Morgunblaðið - 23.02.1991, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991
Tóbakshorn
Petunia x hybrida
— tóbakshom
Hrífandi skrautblóm
fyrstu blómin fara að opnast.
Svipað tímaskeið þurfa dalíur
sem sáð er til. Tóbakshorn er
náskylt tóbaksjurtinni og tilheyr-
ir kartöfluætt. Jurtin er mjög
blómviljug og litir blóma einstak-
lega fjölbreyttir. Við þetta bæt-
ist, að blóm eru stór, stundum
fyllt og blómgunartími langur.
Heimkynni þeirra tegunda sem
að tóbakshorninu standa er Arg-
entína, Brasilía og Uruguay. Hér
er því plantan viðkvæm úti nema
í mjög góðu skjóli og á sólrikum
stað. I inniskála er tóbakshomið
aftur á móti afbragðs skraut-
blóm. Til tóbakshoms þarf að sá
á næstu dögum. Spírunartími er
7-10 dagar við 21-22° hita. Fræ-
ið er „mjög smátt og má ekki
hylja, aðeins þrýsta létt í jörð.
Láta það síðan spíra við birtu,
en hylja ílátin með plastdúk á
meðan á spírun stendur. Ýmist
er sáð í kassa og dreifsett í um
10 sm potta eftir 3-4 vikur, eða
sáð er í hólfaða bakka og seinna
flutt yfir í potta. Kjörhiti í upp-
eldi er talinn vera á bilinu 13-
16°, Sumir vilja þó gjaman hafa
10-12° hita, en þá má reikna
með að það taki 13-14 vikur að
ná fram virkilega góðri og
blómgunarhæfri plöntu.
Best er að halda plöntunum
frekar þurram í uppeldi og rækt-
un og gæta þessa síðan að flýta
sér ekki um of að gróðursetja út
í garð. Þegar sumra tekur eiga
þær að njóta útivistar.
Óli Valur Hansson
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 195
í síðasta þætti var þess getið
að margir garðeigendur myndu
þegar farnir að hugsa fyrir-kom-
andi sumri. Þetta á ekki síst við
um þá sem hafa möguleika og
jafnframt ánægju af því að glíma
við plöntuuppeldi, en æ fleiri eiga
orðið vermihús eða gróðurskála
sem auðveldar þá starfsemi.
Ýmsar suðrænar jurtir eru
megin blómagróðurinn í mörgum
görðum á sumrin. Flestar eru
þær þannig að til þess að geta
skilað góðri blómgun og blómg-
ast snemma þarf að forrækta
þær um skeið inni á hliðstæðan
hátt og grænmeti. Þessi undir-
búningstími er mislangur eftir
tegundum. Morgunfrú er t.d.
mjög bráðþroska. Svipað gildir
um fiðrilda- og paradísarblóm.
Yfirleitt þarf að reikna með
60-65 daga tímabili frá því að
sáð er uns blómhnappar fara að
sjást og plöntur eru hæfílega
þroskaðar til gróðursetningar.
Aftur á móti þarf sumarblóm
eins og tóbakshorn, sem er í
uppáhaldi hjá mörgum, bæði sem
skálablóm og útiskraut, a.m.k.
80-100 daga uppeldistíma uns
911RO 91 Q7fl LÁRUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
L I IQU'ulO/U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Rúmgóð séríbúð - frábært verð
í lyftuh. v/Asparfell. 4 rúmg. svefnherb., tvöf. stofa. Tvennar svalir. Bað
og gestasn. Sérinng. af gangsv. Sérþvottah. Góður bílsk. Mikið útsýni.
Góðar íbúðir - hagkvæm skipti
4ra herb. íb. við Vesturberg, Hrafnhóla, Hraunbæ og Melabraut. Skipti
mögul. á góðum 3ja herb. íb. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Glæsileg eign í byggingu
tvíbhús 122x2 fm auk bílsk. 61 fm, nánar tiltekið tvær 5 herb. sérhæðir
í grónu og vinsælu hverfi í Mosbæ. Tilboð óskast. Teikn. á skrifst.
Skammt frá Landspítalanum
efri hæð í reisul. þríbhúsi í Norðurmýri 2ja-3ja herb. Nýtt eldhús. Nýl.
bað. Húsnlán kr. 2,3 millj. Laus fjótl. Tilboð óskast.
3ja herb. íbúð í Vesturborginni
skammt frá Háskólanum á 3. hæð nokkuð endurbætt. Nýtt gler og
póstar. Sólsvalir. Risherb. fylgir. Rúmg. geymsla í kj. Laus strax.
