var
35. sigur hans í heimsbikarnum.
Hann hafði mikla yfirbuði- og var
tæpum tveimur sekúndum á undan
Alberto Tomba. Girardelii tryggði
enn frekar stöðu sína á topnum í
samanlagðri stigakeþpni. Hann hef-
ur nú hlotið 176 stig, Franz Heinz-
er frá Sviss er í öðru sæti með 129
stig, Tomab í þriðja með 117 stig
og Ole Christian Furuseth, heims-
bikahafi í stórsvigi sem var aðeins
í 12. sæti í gær, í 4. sæti með 112
stig.
Girardelli, sem er nánast jafnvíg-
ur á allar greinarnar, hefur nælt
sér í stig í öllum greinunum fjórum
í vetur. Hann er eini skíðamaðurinn
í karlaflokki sem unnið hefur allar
greinarnar á sama tímabili. Hann
var óheppinn í lok síðasta keppn-
istímabils er hann meiddist og
missti Pirmin Zúrbriggen þá upp
fyrir sig á lokasprettinum. „Ég hef
trú á því að ég eigi eftir að endur-
taka leikinn frá keppnistímabilinu
1988-1989, þegar ég vann allar
greinarnar," sagði Girardelli.
Reuter
Marc Girardelli frá Luxemborg hafði ótrúlega mikla yfirburði í stórsviginu
í Adelboden í Sviss í gær. Hér er hann á fullri ferð í brautinni.
TENNIS / OPNA ASTRALSKA
Lendl og
Edberg
áfram
Hlasektapaði
óvænt tyriráður
óþekktum Ástrala
TENNISKAPPARNIR, Ivan
Lendl frá Tékkóslóavkíu og
Svíinn Stefan Edberg, eru
komnir í 2. umferð á opna
ástralska meistaramótinu í
tennis, sem hófst í Melbo-
urne í Astralíu í gær.
Lendl átti nokkuð auðvelt með
að leggja Tarik Benhabiles
frá Frakklandi og tapaði hann
aðeins fimm punktum í leiknum,
6:1, 6:1 og 6:3. Wimbledonmeist-
arinn, Stefan Edberg, átti hins
yegar í vandræðum með Sovét-
manninn, Dímítrý Políakov, í öðru
setti. Edberg sigraði 6:1, 7:6 og
6:1.,
„Ég er alltaf taugaóstyrkur
þegar ég geng inn á völlinn í
fyrstu umferð á stórmótum,"
sagði Edberg, sem sigraði á opna
ástralska í fyrra. „Þetta var ekki
auðveldur leikur fyrir mig, en ég
náði þó að vinna í þremur settum
í röð.“
Mats Wilander, sem þrívegis
hefur unnið ástralska meistara-
Mats Wilander, sem þrívegis hef-
ur unnið ástralska meistaramótið,
er nú aftur mættur í slaginn eftir
að hafa tekið sér fjögurra mánaða
hvíld.
mótið, er nú aftur mættur í slag-
inn eftir að hafa tekið sér fjög-
urra mánaða hvíld frá tennismót-
um. Hann segist vonast til að ná
sér aftur á strik og verði fljótlega
kominn á meðal þeirra tíu bestu,
en hann hefur nú fallið niður í
47. sæti á heimslistanum. Wiland-
er sigraði Heath Denman frá
Ástralíu, 7:6, 6:3 og 6:4, í fyrstu
umferð.
Jakob Hlasek frá Sviss tapaði
mjög óvænt fyrir áður óþekktum
Ástrala, Jason Stoltenberg, í 1.
umferð. Hlasek vann fyrsta settið
sannfærandi 6:0. En þá tók
heimamaðurinn til sinna ráða og
snéri leiknum sér í hag. Vann
annað sett, 6:4 síðan 7:5 og loks
6:4.
FELAGSLIF
Firmakeppni
Víkings
Knattspyrnudeild Víkings gengst
fyrir firmakeppni í knattspyrnu inn-
anhúss 19. og 20. janúar. Leikið
verður í Réttarholtsskóla og er búist
við þátttöku á fjórða tug liða. Fimm
lið verða í riðli og verða úrslitaleik-
irnir miðvikudaginn 23. janúar.
Þátttaka tilkynnist í síma 83245
og 37450.
Þorrablót
hjáKR
KR-ingar halda sitt árlega þorra-
blót í Domus Medica, laugardaginn
19. janúar kl. 20:00. Sigurður Jo-
hnny mun skemmta. Miðaverð er
kr. 2.500.
URSLIT
NBA-úrslít
Mánudagur:
Atlanta Hawks — New York Knicks. 96:82
Detroit Pistons — Dallas Mavericks.. 89:81
Chicago Bulls — Milwaukee Bucks. 110:97
LA Clippers — Houston Rockets.130:126
(Eftir framlengdan leik)
Ikvöld Handknattleikur 1. deild karla: ÍBV - ÍR kl. 20:00
1. deild kvenna: Stjarnan - Valur kl. 20:00
Selfoss - Fram kl. 20:00
2. deild karla: ÍH - UMFA kl. 19:45
2. deild kvenna: ÍBK-UMFG kl. 20:00