Morgunblaðið - 16.06.1991, Qupperneq 19
'iTMI 3 .
*#twTi œm
UNNUDAGUR 16. JUNI 1991
C 19
HEIMIR
FOLK
i fjölmiÖlum
■ HEIMIR Már Pétursson,
sem lét af störfum sem umsjónar-
maður fréttablaðsins Norðurlands
um mánaðamótin maí-júní hefur
verið ráðinn
fréttamaður til
Stöðvar 2 og
Bylgjunnar.
Heimir segist
hafa lokið
verkefnum sín-
um fyrir norð-
an og lítist vel
á að takast á
við ljósvaka-
ljölmiðlun.
„Hér eru nýliðum engin grið gef-
in. Manni er hent beint út í hringið-
una og það á vel við mig,“ segir
Heimir Már í samtali við Morgun-
blaðið. Heimir, sem á sér feril í blað-
amennsku á Þjóðviljanum og
Norðurlandi kveðst sjá ýmsa mögu-
leika í útvarpi og sjónvarpi sem
hann hlakki til að fást við. „Ég hef
verið á leið í framhaldsnám í 2-3
ár, en það getur orðið bið á því.
Þó þetta hafí upprunalega verið
hugsað sem sumarstarf er aldrei
að vita hvað framtíðin ber í skauti
sér.“
■ EITT af megin viðf angsefnum
Alþjóða blaðamannasambands-
ins, IFJ, um þessar mundir er upp-
stokkun í Austur-Evrópu og að-
stoð við uppbyggingu fag- og stétt-
arfélaga í hinum nýfrjálsu löndum.
Annað höfuðverkefni IFJ er að sam-
ræma viðbrögð til að treysta sam-
vinnu og samstöðu stéttarfélaga
blaðamanna gegn virðingarleysi
fjölmiðlakónga nútímans fyrir
kjara- og vinnuréttarmálum. Rík
áhersla er lögð á stóraukna sam-
vinnu evrópskra blaðamanna til að
reyna að hafa sem mest áhrif á þær
breytingar sem nú eiga sér stað
varðandi stöðu fjölmiðlunar í álf-
unni.
Þetta kom m.a. fram á aðalfundi BÍ.
Murdoch
selur
tímarit
FYRIRTÆKI Rupert Murdoch,
News Corporation, hefur selt
hluta af tímaritaútgáfu sinni í
Bandaríkjunum fyrir 650 miHjón-
ir dollara og á í viðræðum við
aðila um sölu á fleiri einingum
úr starfseminni. News Corp. var
í miklilli útþenslu á síðasta ára-
tug og keypti fjölmiðlafyrirtæki
á öllum sviðum um allan heim
og er gífurlega skuldsett. Fyrr á
árinu var fyrirtækið nánast að
komast í greiðsluþrot og varð að
ganga til samninga við helstu
lánadrottna um fjárhagslega
skipulagningu, og er salan nú
hluti af því samkomulagi.
Tímaritin sem hér um ræðir eru
Racing Form, Soap Opera
Weekly, Soap Opera Digest, New
Woman og Seventeen, en síðast-
nefnda tímaritið mun eitthvað
þekkjast hér á landi. Kaupandinn
er K-lll sem er útgáfuarmur fjár-
festingafyrirtækisins Kohlberg
Kravis Roberts, sem hefur komið
mjög við sögu í þeirri yfirtöku-
bylgju sem gekk yfír bandarískt
viðskiptalíf undir lok síðasta ára-
tugar. Með þessum kaupum er K-
111 orðið í hópi öflugustu útgáfu-
fyrirtækja vestan hafs og mun til-
koma nýju tímaritanna auka tekjur
þess út um 500 milljónum dollara
á ári í um 800 milljónir.
Maxwell selur 49%
hlutabréfa í Mirror
MÁTTARSTÓLPAR stórveldis breska fjölmiðlakóngsins Roberts
Maxwells hafa verið þrír: útgáfufyrirtækið Pergamon, fjölmiðlunar-
fyrirtæki sem við hann er kennt og nefnist Maxwell Communicati-
ons (MCC) og Mirror-blaðasamsteypan. Á undanförnum mánuðum
hefur verið skammt stórra högga á milli hjá fjölmiðlakónginum.
