Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 34

Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRIL 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Hallrekstur ríkissjóðs A L N G S K O S N N G Jón Baldvin skorar á Davíð Oddsson í kappræður; Get ekki aðstoðað Alþýðu- flokkinn í hans vandræðagangi -segir Davíð Oddsson Dr. Jóhannes Nordal, formaður bankastjórnar Seðlabanka Islands, staðfesti á ársfundi bank- ans í fyrradag, að hallarekstur ríkissjóðs og fjárþörf opinberra aðila er eitt helzta vandamálið í efnahagsmálum okkar íslendinga. Bankastjóri Seðiabankans sagði m.a.: „Engu að síður er þrálátur haliarekstur ríkissjóðs orðinn eitt af erfiðustu vandamálum í stjórn efnahagsmála. Arið 1990 var sjötta árið í röð, sem rekstrarhalli var á ríkissjóði, en hann náði há- marki árið 1988, þegar hann nam 2,8% af landsframleiðslu ... Jafn- framt náðist það mikilvæga mark- mið á árinu að fjármagna alla nettólánsijárþörf ríkissjóðs á innlendum markaði ... þrátt fyrir þetta náði þessi lánsfjáröflun ríkis- sjóðs ekki fram að ganga án áhrifa til hækkunar á raunvexti á verð- bréfamarkaði ...“ Jóhannes Nordal benti síðari á stóraukna fjárþörf húsnæðiskerf- isins og sagði: „... lánsfjáröflun vegna íbúðalána jókst úr rúmum 4 milljörðum árið 1987 í rúma 16 milljarða 1990, sem jafngildir um 125% raunaukningu á aðeins þr^mur árum.“ Þessi gífurlega fjárþörf rikis- sjóðs og annarra opinberra aðila stuðlaði að hækkun raunvaxta skv. eftirfarandi ummælum Seðla- bankastjórans á ársfundinum: „Þótt framboð innlends fjármagns á vegum lífeyrissjóða, banka og , verðbréfamarkaðs, ykist mikið á árinu 1990 og verulega drægi úr lánsfjáreftirspurn atvinnuveg- anna, reyndist markaðnum erfitt að melta þessa miklu innlendu lánsfjáröflun. Fóru því raunvextir hækkandi, eftir því, sem á árið leið “■ Þá upplýsti Seðlabankastjórinn, að óseðjandi fjárþörf opinbera geirans ýtti enn undir raunvaxta- hækkun er hann sagði:.....vextir af nýjum spariskírteinum og ríkisvíxlum hafa dregizt aftur úr öðrum vaxtakjörum og sala þeirra því orðið minni en ella. Hefur því lánsfjárþörf ríkissjóðs frá áramót- um verið að mestu mætt með skuldasöfnun við Seðlabankann, sem hefur mikla þensluhættu í för með sér. Þar sem hér getur ekki verið nema um tímabundið ástand að ræða, verður að reikna með verulega aukinni sölu ríkisbréfa síðar á árinu, sem væntanlega mun hafa áhrif til enn frekari hækkunar markaðsvaxta.“ Boðskapur dr. Jóhannesar Nor- dals er skýr: hallarekstur ríkis- sjóðs er eitt erfiðasta vandamálið við stjórn efnahagsmála. Láns- fjárþörf ríkissjóðs og húsnæði- skerfisins olli hækkun raunvaxta á síðasta ári. Þessi sama fjárþörf er svo mikil frá áramótum að bú- L-ast-má-við raunvaxtahækkun eftir. kosningar. Þetta er þungur áfellis- dómur yfir fjármálastjórn ríkisins. Einkavæð- ing ríkis- banka A Aársfundi Seðlabankans í fyrradag ræddi Jón Sigurðs- son, viðskiptaráðherra, breytingu á Búnaðarbanka íslands í hlutafé- lagabanka, sem síðan yrði seldur á hlutabréfamarkaði. í ályktun síðasta landsfundar Sjálfstæðis- flokksins er Búnaðarbankinn eitt þeirra ríkisfyrirtækja, sem lands- fundurinn taldi eðlilegt að selja einkaaðilum. Eins og þróunin hefur orðið á hlutabréfamarkaði hér, þar sem stórir aðilar, bæði fyrirtæki og lífeyrissjóðir, auka jafnt og þétt ítök sín í hveiju fyrirtækinu á fætur öðru og