Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 7
MORGUNBLADIÐ SUNNUDAGCK 2. JÚNÍ 1991 £ l Þjódfélagslegt gildi íþrótta fyrir sólarheill óhuga- mannanna er meira en margir gera sér grein fyrir verðið að setja mig í spennitreyju, ef við vinnum,“ sagði annar. Litir og söngur Ég tók mér góðan tíma til að komast útá völl. í neðanjarðarlest- inni var gífurlegur hugur í mönn- um. Það var sungið og dansað og kpllast á með slagorðum. Hvar- vetna mátti sjá trefla og fána stuðningsmanna, Tottenham-menn hvítir og bláir en þeir Forest-menn eldrauðir. Allt fór þó fram í góðu. Við Wembley var múgur og marg- menni og mikill hugur í stuðnings- mönnum liðanna sem helltu í sig síðustu bjórdropunum áður en þeir héldu inn á sjálfan leikvanginn. Alls konar kaupahéðnar voru mættir til leiks og seldu trefla og merki og fána og annan varning sem tilheyrir samkomum sem þess- um. Skuggalegir bisnessmenn seldu miða svart og fóru laumulega með. Ég keypti mér Tottenham- trefíl enda mikill aðdáandi þess liðs. Inni á vellinum var stemmningin ótrúleg, mikið litaskrúð aðdáenda liðanna, köll og læti, sönglist og kórar sem kölluðust á- Þegar nær leið leiknum varð hávaðinn enn meiri og fæstir heyrðu í stórri lúðrasveit sem klædd var í einkennisbúninga frá heimsveldistímabilinu með hitabelt- ishatta á höfði. Karl prins og Díana kona hans komu og heilsuðu upp á liðin. Hann var fálkalegur að vanda í gráum jakkafötum en hún glæsileikinn holdi klæddur. Þjóð- söngurinn var sunginn og svo fór allt af stað. Leikurinn hófst með látum og fljótlega var aðalhetja minna manna, Páll Gascoigne bor- inn, út af börum. Mennirnir frá heimabyggð Hróa hattar skoruðu mark, mínir menn misnotuðu víti og virtust öllum heillum horfnir. Eftir hálfleik snerist dæmið við og Tottemhamarar gerðu mark og í framlengingu unnu þeir leikinn. Meðal á leiknum stóð skiptust áhangendur liðanna á að fagna og leika á als oddi eftir því sem staðan breyttist. Þegar þeir rauðklæddu voru með böggum Hildar af sorg sungu hinir hvítklæddu og veifuðu fánum sínum í tryllingi. Lestarferðin heim Þegar Tottenham stóð uppi sem sigurvegari í leikslok sungu stuðn- ingsmenn þeirra hástöfum og voru hinir kátustu en rauðklæddir For- est-aðdáendur flýttu sér heim. Ég stóð upp á sætinu mínu og æpti af hrifningu þegar liðið mitt hljóp einn hring á vellinum með bikarinn og fór síðan að tygja mig til heim- farar. Á leiðinni útá neðanjarðarstöð- ina var stemmningin gjörbreytt. Þrátt fyrir sigur okkar manna virt- ust aðdáendur liðsins svo örmagna eftir alla spennuna og æsinginn að enginn nennti að æpa eða öskra lengur. Menn gengu þöglir, Totten- hamarar brosandi, Forestarar með skeifu. I lestinni reyndu menn að ber'a sig mannalega en frændur Hróa hattar og Marion frá Skíris- skógi sátu þöglir og horfðu í gaupn- ir sér og virtu fyrir sér treflana sína eins og þeir væru helgitákn sem hefðu verið vanvirt af heiðingj- um. Feitur og drukkinn, tannlaus undirmálsmaður með Tottenham- trefíl um hálsinn reyndi að ná upp einhveijum söng og allt loft virtist farið úr fólki á heimleiðinni. í leik sem þessum sveiflast Að vera áhorfandi á íþróttakeppni er að vera hluti af heild. áhorfandinn eins og pendúll milli ofsakæti og mikillar sorgar, aðra stundina er leikið á als oddi en hina er heimurinn hruninn. Það er því engin furða að menn örmagnist eftir nokkurra klukkustunda spennu og læti. En skelfíng leið mér vel á heimleiðinni eftir að hafa öskrað og æpt allan þennan tíma og reynt að syngja með stuðnings- mönnum Iiðsins míns. Þjóðarhystería á laugardegi Ég hef áður farið á Wembley til að fylgjast með bikarúrslitum. Það var árið 1987 en þá sá ég Totten- ham lúta í lægra haldi fyrir Cov- entry. Báðir þessir leikir eru mér þó jafn minnisverðir. Það er stór- kostlegt að taka þátt í svona hóp- hysteríu sem það er vera hluti af 80.000 manna blönduðum kór sem æpir og öskrar og syngur og hvet- ur sína menn til dáða. Það var gaman þegar vel gekk og ég tok þátt í algleymi sigurvegarans þegar Tottenham vann. Það var líka ljúf- sárt að vera með í ósigri minna manna vegna þess að ég var ekki einn um harminn minn heldur tók ég þátt í sameiginlegum harmi nokkurra tugþúsunda sem fylgdu þeim að málum. Sorgin vegna taps- ins varð léttbærari en ella þar sem hópurinn bar hana saman á þús- undum herða. Gleðin yfir sigrinum