Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 57 Þórunn Wíum Hans- dóttír - Kveðjuorð Fædd 16. október 1928 Dáin 11. marz 1991 Að læknisráði á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn fðr Þórunn Wíum vestur á Jótlandsströnd 1955 til að vera í sem hreinustu sjávarlofti. Settist hún fyrst að um hríð, en brátt til fullrar frambúðar, á lítilli byggðareyju skammt fyrir utan Esbjerg, þar sem heitir Fano. Eru á eynni tveir smábæir, syðst og nyrzt, og tók Þórunn sér bólfesti í Norðurbænum. Eignaðist hún gam- alt og einkar skemmtilegt hús 1960 og hefur heimili hennar, fallega búið gömlum húsgögnum og ýms- um sérkennilegum gripum, staðið þar síðan. Og þar heima, er hún undi löngum svo vel, kvaddi hún líf sitt og jarðneska veru hinn 11. marz sl. — Á Fano kenndi hún í námsflokkum um meir en aldar- fjórðungsskeið og vetrum saman við unglingaskólann, en stundaði sauma í heimastofu sinni, að stærst- um hluta þjóðbúninga, einnig fyrir Manobúa og annað byggðafólk, en slíkir búningar eru næsta ólíkir eft- ir héruðum. Sauma hafði hún lært í æsku í foreldrahúsum austur á Mjóafirði og síðar í hinum kunna og eftirsótta skóla í Kaupmanna_- höfn, Haandarbejdets Fremme. Á þeim misserum voru ástæður Þór- unnar þær, að hún var við bundin á Ríkisspítalanum vegna ókennilegs sjúkdóms. Taldi læknir hennar, sem lagt hafði í stórar skurðaðgerðir, prófessor Erik Husfeldt, að henni væri tryggara að vera nálægt spít- alanum og skyldi hún sízt hverfa til íslands aftur að svo stöddu. Það hafði hún gert 1951, 4 árum eftir hina fyrstu aðgerð, en hlaut að snúa til baka eftir aðeins mánaðar- dvöl heima. Ekki skal hér rakin sjúkrahúsvist Þórunnar, ítrekað og á ýmsum stöðum heima og í Dan- mörku, en heilsa hennar var sam- felldast bezt hin fyrstu 18 árin á Fano. Haustið 1987 var hún á mörkum lífs og dauða dægrum saman eftir mjög mikla skurðað- gerð á Ríkisspítalanum. Hafði verið á heimaslóðum og í fimmtándu ís- landsferð sinni, frá því er hún fór fyrst utan til lækninga 1947, veikzt enn einu sinni, en þá var það, að Magni Jónsson læknir á Borgarspít- alanum greindi þann sjúkdóm, sem hafði háð henni allt frá æskudögum. Voru þá liðin 40 ár, síðan er hún leitaði sér fyrst lækninga í Kaup- mannahöfn. Saga Þórunnar er hetjusaga, en vegna heiðþróaðs lundernis, bjart- sýni og þrautseigju hefur hún notið margs á sinni löngu sjúkdómsgöngu H og kynnzt við fjölda fólks, að sönnu á Vestur-Jótlandi, í eynni og á landi, s.s. Tjæreborgarprestshjónin nafn- kenndu, Sorensen prófast og alla íslendinga, sem búið hafa þar vest- urfrá, að mestum hluta sjómanna- fjölskyldur í Esbjerg. Og í Suðurbæ á Fano er norrænt rithöfundahús, þar sem nokkrir landar hennar hafa dvalizt á stundum og þegar kynnzt við hinn þekkta og gestrisna menn- ingarfulltrúa íslenzks þjóðernis við Vesturhafið. í Kaupmannahöfn hafi Þórunn verið handgengin harla mörgum landa sínum í gömlu, ís- lenzku nýlendunni og má til nefna Stefán íslandi og Ónnu Borg og fjölskyldur þeirra, en barnabörn þeirra dvöldu tíðum í sumar og skólahléum hjá henni á Fano, Jón Helgason prófessor og Þórunni Björnsdóttur fyrrverandi konu hans, Tove Kjarval rithöfund, sem hún bjó hjá um hríð og fleira og fleira, auk fjölda náms- og listafólks á Hafnarslóð. Var Þórunn sjór já- kvæðra sagna um Hafnar-Islend- inga