veruleg hætta á of mikill samþjöppun valds í við- skiptalífinu, er full ástæða til að ræða löggjöf til þess að koma í veg fyrir slíkt. Þetta fámenna þjóðfélag byggir mjög á hæfilegu jafnvægi milli einstaklinga og hagsmunahópa. Þess vegna er tilefni til að ræða löggjöf, sem takmarkar eignarað- ild einstaklinga, fyrirtækja og sjóða við ákveðinn hámarkshlut í peningastofnunum. Fiskveiði- stefna Hall- dórs A Igrein í Morgunblaðinu í gær, víkur Björn Bjarnason, sem skipar eitt af efstu sætum á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að ályktun Iandsfundar flokksins um fiskveiðimál og seg- ir: „Ef setningin öll er lesin kemur í ljós, að í henni felst fráhvarf frá fiskveiðistefnunni, sem Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra Framsóknarflokksins, hefur mót- að og nær aðeins til veiða en ekki vinnslu." Kvótakerfið er fiskveiðistefna Halldórs Ásgrímssonar og raunar einnig Landssambands ísl. útvegs- manna. Sú yfirlýsing eins fram- bjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, að í ályktun landsfund- ar felist fráhvarf frá þeirri stefnu er mikilsverð, ekki sízt með tilliti til ummæla Davíðs Oddssonar um sama mál, sem um var fjallað í forystugrein Morgunblaðsins í gær. DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, hefur svarað Jóni Baldvin Hannibalssyni, formanni Alþýðuflokksins um kappræðuáskorun hans með bréfi þar sem hann segist líta á áskorun Jóns Baldvins eins og hvern annan vandræðagang í kosningabaráttu Alþýðuflokks- ins. Það hafi ekki verið neitt vandamál fyrir Sjálfstæðisflokk- inn að fá fólk til að koma á fundi hjá honum og hann hafi ekki þurft að leita til annarra flokka um aðstoð í þeim efnum. Davíð sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði svarað sams- konar áskorun frá Flokki manns- ins á svipaðan hátt. Bréf Davíðs er svohljóðandi: „Þakka bréf þitt og áskorun um sameiginleg fundahöld okkar tveggja og anægjulegt samtal sem við áttum. í bréfi þínu vitnar þú í tiltekna setningu úr Reykjavíkur- bréfi Morgunblaðsins. Þá setningu hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki tekið til sín, eins og Alþýðuflokkur- inn virðist hafa gert. Eg hef, sem formaður míns flokks, gengist fyrir Jón sagði að gagnstætt því sem gildir um aðrar helstu auðlindir ís- lendinga, fiskistofnana og gróður- moldina, séu í orkulindunum miklir möguleikar og mikið ónumið land. „Við þurfum að setja um starf- semi þjóðarbúskaparins almennar, stöðugar leikreglur sem menn geti gengið að og, af opinberri hálfu, eigum við fyrst og fremst að hafa framsýni í rannsóknastarfsemi til þess að leggja grundvöll að öflugu atvinnulífi og orkubúskap," sagði ráðherrann. Til þess að ónógur undirbúningur tefji ekki frekari nýtingu vatns- orkunnar sagði hann nú þurfa að gera átak í rannsóknum. „Orku- stofnun mun veija 36 milljónum króna til þessa átaks á árinu sem er að líða og er að því stefnt að árlegur rannsóknakostnaður á þessu sviði verði svo aukinn í 48 milljónir króna eða þar um bil hvert næstu fjögurra ára til þess að und- irbúa þær vatnsaflsvirkjanir sem koma í kjölfar þeirra sem tengdar eru Atlantsálsverkefninu." Fram kom á blaðamannafundio.