Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 31
08
31
roQC JLH'I' * 1 H’jr'/aUTMMÍH AJHVIUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
Heimssýningin á Spáni 1992:
Vegiia útflutningshagsmuna
er þátttakan ekki þess virði
- segir Ingjaldur Hannibalsson, framkvæmdastjóri Utflutningsráðs
INGJALDUR Hannibalsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, seg-
ir að hvað varðar útflutningshagsmuni Islendinga þá sé þáttaka í
Heimssýningunni á Spáni árið 1992 ekki þess virði, en hins vegar
sé frekar um að ræða virðingu þjóðarinnar út á við. Útflutningsráð
hafði á sínum tíma með höndum undirbúning að þáttöku Islands í
Heimssýningunni.
„Við fengum þetta verkefni um
mánaðamótin júlí-ágúst 1989, en á
þeim tíma hafði ríkisstjórnin ákveð-
ið að setja 50 milljónir í þetta. Við
tilkynntum síðan utanríkisráðu-
neytinu að þessir peningar myndu
ekki duga, en ekki yrði hægt að
gera kostnaðaráætlun fyrr en ljóst
væri hvernig sýningarskálinn yrði.
Efnt var til lokaðrar samkeppni um
hann, og um mánaðamótin mars-
apríl í fyrra var ákveðið hváða til-
laga yrði valin. Þá var gerð kostnað-
aráætlun sem hljóðaði upp á 250
milljónir, og ríkisstjórninni tilkynnt
það. Það varð síðan til þess að þeir
ákváðu í september í fyrra að hætta
við þátttöku í sýningunni," sagði
Ingjaldur.
Hann sagði að utflutningsráð
hefði á sínum tíma kannað hve
mikils íjár mætti afla meðal fyrir-
Fyrstu tómatarnir
í Borgarfirði tíndir
Kleppjárnsreykjuni.
GÚRKUR, svanir, skógar-
þrestir og nú tómatar, allt eru
þetta vorboðar sem segja
nokkuð um hvernig tímanum
líður og hvernig veturinn hef-
ur verið.
Nýir íslenskir tómatar fara að
koma á markað hvað senn líður,
ekki verður það nema í litlu
magni fyrst til að byija með,
vegna tjóns sem garðyrkjubænd-
ur urðu í vetur af völdum roksins
í byijun febrúar.
Almennt útlit er gott hjá garð-
yrkjubændum miðað við það sem
á undan gekk í febrúarrokinu.
Fyrstu tómatarnir í Gróðrarstöð-
inni Sólbyrgi voru tíndir miðviku-
dagsmorguninn 10. apríl. Þar
sem um 90% af plöntunum
skemmdust eða urðu fyrir alvar-
legum skakkaföllum í febrúar-
rokinu verður uppskera ekki
kominn í fullan gang fyrr en í
byijun júní.
- Bernhard
Heimsklúbbur Ingólfs:
Kynningarhátíð á Hótel
Sögn annað kvöld
MARGA dreymir um að komast í heimsreisu að minnsta kosti einu
sinni á ævinni. Frumkvöðull að heimsreisunum er Ingólfur Guð-
brandsson sem byrjaði á þeim fyrir 12 árum og hefur ferðast með
landa sína um allan hnöttinn að sýna þeim það merkilegasta sem
heimurinn hefur að bjóða.
Nýjasta heimsreisan hans til
Ausiurlanda fjær í nóvember næst-
komandi seldist strax upp, og hann
er nýkominn heim með hóp úr stór-
velheppnaðri Suður-Ameríkuferð
um síðustu páska. Auk þess býður
klúbbur hans tvær menningarferðir
um Evrópu með nýju sniði, sem
sameina allt í senn, listskoðun, tón-
leika og óperuflutning með heims-
frægum listamönnum, og sælkeralíf
í heimsborgum. Næsta ferð með
þessu sniði er til Berlínar, Prag,
Salzburgar, Vínar og Budapest, þar
sem þátttakendur upplifa í senn
fegurð vorsins og listarinnar í ótal
myndum. Þetta er kynningarferð í
lok maí, en önnur lista-, óperu- og
sælkeraferð er til listaborga Ítalíu
í lok ágúst, en sú ferð hlaut fádæma
góðar viðtökui- í fyrra og er nú
endurtekin og endurbætt, þar sem
ferðafélögum gefst m.a. kostur á
að sjá og heyra óperuna Turandot
á stærðsta sviði heimsins í Aren-
unni í Verona, en þar syngur Krist-
ján Jóhannsson í fyrsta sinn í sum-
ar.
Á korti Heimsklúbbsins eru stað-
ir og lönd í öllum heimsálfum. Fólk
á öllum aldri og úr öllum stéttum
hefur tekið þátt í þeim. Sumum
hefur þótt þær svo mikil lífsreynsla,
að þeir hafa engri sleppt úr. Nú er
ákveðið að stofna formlega klúbb
þeirra, sem áhuga hafa á ferðum
af þessu tagi, í því skyni að kynn-
ast því besta, sem heimurinn hefur
að bjóða á ferðalögum og njóta
þess í skemmtilegum félagsskap.
