Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAÖUR H. APRÍL 1991
13
Morgunblaðið/KGA
Birgir Þórhallsson tekur við fjölmiðlabikarnum úr hendi Kristínar
Ferðamálaráð
Harður árekstur í Ölfusi:
Þrír fluttir
á slysadeild
MJOG harður árekstur varð
skömmu fyrir klukkan sjö í fyrra
kvöld á vegamótum Olfusvegar
og Þrengslavegar. Þar rákust
saman tveir fólksbílar og allir
sem í þeim voru, þrír að tölu,
voru fluttir á slysadeild, en voru
. ekki í lífshættu að sögn lögi'eglu.
Annar bíllinn var að koma frá
Hveragerði, en hinn frá Reykjavík
á leið til Þorlákshafnar. Við árekst-
urinn kviknaði í öðrum bílnum-og
brann hann. Báðir bílarnir eru gjör-
ónýtir að sögn lögreglu á Selfossi.
Bílarnir voru af Fiat og Subaru
gerðum.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar: 679902 - 679903 - 679904
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá
borgarfógetanum í Reykjavík, Skógarhlíð 6, jarðhæð, alla
daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnudaga kl. 14-18.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt
sem lýtur að kosningunum. Aðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna efþið
verðið ekki heima á kjördag, 20. apríl nk.
Islands:
Sólarfilma
hlaut
fjölmiðla-
bikarinn
SÓLARFILMA hlaut fjölmiðla-
bikar Ferðamálarðas fyrir árið
1990 fyrir öfluga landkynningu
síðastliðin þrjátíu ár.
Sólarfílma var stofnsett árið
1961 af þeim Birgi Þórhallssyni og
Snorra Snorrasyni. Á þessum tíma
var lítið sem ekkert til af myndefni
til landkynningar en það átti eftir
að breytast vegna ötuls starfs þeirra
félaga.
Þeir hafa gefið út mikinn fjölda
póstkorta og litskyggna auk þess
sem þeir hafa gefið út myndskreytt
bréfsefni og staðið fyrir endurgerð
gamalla ljósmynda. Þá hefur fyrir-
tækið staðið fyrir kynningu á ís-
lenskum þjóðbúningum.
Krístín Halldórsdóttir formaður
ferðamálaráðs sagði við afhendingu
viðurkenningarinnar að um hálf
milljón póstkorta frá Sólarfilmu
seldust árlega og „með hæfilegu
ímyndunarafli má reikna út að ár-
lega sjái nokkrar milljónir manna
myndir frá Islandi á póstkorti frá
Sólarfilmu.“
-----*-*-*---
Framboðs-
fundur um
umhverfismál
ÍSLANDSNEFND norræna um-
hverfisársins stendur fyrir opnum
fundi í kvöld, fimmtudaginn 11.
apríl, með frambjóðendum úr
Reykjavík um umhverfismál.
Fundurinn verður í sal Norræna
hússins og hefst kl. 20.00. Fram-
bjóðendur gera stutta grein fyrir
stefnu sinni og síns flokks í um-
hverfismálum, svara fyrirspurn-
um úr sal og frá hver öðrum.
Framsögumenn af hálfu flokk-
anna verða: A-listi, Magnús Jónsson,
veðurfræðingur, B-listi, Hermann
Sveinbjörnsson, umhverfishagfræð-
ingur, D-listi, Sólveig Pétursdóttir,
alþingismaður, F-listi, Júlíus Sólnes,
umhverfisráðherra, G-listi, Auður
Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, H-
listi, Tómas Gunnarsson, lögfræðing-
ur, V-listi, Sigrún Helgadóttir, um-
hverfisfræðingur, Þ-listi, Áshildur
Jónsdóttir, markaðsfræðingur, frá
Grænu framboði, Jón Tryggvi
Sveinsson.
Fundarstjóri verður Ingvi Þor-
steinsson náttúrufræðingur.
Um helgina verða umhverfismál
ennfremur á dagskrá í Norræna hús-
inu þegar Líffræðifélagið heldur ráð-
stefnu um villt íslensk spendýr. þar
verða lærðar og leikar umræður um
rannsóknir á hvölum, selum, ref,
mink o.fl. Ráðstefnan er öllum opin
og hefst kl. 13.00 á föstudag 12.
apríl og lýkur með móttöku í boði
sjávarútvegsráðuneytisins kl. 18.00
laugardaginn 13. apríl.
Polarn&Pyret
kveri' og barnafataverslun
þar sem gœði eru í hdvegum höfð.
KRINGLUNNI 8-10, SÍMI 681822
Gallabuxur
í stœrð
100-170 sm.
Verð kr. 2.900,-
Marglitur bolur
úr 100% bómull
ístœrð 130-170 sm.
Verð kr. 3.390,-
Marglit úlpa
í stœrð 130-170 sm.
Verð kr. 4.900,-
Fjólubláar
bómullarbuxur
í stœrð 100-170 sm.
Verðfrá kr. 3.190,-