- um að Orkustofnun undirbýr nú áætlun um rannsókn íslensku há- hitasvæðanna og miðar við að hægt verði að virkja á háhitasvæðum í byijun næstu aldar. Frekari rannsóknir fara fram á þessu ári á lífrænu gasi sem fund- ist hefur við jarðhitaboranir í Öxar- firði og verður borað í vor til að leita skýringa á uppruna gassins. Fé til frekari rannsókna á fundar- stað mangangrýtis á Reykjanes- hrygg fékkst á fjárlögum og er rannsóknaskipið Árni Friðriksson þessa dagana að rannsaka svæðið og beinast rannsóknirnar að því að fundum víða um land. Fundir þess- ir hafa verið afskaplega fjölsóttir, 700 fundargestir á Akureyri, 400 á Akranesi, yfir 300 á ísaflrði, yfir 300 á Blönduósi og 700 á fundi í Stapa í Njarðvík. Á þessum fundum hef ég haft gott tækifæri til þess að ræða ýtarlega markmið Sjálf- stæðisflokksins, grundvallarstefnu hans og afstöðu til einstakra þátta, bæði í ýtarlegu inngangserindi og eins hefur mér gefist kostur á að svara fjölmörgum fyrirspurnum. Það hefur þvi ekki verið neitt vanda- mál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá fólk til að koma á fundi hjá honum og hann hefur ekki þurft að leita til annarra flokka um aðstoð í þeim efnum. Það er ljóst að fólk kýs miklu fremur málefnalega og innihalds- ríka fundi, þar sem fólki gefst tæki- færi og tóm til að ræða mál í þaula, en hanaats- og upphrópunar- fundi, sem flestum þykir heyra sög- unni til. Menn minnast þess þegar formaður Alþýðuflokksins og for- maður Alþýðubandalagsins áttu með sér slík fundahöld „á rauðu ljósi". Þau fundahöld hafa orðið hvorugum til framdráttar, eftir því afla upplýsinga um útbreiðslu man- gangrýtisins með sérstöku tilliti til verðmætra efna sem með því kunna að finnast. Frá því var greint að skipaður hefur verið ráðgjafahópur, iðnaðar- ráðherra til ráðuneytis, um sam- starf við erlenda aðila, þar á meðal Evrópubandalagið, um að nýta inn- lendar orkulindir til eldsneytisfram- leiðslu, meðal annars vetnis. Könnunin var gerð dagana 5.-9. apríl síðastliðinn. Úrtak var 1.000 manns af öllu landinu og svöruðu 81,8%. Óákveðnir voru 9,8%. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í könnuninni, 45,4%. í alþingiskosningunum 1983 hlaut flokkurinn 38,7% atkvæða og í kosningunum 1987 hlaut hann 27,2%. Framsóknarflokkurinn mælist nú með 18% fylgi. í kosningunum 1983 hlaut hann 19% og 1987 var fylgi hans 18,9%. Alþýðuflokkurinn mælist nú með sem best verður séð. Þess utan hefur Sjálfstæðisflokkurinn skipu- lagt út í hörgul kosningastarfið á næstu níu dögum. Ég sem aðrir talsmenn hans verð á Ijölmörgum fundum víða um landið og þar gefst okkur tækifæri til þess að skýra og skilgreina stefnu okkar og störf og við finnum að fyrir slíku er gríðarlegur áhugi, eins og fundar- sókn á fundum okkar er til merkis um. Ég vona að þú fyrirgefir mér þótt ég segi að ég lít á áskorun þína eins og hvern annan vand- ræðagang ‘í kosningabaráttu Al- þýðuflokksins og get því miður ekki aðstoðað þig við að leysa úr þeim vandræðum. Með bestu kveðjum." Á blaðamannafundi í gær sagði JÓn Baldvin Hannibalsson að fyrir sér hefði vakað með áskoruninni að taka undir þau orð í Reykjavíkur- bréfi Morgunblaðsins kjósendur ættu kröfu á að stjórnmálamenn vikjust ekki undan því fyrir kosn- ingar að ræða stefnumál sín í viða- mestu málum þjóðarinnar. Sér hefði sýnst að einkum skorti á skýrleika stefnu Sjálfstæðisflokksins í grund- vallarmálum og því hefði hann vilj- að leitast við að fá fram þessa umræðu. Jón Sigurðsson sagði að ein helsta forsendan fyrir áframhald- andi