Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 55 ur vakandi manns. En versnandi heilsa ömmu leiddi til þess að þessi bjartsýna kona kom ekki framar í heimsókn til mín til að hlusta á tóna þá er hún hafði svo mjög not- ið áður. En í hvert sinn er ég sest við píanóið veit ég að amma er að hlusta á mig og að hana langar til að hlusta á mig um ókomna tíð. Því mun ég halda áfram að leika á píanóið svo lengi sem ég lifi. Að sjá ömmu var alltaf gleðilegt. Hver stund var auðug af kærleika og hvert augnablik skreytt gim- steinum gleðinnar. í lífsstormum var þessi hrausta og ljúfa kona eik og klettur, en á sólskinsstundum vín og blóm. Og hún unni öllu list- rænu, því fegurðin, litir og tónlist hrifu hana til tára. Mikið hefur verið fagurt að sjá heiminn endur- speglast í þessari sál. Hún amma mín kvaddi virðulega að leiðarlokum, eins og olíuviðar- berið fellur þegar það er fullþrosk- að, blessandi greinina sem það bar og þakklátt þeim er gaf því líf. Lífið er þröngur dalur milli kaldra og berra tinda tveggja eilífða. Við freistum þess árangurslaust að skyggnast yfir brúnirnar. Við grát- um hástöfum, en eina svarið er bergmál vorra eigin kveinstafa. Ekkert orð berst frá rómlausum orðum síþöguls dauðans. En það kemur að því að vonin sér stjörnu- glit og hlustandi kærleikur heyrir vængjaþyt. Ég vona að ömmu hafi alltaf dreymt að fótatak dauðans væri boðun endurkomu heilbrigðar- innar. Þrátt fyrir allan efa og aðrar kenningar vil ég trúa því að þessi orð séu og verði alltaf sönn. Eitt er víst að amma var kjarna- kona og hún mun alltaf lifa í minn- ingu minni. Endurminningin er nefnilega eina Paradísin sem ekki er hægt að reka okkur úr. En lífið heldur áfram, sólin rís og sólin hnígur til viðar, börn fæðast og fólk deyr. En munum það enn að þegar ein hurðin lokast opnast önn- ur. Þegar tindinum er náð fæst hvíldin. Blessuð sé minning ömmu minnar. Ólafur Reynir Guðmundsson Það var mikil harmafregn er mér barst 4. apríl, að mín ástkæra amma væri látin. Æviárin voru vissulega orðin mörg, en einmitt þess vegna var hlutur hennar í lífi mínu svo mikill og ógleymanlegur. Hin létta lund hennar og bjartsýni lét mann einnig gleyma hinum háa árafjölda. Á heimili hennar á Dyngjuvegi 10 ríkti oft glaumur og gleði og mið- depill alls var hin tignarlega og fagra kona — ættmóðirin — eins og fagurt blóm í fullum skrúða, veitandi vinum og vandamönnum af sinni miklu gestrisni og hjarta- hlýju. Börn hennar og barnabörn munu ávallt minnast þeirrar ástúð- ar og birtu sem lék um hana. Eftir að heilsu hennar hrakaði og hún gat ekki ferðast lengur með okkur, rifjuðum við oft upp ferðalögin sem við fórum saman í, innanlands og utan, og í huganum og með hjálp mynda endurlifðum við ferðalögin sem voru henni svo hugstæð. Gleði hennar var gleði okkar. Samveran me_ð henni er ógleymanleg. I dag minnist ég elsku ömmu minnar með miklum söknuði. Hún var og mun verða besta fyrirmynd lífs míns. Eg sakna þess að geta ekki veitt henni hinstu kveðju mína vegna veru minnar erlendis. Megi hin góða sál ömmu minnar hvíla í friði. Karólína Björg Guðmunds- dóttir, Fullerton, Kaliforníu. Fríð í sjón og horsk í hjarta, höfðings-lund af enni skein, svipur, athöfn - allt nara skarta af því sálin var svo hrein. (Matt. Joch.) Vinkona mín, Karólína Sveins- dóttir, er horfin okkur, á 96. aldurs- ári. Miklu og fögru lífsstarfi er lokið. Karólína fæddist í Reykjavík, og átti þar heimili alla ævi, en ætt Karólínu treysti ég mér ekki til að iraHjab útio ninov ivcj .JafiJæi