Imars seldi Maxwell Pergamon-
útgáfuna hollensku fyrirtæki,
Elsevier, fyrir 440 milljónir punda'.
Síðan hefur hann tilkynnt að hann
muni hverfa úr stjórn MCC í sum-
ar. Mest kemur á óvart að hann
hefur ákveðið að bjóða 45-49%
hlutabréfa í Mirror-samsteypunni
til sölu.
Maxwell ætlar eki að setjast í
helgan stein, þó að hann sé orðinn
67 ára gamall. Þótt hann hætti í
stjórn MCC verður hann eftir sem
áður aðalhluthafi fyrirtækisins og
sonur hans, Kevin, tekur við sæti
hans í stjórninni. Annar sonur hans,
Ian, verður staðgengill hans í Mirr-
or-blaðasamsteypunni.
Þegar Financial Times spurði
Maxwell hvers vegna hann hefði
ákveðið að halda áfram að eiga
meirihluta hlutabréfa í Mirror-sam-
steypunni sagði hapn: „Ég tek ekki
þátt í fyrirtæki, sem ég eða fjöl-
skylda mín eigum minna en 51 pró-
sent í. Ég lét mér Pergamon að
kenningu verða (þar missfi hann
meirihluta um tíma).“
Þrátt fyrir ýmÞ8—is afrek er
Maxwell skuldum vafinn. Ástæðan
er fyrst og fremst sú að MCC keypti
Macmillan-forlagið í Bandaríkjun-
um fyrir einn og háifan milljarð
punda 1988. Seint á síðasta ári
þurfti MCC að greiða 210 milljóna
punda afborgun af skammtímaláni
og Mirror-samsteypan kom til
bjargar, en lenti sjálf í skuldum
vegna kaupa á eignum frá MCC.
Þess vegna var ákveðið að selja
hlutabréf í Mirror-fyrirtækinu og
af hagnaðinum verður 210 milljón-
um punda varið til gi-eiðslu á lánum.
Maxwell vonar að sala Mirror-
hlutabréfanna ásamt sölunni á
Pergamon-forlaginu muni duga til
að koma fjármálunum á réttan kjöl.
Af einhveijum ástæðum hafa hluta-
bréf í aðalfyrirtæki hans, MCC,
hækkað í verði að undanförnu, en
verðgildi þeirra hefur rýrnað um
helming síðan 1984. Mirror-blaða-
samsteypan stendur sæmilega að
vígi, þótt fjárfestendur geti varla
gert sér vonir um skjótfenginn
gróða. Auk þess er talið líklegt að
Maxwell takist að bjarga New
York-blaðinu DailyNews, sem hann
keypti nýlega.
Þrátt fyrir ýmis afrek segir Fin-
ancial Times að Maxwell sé ekki
fyllilega treyst í bresku viðskiptalífi
og telur ástæðuna „mjög flókinn
persónuleika hans: pukur, lævísi og
hátterni, sem sé ekki í samræmi
við viðteknar venjur.“ Synir hans
séu af öðru sauðahúsi og því geti
svo farið að stórveldi Maxwells
verði hluti af breska valdakerfinu
þegar fram í sæki. Mikill sjónar-
sviptir verði að Maxwell þegar hann
hverfi úr heimi viðskiptanna.
HUMAIÆA YFIRRml
HAMMERITE er ryðbindandi lakk, sem
bindur fast og þurrt ryð og stöðvar
ryðmyndun. Það er sjálfgrunnandi
og fljótþornandi háglanslakk, borið á
án undanfarandi grunnmálunar.
HAMMERITE hefur mjög háan
yfirborðsstyrk, þ.e. höggþol, skrapþol,
hitaþol og veðrunarþol. Ýtarlegri upp-
lýsingar fást hjá söluaðilum og í bækl-
ingnum „Beint á ryðið“og einblöðungnum
„Nú má lakka yfir ryðið“ sem eru fáanlegir
hjá þeim.
HAMMERITE FÆST í MÁLNINGAR-
OG BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
HAMMERITE lakkið fæst
í fjölda lita. Skoðaðu litakort
hjá söluaðila.