Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
4-----,
FÖT
SAOMOP ErTlíZ. MALI
/, SjÖtiu OCj fih*m grútur."
Ást er ...
Með
morgimkafftnu
TMRag. U.S. PatOff.—all nghta resarved
® 1991 Los Angeles Times Syndicate
Þessir hringdu ..
Köttur fannst
Sigríður Guðmannsdóttir hringdi
og sagðist hafa fundið kött á flæk-
ingi fyrir um það bil mánuði síð-
an. m væri að ræða þrílitan um
það bil 7 mánaða gamlan kettl-
ing. Hann er með hvíta 61, en
ómerktur. Kötturinn fannst í efru
hluta Hlíðahverfis. Sigríður er í
síma 15907 á kvöldin.
Hjól í óskilum
Stefanía Valgeirsdóttir hringdi og
sagðist hafa gengið fram á hjól í
Bústaðahverfi. Um væri að ræða
Amerískt 18 gíra fjallahjól. Eig-
andinn getur vitjað gripsins í síma
45601 á kvöldin.
Tapaði tveimur nælum
Anna S. Björnsdóttir hringdi og
hafði týnbt tveimur eftirlætisnæl-
um sínum. Laugardaginn fyrir
pálmasunnudag týndist sú verð-
mætari, lítil slaufa úr silfri og
messing einhvers staðar á svæð-
inu frá Regnboganum á Hverfis-
götu og upp að Hlemmi. Fyrir
hálfum öðrum mánuði týndist hin
nælan, 2 laufblöð á grein, með
litlum perlum í. Anna man síðast
eftir sér með næluna í barminum
í Breiðholtsskólanum. Símar
Önnu eru 642373 heima og 73000
í vinnunni.
Kvenmannsúr fannst
Kvenmannsúr fannst í Lyng-
brekku í Kópavogi á 2. í páskum.
Upplýsingar fást í síma 40132
eftir klukkan 17.
Ljósgulbröndóttur högni...
Dagur Ben. hringdi og sagði eftir-
farandi: Ungur, um það bil 7
mánaða gamall ljós- og gulbrönd-
óttur högni kíkti í heimsókn til
mín á miðvikudaginn 3. apríl.
Hann sýnir ekki á sér neitt farar-
snið. Ef einhver saknar kattarins
vinsamlegast hringið í síma
626534.
„Vel vaninn“ fæst gefins
Kolbrún hringdi og sagðist vera
með 9 vikna „vel vaninn“ högna
sem vantaði gott heimili og feng-
ist gefins. Litli kappinn er svartur
á lit og síminn hjá honum (og
Kolbrúnu) er 46465.
Tapaði eyrnalokk
Kona hringdi og hafði tapað stór-
um silfureyrnarlokk utandyra í
austurbæ Kópavogs á 2. í páskum.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
41954.
Ja, hvað þá?
Gömul kona hringdi og hafði held-
ur lítið álit á Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra. Hún
sagði: Það er undarlegt að forsæt-
isráðherra vill ekki að kosið verði
um ágæti sitt heldur um inn-
gönguna í Efnahagsbandalagið.
Hvað skyldi hann hafa til bragðs
tekið ef hann hefði ekki haft EBE
til að gera sér grýlu úr?
Vettlingur í óskilum
Kona nokkur sem gaf upp símann
30823 sagðist hafa fundið svo til
nýjan, afar vandaðan svartan og
hvítan útprjónaðan vettling. Hann
væri svo vel úr garði gerður að
synd væri að eigandinn fengi hann
ekki aftur.
Týndi öðrum skónum
Stúlka ein hringdi og sagðist
hafatapað einum skó í leigubifreið
aðfaramótt dagsins 24,- mars
síðast liðinn. Þetta var svartur
þykkbotna skór og hafi einhver
fundið hann er hinn sami beðinn
að hringja í síma 19328.
Fundin gleraugu
Bjarnveig hringdi og sagðist
hafa fundið gleraugu við Mjólk-
ursamsöluna við Bæjarháls á mið-
vikudaginn fyrir páska. Þetta
væru fremur kvengleraugu í
grárri umgjörð og lituðust glerin
í vaxandi birtu. Helst sýndist
Bjarnveigu á gleraugunum að þau
hefðu legið lengi á staðnum.
Bjarnveig gaf upp símann
676979.
Get ekki orða bundist
Ég get ekki orða bundist yfir bréfi
Guðmundar Magnússonar farar-
stjóra Sólarlugs í Velvakanda 3.4
síðast liðinn. I bréfi undirritaðs og
Ketilbjöms 27.3 síðast liðinn var
persóna Guðmundar aldrei nídd nið-
ur, enda engin ástæða til þar sem
við sáum manninn nánast aldrei og
höfum ekkert yfir honum að kvarta.
Hitt er annað mál að það sem við
skrifuðum síðast er allt heilagur
sannleikur og höfum við félagar
enga ástæðu til að ljúga því.
Hvernig má það vera að ekki heyr-
ist neitt í Guðna (í Sunnu) yfir-
manni Sólarflugs? Það var hann
sem gekk frá ferðinni en ekki Guð-
mundur. Guðmundur reyndi að
hjálpa okkur eftir bestu getu fýrst
eftir að við komum en eftir það
sáum við hann sjaldan.
