Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐID
FÓLK í FRÉTTUMÍsunnu'dagur
24. MARZ 1991
; '47
SKIÐI
Þóttu sniðugt sjónvarpsefni
ICELAND
f4Ai:IW-
a se 4- * y ©.
r ■- ± i 75* y /<
•f ysr ® t a s a<
„ÍACJl ° < X
V' 75* V lí «7
I 5Xffi7*Lfcy
T
__________________ -í
i 2 + — j8# i k
ll'x
ffl S: 3§
° lu ® © jy, P
»■- se ð xj/fcia7t
C ffl —/v x tþ t|
' A- £z
:Í70
:-r .1 g
o ít)
___ -5ÁA-e
T é M -e & ^ 18
7C L
fes-
oMOfÆ K 1;
N IC "C © ií * 75*
y « « í? 7L Fi ' »
x<xyyxx;>„,
í> 3-íf x ;u (A^ 475|7K
5 * @1 y h í £ '3
x tn © -v i v' ss jk -s
o» v y ;u °*xtto
Skíðafjölskyldan íslenska og japönsk umsögn. Þetta er sem sé blað-
aúrklippan sem um er rætt...
Á fjörur Morgunblaðsins rak fyr-
ir skömmu mynd af heldur kunn-
uglegu fólki. Mynd þessi var í lit
og hluti af blaðaúrklippu og þótt
ritmál klippunnar væri á tor-
kennilegu hrognamáli, japönsku
eða kínversku, fór ekki á milli
mála að fólkið var íslenskt.Það
gekk undir spjaldi og fána Is-
lands og klæddist skíðagöllum í
fánalitunum.
Myndin og textinn torkennilegi
fylgja þessum línum, en bent
var á að Valdimar Ömólfsson Kerl-
ingarfjallagoði væri annar frá
hægri á myndinni og sjá, rétt var
það. Morgunblaðið hafði samband
við Valdimar og spurði hann hvað
þetta ætti eiginlega að þýða.
Valdimar kannaðist strax við mál-
ið og sagði í fyrstu að um japönsku
væri að ræða, enda væri hann ný-
kominn heim frá Japan ásamt eigin-
konu sinni Kristínu og sonum sínum
tveim Örnóldi og Kristjani, en strák-
arnir hefðu keppt á vetrarleikum
stúdenta sem haldnir voru í Sapp-
pro á Hokkaido. Örnlfur, sem er
íslandsmeistari í skíðaíþróttum stóð
sig mjög vel, en Kristján sem er
ekki í eins góðri æfingu stóð einnig
fyrir sínu.
Myndin sem um ræðir, var tekin
á setningarathöfn leikanna og birt-
ist í einu af stærstu blöðum Jap-
ans. Birtingin hafði nokkuð óvænt
í för með sér og Valdimar segir
nánar frá: „Ja, það var þannig að
það kvisaðist út að íslensku fulltrú-
amir væm fjölskylda, ég var farar-
stjóri strákanna og við buðum
Kristínu út með okkur. Þetta varð
til þess að japanskir fjölmiðlar
fengu á tilfinninguna að við gætum
verið skemmtilegt efni. Það birtust
við okkur viðtöl i útvarpi og blöð-
um, en mest gekk á er tvær sjón-
varpsstöðvar settu sig í samband
við okkur og vildu fá að fylgjast
með okkur. Úr varð að stór- svig-
keppnisdaginn var mikið lið við
hvert fótmál, þrír kvikmyndatöku-
menn fylgdust með strákunum fara
ferðirnar sínar og ein vél til var á
okkur hjónunum og var tekið viðtal
við okkur á meðan strákarnir fóru
brautina. Hin sjónvarpsstöðin ætl-
aði að fylgja okkur á æfingu daginn
eftir en er henni var aflýst vegna
veðurs varð úr að ekið var með
okkur um alla Sapporo og okkur
gefínn kostur að smakka það besta
í japönskum mat. Það var tekið við-
tal við okkur innandyra í stað utan.
Þetta var svo allt saman sýnt á
tveimur sjónvarpsrásum á meðan á
keppninni stóð.“
Hvað hefði komið þeim hjónum
og sonum einna mest á óvart sagði
Valdimar að margt hafi verið fram-
andi í Japan. Þau ættu þó mjög
skemmtilega minningu frá jap-
önsku veitíngahúsi þar sem íslenskt
lambakjöt, fituskorið og grillað í
strimlum var aðalrétturinn og Jap-
anir hefðu staðið í langri biðröð
eftir að komast að. Veitingamaður-
inn hefði boðið þeim í mat með
þeim orðum að hann væri búinn að
gera það svo gott með íslenska kjöt-
inu að hann vildi sýna Islendingum
hlýhug í staðinn! „Hann átti átta
veitingastaði, alla með þessu sniði
og allt snérist í kring um lambakjö-
tið sem hann sagði eina lambakjö-
tið sem væri lyktarlaust. Staðurinn
sem við borðuðum á var bara einn
svona langur bar þar sem 25 til 30
manns gátu setið og borðað. Og
biðröðin var löng og það var næst-
um slegist um hvert pláss sem losn-
aði,“ sagði Valdimar...
