Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIS’ 'PlMMTUbÁGUKlW. 'ÁPllÍL 19ÍÍ1 & Sala á bjór minnkar en sala á sterkari drykkjum eykst Neftóbakssala eykst en minna selst af vindlingum og öðru tóbaki Afengissala dróst saman um 3,53% í lítrum talið en jókst um 0,42% í alkóhólítrum fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Bjórsala dróst saman um tæplega 100 þúsund Bíldudai. LÍNUBÁTURINN Geysir BA 140 frá Bíldudal fékk á sig brotsjó í fyrrinótt, þar sem hann var staddur á veiðum út á Röst. Brotið lenti á stjómborðssíðunni og braut festingu á dráttarspilinu.- Einnig dældaðist kar á millidekki. lítra, eða 7,27%. Sala í flestum flokkum áfengis og víns jókst, en minna selst af kampavíni, vermút- um og genever. Sala á nef- og munntóbaki jókst um 5,19%. Sala á vindlingum dróst saman um Einn maður var staddur við lúguna þegar brotsjórinn reið yfir bátinn, en hann sakaði ekki. Um átta vind- stig voru á miðunum þegar þetta gerðist og aðeins ljórir bátar á sjó. R. Schmidt 0,88%. Sala á reyktóbaki minnk- aði um 7,41% og sala á vindlum var 1,743% minni en í fyrra. Mest selda áfengistegundin hjá ÁTVR er Smirnoff vodka; af honml- isum seldust rúmlega 49.500 lítrar. Beck’s er mest selda bjórtegundin; af henni seldust um 331 þúsund lítr- ar. Næst kemur Löwenbrau með rúma 279 þúsund lítra. Á 50 lítra kútum til veitingahúsa voru alls seld- ir 101 þúsund lítrar af bjór. Af einstökum víntegundum jókst sala á rósavíni mest, um 27,29%. Sala á rauðvíni og hvítvíni var um 13,4% meiri en fyrstu þijá mánuðina í fyrra. Mest selda vindlingategundin á landinu er Winston, af henni seldust tæplega 1,8 milljónir pakka á fyrstu þremur mánuðum ársins. Winston Lights selst næst mest. Af reyktó- baki selst mest af Half and Half og Prince Albert, 25 - 27 þúsund pakk- ar á þremur mánuðum. Fauna selst mest af vindlategundum, um 758 þúsund stykki fyrstu þijá mánuðina en á sama tíma seldust 748 þúsund Bagatello-smávindlar. Bíldudaiur: Geysir BA 140 fékk á sig brotsjó VEÐURHORFUR í DAG, 11. APRÍL YFIRLIT i GÆR: Við Jan Mayen er 985 mb lægð sem þokast norð- norðvestur en á Grænlandshafi er aðgerðalítil 995 mb lægð sem hreyfíst lítið. Frost verður um allt land. SPÁ: Hæg austlæg dátt, noklfúð bjart veður og talsvert frost um mestallt landið fram eftir morgni en vaxandi norðaustanátt um austanvert landið undir hádegi, allhvass eða hvass austanlands síðdegis. Él um austanvert landið og á annesjum norðanlands þegar líður á daginn. Um hádaginn ætti að vera frostlaust syðst á landinu. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Um austanvert landið verður norðanátt og él við norðausturströndina en bjart suðaustanlands. Vestan- lands verður suðlæg eða breytileg átt og él á annesjum. Kalt verð- ur áfram. HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi suðaustan átt og hlýnandi. Snjókoma og síðan slydda sunnanlands og vestan en úrkomulítið norðaustanlands. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V Él EE Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld oo 4 K Mistur Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri +6 léttskýjað Reykjavik+3 léttskýjað Bergen 13 léttskýjað Helsinki 7 skýjað Kaupmannahöfn 10 skýjað Narssarssuaq ■«■6 skýjað Nuuk ■i-8 skýjað Osló 6 rigning Stokkhólmur 13 skýjað Þórshöfn 5 rlgning Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 18 mistur Barceiona 16 mistur Berlfn 13 léttskýjað Chlcago 2 alskýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow 10 rigning Hamborg 15 skýjað Las Palmas 20 iéttskýjað London 17 skýjað LosAngeles 18 heiðskfrt