Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRIL 1991
11
Spenna í algleymingi
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Brian Morre: Lygi þagnarinnar
Þýðandi: Haraidur Bernharðs-
son
Utg: Úrvalsbækur — Frjáls fjöl-
miðlun 1991
John Sandford: Leikreglur
Þýðandi: Sigurður Hreiðar
Útg. Úrvalsbækur — Frjáls fjöl-
miðlun 1991
Útgáfan Úrvalsbækur hefur nú
sent frá sér fjórar spennusögur í
kiljubúningi og það hlýtur að sýna
að markaður er fyrir slíkt. Ein-
hverra hluta vegna hefur farist fyr-
ir að skrifa um þessar bækur og
er nú ráð að gera bragarbót.
Spennu-og afþreyingarsögur
getur oft og einatt verið hið besta
lesefni og fáir sveija af sér að þeir
líti ekki í slíkar bækur öðru hveiju
enda hafa þær á sinn hátt ótvírætt
gildi þó fæstar flokkist beinlínis
undir bókmenntaverk. Ýmsir merk-
is höfundar hafa lagt sig eftir að
skrifa afþreyingar- eða spennubæk-
ur, nærtækt er að nefna Simenon,
John Le Carré og Graham Greene.
Bækurnar tvær „Lygi þagnar-
innar“ og „Leikreglur“ hafa ýmsa
kosti góðrar spennusögu. Góð og
sannfærandi „plott“ og þær vinda
sig hugnanlega áfram. I Lygi þagn-
arinnar er sögusviðið Norður-
írland. Michael Dillon hefur
skömmu síðar ákveðið að hjónaband
hans og Moiru sé búið að vera og
hann er ástfanginn af stúlkunni
Andreu. Þá gerist það að IRA-menn
ráðast inn á heimili þeirra og Moira
er tekin í gíslingu gegn því að Mich-
ael aðstoði við verk sem þeir hafa
á pijónunum.
Ef hann gerir lögreglu viðvart
hlýtur hann að stofna lffi Moiru- í
voða og ef hann gerir það ekki er
líf fjölda annarra í húfi.
Höfundurinn gerir Michael Dillon
nokkuð skýran fyrir lesanda og tog-
streitan verður nálæg og harla
ágeng. Niðurlag sögunnar er að
sumu leyti óvænt, miskunnarlaust
og rökrétt. Til þýðingarinnar hefði
mátt vanda betur. ,
Leikreglur er gerólík bók, hrárri
og mergjaðri. Þar segir frá geðveik-
um manni sem myrðir stúlkur og
velur þær eftir ákveðnum reglum,
myrðir eftir ákveðnum reglum og
hefur ummerkin alltaf eftir settum
reglum líka. Til að fást við málið
er leitað til Lucasar Davenport sem
er lúnkinn náungi, kvensamur og
hress og enginn súperlögga.
Það er rétt leið hjá höfundinum
að koma með nafn morðingjans
strax, lesandi velkist ekki í vafa en
spenningurinn beinist að því hvort
Lucas finni leiðina til hans. Sem
hann gerir vitanlega að lokum en
nokkrum fleiri morðum síðar.
Það eru gallar á morðingjanum
hvað það snertir að ég áttaði mig
ekki á hvort hann hafði allt í einu
orðið veikur og lagst í manndráp
eða hvort þessi fýsn hafði lengi
blundað í honum og ef svo var hvað
hleypti skriðunni af stað. Því hann
er svo langt leiddur að eftir nokkra
daga án dráps er hann orðinn frið-
laus.
Sagan stendur þó fyrir sínu og
er spennandi og læsileg og heldur
athygli og forvitni til enda.
Kvöldstund
með Davíð
Oddssyni á
Hótel Selfossi
föstudaginn
12. apríi
Davíð Oddsson,
formaður
Sjálfstæðisflokksins,
flytur ræðu.
FRELSI OG
MAN N ÚÐ
Kosninganefnd kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi.
Góðan daginn!
r ^
SMÁÍBÚÐAHVERFI -
LAUST FLJÓTLEGA
Endaraðhús 220 fm v/Ásgarð. Hús og íb. í mjög góðu
standi m.a. nýtt gler og þak. Suðurgarður. Áhv. 1,3 millj.
ÁLFTAMÝRI - 4RA HERB.
+ BÍLSKÚR
Vorum að fá ca 100 fm endaíb. á 3. hæð ásamt bílsk. íb.
í góðu standi. Nýl. parket. Góð sameign. Verð 7,9 millj.
SÓLHEIMAR - 3JA
Góð ca 86 fm vel staðsett íb. í iyftubl. Fráb. útsýni.
Húsvörður. Umsjón á sameign innifalin í hússjóð. Góð
eign. Verð 6,6 millj.
EYJABAKKI - 3JA-4RA
Björt og góð ca 81 fm íb. ásamt 12 fm herb. í sam-
eign. Steinflísar á gólfum. Suðursvalir. Ekkert áhv. Verð
6,6 millj.
HAGAMELUR
Falleg ca 65 fm lítið niðurgr. kjíb. Sérinng. Mikið end-
urn. Parket. Flísal. bað. Áhv. veðd. ca 3,2 millj. Laus
fljótl. Verð 5,4 millj.
LAUGATEIGUR - 2JA
Vorum að fá ca 70 fm íb. m/sérinng. Lítið niðurgr.
Verð 4,8 millj.
MÁNAGATA - EINSTAKLÍB.
Snyrtil., samþ. einstaklíþ. ca 32 fm á góðum stað í
Norðurmýri. Ekkert áhv. Verð 3,3 millj.
Metsölublaó á hverjum degi!
Landssamtökin Öryrkjabandalag
Þroskahjálp íslands
MÁLÞING
haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi föstu-
daginn 12. apríl frá kl. 13.00 til 17.00 af Landssam-
tökunum Þroskahjálp og Öryrkjabandalagi íslands.
Fundarstjóri verður Sigríður Ingimarsdóttir.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá:
Föstud. 12. apríl.
Kl. 13.00-13.10 Málþingið sett:
Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður-
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Kl. 13.10-13.20 Einföld framsetning á vönduðu máli:
Árni Böðvarsson.
Kl. 13.20-13.30 Innlegg frá útvarpsráði:
Inga Jóna Þórðardóttir.
Kl. 13.30-13.40 Frá Háskóla íslands:
Sigrún Stefánsdóttir.
Kl. 13.40-13.50 Frá stöð 2:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Kl. 13.50-14.00 Frá blindum og sjónskertum:
Ragnar R. Magnússon.
Kl. 14.00-14.10 Frá heyrnarlausum:
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir.
Kl. 14.10-14.20 Innlegg umræðuhóps þroskaheftra.
Kl. 14.20-14.30 Frá Námsgagnastofnun:
Sylvfa Guðmundsdóttir.
Kl. 14.30-14.40 Upplestur úr verkum Iðunnar Steins-
dóttur, Kristínar Steinsdóttur og Pét-
urs Gunnarssonar.
Kl. 14.40-15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.00-15.30 Frá dagblöðum:
Árni Bergmann.
Sigurdór Sigurdórsson.
Styrmir Gunnarsson.
Kl. 15.30-16.50 Almennar umræður og fyrirspurnir.
Kl. 16.50-17.00 Málþingi slitið:
Arnþór Helgason, formaður Öryrkja-
bandalags íslands.