á eftirstríðsárunum og lætur þá njóta sannmælis í góðum minn- ingum og mærði þá lofi í glaðsinna þakklæti. Fyrstu kynni okkar Guðrúnar, barna og okkar og Þórunnar Wíum á Hafnarárunum urðu einmitt yegna umhyggjusemi hennar fyrir löndum í Kaupmannahöfn og fornr- ar vináttu við fól á Hafnarslóð, sem hún rækti af alúð, en búsett í fjar- lægð og átti æ óhægar um langferð- ir vegna veikinda, og bað okkur því að hafa milligöngu og bera ýmis boð og ráð. Leiddi þetta til náinnar vináttu okkar og hinnar góðu og merku konu, heimsókna og sam- funda bæði á heimili hennar á Fano, þar sem hún var augsýnilega mik- ilsvirt og dáð af ungum og gömlum og átti sem endranær listvini kæra, og svo á Ríkisspítalanum við lækn- isrannsóknir og aðgerðir. Þórunn Stefanía Hansdóttir Wíum var fædd á Asknesi við Mjóa- fjörð eystra hinn 16. október 1928. Voru foreldra hennar Hans Guð- mundsson frá Skógum í Mjóafirði og kona hans Anna Jónsdóttir, er var borin og barnfædd uppi á Hér- aði. Mun Hans hafa verið 15 árum eldri en Anna og hafði verið um mörg ár á Asknesi, fyrst ráðsmað- ur, er Anna réðst til hans og þau áttust. Var Þórunn elzt tíu barna þeirra hjóna. Góðum búskap þeirra á Asknesi lauk síðsumars 1946, þegar Asknesá hljóp í miklum vatnagangi og gjöreyddi túninu, en það varð fólkinu til lífs, að Hans hafði hlaðið gijótvegg mikinn til varnar bænum nokkru fyrr. Flutti fjölskyldan við svo búið út að Reykj- um, en þar er undirlendi töluvert miðað við strandjarðir við fjörðinn og allgott til búskapar, stuttur róð- ur um þveran fjörð að Brekku, verzlunarstað, skóla- og kirkjusetri og þingstað sveitarinnar, en lending erfið og að sjálfsögðu veglaust. Þórunn ólst upp á Asknesi og hefur aðeins verið sem gestur hjá foreldr- um sínum og fólki á Reykjum, nema fyrst eftir flutninginn, því að skömmu síðar fór hún utan til lækn- inga sem' fyrr er sagt. Og svo elsk- aði hún átthagana fyrir austan og bernskubyggðina í Mjóafirði, að þegar grannar hennar og góðvinir á Fano höfðu kvatt í kirkjunni í Norðurbænum, var kistan flutt í land til líkbrennslu, svo að unnt yrði að flytja jarðneskar leifarnar heim til Austfjarða og grafa í gam- alt leiði í Brekkukirkjugarði. Þar signum vér yfír i fjarlægð í þakkar- og fyrirbæn. Ágúst Sigurðsson á Prestbakka Sjádu glæsileg tellihjólhýsi risa á innanvid !5.seK. Sýning á Esterel fellihjólhýsum um helgina. OpiO laugardag kl. 10 til 18 og sunnudag kl. 120118. Séðe9a W««®'ott Út aprílmánuð fá þeir (ortjald í kaupauka, sem staðfesta pöntun á Esterel eru handunnin, frönsk fellihjólhýsi í úrvalsflokki. Úr hentugri kerru reisir þú notalegt hýsi á innan við einni mínútu. Innan veggja er öllu haganlega komið fyrir og vandað til allra hluta. Gashitari, eldavél, vaskur, ísskápur, geymir fyrir 12 volt sem heldur tsskápnum köldum við akstur. Hægt erað tengja vagninn við 220 volt. Hleðslutæki fæst aukalega og er tengt bílnum. Fortjald fæst aukalega. Vagnarnir eru útfærðir fyrir íslenskar aðstæður; bætt vörn á undirgrind, 13" dekk, þéttilistar sem útiloka vegarykið o.fl. Komdu á sýninguna um helgina og kynntu þér málið nánar. “,Ve9gir: l^húð 3Tlastkma 43efiaP'ast KUrkr0i ,Ss>'iður SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJARSLOÐ 7 ■ SIMI 91-621780
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.