Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 12
 & lauða(dag Núþarf )££ að huga að fermingargjöfinni Heimilistæki hf. hafamargt uppá að bjóða, hér er aðeins brot afþví mikia úrvali sem hægt er að fá bæði í Sætúni 8 og Kringlunni. PHILIPS rafmagnsrakvélin. (SH 255) Rakvél fyrir ungu mennina. Með tveimurfjaðrandi hnífum. Bæði fyrir 110 og 220 W. (Einnig fáanleg með rafhlöðu). PHILIPS hárþurrka. (HP4321) Lítil, létt ogfervel í hendi. Tvær hitastillingar. Smart hárþurrka. Kraftmikil 1500 W. 1970- I I kr.stgr. PHILIPS hljómflutningssamstæða. (AS 9300) Hálfsjálfvirkur plötuspilari. Útvarp með FM MB og LB. Magnarinn er 2x20 músík Wött með tónjafnara. Tvöfalt snældutæki með tvöföldum upptökuhraða. Góðir hátalarar. 4980- I I kr.stgr. SUPERTECH vasadisko. (W 5) Frábær sterioskil í fislétt heyrnartæk- in. Hraðspólun. Stoppar sjálft. Beltis- klemma. SUPERTECH útvap (MR 1000 L) „Smart" útvarp með öflugum magnara. Góður hljómurúrstórum hátalara framan á tæki. 220V og rafhlöður. SUPERTECH heyrnartæki. „Dynamic“ heyrnartæki, betri sterio hljómgæði. Svart og gulllitað. Innpútt fyrir 3.5 og 6.3 mm. Snúra 2 metrar. SUPERTECH útvarpsklukka. (CR 25) FM og miðbylgja. Innbyggt loftnet. Vekjarastilling á útvarp og hljóðmerki. 9 V rafhlaða til öryggis ef rafmagn fer af. PHILIPS 14“ litasjónvarp. (GR 1224) Friðarstillir. Nýtt útlit. Hágæða litaskjár, eðlilegir litir. Fjarstýring. Sjálfleitari. Góður hljómur. SUPERTECH sterioútvarp og segulband. (SCR 801) Handhægt og létt. Sjálfvirk upptökustilling. Innbyggður hljóðnemi. Frábær hljómgæði. Heimilistæki hf SÆTÚNI8SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI691520 óSOMUKgUtK, PHILIPS geislaspilari. (CD 614) Philif er brautryðjandi í framleiðslu geislaspilar Möguleikarnir eru ótrúlegir og tæknin nánast fullkomin. Sjálfvirkt afspilunarminr Spilar bæði 8 og 12 sm diska. Sjón er sögu ríkari. Ó, ÞETTA fR j INDÆU STRI6! framundan og því mikið um sölu á svokölluðum „heitum vörum“ eins og t.a.m. páskaeggjum. Ég hef þá trú að verð eigi eftir að hækka aft- ur eftir páska. Ég tel það óæskilegt að enginn veiti Hagkaup samkeppni. Það verður að vera mótvægi gegn stærsta aðilanum á markaðinum, og Mikligarður er þetta mótvægi. Við erum með traustan hóp við- skiptavina, og fínnum að fólk vill hafa ákveðið jafnvægi í verslunar- háttum. Það er viðskiptavinurinn sem tryggir samkeppnina.“ Feftir verð lækkun, en forráðamenn Bón- us sögðu söluna hafa aukist eins og fyrr er sagt. Of snemmt er að segja til um sölu §’ 'á Miklagarði, en lafur Friðriksson segir að þeir í Mik- lagarði hafi fengið mikinn meðbyr frá áramótum. „Eins og aðrir leitum við nýrra leiða til betri innkaupa og lækk- unar vöruverðs. Við leggjum ekki endilega áherslu á sömu vörumerki og samkeppnisaðil- ar og því kemur Mikligarður oft ekki eins vel út í verðkönnunum og aðrar verslanir." Þótt verð hafí lækkað á pakka- vörum hefur það ekki lækkað á grænmeti, fiski, brauði og landbún- aðarvörum. í öllum verslunum er hægt að fá þær vörur og í Bónus er 10% afsláttur af landbúnaðarvör- um. í verðkönnun sem gerð var sl. fímmdudag kom í ljós að munur á verði er mikill eins og meðfylgjandi tafla sýnir. I Bón- us var innkaupa- karfan 279 krón- um ódýrari en í Hagkaup, og 416 krónum ódýrari en í Miklagarði. Vör- umar sem valdar voru eru mjög al- gengar, og voru ferskvörur teknar með svo sem