Markmið klúbbsins er að auðvelda
félögum sínum þessa einstöku
tækja á Islandi til þátttöku í Heims-
sýningunni, en það hefðu ekki
reynst vera neinar umtalsverðar
fjárhæðir, og ríkisstjórnin hefði
ekki reynst vera tilbúin til að auka
sínar fjárveitingar á þeim tíma.
„Við töldum í sjálfu sér - að það
skipti ekki meginmáli fyrir útflytj-
endur þó hætt yrði við þáttöku,
heldur snerti það fyrst og fremst
orðstý þjóðarinnar hvort hún yrði
með eða ekki. Þarna er samkeppnin
um athyglina gífurlega mikil, en
þarna eru 105 þjóðlönd ogþó nokk-
uð mörg fyrirtæki með skála. Þann-
ig má segja að ef bætt yrði við ein-
um skála, þá væri það svipað því
að bæta við einni hringekju og
pulsustandi í skemmtigarði, en við
vitum það að 105. hringekjan vekur
kannski ekki mjög mikla athygli.
Það virðast síðan vera til meiri pen-
ingar núna, og auðvitað fögnum við
því ef ríkisstjórnin ætlar að taka á
sig ábyrgð á þessum 240-250 millj-
ónum, en ég reikna ekki með því
að það verði neitt auðveldara en
fyrir ári síðan að afla fjár meðal
útflytjenda. Ef erlendir aðilar eru
hins vegar tilbúnir til að setja pen-
inga í þetta, og íslendingar tilbúnir
að taka við þeim, þá fínnst okkur
auðvitað mjög gott að ísland verði
á sýningunni, en það hljóta ein-
hveijar skuldbindingar að fyigja
með,“ sagði Ingjaldur.
Morgunblaðið/KGA
Helgi Daníelsson sölustjóri hjá Sainvinnuferðum/Landsýn afhenti
Astu Huld vinninginn og hjá þeim stendur Friðbert Pálsson for-
stjóri Háskólabíós.
Bíógestur vann
Ítalíuferð
í tilefni af því að ítalska bíó-
myndin Paradísarbíóið hefur verið
sýnd samfleytt í'eitt ár, efndi
Háskólabíó til sérstakrar sýningar
í fyrrakvöld. Efnt var til happ-
drættis meðal bíógesta og var
þriggja vikna Ítalíuferð fyrir tvo
í verðlaun, að verðmæti 150 þús-
und krónur. Hinn heppni vinn-
ingshafi reyndist vera Ásta Huld
Hinriksdóttir. Myndin var sýnd í
stærsta sal bíósins og seldist upp
á sýninguna tveimur tímum áður
en hún hófst. Það bættust því
1.000 gestir við þann stóra hóp
íslendinga, sem séð hefur mynd-
ina sl. ár.
lífsnautn með því að velja handa
þeim bestu leiðirnar og hjálpa þeim
með ráðgjöf, hagkvæmum samn-
ingum og öðrum sparnaðarleiðum
að komast í draumaferðina. Reynsl-
an sýnir, að ferðir af þessu tagi eru
á færi margra, ef skipulagt er fram
í tímann og hagsýni gætt.
Kynning og heimsveisla á
Hótel Sögu
Til að kynna starfsemi Heims-
klúbbsins og markmið hans, verður
efnt til kynningarhátíðar í Súlnasal
Hótels Sögu föstudagskvöldið 12.
apríl. Líklegt má telja að jafnglæsi-
legar veislur séu fátíðar á Islandi
og þarna stendur til boða. Skreyt-
ingar verða í alþjóðlegum stíl, blóm
og ávextir frá Austurlöndum,
skemmtiatriði á heimsvísu, s.s.
Reykjavíkurkvartettinn, nýjast af-
sprengi borgarmenningar á íslandi,
óperusöngkonan vinsæla, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, skemmtir gestum
af snilld sinni. Auk þess verða
óvæntar uppákomur í bland við
kynningu á spennandi ferðalögum
og stórvinningar í happdrætti, því
aðgöngumiðinn er happdrættismiði,
þar sem aðalvinningur er ferð fyrir
tvo. Heimsreisan getur því verið á
næsta leiti, og fullyrða má, að sann-
kölluð heimsreisustemmning ríkir á
Hótel Sögu á föstudagskvöldið, þar
sem ljúffengar kræsingar verða á
borðum ásamt skemmtun á heims-
vísu. Þátttakendur í veislunni verða
stofnfélagar klúbbsins með ókeypis
aðild þetta ár og fullum félagsrétt-
indum.
(Frcttatilkynning frá Hcimsklúbbi Ingólfs.)
•fc ISLENSKA ALFRÆÐIORDABÓKIN - hASKÓLI HEIMILANHA ÍSLCNSKA ALFRÆDIORDABÓKIN • HÁSKOU HEIMILANNA ^
TÖKUM
ÍIOVIMM
SAMAK
Tökum höndum saman, leggjum grunn
að framtíð fermingarbarnsins.
Gefum því íslensku alfræðiorðabókina
— háskóla heimilanna, bók sem
byggjandi er á.
Hugmynd aÖ
fermingargjöf
ORN OG ít ORLYGUR
Síðumúla
Sími 84866
★ VNNV1INI3H IIOMfVH ■ NIHOaVOHOIOVHJIV VHSN31SI VNNV1INI3H I10HSVH • NIHQSVOHOIQVHJIV VHSN31S) *