Á vinsælum stað í Laugardalnum
séríb. 3ja herb. í kj./jarðh. v/Rauðalæk. Sérinng. Sérhiti. Töluv. end-
urn. Vinsæll staður. Skipti mögul. á minni íb.
• • •
Opið í dag kl. 10.00-16.00.
Almennafasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944. rfljltioWAOALAII
ALMENNA
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Öll orgelverk Mozarts leikin á
tónleikum í Hallgrímskirkju
Listvinafélag Hallgrímskirkju efnir á morgun til orgeltónleika
í Hallgrímskirkju og hefjast þeir kl. 17.00. Dr. Orthulf Prunner
organisti Háteigskirkju leikur vínarklassíska orgeltónlist eftir
Mozart, Hummei;, Sechter og Albrechtsberger.
Á efnisskránni eru m.a. öll org-
elverk Mozarts, tvær fantasíur í
f-moll og Andante í F-dúr, sem
samin vora fyrir sjálfspilandi org-
elklukku og umskrifuð fyrir venju-
legt orgel.
Hinir höfundarnir eru af sama
skóla og Mozart og tónlistin öll í
stíl Vínarborgar á klassíska tíma-
bilinu.
Orthulf Prunner er uppalinn í
Vín, þar sem hann hlaut tónlistar-
menntun sína. Hann hefur um
árabil verið organisti Háteigs-
kirkju í Reykjavík og reglulega
haldið tónleika.
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 578. þáttur
Gestumblindi (Óðinn) lagði
fyrir löngu svofellda gátu fyrir
Heiðrek konung:
fjórir ganga,
fjórir hanga,
tveir veg vísa,
tveir hundum varða,
einn eftir drallar
og jafnan heldur saurigur.
Heiðrekur konungur,
hyggðu að gátu.
Heiðrekur svaraði að bragði:
„Góð er gáta þín, Gestumblindi.
Getið er þessar. Það er kýr.“
Og rétt var það. Kýrin hefur
verið ferfætt og ferspen (til hafa
verið þríspenar kýr), tvíhyrnd,
og eru hornin þarna talin veg-
vísar og'til varnar gegn hundum.
Ekki skortir kú Gestumblinda
heldur hala sinn.
★
Töluorðið fjórir beygist svo í
karlkyni, að eignarfall er ýmist
fjögurra eða fjögra. í hvorug-
kyni hafa menn nefnif. fjögur.
Fyrr meir var sú mikil árátta
margra íslendinga að breyta ö
í e (afkringing, gleikkun). Svo
lærði ég að tala, að segja „fjeg-
ur“, en vandist af því í skóla.
Bólu Hjálmar (1796-1875) og
Stefán Ólafsson í Vallanesi
(16207-1688) voru harðir í þessu
tali. Hjálmar rímaði það sem við
höfum „fjör“ á móti er, og Stef-
án rímar okkar „mjög“ á móti
veg.
Þegar við fleirtöluorð er að
fást, notum við tölu-lýsingarorð-
in fern, þýtt í OM: „í fjórum
samstæðum, fjórum pörum“.
Dæmi eru þá: Fern hjón, fernir
sokkar, fernar buxur og fernar
dyr.
Hér minnir umsjónarmaður á
hið ágæta nýyrði Halldórs Hall-
dórssonar, fema, um þess lags
ílát undir mjólk og fleiri drykki.
Enda þótt fjórir sé nú harla
ólíkt samsvarandi töluorði í
latínu, quattuor, er þetta þó af
einni rót, en verður hér ekki
rakið til þeirrar rótar. Hitt er
aftur, að við höfum í málinu
ýmis tökuorð sem komin eru
eftir krákustígum úr latínunni.
Nefna má kotra, sbr. forn-
frönsku quatre (= 4 á teningi);
kort, kortél, kortér =
(stundar)fjórðungur; kvart,
einkum í samsetningum, sbr.
kvartmiði; kvartél, kvartil og
kvartett. þegar M.A.-kvartett-
inn var í uppsiglingu, sagði Sig-
urður skólameistari að nokkrir
piltar hefðu tekið að æfa fer-
söngslög. Fallegt orð, fersöng-
ur, og alltaf þykir mér jafnfal-
legt, þegar Sigvaldi Júlíusson
talar mál ömmu minnar og seg-
ir: „Klukkuna vantar fjórðung í
sjö,“ eða: „Klukkan er fjórðung
gengin í níu.“ Mæli hann manna
heilastur.
