Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 29
MORGUNBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
29
frjálsan aðgang að mörkuðum fyrir
sjávarafurðir, án þess að fallast á
fiskveiðiheimildir í staðinn. Um
þetta hafa stjórnarflokkarnir verið
sammála. Um þetta hefur tekist
bærileg samstaða með þjóðinni.
Aðseins Kvennalistinn, og Hjörleif-
ur í Alþýðubandalaginu, eru á móti.
Það hefur komið í minn hlut
ásamt með forsætisráðherra að út-
skýra fyrir þingi og þjóð, að samn-
ingarnir um EES séu allt annars
eðlis en aðild að EB. í samningun-
um um EES er nýting fiskimiða og
orkulinda ekki einu sinni á samn-
ingssviðinu. Þar er ekki um að
ræða framsal á vaidi frá Alþingi
né ríkisstjórn til yfírþjóðlegs valds.
Ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar er ekki að selja landið, þótt
hjáróma raddir í Alþýðubandalagi
og Kvennalista hafi svo sem heyrst
um slík landráðabrigsl.
En hveiju á þjóðin að trúa þegar
forsætisráðherrann rýkur alit í eiriu
upp með andfælum og boðar þjóðar-
atkvæðagreiðslu um aðild að EB
eftir nokkra daga? Hvað á þessi
hræðsluáróður að þýða? Er ekki
hætt við að þjóðin fyllist efasemdum
um stefnu ríkisstjórnar Steingríms
Hermannssonar í málinu? Að með
þessum orðum*sé sáð fræjum tor-
tryggni og efasemda um að samn- '
ingarnir um EES séu einhvers kon-
ar bakdyraleið að EB? Að verið sé
að draga þjóðina á asnaeyrunum
inn í EB — og þess vegna þurfi að
leggja þetta fyrir þjóðina strax?
Spyr sá sem ekki veit.
Eg spyr: Hvað vakir fyrir forsæt-
isráðherra að vekja með þessum
hætti upp deilur og togstreitu með
þjóðinni um brýn hagsmunamál,
þegar samstöðu er þörf? Er ekki
þarna verið að leika sér að eldi?
Hræðsluáróður
Leyfist mér að minna á, að Fram-
sóknarflokkurinn sat hjá, þegar ís-
land sótti um inngöngu í Fríverslun-
arsamtök Evrópu, EFTA, árið 1970.
AB var auðvitað á móti. Talsmenn
beggja þessara flokka höfðu þá
uppi stór orð um að þetta væri
fyrsta skrefið í innlimun íslands í
hið nýja Evrópustórveldi. Að um
væri að ræða framsal landsréttinda,
að verið væri að farga sjálfstæðinu.
Þetta var hræðsluáróður. Hann
reyndist gjörsamlega tilefnislaus.
Þessi orð eru best gleymd og graf-
in. Sömu sögu er að segja um Akur-
eyrarsamþykkt forsætisráðherra.
Við skulum gleyma henni. Kosning-
arnar 20. apríl snúast nefnilega um
það, hversu vel kjósendur kunni að
meta þann árangur, sem ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar hefur
náð í efnahagsmálum. Og hvaða
flokkum sé best treystandi til þess,
á grundvelli reynslunnar á liðnu
kjörtímabili, að bæta lífskjör þjóðar-
innar, m.a. með árangursríkum
samningum um tollfijálsan aðgang
að Evrópumarkaði fyrir okkar út-
flutningsafurðir. Hvers vegna að
vekja upp pólitískan draugagang,
hræðsluáróur gegn ímynduðum
óvinum, fyrir kosningar? Er það til
þess að draga athygli kjósenda frá
aðalatriðunum?
, ✓
HJÓL I
ÁRSINS
1991
Nýlego vor TREK fjollohjól
kosið h/ól ársins 1991 of
bondorísko hjólotímoritinu
„Mountain & City Biking"
vegno ollsherjor vöndunor,
frábærro oksturseiginleika
og verðlags sem er jpoð gott
að betri koup er vort hægt
oð gero í olvöru fjallohjóli.
TREK fjollahjól eru
einstoklego folleg og
sterkleg, enda jbroutreynd
við erfiðustu skilyrði, jofnt til
fjollo sem á molbiki.
Komdu og prófaðu eitt í
dag, sjón er sögu ríkari.
'■ £ fA;# fa
f .f 'm
, diW fMmj
ÞÚKEMSTÁ TOPPINN Á TREK
ÁB1TR4SO
SENDUM I
POSTKRÖFU
Reidhjolaverslunin
UM LAND ALLT
RAÐGREIÐSLUR
SPITALASTIG 8
VIÐ ÓÐINSTORG SÍMI 14661
SKEIFUNNI 1 1
VERSLUN SÍMI 679890 VERKSTÆÐI SÍMI 679891
Höfundur er formaður
Alþýðuflokksins og
utanríkisráðherra.
II /