varð enn meiri- en ella þegar ég var þátttakandi í stórum fagnandi hóp sem magnaði upp ánægjuna og æðið. Blóðþyrstir aðdáendur? En hvað gerir knattspyrnuna svona sérstaka. Af hverju fara allar þessar þúsundir útá knattspyrnu- vellina til að hvetja liðið sitt til dáða? Af hveiju sitja milljónir manna fyrir framan tækin sín og horfa á leiki? Um þetta hafa verið skrifaðar margar og langar bækur og skýringarnar eru eins margar og mennirnir margir. Eftir slysið mikla í Brussel 1985 þegar nokkur hundruð ítalir biðu bana í slysi sem varð eftir áflog milli Liverpool-aðdáenda og Juv- entus-manna, skrifaði ítalski rit- höfundurinn Umberto Eco merki- lega grein. Hann taldi að áhorfend- ur fylgdust með íþróttakappleikjum af sömu ástæðu og Rómverjar hin- ir fornu horfðu á gladíatorana slást. Þeir vildu sjá blóð, spennu og bar- daga. Slysið í Brussel og leikurinn sem eftir fór voru því að áliti rithöf- undarins hin fullkomna skemmtun þar sem áhorfendur fengu bæði blóðið og dauðann og auk þess knattspyrnuleik. Hann var þó óþarfur að mati Ecos þar sem Morgunblaðið/Andrés Magnússon Hér kætast áhangendur Tottenham- liðsins enda þeirra menn komnir yfir. Fremst má sjá Berg Guðnason lögfræðing, en sonur hans, Guðni, hefur sem kunnugt er verið í herbúð- um Tottenham- manna á und- anförnum tilgangi hans var náð áður en hann hófst. Hlutverkaskipti á velli Frá sjónarhóli knattspyrnu- áhugamannsins hljóma svona hug- leiðingar eins og hálfgert nöldur en kannski hefur Umberto nokkuð til síns máls. Þjáningar og tár Gas- coigne þegar hann var borinn slas- aður af vellinum voru fjölmiðlum kærkomið mynd- og fréttaefni og juku mjög kynngimagnaða dramatík leiksins. Á knattspyrnuvellinum er líka hægt að fá útrás fyrir árásargirnd og reiði útí allt sem hrellir mann. Dómarinn verður að persónugerv- ingi valdsins sem alls staðar blasir við, hann verður fulltrúi lögregl- unnar, Gjaldheimtunnar, stöðu- mælavarðanna og margra annarra-.' Þegar ég æpi: „Drepum dómar- ann!“ er ég að hrópa niður allt vald sem misboðið hefur fólki á öllum tímum. Andstæðingaliðið er fulltrúi alls þess sem ég er andvíg- ur og liðið mitt er fulltrúi minn. Þegar ég æpti og öskraði þegar Tottenham skoraði var ég að fagna sjálfum mér og mér leið vel þegar þeir voru yfir í leiknum. Forest- og Coventry-menn voru fulltrúar alls hjns sem mér leiddist í lífínu. Þegar ég baulaði á þá var ég að baula á ýmsa einstaklinga úr eigin Iífi og þegar þeir skor- uðu var eins og einhver hefði gert mér persónulegan óleik. Þegar Coventry hafði sigrað í fyrri úrslitaleiknum og ég gekk hnípinn heim á leið undir fagn- aðaröskrum aðdáenda þeirra leið mér eins og ég hefði staðist þungt próf, gefíð út bók eða lok- ið maraþonhlaupi. Lífíð virtist bjartara og skemmtilegra en fyrr. Boltinn rúllar áfram Knattspyrnuáhugamenn eru fljótir að jafna sig og lífið heldur áfram og það er kostur knattspyrn- unnar að ný tækifæri gefast. Bolt- inn fer aftur að rúlla í næstu um- ferð og þá er vonandi hægt að ná fram hefndum. Það er nauðsynlegt að hafa leika og brauð fyrir lýðinn, sagði róm- verskur keisari einhvern tímann. Og ég vil hafa leika og brauð fyrir mig um ókomna framtíð. íþrótta- menn eiga að vera vel launaðir og fólk á að hætta að fjargviðrast út af íþróttum í sjónvarpinu. Þjóðfé- lagslegt gildi þeirra fyrir sálarheill áhugamannanna er meira en marg- ir gera sér grein fyrir. Lífíð fær annan tilgang og gildismatið breytist þegar vel gengur í íþróttum og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að vera áhorfandi á íþróttakeppni er að vera hluti af heild. Ég var ekki lengur einn, ég var þátttakandi í því sem var að gerast. Ég var ekki einangraður heldur lifandi manneskja í hópi annarra manna og mér leið vel. Höfundur er læknir í Reykja vík. FISKVINNSLUDEILDIN Sjávarútvegsdeildin Dalvík Við Sjávarútvegsdeildina á Dalvík er kennt til 1. og 2. stigs stýrimanna- prófs og til prófs fiskiðnaðarmanna. Umsóknarfrestur um skólavist er til 15. júní nk. Inntökuskilyrði til náms í stýrimannadeild eru skv. nýútgefinni og eldri reglugerðum um stýri- mannaskóla. Inntökuskilyrði til náms í fiskvinnsludeild eru skv. reglu- gerð um fiskiðnaðarnám. Ódýr heimavist og mötuneyti á staðnum. Upplýsingar í símum 96-61383, 96-61085, 96-61380 og 96-61162. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.