Einnig er það í meira lagi undar-
legt er hann segir í bréfi sínu að
Ketilbjörn félagi minn hafi haft litla
meðvitund í ferðinni og muni líklega
ekkert frá ferðinni. Er það í meira
lagi hlægilegt að slá svona fram
þar eð hann veit ekkert um ástand
félaga míns þennan tíma þar sem
hann sá hann ekki oft þessa daga.
Félagi minn man þó það mikið frá
ferðinni að hann er alfluttur til
Tælands og kemur til með að dvelja
þar í framtíðinni.
Og með þessa greiðslu með auka-
herbergið þá var hún greidd strax
fyrsta daginn og var það 12.700
krónur. Ketilbjörn sýndi mér Visa-
nótu seinna upp á 10.000 krónur
sem hann sagðist hafa greitt Sólar-
flugi daginn sem við fórum heim
til Islands.
Og það er á hreinu að við borguð-
um 91.000 krónur í flugið á meðan
það kostaði 81.000 krónur annars
staðar.
Ekki er það okkar mál hvort tele-
faxið á Sólarflugi er í lagi eða ekki.
Það er hausverkur Sólarflugs. Guð-
mundur segist hafa sótt okkur 165
km leið en ég tek fram að það vor-
um við búnir að borga fyrir svo það
var nú enginn greiði af hans hálfu
eins hann vill vera láta Ég tek það
skýrt fram að við félagar höfum
engan áhuga á að rægja Sólarflug
eða Guðmund, viljum aðeins að
reynsla okkar og sannleikurinn
komi fram.
Að lokum: Guðmundur sagði oftar
en einu sinni og geta fleiri vitnað
um það að allt væri í ólestri hjá
Sólarflugi.
HOQNI HREKKVISI
>'V/Ð TÖKO/VJ ENGA FANGA. *
Víkverji skrifar
Stjórnmálamenn verða örlátir í
kosningabaráttunni og allir
reyna að koma sínu ágæti á fram-
færi í fjölmiðlum, með útgáfu á
upplýsingabæklingum, fréttatil-
kynningum og fundum og auðvitað
loforðum um skattalækkanir. í
þessum hrærigraut öllum virðist
litlu skipta hvort loforðin gangi
þvert á þá opinberu stefnu sem
áður var fylgt.
Þetta kom í hug Víkveija þegar
hann var að fletta stærðar bók, sem
ber nafnið Lífæðar lands og þjóðar
og er gefin út af samgönguráðu-
neytinu. Bókin er sögð íjalla um
samgöngur og fjarskipti á nýrri öld.
Tilgangurinn verður samt nokkuð
ljós strax í inngangi verksins, þar
sem fjallað er um stefnumótun í
samgöngum á síðasta áratug. Að-
eins eru nefndir til sögunnar þrír
menn; Ragnar Arnalds, Skúli Alex-
andersson og Steingrímur J. Sigfús-
son núverandi samgönguráðherra,
sem eiga það merkilegt nokk sam-
eiginlegt að vera þingmenn Alþýðu-
bandalagsins. í litskreyttri, ogsjálf-
sagj, rándýrri bókinni, sem trúlega
af einskærri tilviljun kemur út rétt
fyrir kosningar, er að finna marg-
víslegan fróðleik, mismunandi nýj-
an að vísu.
xxx
En í bókinni koma þó fram upp-
lýsingar, sem eru athyglis-
verðar í ljósi annarra atburða á
kosningaaðventu. Þar er birtur listi
yfir hafnir sem í framtíðinni verði
flokkaðar í flutningahafnir og fiski-
hafnir. Gert er ráð fyrir að fiski-
hafnir verði flokkaðar í tvo flokka,
stórar og meðalstórar fiskihafnir
og bátahafnir. Bátahafnir eru sagð-
ar vera minnstu fiskihafnirnar,
bátaútgerðarstaðir með góðri skjól-
höfn fyrir smábáta og báta upp í
25 métra að lengd með 3-4 metrar
djújpristu.
I þessum flokki eru til að mynda
Arnarstapi, Bijánslækur, Grímsey,
Árskógsströnd, Vogar og Blönduós,
sem fékk fyrir helgina 16 milljónir
króna frá fjáiveitinganefnd til hafn-
argerðar. Þetta var sjötti hluti 100
milljóna króna sem alls voru veittar
vegna loðnubrests og lélegs at-
vinnuástands til ýmissa staða á
landinu. Það er greinilegt að vinstri
höndin í samgönguráðuneytinu veit
ekki hvað sú hægri í fjárveitinga-
nefndinni gerir.
XXX
Verndun náttúrunnar og barátta
við mengun er mjög tii um-
ræðu víðs vegar um heim um þess-
ar mundir. Með það í huga klykkir
Víkveiji út í dag með klausu úr
fréttabréfi BSRB, þar sem segir
m.a.: „Héðan í írá verða BSRB-tíð-
indi prentuð á umhverfisvænan
pappír. í tilefni af því var ákveðið
að aukaliturinn svokallaði skyldi
vera grænn að þessu sinni, en þeim
bláa gefið frí. Ástæðan er nærtæk.
Núorðið er viðtekið að tákna tillits-
semi við náttúruna með græna litn-
um, og vel má sú staðreynd vera
til að minna okkur á annars gleymd
fræði Jóns Grunnvíkings um upp-
runa orðanna: orð verða til úr lengri
orðum og kallast kontractismus.
Suður-hjól verður sól; gras-vænn
verður grænn og svo framvegis."