Morgunblaðið - 23.02.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRUAR 1991
17
Fyrirlestur
um franskar
nútímabók-
menntir
FRANSKI bókmenntafræðingur-
inn Jean-Pierre Salgas heldur
fyrirlestra um franskar nútíma-
bókmenntir í Háskóla íslands
mánudaginn 25. febrúar kl. 17.00
og þriðjudaginn 26. febrúar kl.
17.00.
Jean-Pierre Salgas er sérfræð-
ingur í listasogu og listahugmynda-
fræði. Hann kenndi heimspeki áður
en hann varð bókmenntagagnrýn-
andi við tímaritið „Lire“ (frá 1982),
við „Quinzaine Littérarire" (frá
1983) og í þættinum „Panorama"
á útvarpsstöðinni France-Culture
(frá 1984).
Hann var bókmenntaráðgjafi hjá
Bordas-útgáfufyrirtækinu árið
1984 vegna útgáfu heimildarrits
um bókmenntir á frönsku og hann
hefur einnig unnið við árlega út-
gáfu alfræðiorðabókarinnar „En-
cyclopædia Universalis“ síðan
1985.
Jean-Pierre Salgas er nú ráðgjafi
hjá útgáfufyrirtækinu „La Décou-
verte“ og vinnur að bók um „Wit-
old Gombrowicz“ og „Sögu
franskra bókmennta“.
Fyrirlesturinn 25. febrúar er á
ensku og ber yfirskriftina „Saga
franskra nútímabókmennta" en fyr-
irlesturinn 26. febrúar er á frönsku
og fjallar um franskar nútímaskáld-
sögur („le roman francais contemp-
orain“). Fyrirlestrarnir eru skipu-
lagðir af Menningardeild franska
sendiráðsins, Alliance Francaise og
Félagi áhugamanna um bókmennt-
ir.
Fyrirlestrarnir verða í Háskóla
íslands, stofu 1012, Odda kl. 17.00
og eru öllum opnir og aðgangur er
ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Jakob Berg-
mann látinn
JAKOB Bergmann, fyrrverandi
ríkisgarðyrkjumeistari, lést í
Kaupmannahöfn 17. febrúar.
Foreldrar hans voru Carl A. H.
Bergmann og Ingibjörg Hall-
dórsdóttir frá Neðra-Seli í Landi.
Eiginkona Jakobs var Edith
Bergmann og áttu þau eina dóttur,
Birthe. Hún er barnakennari. Bróð-
ir Jakobs, Andreas S.J. Bergmann
gjaldkeri hjá Völundi, lést fyrir
nokkrum árum.
--------------
Hringur sýnir
á Mokkakaffi
HRINGUR Jóhannesson opnaði
þann 21. febrúar sýningu á 20
teikningum á Mokkakaffi við
Skólavörðustíg.
Teikningarnar
eru allar úr Þing-
holtunum og þar
í grennd, hús,
götur, fólk og
tré. Myndirnar
eru allar til sölu.
Sýningunni lýk-
ur 13. mars
næstkomandi.
Sveinbjörn Egilsson.
200 ár liðin frá fæðingu Sveinbjarnar Egilssonar:
Minningarhátíð o g sýning
BÆJARSTJÖRN Njarðvíkur gengst fyrir hátíðarhaldi sunnudaginn 24.
febrúar í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Sveinbjarnar
Egilssonar fyrsta rekstors Lærða skólans í Reykjavík. Landsbókasafn
Islands efnir um þessar mundir til sýningar á verkum hans.
Auk kennslunnar á Bessastöðum
voru þýðingar, fornfræðiiðkanir og
orðabókarstörf aðalviðfangsefni
Sveinbjarnar, og vann hann þrekvirki
á öllum þessum sviðum, eins og sjá
má á sýningu Landsbókasafns í and-
dyri Safnahússins við Hverfisgötu,
sem opin er á opnunartíma safnsins,
mánudaga til .föstudaga kl. 9.00-
19.00 og á laugardögum kl. 9.00-
12.00. Sýningin mun standa fram í
apríl.
Guðsþjónustan hefst í Innri-Njarð-
vík kl. 14, sr. Þorvaldur Karl Helga-
son predikar. Afhjúpaður verður
minnisvarði Sveinbjarnar í Innri-
Njarðvík. Formaður hátíðarnefndar-
innar flytur ávarp. Kl. 15.30 hefst
samkoma í Stapa. Skólahljómsveit
Tónlistarskóla Njarðvíkur leikur und-
ir stjórn Haraldar Arne Haraldssonar
skólastjóra. Jón Böðvarsson ritstjóri
flytur erindi um fræðimanninn Svein-
björn Egilsson. Magnús Sigmunds-
son flytur nýtt eigið lag við ljóð eft-
ir .Sveinbjörn. Helgi Skúlason leikari
les kafla úr Odysseifskviðu. Kirkju-
kór Ytri-Njarðvíkurkirkju syngur við
undirleik Gróu Hreinsdóttur. Krist-
björg Kjeld leikari les ljóð eftir Svein-
björn. Að lokum syngur Barnakór
Ytri-Njarðvíkurkirkju barnavísur eft-
ir Sveinbjörn. Gróa Hreinsdóttir
stjórnar.
Sýnd verða vet'k Sveinbjarnar og
börn úr Grunnskóla Njarðvíkur
skreyta salinn. Kaffiveitingar verða
í boði bæjarstjórnar Njarðvíkur.
ÞEIR VÆGAST SAGT
REfiriAÚT
Þetta eru þær hliðar sem við helst
sjáum á Missan Sunny þessa
dagana, því viðtökur hafa verið hreint
frábærar. Nú er svo komið að verulega
er gengið á fyrstu sendingu og
ráðleggjum við þér því að bíða ekki
með að koma og skoða Nissan Sunny
hafir þú áhuga á að fá hann strax.
Sýning laugard. og sunnud.
frákl. 14:00-17:00.
Einnig B.Q. Bílakringlunni, Qrófinni 8,
KeflavíK laugard. frákl. 10:00-17:00
ogsunnud. 13:00-17:00.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000