Lúxemborg 15 skýjað Madríd 20 léttskýjað Malaga 19 heiðskírt Mallorca 17 skýjað Montreal 3 skúr NewYork 20 skýjað Orlando 20 hálfskýjað París 18 léttskýjað Róm 18 heiðskirt Vfn 11 skýjað Washington 18 alskýjað ýVinnipeg 0 skýjað Morgunblaðið/Julms Okumenn tveggja bifreiða slösuðust í hörðum árekstri á mótum Hálsabrautar og Krókháls, þar sem slys eru tíð. Tveir slösuðust í árekstri á hættu- legum gatnamótum HARÐUR árekstur tveggja bifreiða varð á mótum Krókháls og Hálsabrautar um klukkan 16 í gær. Ökumennirnir slösuðust báðir, þó ekki alvarlega, en bifreiðir þeirra eru taldar ónýtar. Fjöldi slysa hefur orðið á þessum gatnamótum og líður vart vika án árekstra þar. Áreksturinn varð með þeim hætti, að bifreið var ekið vestur Krókháls og annarri suður Hálsa- braut. Almennur umferðarréttur gildir á gatnamótunum og hefði ökumaðurinn, sem var á leið vestur Krókhálsinn, því átt að víkja. Hann taldi sig hins vegar vera á aðal- braut og sá hina bifreiðina ekki fyrr en um seinan. Áreksturinn var mjög harður og flytja þurfti báða ökumennina á slysadeild. Þeir munu þó ekki vera alvarlega slas- aðir. Þijú börn, sem voru í annarri bifreiðinni, sluppu ómeidd. Báðar bifreiðirnar eru taldar ónýtar. Að sögn Steinþórs Hilmarsson- ar, lögreglumanns, sem kom á vettvang, líður vart vika án þess að árekstur verði á gatnamótun- um. Steinþór sagði að ökumenn héldu sig gjarnan vera á aðai- braut, hvort sem þær ækju Hálsa- braut eða Krókháls, þar sem gö- turnar væru báðar breiðar og eng- ar byggingar byrgðu sýn. Hann sagði að lögreglumenn hefðu áhyggjur af slysatíðninni á gatna- mótunum og óttuðust að ekki yrði bætt úr fyrr en einhver lægi í valn- um. Securitas: Fjöidi fyrirspurna um öryggishnappa „FÓLK virðist ekki hafa gert sér grein fyrir gildi öryggishnappsins fyrr en Lions-hreyfingin hóf átak sitt til að stuðla að útbreiðslu hans. Síminn hefur hringt látlaust hjá okkur undanfarna daga og fjöldi starfsmanna fæst við það eitt að svara fyrirspurnum um hnapp- inn,“ sagði Hannes Guðmundsson, framkvæmdastjóri Securitas hf., í samtali við Morgunblaðið. Megintilgangur öryggishnapps- ins er að gera sjúkum, öldruðum og fötluðum, sem búa einir, kleift að búa lengur heimá. Þegar stutt er á Öryggishnapp sendir hann boð til stjórnstöðvar Securitas og jafn- framt næst símasamband við þann sem er með hnappinn. Um 500 hnappar eru nú í notkun, flestir á höfuðborgarsvæðinu, eða um 95%. „Eftir sjónvarpsþátt Lions-hreyf- ingarinnar og kynningu í öðrum fjölmiðlum hefur almenningur áttað sig á möguleikum öryggishnapps- ins,“ sagði Hannes Guðmundsson. „Ég er þess fullviss að notkun hans á eftir að margfaldast á lands- byggðinni.“ Santa Barbara: Stöð 2 reynir að fá þættina til sýninga „ÞAÐ skýrist í lok mánaðarins hvort við fáum Santa Barbara-þætt- ina aftur, en fyrirspurnum hefur nánast ekki linnt frá því að sýningum var hætt,“ sagði Pétur Hanna, innkaupafulltrúi hjá Stöð 2, í samtali við Morgunblaðið. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær hefur íslensk leik- kona, María Ellingsen, verið ráðin til tveggja ára til að leika hlut- verk í þáttunum. Pétur sagði að Sýn hefði keypt sýningarréttinn á þáttunum, en eftir að útséð hefði verið um sjónvarpsrekstur Sýnar hefði Stöð 2 reynt að kaupa rétt- inn að nýju. „Það ber enn nokkuð á milli í verðhugmyndum okkar og framleiðanda þáttanna," sagði hann. „Fulltrúar frá Stöð 2 fara utan í næstu viku óg þá verður reynt að ganga endanlega frá samningum. Ég er nokkuð bjart- sýnn á að það takist, en þori ekki að lofa neinu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.