ibhylB Karólína giftist fjölhæfum gáfu- manni, Ásgeiri Ásgeirssyni frá Fróðá. Heimili þeirra hjóna var mikið fyrirmyndarheimili, og gest- risni ríkti þar svo af bar. Þau eign- uðust 6 börn,_ 5 sonu og eina dótt- ur, sem eru: Ásgeir verkfræðingur, Sveinn hagfræðingur, Guðmundur forstjóri, Birgir lögfræðingur, Bragi listmálari og yngst er Hrefna, hún er stúdent frá MR, en stundaði síð- an framhaldsnám í Bandaríkjunum. Birgir lést fyrir nokkrum árum, langt um aldur fram. 011 hafa börnin elskað og dáð móður sína, og er aðdáunarverð umhyggja Hrefnu við móður sína í veikindum hennar, en hún dvaldi á heimili sínu framundir það síðasta, og var ávallt umvafin ást og um- hyggju allra barna sinna. Með þessum fátæklegu kveðju- orðum vil ég þakka Karólínu fyrir hennar dýrmætu vináttu. V. Bl. H FÉLAG íslenskra fræða heldur fund í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í Skólabæ við Suðurgötu. Þar mun Helgi Skúli Kjartans- son sagnfræðing- ur flytja erindi sem hann nefnir: Hvað var betra / er fyrir baugum réð / Brandr inn örvi? Hvað var Helgi Skúli Kjartansson svona athugavert við Sturlungaöld? í erindi sínu ræðir Helgi um aðild Islendinga að evrópsku menningar- væði hámiðalda og reifar hugmyndir okkar tíma um Sturlungaöld sem óheillaskeið. Þá reynir hann að varpa ljósi á viðhorfmanna á Sturlungaöld til ófriðar og konungsvalds með hlið- sjón af evrópskum samtíma. Að lok- inni dagskrá gefst mönnum kostur á léttum veitingum. Fundurinn er öllum opinn. (Frcttatilkynning) ■ DANNY Newmann, söngvari og blúsgítarleikari, fyrrverandi meðlimur hljómsveitarinnar Manfred Malin skemmtir gestur á Gikknum við Ármúla 7 föstudags- og laugardasgkvöld. Ásamt honum leika Tryggvi Hub- ner, Rúnar Júlíusson, bassi og Bobby Harrisson trommur. Hljóm- sveitin leikur aðallega blús og rokk. ■ TÓNLEIKAR með K.K. og Bob Manning verða fimmtudagskvöldið á Tveimur vinum. Bob Manning er Bandaríkjamaður, soulsöngvari með meiru og hefur m.a. starfað með James Brown, Four Tops, Bo Diddley, Gladys Knight svo ein- hvetjir séu nefndir. í hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar eru að auki Þorleifur Guðjónsson, Sig- tryggur Baldursson, Sykurmoli, Eyþór Gunnarsson úr Mezzoforte og saxófónleikarinn góðkunni Sig- urður Flosason. Föstudag og laug- ardag skemmtir Nýdönsk. Sunnu- dags- og mánudagskvöld skemmtir svo ein af efnilegustu hljómveitum yngri kynslóðarinnar Ber að ofan. SKRUFUR, allar gerðir. Boddýskrúfur, rafgalvaniseraðar og ryðfríar. Tréskrúfur, sjálfborandi skrúfur, spónaplötuskrúfur. Opiðfrá 8-18 Laugardaga 9-13 STRANDGATA 75 HAFNARFJÖRÐUR Tt 91-652965 a guarantee lor quality VOR IÐ TJÖRNINA / dag opnar Alþýðubandalagið KOSNINGAMIÐSTÖÐ / Iðnó! dag kl. 17 opnar Alþýðubandalagið í Reykjavík KOSNINGAMIÐSTÖÐ í Iðnó. * Lúðrasveit verkalýðsins leikur fyrir fólk og fugla. *Guðrún Helgadóttir alþingismaður býður gesti velkomna. *Jakob Þór Einarsson íeikari les Ijóð. sF Bjartmar Guðlaugsson tekur lagið. ♦ Heitt á könnunni. KOSNINGAMIÐSTÖÐIN í Iðnó verður opin daglega fram að kosningum frá kl. 9-22 fyrir alla þá sem vilja kröftuga, skemmtilega og árangursríka kosningabaráttu. Kaffi, meðlæti og spjall verða að sjálfsögðu í hávegum höfð, en auk þess mun listafólk standa fyrir allskonar uppákomum. Frambjóðendur G - listans í Reykjavík verða daglega á staðnum milli kl. 17 og 19 til skrafs og ráðagerða. Nóg að starfa fyrir alla, unga sem gamla. 4Lk Tökum á móti vorinu! Tökum á! G-USTINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.