Morgunblaðið - 11.04.1991, Síða 33

Morgunblaðið - 11.04.1991, Síða 33
MÖRGÚKTBLAÐIÐ 'FIMMTOUAGUK' Yl.' ÁÚRÍL T9S1 Heimsókn Gorbatsjovs til Japans: Deilan um Kyrra- hafseyjarnar fjórar verður efst á baugi Tókýó. Reuter. TOSHIKI Kaifu forsætisráðherra Japans sagðist í gær myndu gera allt sem mögulegt væri í viðræðum sínum við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta í næstu viku til þess að koma skrið á viðræður um lausn deilu Sovétmanna og Japana um fjórar eyjar norður af Japan sem Sovétmenn hertóku nokkrum dögum fyrir lok seinna stríðsins. Vegna þessarar deilu hafa ríkin tvö ekki enn samið um lyktir styrjaldarinn- ar sín á milli. Kúrdískir flóttamenn á leið yfir fjöllin í Norður-írak til Tyrklands. Reuter Háttsettur japanskur embættis- maður sagði að samkomulag hefði tekist um að deilan um Kyrrahafs- eyjarnar fjórar yrði efsta mál á dagskrá viðræðna Kaifus og Gor- batsjovs, sem kemur í íjögurra daga opinbera heimsókn til Japans næst- komandi þriðjudag. Verður hann þar með fyrsti leiðtogi Sovétríkj- anna sem heimsækir Japan. „Eg mun gera allt sem unnt er til að þoka deilumálinu áleiðis svo þjóðirnar tvær finni hjá sér Hætta á að 300.000, Kúrd- ar farist á fjölhim Iraks Þúsund flóttamenn sagðir deyja á hverri klukkustund Nikosíu, Boston, Ankara, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. STJORNVOLD í Irak sögðust í gær ætla að senda hjálpargögn og hjúkrunarsveitir til Kúrda í norðurhluta landsins, sem þau eru sökuð um að hafa hrakið á flótta með grimmdarlegum hern- aðaraðgerðum. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sögðu mikla hættu á að hartnær 300.000 kúrdískir flóttamenn við landamærin að Tyrklandi færust af völdum kulda og vosbúðar. Franskur læknir, sem hefur ver- ið á svæðinu, sagði að þúsund Kúrdar létust á fjöllum Norður- íraks á hverri klukkustund. „Þetta er harmleikur og mikil hætta er á því að fólkið hrynji nið- ur af hungri og vosbúð. Tyrkir geta á engan hátt ráðið við þennan vanda og það er skylda umheimsins að koma flóttafólkinu til hjálpar," sagði Edmund Cain, sem stjórnar hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna í Norður-írak. Hann sagði að aðeins 38 milljónir dala hefðu safnast eftir að Sameinuðu þjóðirnar óskuðu eft- ir 175 milljónum dala til að geta komið flóttamönnum vegna stríðs- ins fyrir botni Persaflóa til hjálpar. Af þessum 38 milljónum hefðu Tyrkir aðeins fengið 4,2 milljónir dala, en skerfur annarra nágranna- ríkja íraks - írans, Sýrlands og Jórdaníu - hefði verið alltof mikill. A sama tíma og stjórnmálamenn í hinum ýmsu höfuðborgum heims ræddu hvort stofna ætti griðasvæði fyrir Kúrda varaði franskur læknir, Marcel Roux, sem kom í gær frá norðurhlutá íraks, við því að frest- urinn til að bjarga flóttamönnunum væri um það bil að renna út. „Á hverri klukkustund, sem við notum til að ræða málið, deyja um þúsund flóttamenn á fjöllum íraks,“ sagði Roux, sem starfar fyrir alþjóðlegu læknasamtökin Læknar án landa- mæra (Medecins sans Frontiers). Hann sagði að meiri hætta væri á dauðsföllum vegna hungurs og vos- búðar en af völdum farsótta. Þorp Kúrda lögð í rúst Læknirinn sagði að flóttafólkið hefði hraðað sér svo mikið úr þorp- unum að það hefði ekki tekið með sér nóg af matvælum og fatnaði. „Það eru engin þorp lengur í norð- urhéruðum Iraks, þau hafa verið sprengd í loft upp. Það eina sem Kúrdarnir geta gert er að flýja til fjalla,“ sagði hann. Hann sýndi fréttamönnum myndir, sem hann tók á myndband, af börum er höfðu brunnið illa á andlitinu. Hann kvaðst telja að eldsprengjur hefðu valdið þessum meiðslum. Mohammd Mehdi Saleh, viðskipt- aráðherra