Morgunblaðið - 16.06.1991, Qupperneq 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNI 1991
®
N O V E L L
NetWare
Kaupið uppfærslu fyrir 15. {úlí og SPARIÐ16 - 26%!
Skv. samningi Novell og Microtölvunnar er í gildi sérstakur afsláttur á
uppfærslum á Novell nethugbúnaði til 15. júlí næstkomandi. Eftir 15.
júlí fellur þessi sérstaki afsláttur niður sem þýðir að greiða þarf 16-26%
hærra verð fyrir uppfærslurnar eftir því hvaða uppfærsla á í hlut. Notið
tækifærið og uppfærið hugbúnaðinn á þægilegum tíma og fyrir lægra
verð!
Haukur Nikulásson veitir allar frekari upplýsingar um verð á Novell
hugbúnaði.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI FYRIR NOVELL
MICROTÖLVAN
Suöurlandsbraut 12 - Sfmi 688944
Ingigerður Eggerts-
dóttír - Minning
Fífedd 7. desember 1902
Dáin 8. júní 1991
Dauði. Hve þungt er að hugsa um þig, þeim
er lifir í sínum reit í ró, þeim er unir í friði
við allsnægtir og hefur enn nógan þrótt til
að njóta lifsins. Ó dauði! Hversu kært er
kall þitt þeim, sem á bágt og brestur þrótt,
þeim sem stirður er fótur og fellur, þeim
er örvæntir og finnst fokið í skjólin."
(Síraksbók, kap. 41.)
Ingigerður Eggertsdóttir lést á
dvalarheimilinu Sólvangi í Hafnar-
firði eftir langa og stranga baráttu
við sjúkleika og elli. Hún fæddist í
Miðgörðum í Kolbeinsstaðarhreppi,
þar sem foreldrar hennar, Eggert
Eggertsson og Elínborg Magnús-
dóttir, bjuggu. Árið 1922 fluttist
Ingigerður til Reykjavíkur, eftir að
hafa átt heima í Borgarnesi um
ellefu ára skeið. Fimm árum síðar
giftist hún Einari Guðjónssyni,
járnsmíðameistara frá Hvammi
undir Eyjafjöllum, sem um árabil
rak vélsmiðjuna Bjarg hér í borg.
Lengst af bjuggu þau á Egilsgötu
16 og var heimili þeirra annálað
fyrir gestrisni og snyrtimennsku.
Þau hjón eignuðust þijú börn, Guð-
borgu, Þuríði og Sigurberg, mikið
mannkosta fólk.
Að leiðarlokum ber margt að
þakka, þó fátæklega sé gert að
þessu sinni. Frá sjö ára aldri var
ég tíður gestur á heimili þeirra, þar
eð sonur þeirra var besti skólavinur
minn, og síðar kvæntist ég yngri
dóttur þeirra. Margþætt skuid mín
við þessi góðu hjón verður seint
greidd.
Að lokum vil ég, fyrir hönd íjöl-
skyldunnar, færa starfsfólki Sól-
vangs alúðarþakkir fyrir frábæra
umönnun, þá tíu mánuði sem Ingi-
gerður dvaldi þar. Megi hún hvíla
í friði.
Tengdasonur
Þessi örfáu orð eru til að þakka
konunni í næsta húsi fyrir liðin ár.
Þau ár urðu mörg, hátt á fjórða
tug, og allan þann tíma var góður
grannskapur milli heimila okkar,
ekki náinn að vísu, en einkar við-
felldinn.
Þar að áttu hjónin Ingigerður
Eggertsdóttir og Einar Guðjónsson
óskiptan hlut, og raunar börn þeirra
einnig, meðan þau voru heima, en
langt er orðið síðan þau stofnuðu
eigið heimili annars staðar. Þægi-
legt gat stundum verið að hafa
völundinn Einar (sem oft var kennd-
ur við fyrirtæki sitt, vélsmiðjuna
Bjarg) hið næsta sér, gengi eitt-
hvert áhald úr axlarliðum. Og ekki
var hann frekur á ómakslaunin.
Fyrir allnokkru fór heilsu hans að
hraka, og hefur hann verið ófær til
gangs síðustu árin. Ingigerður átti
þá einnig orðið erfitt um vik sakir
þróttleysis, og því fór svo, að þau
hjónin vistuðust bæði á Solvangi í
Hafnarfirði, hún fyrir u.þ.b. ári, en
hann nokkru fyrr.
Skömmu áður en Ingigerður
fluttist burt úr húsi sínu bar að
höndum andlát konu minnar, svo
að þær húsmæðurnar hér í sam-
stæðunni Egilsgötu 14-16 hurfu
brott um líkt leyti. Fyrir fáeinum
vikum sýndi Ingigerður mér þá vin-
semd að hringja til mín frá Sól-
vangi og minnast konu minnar á
hinni fyrstu ártíð. Því fremur ber
mér nú að minnast með þakklæti
þessarar vingjarnlegu grannkonu
Léttmjólkin er fitusnauð mjólkurafurð og ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini, fosfóri og