F.v.Ólafur Jensson formaður ÍF, þá Boonchang-hjónin, kokkurinn Jóhannes Márog Camilla Th. Hallgr-
ímsson varaformaður ÍF.
HÖFÐINGSSKAPUR
Safnaði fyrir fatlaða
THAILENSKUR veitingamaður,
Shakravut Boonchang, átti af-
mæli fyrii' nokkru. Hann er eig-
andi Ingólfsbrunns ásamt eigin-
konu sinni, en í tilefni af afmæl-
inu hét hann því að veita ókeyp-
is á af mælisdeginum. Aftur á
móti máttu menn borga hvað
þeir vildu og skyldi hver eyrir
renna til íþróttasambands fatl-
aðra.
Að sögn Önnu K. Vilhjálmsdótt-
ur framkvæmdastjóra íþrótt-
asambands fatlaðra komu í kassann
120.000 krónur í fijálsum framlög-
um og færði Boonchang samband-
inu peningana eins og um hafði
verið talað. Peningamir munu
renna til norræns Barna- og ungl-
ingamóts sem haldið verður í Dan-
mörku í júní næst komandi.
Listamaðurinn l.t.h. ræðir við opnunargesti.
MYNDLIST
Þarf ekki að taka tillit til
annarra eins og í leikhúsi
FYRIR stuttu opnaði Þórunn S.
Þorgrímsdóttir þriðju einkasýn-
ingu sína, í Galleríi Sævars Karls
í Bankastræti. Þórunn hefur
einnig tekið þátt í mörgum sam-
sýningum myndlistarmanna, en
þekktust er hún fyrir verk sín í
leikhúsinu. Hún er leikmynda-
hönnuður, menntuð í Þýskalandi
og Austurríki og hefur hannað
umgjörð í kring um sum okkar
þekktustu leikhúsverka eins og
Stundarfrið, Dag Vonar, Garð-
veislu og Sölku Völku.
A
IGalleríinu gefur að líta heilsteypt
verk, tvinnað saman af 5 mynd-
verkum Þómnnar og tónlistarverki
Þorgríms Páls bróður hennar, svo
út kemur, leiksyning? Hvað segir
Þómnn? „Þetta er jú annar vett-
vangur en leikhúsið. Hins vegar
finnst mér gott og gaman að vinna
með rými og kemur það eflaust
fram í þessari sýningu. En ég þarf
ekki að taka tillit til annarra hér,
eins og í leikhúsinu. Og ekki við
annan að sakast en mig sjálfa, eig-
in hugsanir eða hugsunarleysi, ef
illa tekst til.
-Hvað myndlistina varðar vildi ég
gjarnan hafa meiri tlma og orku
til að stunda hana. En önnur störf,
þ.e. launuð, taka óneitanlega mikið
frá. í leikhúsinu kemur sýning vel
út ef allir samspilandi þættir fá að
njóta sín. Maður hefur útkomu
heildarinnar að leiðarljósi."
Verkin á sýningu Þórannar eru
unnin á ámnum 1988 til 1991. Þau
em tempera- og olíulitir á lérefti.
Sýningin stendur til 12. apríl og er
opin á verslunartíma.
4
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Moiounverðarfundur Verslunarráös íslands
þriðiudaginn 26. mars 1991 kl. 7.50-9.29
í Súlnasalnum, Hótel Söga
Vliiisaukaskallini ár 24.5% í 15%!
I?
Verslunarráðið kynnir álit skattanefndarfrá
Viðskiptaþingi VI91 um tilgang, framkvæmd
og hlut virðisaukaskatts. Nokkrirfulltrúar
stjórnmálaflokka greina frá viðbrögðum þeirra
og VSK-stefnu - og svara ásamt framsögu-
mönnum spurningum fundarmanna.
Kl. 7.50 Mæting/morgunverður.
Kl. 8.10 VSK 15%.
Steingrímur Ari Arason, hagfræðingur VÍ,
Örn Johnson, framkvæmdastjóri Skorra hf.
Kl. 8.30 15% VSK?
Geir H. Haarde, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins,
Ólafur R. Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins,
Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
Kl. 8.50 Spurningar fundarmanna - svör frummælenda og
stjórnmálamanna.
Kl. 9.20 Fundarslit.
Fundarstjóri: Einar Sveinsson, varaformaður Verslunarráðsins.
Fundurinn er opinn. •
Þátttökugjald með morgunverði kr. 800.
Þátttaka tiikynnist í síma 678910 kl. 8-16 mánudag.