mjólk, kjöt og grænmeti. Þessar vörur virðast gera gæfumuninn, en ekki margumræddar pakkavörur. á er komið að viðskiptavinin- um sem allt snýst um. Hvar vill hann versla? Oftast vill fólk fá sem mest fyrir aurana sína og helst af öllu eyða sem minnst í matvörur, svo að af- gangur verði fyrir því sem kallað er munaður. En menn vilja líka hafa úr nógu mörgum vörutegund- um að velja og helst hafa verslanir rúmgóðar, því fátt er leiðinlegra en troðast með körfuna og komast hvorki aftur á bak né áfram þegar ösin er mest. Þegar mest er að gera hjá Bónus er erfitt að athafna sig með inn- kaupakörfu því húsnæði er lítið en viðskiptavinir oftast mjög margir. En ekki er að sjá mikil geðbrigði á viðskiptavinum þótt þeir þurfi að þrengja að sér, enda er erfitt að vera í illu skapi þegar einhver von er um að gera góð kaup. Hvergi er afgreiðsla hraðari en í Bónus og eru menn varla búnir að koma vör- unni á borðið þegar hún er tilbúin í pokana. Strikakerfi er notað í Bónus og einnig í Miklagarði, þótt afgreiðsla sé ekki eins hröð þar. I Hagkaup er vöruverð stimplað inn í kassann og afgreiðsla því öllu hægari, en kannski bætir alúðleg framkoma afgreiðslufólks upp hraðann, því hvergi nema í Hag- kaup býður af- greiðslufólkið viðskiptavininum góðan daginn, að fyrra bragði. Það er því ekki ætíð hraðinn sem gildir. Verslunarrými í Hagkaup í Kringl- unni er með því besta sem gerist og því lítið um þótt sé. má raunar segja um aðrar verslanir Hagkaups og um verslanir Mikla- garðs. í stórmörkuð- unum er bakarí, kjötborð, fískborð, og í Hagkaup er salatbar. Það er því margt sem gleður augað og kannski hverfa vörur ofan í körfuna sem áttu upphaflega ekki að lenda þar. Gæði vörunnar hafa gífurlega mikið að segja og mönnum er ekki alveg sama hvernig helgarsteikin bragðast. Nautahakkið frá Mikla- garði sem fór ofan í innkaupakörf- una bar t.d. af hvað gæði snertir, var rautt, fítus- nautt og bragðg- ott. I stórmörkuðum er oft hægt að rækta félagslega þáttinn, ósjaldan rekast menn á kunningja og halla sér þá fram á körf- una meðan rætt er um daginn og veginn, en slíkt væri miður gott í Bónus því þar yrðu menn bara fyrir hver öðrum. Hins vegar bætir reikn- ingurinn í Bónus upp hinn félags- lega þátt. Það er ólýsanleg ánægja að borga minna fyrir matvöru en menn annars eru vanir. Það fer því mikið eftir einstakl- ingnum hvernig hann vill versla og hvar. Ef mönnum finnst gaman að gera matarinnkaup, hafa þokkaleg- an tíma og langar til að sýna sig og sjá aðra, þá velja þeir stærri verslanir, en ef þeir vilja ljúka þessu af sem fyrst eru minni verslanir hentugri, þ.e. ef þær bjóða lágt vöruverð. Neytendur eru eflaust þakklátir þeim sem fyrstir buðu upp á lágt vöruverð með þeim afleiðingum að skriðan fór af stað, og ólíkt öðrum stríðum er þetta stríð verulega in- dælt. Vonandi helst það sem lengst og víst er, að það eru neytendur sjálfir sem ráða hversu lengi það varir. I stðrmörkuðum er oft tiægt að rækta félags- lega þattinn, osjaldan rekast menn á kunn- ingja og halla sér áá fram á körfuna meðan rætt er um daginn og ^ veginn, en slíkt væri miður gott í Bénus tví öar yrðu menn bara fyrir hver öðrum. Verslanakeðiurnar brjár eru um margt ólíkar. Hjá Bánus star- far aðeins 21 maður, meðan um 1.000 manns eru á launaskrá hjá Hagkaup og 600 hjá Miklagarði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.