íraks, hvatti írösku flótt- amennina til að snúa aftur til heim- kynna sinna. Hann sagði að í undir- búningi væri að senda matvæli og önnur hjálpargögn til norðurhluta íraks. „Það er nóg til af matvælum handa öllum,“ sagði í yfirlýsingu frá ráðherranum, sem íraska frétta- stofan INA sendi út. írösk stjórn- völd buðust til þess á föstudag að veita flóttamönnunum sakarupp- gjöf en leiðtogar Kúrda lýstu tilboð- inu sem „viðbjóðslegum brandara“. Fréttaritari Reuters kvaðst hafa séð íraska menn grafa lík þriggja barna í flóttamannabúðum við land- amæri íraks og Tyrklands. „Ég hef grafið fleiri en tíu börn á tveimur dögum. Við ráðum ekki við þetta lengur," sagði einn þeirra. Farsóttir í Bagdad og Suður-írak Bandarísku læknarnir Jack Geig- er, forseti Lækna fyrir mannrétt- indum, og Jonathan Five, fram- kvæmdastjóri samtakanna, sögðu að hungursneyð og farsóttir breidd- ust ört út í Bagdad og suðurhluta íraks. Þeir fóru í fimm daga heim- sókn til borganna Karbala, Najaf, Hilla og Bagdad og sögðu að um sjö af hundraði allra barna á sjúkra- húsum borganna létust af völdum niðurgangssjúkdóma og vessa- þurrðar. Starfsemi sjúkrahúsa væri í lamasessi vegna skorts á raf- magni, vatni, lyfjum og hjúkruna- rbúnaði. hvatningu til þess að ljúka gerð friðarsáttmála," sagði Kaifu á fundi með helstu áhrifamönnum í stjórnarflokknum. Japanir hafa neitað að ljúka friðarsamningum eða yfirleitt að íhuga efnahags- aðstoð við Sovétmenn fyrr en þeir hefðu skilað eyjunum fjórum sem Rauði herinn hertók á síð- ustu dögum seinna stríðsins. Eyjarnar umdeildu em Habomai, Shikotan, Kunashiri og Etorofu. Sovésk stjórnvöld hafa til þessa skírskotað til leynilegs samkomulags á Jöltu-ráðstefn- unni og sagt það veita þeim yfirr- áð á Kúrileyjum og þar á meðal á eyjunum fjórum. Japanir hafa hins vegar haldið því fram að þær séu ekki og hafi aldrei verið hluti af Kúrileyjum sem þeir af- söluðu sér tilkalli til í San Franc- isco-sáttmálanum 1951. Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, sem fer með formleg yfirráð á eyjunum af hálfu Sovétríkjanna, sagði í við- tali við sovéskt blað í vikunni að Gorbatsjov væri tilbúinn til að viðurkenna formlega að ríkin tvö deildu um eyjarnar, en hingað til hafa sovésk stjórnvöld aldrei ljáð máls á því. Neitaði hann því að Sovétmenn myndu reyna að „selja“ Japönum eyjarnar og vís- aði á bug að Japanir hefðu gert sovéska utanríkisráðherranum tilboð af því tagi er hann heim- sótti Tókýó í mars til að undirbúa heimsókn Gorbatsjovs. Japanskir embættismenn hafa þó ýjað að því við fréttamenn, að þarlend stjórnvöld væru reiðubúin að bjóða Sovétmönnum efnahagsað- stoð til þess að greiða fyrir samn- ingum um eyjarnar. Stjórnmálaskýrendur sögðu í gær, að erfiðleikar Gorbatsjovs heima fyrir gerðu það að verk- um, að hann gæti ekki komið heim úr Japansferðinni öðru vísi en að vera með umtalsverða efnahagsaðstoð í vasanum og pólitískan sigur á vettvangi utan- ríkismála. Tillaga um griðasvæði fyrir Kúrda í norðurhluta íraks: Bandaríkjamenn óttast að Irak kunni að sundrast Lundúnuin, Nikosíu, Teheran. Reuter, The Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst í gær ætla að halda áfram að beita sér af fullum krafti fyrir því að tillaga hans um griðasvæði fyrir kúrdíska flóttamenn í norðurhluta íraks undir vernd Sameinuðu þjóðanna næði fram að ganga. Marlin Fitzwater, talsmað- ur Bandaríkjaforseta, sagði hættu á að tillagan leiddi til þess að írak myndi skiptast í tvö ríki en talsmenn bresku stjórnarinnar vís- uðu því á bug að bandarísk stjórnvöld hefðu tekið hugmyndinui- falega. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði að tillagan kynni að brjóta í bága við þá stefnu Bandaríkjastjórnar að koma í veg fyrir að Irak sundraðist. „Tillagan gæti stuðlað að ýmsum vandamál- um í þá veru,“ sagði hann og bætti við að forgangsverkefnið væri að veita írösku flóttamönn- unum þá neyðaraðstoð sem þyrfti til að afstýra frekari hör- mungum. Aðrir embættismenn í Washington kváðust ekki hafa tekið afstöðu í málinu. Nokkrir þeirra sögðu að breyta þyrfti ýmsum atrið- um tillögunnar áður en hægt yrði að bera hana undir atkvæði í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, hefur einnig látið í ljós efasemdir um tillöguna og varað við því að hún kynni að stefna sjálf- stæði íraks í hættu og stuðla að því að stríð brytist út að nýju við Persaflóa. Talsmenn bresku stjórn- arinnar vísuðu því þó á bug að hætta væri á að ekkert yrði úr til- lögunni. „Bandaríkjamenn hafa veitt tillögunni stuðning. Þeim er eins og okkur mjög í mun að þessu nauðstadda fólki verði komið til hjálpar.“ „Við höldum áfram að beita okk- ur af fullum krafti í þessu máli,“ sagði James Baker er hann ræddi stuttlega við blaðamenn í gær. For- sætisráðherrann hefur sent bréf til Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta, Lis Pengs, forsætisráðherra Kína, og de Cuellars til að skýra tillögu sína. Sovétmenn og Kínveijar eru taldir sjá ýmsa annmarka á henni. Nokkrir breskir embættismenn hafa sagt að griðasvæðið kunni að verða fyrsti áfanginn að sjálfstjórn Kúrda. Þeir lögðu þó einnig áherslu á að ekki væri stefnt að því að skipta írak. Tillagan hefði fyrst og fremst verið lögð fram vegna mann- úðarsjónarmiða. Sameinuðu þjóðirnar skipuðu í þær Belgann Eric Suy, fyrrum embættismann stofnunarinnar, sem 'formann nefndar er senda á til norð- urhluta íraks til að kanna aðstæður kúrdísku flóttamannanna þár. Sir David Hanney, sendiherra Bret- lands hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði að ýmsir fulltrúar í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna vonuðust til þess að för sendinefndar Samein- uðu þjóðanna og neyðaraðstoð hjálparstofnana yrði til þess að bæta ástandið. Útvarpið í Teheran kvartaði yfir því að í tillögu Breta um griða- svæði fyrir Kúrda í norðurhluta ír- aks væri ekkert tillit tekið til neyð- ar íraskra shíta frá suðurhlutanum sem flúið hafa til írans. Tillagan gæti verið liður í „pólitísku sam- særi“ og myndi ekki binda enda á þjáningar írösku þjóðarinnar, held- ur skapa mikla óvissu um framtíð hénnar. ■ ISLAMABAD - Najibullah, forseti Afganistan, hefur heitið því að ríkisstjórn hans muni endur- heimta borgina Khost, í austur- hluta landsins skammt frá landa- mærunum að Pakistan, úr höndum uppreisnarmanna sem tóku hana herskildi 31. mars sl. eftir tveggja vikna harða bardaga. Margar skær- uliðahreyfingar, sem átt hafa í stríði við yfirvöld í Afganistan sl. 12 ár, hafa bækistöðvar sínar í Pakistan. Khost hefur þann tíma lengst af verið í höndum uppreisnarmanna. ■ STOKKHÓLMI - Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja tæplega 60 milljörðum ÍSK til baráttu gegn atvinnuleysi í landinu. Markmiðið er að fækka atvinnulausum í landinu um 40.000 með því að bjóða upp á verkmennt- un og hvetja fyrirtæki til þess að senda fastráðið starfsfólk sitt í verkþjálfun og ráða nýútskrifað skólafólk til starfa á meðan. ■ PALM BEACH - Joseph Terlizzese, lögreglustjóri í Palm Beach í Flórída segist í viðtali við dagblaðið Miami Herald í gær vera 99% öruggur um að kynferðis- glæpur hafi verið framinn í húsi Kennedy-fjölskyldunnar 30. mars sl. Terlizzese segir að lögreglurann- sókn muni ljúka fyrir næstu mán-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.