Morgunblaðið - 23.02.1991, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1991
Jóhann Sigfús-
son — Kveðjuorð
Fæddur 25. nóvember 1905
Dáinn 16. febrúar 1991
Þegar mér barst fregnin um lát
afa míns, Jóhanns Sigfússonar,
fannst_ mér það mjög óraunveru-
legt. Ég átti erfitt með að skilja
að aldrei aftur ætti ég eftir að
drekka með honum kaffi og ræða
við hann málin. Það er einhvernveg-
inn svo þegar fólk er búið að vera
hluti af tilveru manns eins og afi
var hluti af minni að erfitt er að
átta sig á þeirri breytingu sem
dauðinn óneitanlega hefur í för með
sér. En um leið koma upp í hugann
minningar tengdar hinum látna.
Mínar fyrstu minningar um afa
minn eru frá því að ég var um fimm
ára að aldri, þá bjuggu afi og amma
í Sólhlíð 8 í Vestmannaeyjum. Ég
bar mikla virðingu fyrir afa mínum
og traust mitt átti hann alla tíð.
Þegar ég man fyrst eftir mér í
Eyjum átti afi bíl og í honum fórum
við margar ferðir.inn í dal og niður
á bryggju. Þar var gjarnan gengið
um og afi ræddi við þá sem við
hittum, umræðuefnið var oftast
tengt sjó og sjómennsku enda var
hann nánast allt sitt líf tengdur
sjónum. I fyrstu sem sjó'maður, þá
útgerðarmaður og síðan fékkst
hann við báta- og skipasölu eftir
að hann flutti til Reykjavíkur. Hann
kenndi mér _að þekkja' bátana og
nöfn þeirra. í þessum ferðum okkar
var margt spjallað þó margt sé
gleymt í dag. En það er víst að
fyrir fimm ára snáða var þetta mjög
merkilegt allt saman. Að fá jnnsýn
inn í heim hinna fullorðnu. Ég veit
að áhrif þau sem ég varð fyrir í
samskiptum mínum við afa minn
og ömmu voru hér bæði hollt og
gott veganesti út í lífið.
Einu sinni sem oftar þegar við
afi vorum á gangi niður á bryggju
hittum við samkvæmt mínum skiln-
ingi mann sem talaði útlensku. Afí
gat talað við hann og óx hann stór-
lega í áliti hjá mér fyrir það.
Eftir að afi og amma fluttust til
Lokaátak hafið til að
koma söluskráningu
í fullkomið lag
Eftirlitsmenn heimsækja fyrirtæki og verslanir.
Undanfama mánuði hafa fjármálaráðuneytið
og embætti ríkisskattstjóra beitt sér fyrir
kynningarátaki til að bæta úr vanköntum á
söluskráningu í verslun og þjónustu.
Nú er hafinn lokaþáttur átaksins til að
koma þessum málum í fullkomið lag. Næstu
sex mánuði heimsækja eftirlitsmenn skatt-
rannsóknarstjóra verslunar- og þjónustufyrir-
tæki um allt land til að kanna ástand og notk-
un sjóðvéla og sölureikninga. Ef í ljós kem-
ur að söluskráningu er verulega áfátt hefur
viðkomandi fyrirtæki 45 daga til að kippa
sínum málum í liðinn. Að öðrum kosti verð-
ur því lokað í samræmi við lög sem nýlega
voru samþykkt á alþingi.
Mikilvægi löglegra sjóðvéla og fullkom-
inna sölureikninga er augljóst: Þetta er vís-
bending um full og heiðarleg skattskil og
neytandinn nýtur sjálfsagðs réttar og öryggis
í viðskiptum sínum. Ef allir skila sínu í sam-
eiginlegan sjóð landsmanna verður byrðin
léttari á hverjum og einum. Full skattskil
samkvæmt settum reglum eru grundvallar-
forsendur heilbrigðs viðskiptalífs þar sem
fyrirtækin standa jafnfætis á samkeppnis-
grundvelli.
Forsvarsmenn í verslun og viðskiptum!
Takið vel á móti starfsmönnum skattrannsóknarstjóra
- með ykkar mál á hreinu.
Örvggi /
-heiödrleg skattsM!
FIÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Pt
Reykjavíkur urðu öll samskipti mun
auðveldari en áður þar sem foreldr-
ar mínir bjuggu í Kópavogi og gera
reyndar enn. Afi var óþreytandi við
að koma á sunnudögum og bjóða
okkur systkinunum í bíltúr. í öku-
ferðum þessum var föst venja að
koma við í ákveðinni „sjpppu" og
kaupa kóngabrjóstsykur. Ég hlakk-
aði til þessara ferða alla vikuna og
beið þeirra með óþreyju. Ég heim-
sótti afa oft á skrifstofuna og alltaf
tók hann vel á móti mér.
Einnig heimsótti ég afa og ömmu
í Gnoðarvoginn þar sem þau höfðu
fest kaup á stórri og fallegri íbúð
þegar þau fluttu til Reykjavíkur. Á
heimili þeirra ríkti ávallt sérstakt
andrúmsloft sem einkenndist af
þolinmæði og umhyggju. Aldrei
minnist ég þess að afi talaði höstug-
lega til mín þó oft hafi ég reynt á
þolinmæði hans með spurningum
mínum og barnaskap.
Afi og amma eignuðust fjögur
börn og er móðir mín, Sigríður
Anna, þeirra elst, þá Haukur, síðan
Birgir og yngstur er Garðar. Barna-
börn þeirra munu vera 16 og er ég
þeirra elstur.
Ég er mjög þakklátur fyrir að
hafa fengið tækifæri til að kynnast
og umgangast afa minn svona
lengi, því menn eins og hann eru
vandfundnir.
Ég bið góðan guð að blessa minn-
ingu hans og einnig að styrkja
ömmu mína í sorg hennar. Eftir
sextíu og tveggja ára hjónaband
er bæði erfitt og sárt að kveðja
maka sinn. Ég votta henni mína
dýpstu samúð og bið góðan Guð
að vera með henni.
Óli Jóhann
Jóhann móðurafi okkar er látinn
eftir skamma sjúkdómslegu á 86.
aldursári.
Dauðinn virðist alltaf hafa lag á
því að koma á óvart, þó maður telji
sig vera viðbúinn.
Upp í hugann koma ótal margar
minningar. Flestar tengjast þær
bernskunni því hann Jói afi og hún
Óla amma gáfu sér tíma fyrir
barnabörnin sín. Sunnudagsbíltúrar
og berjaferðir eru óijúfanlegir hlut-
ir minninganna um afa. Ófáar voru
ferðirnar sem farnar voru niður á
höfn enda tengdist sjávarútvegur-
inn ævistarfi hans.
Hann var alla tíð rólegur og orð-
var maður með sitt ákveðna lífsvið-
horf, og höfðingi heim að sækja.
Jói afí hafði einstakt lag á að nálg-
ast barnssálina og þá blómstraði
æringinn í hinum.
í hugum okkar var afi ekki gam-
all 'maður þrátt fyrir háan aldur.
Stafar það af því hversu vel hann
fylgdist með málefnum líðandi
stundar og vinnu stundaði hann til
áttræðs.
Þó söknuðurinn og sorgin séu
djúp á þessari stundu er þakklætið
og virðingin fyrir því sem afi gaf
okkur það sem lifir með okkur.
Við kveðjum afa hinstu kveðju
og biðjum algóðan guð að styrkja
ömmu okkar á þessari stundu.
Hrönn, Rögnvaldur og Örn.
■ EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á hrepps-
nefndarfundi Reykhólahrepps
sunnudaginn 17. febrúar sl.
Hreppsnefnd átelur harðlega þá
ætlun að fresta framkvæmdum við
brú yfír Gilsfjörð þar til 1995.
Hreppsnefnd krefst þess að staðið
verði við loforð um að fram-
kvæmdir hefjist á árinu 1992.
Rétt er að_benda á fyrri samþykkt-
ir hreppsnefndar um sama mál og
þær mörgu undirskriftír sem hafa
farið frá þeim er um Gilsfjarðar-
veginn fara.
Bæði þingmenn Vestfjarða og
Vesturlands hafa samþykkt að
þetta verkefni ætti að hafa for-
gang í vegagerð hér. Ekki eru
nema örfáir dagar síðan að Gils-
fjörður var ófær vegna skriðufalla
en Reykhólahreppsbúar þurfa að
sækja alla læknishjálp til Búðar-
dals. í Gilsfirði hafa orðið alvarleg
slys sem gætu horfið ef vegur
kæmi yfir Gilsfjörð við mynni
hans.
- Sveinn