★
„Nú skal á því marka að böll-
óttur [= hnöttóttur] er jarðar
hringur og ber eigi öllum stöðum
jafnnær sólu. En þar sem kúfótt
hvel hans kemur næst veg sólar-
innar, þá verður þar miklu heit-
ast, og eru þau lönd sum óbyggj-
andi er jafn-gegnt liggja ósködd-
um geislum hennar. En þau er
svo liggja, að hún kemur að með
hölluðu skini, þá má þau lönd
vel byggja, en þó eru þau sum
heitari en sum.“
(Konungsskuggjá, 13. öld.)
★
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum las sér til ánægju grein
Bjarka Elíassonar um orðin lög-
reglumaður, lögregluþjónn,
lögvörður o.s.frv., sjá 573. þátt.
Steindór minnir (og minni hans
er trútt með ólíkindum) að Jónas
Hallgrímsson og Konráð Gísla-
son hafi séð um 10. árgang
Skírnis, þar sem lögreglumað-
ur kemur fyrst fyrir.
Um orðið lögregluþjónn
sagði Steindór að það hefði fyrst
náð að festast í almennu máli á
Akureyri milli 1920 og 30. Áður
fyrr hefði alltaf verið talað um
Kristján pólití (Nikulásson) og
Dúa pólití (Benediktsson).
Seinna var svo pólití stytt í
póli, og svo var Gunnar Jónsson
nefndur. Man ég vel eftir því.
Að lokum skaut Steindór fram
þeirri spurningu, hvort ekki
væri rétt að stytta lögreglu-
þjónn í löggi, svona hversdags,
eins og þegar lögreglan er í
daglegu tali nefnd löggan.
★
Áslákur austan kvað:
Skv. reglugerð XX, 2 A, h-lið
er torveldað mjög að flytja inn kálið,
en þó er í undirlið a b)
það ákvæði að hægt sé
fyrir ráðherranefnd að möndla til málið.
★
Samsvarandi sögninni að
vanta er lýsingarorðið vanur, í
veikri beygingu vana, og er hið
síðara haft í samsetningum eins
og aflvana, gleðivana, máttar-
vana, vél(ar)vana. Sterka beyg-
ingin tekur með sér eignarfall,
menn voru einhvers vanir, ef
þá vantaði það. í Hávamálum
segir að handar vanur (maður
= einhendur) reki hjörð. Það
getur hann. Nú er sterka beyg-
ingin naumast höfð nema í hvor-
ugkyni. Mér er einhvers vant.
Ég hef þrásinnis heyrt í frétt-
um að skip hafi rekið „vélar-
vana“ í hina eða þessa áttina.
Naumast eru þau vélarlaus. Hitt
væri heldur, að vélin í þeim
væri aflvana.
★
Lýsingarháttur nútíðar af
sögnum (akandi, gangandi,
ríðandi, skríðandi) er hvorki
sannfærandi né fyrirlítandi,
en ofnotkun hans að skandinav-
ískum hætti getur verið hvim-
leið. Stundum er slíkt látið út-
rýma öðru betra. Stöð tvö seg-
ist vera „gefandi“. Mér þætti
betur fara á því að segja gjöful
stöð, þegar hún auglýsir sjálfa
sig.
P.s. I 400. þætti var talið að
Bertel Borgen sýslumaður hafi
reist svokallað Indriðahús á
Akureyri. Þetta er ekki rétt.
Grímur Grímsson Laxdal reisti
húsið, sjá Sögu Akureyrar eft-
ir Jón Hjaltason. Hafa skal það
sem sannara reynist, þó seint sé.
P.p.s. í síðasta þætti varð
Mýdalsá að „Mýrdalsá“. Beðist
er afsökunar á því.
Gott húsnæði óskast
til leigu
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir góðu húsnæði til leigu nú þegar miðsvæðis í
Reykjavík. Húsnæðið þarf að vera í snyrtilegu umhverfi með góðri aðkomu og næg-
um bílastæðum. Það þarf að vera u.þ.b. 600 fm alls að stærð og skiptast þannig:
A. 200 fm vörugeymsla með góðri lofthæð og góðri aðkeyrslu.
B. 300 fm sýningasalur. C. 100 fm bjartar skrifstofur.
Upplýsingar veitir undirritaður,
Tryggvi Agnarsson hdl.,
Garðastræti 38, Rcykjavík,
sími 2 85 05.