markvissum rannsóknum á orkulindunum og nýtingu þeirra í framtíðinni væri að taka af öll tvímæli um eignarhald yfir þeim, en nú sagði hann ríkja verulega réttaróvissu um eignarrétt á orku- lindum og verðmætum jarðefnum í iðrum jarðar. Sú óvissa geti hindrað rannsóknir og nýtingu. Hann greindi frá frumvarpi, sem iðnaðar- ráðuneytið sendi iðnaðarnefnd neðri deildar Alþingis í nóvember 1990, þar sem tekið er á þessum vanda. Frumvarpið náði ekki að verða af- greitt á Alþingi og kvaðst Jón hafa ■ hyggJu að taka þetta mál upp aftur að nýju þegar þing kemur saman í haust. 13,5% fylgi. í kosningunum 1983 hlaut hann 11,7% atkvæða og 1987 15,2%. Alþýðubandalagið mælist nú með 11,6% fylgi. í kosningunum 1983 fékk það 17,3% og 1987 13,4%. Samtök um kvennalista mælast með 8,2% fylgi. 1983 fékk Kvenna- listinn 5,5% og 1987 10,1%. Borgaraflokkurinn fékk 10,9% atkvæða 1987. Fijálslyndir fá í könnuninni 1,7%. Önnur framboð mældust með innan við 1% fylgi. Jón Signrðsson iðnaðarráðherra: Næsta ríkisstjórn verður mynduð um framtíðarverkefni JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra sagði á blaðamannafundi í gær um framtíðarverkefni í orkumálum að mikilvægt væri að horfa til langs tíma um nýtingu orkulindanna. I því sambandi sagði hann að sér virtist að næsta ríkisstjórn verði mynduð um framtíðarverkefni í þjóð- málum fremur en um stundarverkefni. „Ekki um stundarvanda, ekki um óðaverðbólguna og hvað gerist næstu þrjá mánuði, heldur hvað gerist, hvað getur gerst og hvað við viljum að gerist næstu þrjátíu, fjörutíu árin,“ sagði iðnaðarráðherra. SKÁÍS-könnuii: Sjálfstæðisflokkur- inn með 45,4% fylgi FYLGI Sjálfstæðisflokksins mælist 45,4% á landinu öllu, samkvæmt niðurstöðum könnunar SKÁÍS fyrir Stöð 2-Bylgjuna, sem sagt var frá í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Næstmest fylgi í könnuninni mælist þjá Framsóknarflokknum, 18%. Allir flokkar, sem buðu fram í kosn- ingunum 1987 og bjóða einnig fram nú, mælast í þessari könnun með minna fylgi en þá, nema Sjálfstæðisflokkurinn. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 35 A R- Norburland vestra A& neSan eru úrslil skoðanakönn- unar, sem Gallup á Islandi aerSi fyrir RUV, um viðhorf fólks í Norðurlands- Álcjördæmi vestra til þeirra flokka, sem bjóða fram í komandi kosningum. Sjálfstæðisflokkur Frjálslyndir Sarntök um kvennalista ‘Callup 6 Islandi geiðl könnunino lyrir RÚV /.-9. npá í úitokim mni 900 monns, en 491 svúnéi eio um 70%. Skekkjumöik em 6 iilm 1-5%. kil somonbuiðar eiu kosningoúiskt l9SSogl 987. “ kjóðoifhkkw og Fbkkoi nrnnsm. '83 '87 '91* A 7,2% 10,2% 9,3% B 28,8% 35,2% 32,5% BB 11,6% — — C 3,1% — — D 31,3% 21,2% 30,8% F - — — 0,7% G 18,0% 15,7% 13,7% H — — 1,7% M — 0,7% - — S — 7,3% — V — 5,2% 7,3% 1» — 4,5% 3,9%** Jón Baldvin Hanmbalsson utanríkisráðherra: Átti gott samstarf við Steingrím um EB-mál „ÉG hef haft það skylduverk að hafa frumkvæði að stefnumótun og verkstjórn í samningum sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á í fyrir hönd íslensku þjóðarinnar við Evrópubandalagið. Milli okkar for- sætisráðherra hefur verið gott samstarf yfirleitt í þessari ríkisstjórn og sérstaklega um þessi mál. Það hefur alls enginn ágreiningur verið okkar í milli um það hvernig á þessum málum hefur verið haldið," sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins á blaðamannafundi sem hann boðaði til í gær. Tilefni var að svara ummælum forsætisráð- herra um afstöðu Alþýðuflokksins til Evrópumála og að kosningarnar 20. apríl væru í raun þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að Evrópubanda- laginu. Jón Baldvin kvaðst tæpast hafa trúað eigin eyrum er hann heyrði forsætisráðherra viðhafa þau um- mæli á fundi á Akureyri að Alþýðu- flokkurinn væri sem úlfur í sauðarg- æru í Evrópumálum. „Ég óttast að ummæli af þessu tagi verði til að vekja upp tortryggni hjá almenningi gagnvart þessum samningum, sá efasemdum um að ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar hafi komið fram af heilindum með þessa stefnu og að þetta verði til að sundra samstöðu þjóðarinnar um þessi mikil- vægu hagsmunamál," sagði Jón Baldvin. „Forsætisráðherra sagði í þessari ræðu að kosningarnar 20. apríl væru í reynd þjóðaratkvæðagreðsla um aðild að ÉB. Þetta eru ótrúleg um- mæli í fyrsta lagi vegna þess að enginn stjórnmálaflokkur á íslandi hefur það á stefnuskará sinni að ganga í Evrópubandalagið. Mundi forsætisráðherra skýra frá því 11 eða 12 dögum fyrir kosningar, svo sem eins og af hendingu á fundi á Akur- eyri ef kosið væri í raun um aðild að Evrópubandalaginu? Myndu menn ekki gér'a þá kröfu til ríkisstjórnar hans að hún undirbyggi það mál og legði fyrir þjóðina nákvæmlega hvað í slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu fæ- list,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son. Hann kvaðst hafa tekið eftir að forsætisráðherra hefði í sömu ræðu kvartað undan óvönduðum málflutn- ingi sjálfstæðismanna gagnvart hon- um, sem hann hefði sagt að minntu á þá baráttuaðferð kennda við Ric- hard Nixon, að gera andstæðingun- um sínum upp skoðanir og láta þá síðan þræta fyrir. „í þessari sömu ræðu gerir hann samstarfsaðila sínum, Alþýðuflokknum, upp þá skoðun að við stefnum að inngöngu íslands í Evrópubandalagið og séum reiðubúnir að framselja úr hendi þjóðarinnar forræði yfir auðlindum, fiskimiðum og orkulindum og nú þurfi að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Ætlar Steingrímur Her- mannsson að halda þessu áfram og segja: „Látum skúrkana neita því.“ Finnst forsætisráðherra það sambo- rið virðingu sinni að bera samstarfs- aðila slíkum sökum gegn betri vit- und?“ spurði Jón Baldvin Hannibals- son. • 'rt 0 ,' . Grýluáróður um mál sem ekkierá dagskrá ERFITT er að gera sér í hugarlund við hvern er að sakast, þegar reynt er að finna sökudólg, sem kenna má um að pólitískur fund- ur sjö frambjóðenda i Reykjavík með yfir tvö hundruð áheyrendur í sal nær aldrei neinni hæð, né því að mynda stemmningu. I tilviki Mágusar, Félags viðskiptafræðinema við Háskóla Islands, á hádegis- fundi í Háskólabíói í gær verður varla bent á annan sökudólg en formið sjálft. Sjö frambjóðendur, með takmarkaðan ræðutíma, fimm mínútur og mínútukvóta til þess að svara hverri fyrirspurn, er fundarform sem dæmir sjálft sig til þess að falla, alveg burtséð frá hæfni pallborðsþátttakenda og „publikúminu" sem í þessu til- viki var á þriðja hundrað gallabuxnaklæddir háskólanemar. Yfirbragð þessa fundar, hvað varðar fundargesti, var óvenju frísklegt. Ung, greindarleg andlit, úlpur á lærleggjum eða stólbökum, kurteisleg viðbrögð við hnyttni reyndra stjórnmálamanna og um- burðarlyndi gagnvart þeim sem minni reynsluna hafa. En hvers minnast menn helst, eftir að hafa hlýtt á frambjóðendur reyna að selja kjósendum vöru sína, stefnu- skrá síns flokks? Örugglega er ekki efst í huga háskólanemanna að þeir hafi orðið vitni að tíma- mótayfirlýsingum í íslenskum stjórnmálum, enda vart við því að búast. Kanriski hnyttni Jóns Bald- vins. Hann svaraði Svavari Gests- syni eitt sinn, sem hafði óspart hnýtt í krata í máli sínu, en strauk Jóni Baldvin svo rétt einu sinni og sagðist geta tekið undir svar ut- anríkisráðherra sem hefði verið skýrt: „Þau eru venjulega skýr svör mín,“ heyrðist þá í utanríkis- ráðherra, sem glotti og háskóla- nemar hlógu. Eða tilsvar Geirs H. Haarde, um afstöðu til útvarps- ráðs: „Konan mín er formaður út- varpsráðs og ég legg það ekki í vana minn að gagnrýna hana opin- berlega!" Aftur hlógu háskólanem- arnir og ung stúlka við hlið mér sagði: „Gott hjá honum. Svona hreinskilnir eiga menn að vera.“ Eða þá Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir sem fékk salinn til að hlæja þegar hún lýsti því hvað þátttaka kvenna í stjórnmálum getur verið þeim erfið: „Hér hafa karlarnir talað á undan mér og þeir hafa trónað hér uppi í pontunni og þeir hafa verið af- skaplega ábúð- armikli'r. En við konurnar megum una því að það sjáist bara rétt í nefbroddinn á okkur!“ Ekki nenni ég hér að rekja fram- söguerindi sjömenninganna, enda teldu lesendur sjálfsagt flestir að þau hefðu þeir heyrt oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Greinilegt hræðslubandalag er komið upp meðal fulltrúa stjórnar- flokkanna í garð Sjálfstæðisflokks- ins, þar sem þeir vörðu dijúgum hluta framsöguerinda sinna í að fjalla um „stefnuleysi Sjálfstæðis- flokksins11 í stað þess að gera skýra grein fyrir stefnu sinna flokka. Svavar Gestsson átti metið í þess- um efnum, þar sem lunginn úr hans ræðutíma fór í umíjöllun um HDAGBÓK H STIÓRNMÁL eftir Agnesi Bragadóttur stefnuleysi Sjálfstæðisflokksins" annars vegar og „hina hörðu stefnu sem Þorsteinn Pálsson lýsti í lok síðasta landsfundar ... Aðal- atriðið er að menn kjósi ekki Sjálf- stæðisflokkinn,“ sagði fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins meðal annars. Skoðanaskipti frambjóðendanna um EB og umræðan um evrópskt efnahagssvæði eru sennilega það bitastæðasta sem fram kom á þess- um fundi. Svavar Gestsson sagði: „Það er verið að kjósa um Evrópu- bandalagið. Þær tilraunir sem Jón Baldvin og Sjálfstæðisflokkurinn gera núna til að breiða yfir það, eru satt að segja mjög vafasam- ar.“ Þar með skipaði Svavar sér á bekk með Steingrími Hermanns- syni, forsætisráðherra sem hefur haldið hinu sama fram og fulltrúi hans á fundinum, Bolli Héðinsson, gerði að sjálfsögðu slíkt hið sama. Jón Baldvin sagði m.a.: „Ég hef sem utanríkisviðskiptaráðherra í þessari ríkisstjórn haft frumkvæði um stefnumótun og samskipti ís- lands við Evrópubandalagið. Um það hef ég haft sérstaklega náin samskipti við forsætisráðherra og um það hefur enginn ágreiningur verið. Allir flokkarnir sem að ríkis- stjórninni standa hafa hafnað aðild að Evrópubandalaginu. Við höfum valið þann kost að semja með EFTA-ríkjunum við Evrópubanda- lagið um tiltekið inálasvið. í þeim samningum felst ekkert framsal á sjálfstæði íslendinga, hvorki í lög- gjafarvaldi né framkvæmda- 'valdi. Þess vegna verð ég að segja það hreint út, að það kemur mér í opna skjöldu og mér finnst það ekki einasta ódrengilegt, heldur líka varhuga- vert út frá þjóðhagslegu sjónar- miði að vekja nú upp grýluáróður um mál sem ekki er á dagskrá. Þessar kosningar snúast ekki um aðiid að Evrópubandaiaginu." Geir H. Haarde alþingismaður Sjálfstæðisflokksins sagði: „Ég held að þetta mál gefi nokkuð skýra mynd af því út í hvað þessi kosningabarátta er að þróast. Það er engu líkara en Framsóknar- flokkur og Alþýðubandalag séu að verða gjörsamlega „desperat“ (Ör- væntingarfullir — innskot AB) og í örvæntingú sinni þá er gripið upp mál sem ekki einn einasti flokkur hefur á sinni stefnuskrá ... Ég veit ekki hvar þetta inngöngulið í EB er, sem hann Svavar Gestsson var að tala um. Það eina sem ligg- ur fyrir í þessu máli er að það er ágreiningur á milli stjórnmála- flokkanna um það hvort við eigum að gerast aðilar að Evrópsku efna- hagssvæði. Það þarf auðvitað ekki 'að segja ykkur það að afturhalds- öflin í íslenskri pólitík eru á móti því. Aðild að Evrópubandalaginu er eins og utanríkisráðherra sagði mál, sem ekki þarf að taka afstöðu til, fyrr en einhvern tíma á næstu öld. Ég segi fyrir mig og sjálfstæð- ismenn, ef við ættum í dag að svara spurningunni um það hvort við vildum ganga í EB, þá segðum við nei. En það væri auðvitað óskynsamlegt að gera það sem Framsókn og Alþýðubandalag vilja gera að segja að það nei gildi um aldur og ævi.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir frambjóðandi Samtaka um kvennalista sagði: „Eins og margir aðrir, þá heyrði ég það í fréttum útvarps og sjónvarps að Steingrím- ur Hermannsson forsætisráðherra vildi að þessar kosningar væru þjóðaratkvæðagreiðsla um Evr- ópubandalagið. Ég verð að segja það alveg eins og er, að ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum, að forsætisráðherra væri að setja þetta fram 11 virkum dögum fyrir kosningar. Þetta hefði kannski verið skiljanlegt ef við í Kvennalist- anum eða sjálfstæðismenn hefðum sett þessa hugmynd fram. En að forsætisráðherra, sá sem leiðir þær viðræður sem nú standa yfir, skuli setja þetta- fram, það er svo vit- laust, að engu tali tekur!“ Og hér skellihlógu háskólanemar og pall- borðsþátttakendur, að Bolla Héð- inssyni undanskildum. Og blessunin hún Áshildur Jóns- dóttir, fulltrúi Þjóðarflokksins - Flokks mannsins, sem í kosninga- baráttu eftir kosningabaráttu kemur fram fyrir hönd Flokks mannsins, svo sæt og saklaus, um leið og hún er uppfull af heilagri vandlætingu á ranglæti heimsins, sem í hennar augum virðist krist- allast í „gömlu ijórflokkunum" hafði þetta um EB að segja: „Það er eitt atriði sem gleymist alltaf í umræðunni um EB. Svavar sagði áðan að það væri þegar búið að skoða það hvort við ættum að ganga í EB eða ekki. Það getur vel verið að hann sé búinn að skoða það og þeir sem sitja hérna með' mér, en það gleymist alltaf að segja þeim sem búa í þessu landi hvað það þýðir að ganga í EB.“ Svo mörg voru þau orð um EB. Margt fleira var rætt, svo sem Þjóðarbókhiaða, pólitískar emb- ættisveitingar og námslánakjör. Fundurinn varði í tvo tíma og há- skólanemar hurfu til fyrirlestra sinna á ný, — en urðu þeir ein- hveiju nær? Dautt form á pólitískum fundi, sem fyrir löngu hefur sér til húðar gengið. imj ..‘."iji'v.t'rí'.-. iirj' j;ju iúhí 'i " ubi un'ii: ðligv lunmmjnbv II...1 ' iTtgT^S'TO't Morgunblaðið/KGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.