Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 16
ieei
Tí 0
i6~cr
.2 HUí
UOHOM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1991
ísland
komast
Eitrið, SIátrið, Kórdrengirnir, Skotsveinarnir,
Þruman og Eiki Hauks á leiðinni til landsins
Quireboys og Poison, t.h.
eftir Andrés Magnússon.
Daginn fyrir 17. júní verða haldnir mögnuðustu tónleikar, sem hérlend-
is hafa verið haldnir frá árdögum. Reyndar hafa verið haldnir tónleik-
ar með fleiri hljómsveitum og á stærra svæði, en til stendur að sex
erlendar hljómsveitir troði upp auk einnar íslenskrar og það er eins-
dæmi. Á þessarri tónleikahátíð, sem haldin verður á Kaplakrikavelli
í Hafnarfirði, leika bandarísku sveitirnar Poison, Slaughter og Bullet-
boys, bresku sveitirnar Quireboys og Thunder, norska sveitin Artch
með Eirík Hauksson í broddi fylkingar og íslenska sveitin GCD,
hljómsveit Bubba Morthens og Rúnars Júlíussonar. Undanfarin ár
hefur það færst mjög í vöxt, að erlendar hljómsveitir komi hingað til
tónleikahalds, en áður voru var slíkt fátítt, að undanskildu
framtaki Listahátíðar Reylqavíkur á tveggja ára fresti.
Hvað er að breytast, sem gerir það að verkuin að ísland
er að komast á kortið hjá helstu rokkurum heimsins?
|eimsfrægar jokkhljómsveitir hafa rekist
hingað til íslands öðru hveiju og jafn-
an taka tónlistarþyrstir og gestrisnir
íslendjngar þeim með kostum og kynj-
um. Á meðan bítlið var og hét ærðu
Swinging Blue Jeans og Kinks íslensk-
an æskulýð og á eftir sigldu Badfinger og
Man. Eftir að menn fóru að safna hári af al-
vöru komu Led Zeppelin og Deep Purple hing-
að. Svo kom ekki múkk fyrr en Stranglers
birtust og annar hver vinur greinarhöfundar
stofnaði hljómsveit í kjölfarið. Næstir voru
Clash en svo dofnaði aftur yfir mönnum, nema
menn nenni að nefna til sögunnar minni spá-
menn á borð við Human League og Smokie.
En Eyjólfur hresstist og hingað komu A-Ha
og Europe og Meat Loaf og Kiss. Reyndar
kom Statús Quo líka en þeir voru svo að segja
einir á tónleikunum. Hið sama má segja um
Cock Robin, svo ekki var einhlítt að tækist
i kortii
H