Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 68
■í
VZterkur og k_/ hagkvæmur auglýsingamióill!
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
nmsii
1 IjtB.l.Hl l|i|
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Guðmundur Guðmundsson, Erró, við Korpúlfsstaði, þar sem safni verka hans verður komið fyrir.
Errósafn á Korpúlfsstöðum:
18 stórar myndir bætast í safnið
Listamaðurinn Erró hefur lokið við tólf stórar myndir, sem
hann ætlar að gefa Listasafni Reykjavíkur, til viðbótar við verk-
in sem hann gaf borginni haustið 1989. Myndirnar eru 5x2‘/2
metri á stærð. í samtali við Morgunblaðið sagði Erró að efni
myndanna væri saga nútímalistar. Þá hyggst hann einnig mála
sex stórar myndir til viðbótar, auk þess að stækka upp nokkrar
eldri myndir.
Erró gaf Reykjavíkurborg
2.000 verk haustið 1989, sem
spanna nánast allan feril hans,
allt frá æsku. Meðal verkanna eru
232 olíumálverk, 406 vatnslitá-
og þekjulitamyndir, 146 grafík-
myndir og um 1.200 teikningar.
Erró hefur dvalið hér á landi
undanfarna daga og kynnt sér
aðstæður á Korpúlfsstöðum, þar
sem safni verka hans verður kom-
ið fyrir. Hann sagði að sér litist
mjög vel á húsið og möguleikar
þess væru nánast óþijótandi.
Hann vinnur stóru myndirnar
sérstaklega með húsið í huga.
Með Erró í íslandsförinni núna
var'kunningi hans, franskur arki-
tekt. „Hann sér ótal möguleika
hér, enda er húsið stórkostlegt,“
sagði Erró. „Það er gaman að
velta fyrir sér hugmyndum hans.
Mér er sjálfum mikið í mun að
tengja saman listina og íslensku
náttúruna. Esjan blasir við frá
Korpúlfsstöðum og ég vil gjarnan
að það útsýni fái að njóta sín sem
best.“
Gunnar Kvaran, forstöðumaður
Listasafns Reykjavíkur, sagði að
ekki væri ákveðið hvort haldin
verður opin eða lokuð samkeppni
arkitekta um breytingarnar á
Korpúlfsstöðum. „Undanfarið
hefur allt lauslegt verið rifið út
úr húsinu, svo nú er hægt að
gera sér enn betur grein fyrir því
en áður hvaða möguleika húsið
býður upp á,“ sagði Gunnar.
Islandsbanki:
Lífeyrissjóð-
ur verslunar-
manna stærst-
ur hluthafa
LÍFEYRISSJÓÐUR Verslunar-
manna er orðinn stærsti hluthafi
Islandsbanka eftir að sjóðurinn
festi kaup á um helmingi hluta-
bréfa Verkamannafélagsins Dags-
brúnar í Eignarhaldsfélaginu Al-
þýðubankinn hf.
Dagsbrún seldi sem kunnugt er
hlutabréf sín sl. mánudag í eignar-
haldsfélaginu sem voru að nafnvirði
35 milljónir króna. Þessi hlutur sam-
svaraði um 4,8%_af iilutafé félagsins
eða 1,42% í íslandsbanka. Eign
lífeyrissjóðsins í eignarhaldsfélögum
bankans samsvaraði áður um 9,08%
hlutafjárins í íslandsbanka en hefur
nú hækkað í í 9,8% samanborið við
9,58% hlut Fiskveiðasjóðs.
Lífeyrissjóður Verslunarmanna er
nú stærsti hluthafi í Eignarhaldsfé-
laginu Verslunarbankinn með 15,4%
hlutafjár, annar stærstur í Eignar-
haldsfélaginu Alþýðubankinn með
8,3% og þriðji stærstur í Eignar-
haldsfélaginu Iðnaðarbankinn með
6,9%. Auk lífeyrissjóðsins átti verð-
bréfafyrirtækið Handsal hf. eitt af
hæstu tilboðunum og keypti hluta-
bréf af Dagsbrún að nafnvirði 10
milljónir, fyrir hönd eins af viðskipta-
vinum fyrirtækisins.
Almenni hlutabréfasjóðurinn hf.
sem er í vörslu Pjárfestingarfélagsins
keypti hlutabréf í eignarhaldsfélag-
inu fyrir um 5 milljónir króna en
einnig mun Sjúkrasjóður verkstjóra
hafa keypt fyrir um 2 milljónir sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Eignarhaldsfélag Eimskipafélags-
ins, Burðarás hf., er þriðji stærsti
hluthafi íslandsbanka en fyrirtækið
er annar stærsti hluthafinn í bæði
eignarhaldsfélögum Iðnaðarbanka
og Verslunarbanka. I því fyrrnefnda
er hlutur Burðaráss um 6,9% og er
hann óbreyttur frá fyrra ári. í því
síðarnefnda er hluturinn 11,8% og
hefur aukist frá síðasta ári úr 9,8%.
