Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
53
sjálf tökum ekki frumkvæðið í að
finna þau lönd, sem gætu veitt
okkur mest öryggi fjárhagslega
og pólitískt, þá gæti komið upp
sú staða að aðrir tækju ákvarðan-
ir um örlög okkar.
Með kosningar á næsta leiti, tel
ég það mikilvægt fyrir okkur ís-
lendinga, að þeir sem við veljum
til að stjórna á næsta kjörtímabili,
hafi velt þessum málum alvarlega
fyrir sér. í framtíðinni verður allt
fullt af allskonar bandalögum og
afkoma sérstaklega smáþjóða velt-
ur á aðild að slíkum bandalögum.
Og að fá aðild áður en þau verða
öll meira og minna lokuð.
Hvað sem öðru líður þá kem ég
til með að spyija minn flokk, um
hans afstöðu til þessara mála áður
enég kýs.
Höfundur er búsettur í Ósló.
Island á bandalagaöld
eftir Rúnar
Gústafsson
Þar sem sýnilegt er að áhugi
Evrópubandalagsríkja á sérsamn-
ingi við íslendinga er ekki fyrir
hendi og sýnt er að afstaða og
athafnir Islendinga i málefnum
Eystrasaltsríkjanna er ekki í sam-
ræmi við það sem hin Norðurlönd-
in kjósa að hafast að. í því sam-
bandi vaknar sú spurning óneitan-
lega hvað ísland er að gera í sam-
vinnu við lönd sem eru okkur svo
ósammála og lítið viljug til að
koma til móts við okkar sjónarmið
og þarfir.
Framtíð íslands virðist ekki allt
of björt í samkrulli við þessar þjóð-
ir, hvorki pólitískt né efnahags-
lega. Og er útlit fyrir að við höfn-
um á hjara veraldar og það í víð-
tækari skilningi en bara landfræði-
legum.
Hvað er til ráða fyrir litla og
vanmáttuga þjóð? Finnast önnur
úrræði, eru aðrir valmöguleikar?
Eru ekki til aðrar þjóðir, önnur
lönd, sem íslendingar myndu
hagnast meira á að gera samn-
inga, éða bindast bandalögum við?
Landfræðilega er ísland hálft
evrópskt og hálft amerískt með
Atlantshafssprunguna, landamæri
Evrópu og Ameríku þvert gegnum
landið.
Ég tel það mjög mikilvægt fyrir
okkur íslendinga að skoða grannt,
hvað stefnu við tökum í framtíð-
inni. Þær hræringar er átt hafa
sér stað í Austur-Evrópu verða til
þess að Vestur-Evrópuríkin hafa
minni möguleika og siður ráð á
að gefa íslendingum einhverja sér-
meðferð. Þau fórna því hiklaust
okkar hagsmunum fyrir þeirra, því
„Er ekki kominn tími
til að athuga alvarlega
möguleika Islands að
öðrum fríverslunar-
samningum eða banda-
lögum til dæmis með
Kanada og Bandaríkj-
unum.“
meiri hagnað verður að sækja til
austurs, en í slíkt góðverk sem er
að veita okkur aðild að mörkuðum
sameinaðrar Evropu.
Spurningin sem vaknar er óneit-
anlega sú, hvort björg íslendinga
verði ekki í vestri eins og á land-
námsöld. Einir getum við ekki
staðið og Evropubandalagið hefur
bara áhuga á fiskimiðum okkar,
ekki landi eða þjóð.
Er ekki kominn tími til að at-
huga alvarlega möguleika íslands
að öðrum fríverslunarasamningum
eða bandalögum til dæmis með
Kanada og bandaríkjunum, eða
hveiju því landi sem styrkt gæti
stöðu okkar á alþjóðavettvangi,
bætt afkomumöguleika okkar og
auðveldað okkur að halda sjálf-
stæði okkar og séreinkennum?
Á þessuni áratug verða örlög
íslands og íslendinga ráðin. Ef við
Rúnar Gústafsson
Styrkur þinn
ELFA
W.lrUMa
viftur í úrvali
Loftviftur - baðherbergisviftur
- eldhúsviftur - borðviftur -
röraviftur - iðnaðarviftur
Hagstætt verð.
_______________..
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28. Sími 16995.
erstyrkur Sjátfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn byggir fjárhagslega
afkomu sína einvörðungu á framlögum
stuðningsmanna sinna
Styrktarmannakerfi Sjálfstæðisflokksins er einfold og
skilvirk leið til að koma þessum stuðningi til skila.
Kosningabarátta kostar mikið fé. Eina leið
Sjálfstæðisflokksins til að mæta þeim kostnaði er að
leita til flokksmanna og stuðningsmanna sinna um
land allt.
Félagsgjald í sjálfstæðisfélagi
Hluti af styrktargreiðslunni rennur beint til sjálfstæðis-
félags íheimabyggð viðkomandi styrktarmanns sem
félagsgjald. Þetta
léttir undir með
starfsemi félaganna
þar sem ekki þarf
lengur að innheimta
félagsgjald
sérstaklega.
Flokksfréttir
Allir styrktarmenn fá sendar Flokksfréttir miðstjómar
Sjálfstæðisflokksins. Flokksfréttir eru mikilvægur
samskiptahlekkur forystumanna og trúnaðarmanna
flokksins. Blaðið kemur út minnst 6 sinnum á ári.
Stefnir
Styrktarmenn sem greiða tiltekna lágmarksupphæð
fá sent tímaritið Stefni, málgagn Sambands ungra
sjálfstæðismanna.
I Stefni fer fram
lifandi pólitísk
umræða og fjöldi
sérfræðinga er
kallaður til að
varpa Ijósi á málin.
Happdrætti styrktarmanna
Sjálfstæðisflokksins
Efnt er til sérstaks happdrættis styrktarmanna á
hverju ári. Vinningurinn í ár er glæsileg Mitsubishi
Colt bifreið. Happdrættismiðar eru innifaldir í
styrktargreiðslunni. Fjöldi miða, sem hver
styrktarmaður fær senda, fer eftir upphæð
Hverhig er hægt að gerast
styrktarmaður7
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Valhöll veitír allar nánari
upplýsingar. Sími 91 -82900. Einnig má fýlla út þennan
umsóknarseðil og senda hann ípósti til skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, Valhöll við Háaleitisbraut 105
R eykjavik
Ég áska eftir að gerast styrktarmaður Sjálfstæðisflokksins
og fá sendar upplýsingar um stryktarmannakerfið.
Nafn_______________________
Heimili:___________________
Póstnúmer__________ Staður
Styrktarmaður
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS