Morgunblaðið - 16.06.1991, Blaðsíða 14
51 D
14—e-
íG(íi: ,9i JiUOAQUVíHrJ8 CH(iAJ.HVl'JOJIOM
' MÖHGUNBLADrÐ SUNNUDA'GUR' 167 JtJNI T9ST
HÁTÍÐ
ítilefni þjóðhátíðardagsins verð-
um við með glæsilegt kaffihlað-
borð á morgun frá kl. 14.30
Verið velkomin.
FLUGLEIDIR
iIMí lííflOTi
Reykjavíkurflugvelli, sími 22322.
p
jjj Meim en þú geturímyndað þér!
BjörgR. Einarsdóttir,
Hafnarfirði — Minning
Fædd 1. mars 1934
Dáin 12. júní 1991
Góð vinkona okkar, Björg Ragn-
hildur Einarsdóttir, Víðivangi 5,
Hafnarfírði, er fallin frá eftir stutt
en erfið veikindi og okkur setur
hljóðar.
Hún andaðist að morgni miðviku-
dagsins 12. þ.m. Foreldrar hennar
voru hjónin Sigríður Jónsdóttir og
Einar Björn Davíðsson er bjuggu á
Klaustursseli í Jökuldal, en þau eru
bæði látin. Sigríður og Einar eign-
uðust 7 börn og eru nú 2 látin,
Davíð og nú Björg sem ávallt var
kölluð Bogga í okkar hópi.
Bogga giftist Óskari Helgasyni
sjómanni í júní 1958, en hann lést
af slysförum 1974 langt um aldur
fram. Bogga og Óskar eignuðust 3
börn, sem eru Einar Helgi, fæddur
1959, giftur bandarískri konu og
búa þau í Bandaríkjunum; Kristín
Sigríður, fædd 1960, í sambúð og
á 2 böm, og yngstur er Björgvin
Þór, fæddur 1963, en hann bjó hjá
móður sinni, hann á eitt barn.
Veikindum sínum tók Bogga með
þeirri trú að henni myndi batna
fljótlega, því það væri svo ótal
margt sem hún ætti eftir að gera,
en enginn breytir vilja skapara okk-
ar og eitt er víst að dauðinn býr
með okkur öllum stundum en samt
kemur hann okkur sífellt á óvart.
Margar minningar koma upp í
hugann þegar sest er niður og hugs-
að aftur í tímann. Við kynntumst
Boggu þegar við vorum allar ungar
stúlkur, þar var hún fyrirliði í okk-
ar hópi og hrókur alis fagnaðar,
alltaf gat Bogga komið okkur til
að hlæja með sínu góða skapi. En
eins og gengur í lífinu breyttust
tímar, fólkið fullorðnaðist, giftist,
og fór sitt í hvora áttina en alltaf
héldust vináttuböndin við Boggu.
Við viljum með þessum fátæk-
legu línum kveðja vinkonu okkar
og biðjum Guð að gefa börnum,
barnabörnum, tengdabörnum og
systkinum styrk og blessa heim-
komu hennar. Friður Guðs fylgi
henni í nýju lífi.
Björg verður jarðsett í Víðistaða-
kirkju þriðjudaginn 18. júní.
Lulla og Helga Lára.
Látin er vinkona okkar Bogga,
eins og við kölluðum hana alltaf,
og viljum við minnast hennar með
örfáum orðum.
Fyrir fjórum árum bjó Bogga hjá
okkur í svolítinn tíma og fengum
við þá að kynnast henni mjög vel.
Viðmót hennar til okkar var í alla
staði gott og varð hún fljótt eins
og ein af fjölskyldunni.
Við minnumst þess hvað Boggu
fannst gaman að rokkstjörnunni
Elvis Presley og var það ósjaldan
sem við heyrðum hana taka lagið
þegar lög hans hljómuðu í útvarp-
inu. Einnig fengum við að heyra
minningar hennar í kringum hvert
einasta lag og fengu lögin nýja
merkingu hjá okkur fýrir vikið.
Gaman var að Boggu þegar hún
hélt okkur selskap fram eftir kvöldi
með því að spila yatzy, en það var
okkar uppáhaldsspil.
Stórt atriði í lífi Boggu voru
ömmubörn hennar, Óskar, Anita og
Ásta Björg, og vildi hún þeim allt
hið besta.
Ótrúlegt er að Bogga skuli vera
dáin, því fýrir tveimur mánuðum
heimsóttum við hana á fermingar-
dag yngstu systur okkar, Evu, og
var hún þá frekar hress og ánægð.
Boggu fannst sérstaklega gaman
að sjá Evu uppálædda, því hana
langaði til að taka þátt í þessum
degi með okkur.
Þó það sé sárt að missa góðan
vin, þá vitum við að nú er Bogga
í góðum höndum. Sár er söknuður
barna hennar, Einars, Kiddýar og
Björgvins, og vottum við þeim sam-
úð okkar.
Systurnar á Mávahrauni 11
Macintosh Classic
„Síðan ég fékk mér Macintosh Classic-tölvu hef
ég getað nýtt mér þetta sjálfsagða heimilistæki til
að geta unnið heima ef ég vil. Maður er nefni-
lega oft frjórri heima en á vinnustaðnum.
Konan mín notar Macintosh-tölvuna við ýmis
verkefni, s.s. ritvinnslu, bókhald o.fl. auk þess
sem tölvukunnáttan kom henni að góðum notum
þegar hún fór aftur út á vinnumarkaðinn.
Svo nýtist tölvan einnig vel íyrir börnin. Mun
algengara er nú að skólaverkefni og ritgerðir séu
unnar á tölvu og einkunnir barnanna em nú
hærri en áður.“
Verð á Macintosh Classic-tölvu er aðeins
89.900,- kr. eða 85.405,- kr. stgr.
Hún fæst einng með Munaláni og þá em til
dæmis greidd 25% við afhendingu: 22.475,- kr. og
3.025 kr. á mánuði í 30 mán.
Skipholti 21, Rvk. • Sími 91-624800