Sjá nánar á bls. 1B.
Endurskipulagningu fjárhags Þorgeirs og Ellerts hf. lokið:
Nýir hluthafar leggja
fram 60 milljónir kr.
Fjölga þarf járniðnaðarmönnum
TEKIST hefur samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu á
skipasmíðastöðinni Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi. Nýir hluthafar
koma inn í fyrirtækið með tæplega 60 milljóna kr. hlutafé og
skammtímaskuldum við heistu lánardrottna, meðal annars Landsbanka
íslands, verður breytt í lán til lengri tíma. Að sögn Guðjóns Guðmunds-
sonar skrifstofustjóra fyrirtækisins sem unnið hefur að endurskipu-
lagningunni, eru næg verkefni hjá fyrirtækinu og verða ráðnir fleiri
járniðnaðarmenn nú þegar mál fyrirtækisins hafa komist á hreint.
Skipasmíðastöðin Þorgeir og Ell-
ert hf. hefur átt í fjárhagserfiðleik-
um. Greiðslustöðvun sem fyrirtækið
fékk í júní á síðasta ári rann út í
nóvember og fasteignir þess hafa
margsinnis verið auglýstar til sölu á
nauðungaruppboði. Fjölda starfs-
manna var sagt upp og fækkaði
starfsfólki úr 120 í um 70. í lok
október var skipaður starfshópur til
að endurskipuleggja fjárhaginn. í
honum eru menn skipaðir af stjórn
fyrirtækisins, Byggðastofnun,
Landsbankanum, ráðuneytum og
Akraneskaupstað. Samkomulag um
endurskipulagninguna tókst í gær.
Akraneskaupstaður leggur fram
stærsta hlut nýrra hluthafa, 25 millj-
ónir kr. Fjöldi fyriitækja og einstakl-
inga leggur einnig fram hlutafé,
meðal annars mörg fyrirtæki sem
Þorgeir og Ellert hf. eiga viðskipti
við, starfsmenn, starfsmannafélagið
0g Sveinafélag málmiðnaðarmanna.
Meðai hluthafanna er Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. og öll
stærstu útgerðarfyrirtækin á Akra-
nesi. Núverandi eigendur Þorgeirs
og Ellerts hf. verða minnihlutaeig-
endur en að sögn Guðjóns Guð-
mundssonar hefur ekki verið gengið
frá því hver hlutur þeirra verður.
Guðjón sagði ánægjulegt að tekist
hefði að koma fyrirtækinu á réttan
kjöl aftur og menn væru bjartsýnir
á framtíðina.
íslenzkir tómatar í búðir
FYRSTA sending af íslenzkum
tómötum er nú komin í verzlan-
ir. Að sögn Níelsar Marteins-
sonar hjá Sölufélagi garðyrkju-
manna er aðeins um lítið magn
að ræða í byijun.
Heildsöluverð frá Sölufélaginu
er 440 krónur kílóið og er algengt
smásöluverð í verzlunum 710
krónur. Verðið mun lækka með
auknu framboði.
í Hvammsvík er hægt að veiða á stöng og leika golf.
Lögreglufélag býð-
ur hæst í Hvammsvík
AKVEÐIÐ hefur verið að ganga til samninga við Lögreglufélag
Reykjavíkur um kaup á jörðunum Hvammi og Hvammsvik í Kjós, en
þær eru eign þrotabús fiskeldisfyrirtækisins Laxalóns hf. Að sögn
Jóhannesar Sigurðssonar, búsljóra þrotabúsins, bauð Lögreglufélag
Reykjavíkur 39 milljónir króna í jarðirnar. Þær eru samtals um 600
hektarar að stærð, og þar er mcðal annars golfvöllur og aðstaða til
stangveiði.
Jóhannes sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fjórir aðilar hefðu gert
tilboð í jarðirnar Hvamm og
Hvammsvík, en fleiri hefðu sýnt
áhuga. Hann sagði að sala á eignun-
um hefði verið ákveðin í samráði við
veðhafa á þeim, en fslandsbanki og
Reykvísk endurtrygging voru með
stærstu kröfurnar ásamt Ferðamála-
sjóði. Fjallað verður um það á félags-
fundi í Lögreglufélagi Reykjavikur á
næstunni hvort gengið verður til
samnmga um kaupin a grundvelli
þeirra viðræðna sem átt hafa sér
stað. v
Jóhannes sagði að starfandi fisk-
eldisfyrirtæki hefði gert tilboð um
kaup á fiski í fiskeldisstöðinni Fiska-
lóni í Ölfusi, sem er í eigu þrotabús-
ins, og jafnframt um leigu á eldis-
stöðinni frá 1. maí næstkomandi.
Aðallega er silungur í Fiskalóni, en
einnig er þar nokkuð af eldislaxi.