Morgunblaðið - 16.06.1991, Qupperneq 20
Konungar hippanna Grat-
eful Dead í árdaga.
ERKI-
HIPPAR
GRATEFUL Dead spratt
úr hassvímuhugsjón hip-
panna um betri heim. Sú
hugsjón hefur vikið fyrir
öðrum, en erkihipparnir í
Grateful Dead eru enn að.
Fyrir skemmstu var nafn
1 sveitarinnar lagt við átak
til að bjarga regnskógun-
um og um leið mannkyn-
inu þegar gefin var út
breiðskífa með nokkrum
lögum sveitarinnar, í
flutningi annarra.
Grateful Dead hefur aldr-
ei verið mjög í tísku,
en komið hefur frá sveitinni
grúi laga sem náð hefur
hylli, ef ekki almennings, þá
annarra tónlistarmanna.
Tónlistarmennirnir sem
lög eiga á regnskógaplöt-
unni, Deadicated, eru úr
ýmsum áttum, og völdu allir
lögin sjálfir. Meðal flytjenda
eru Los Lobos, Suzanne
Vega, Elvis Costello, Dwight
Yoakham, Cowboy Junkies,
Midnight Oil, Burning Spear
og Dr. John. Utsetningarnar
eru allt frá einmanalegu
gítarrauli í harða rokk-
keyrslu í rastafarireggí.
Deadicated verður
kannski til þess að vekja
verðskuldaða athygli á Grat-
eful Dead og safnar um leið
fé til skógverndar.
DÆGURTONLIST
Eru íslenskarplötur bara jólagjafir?
íslenskt
tónlistarsumar
ÁÐUR hefur komið hér fram að útgáfa á íslenskri
tónlist verði meiri á þessu ári en nokkru sinni. Fljótt
á litið verður gefið út á sjöunda tug platna á árinu,
ýmist glænýtt efni eða endurútgenð. Á morgun verð-
ur hrint úr vör átakinu íslenskt tónlistarsumar.
Að íslensku tónlistar-
sumri standa Samtök
hljómplötuframleiðenda,
Félag tónskálda og texta-
höfunda, Samband tón-
mmmmmmmmm skálda og
eigenda
flutnings-
réttar og
Félag ís-
lenskra
hljómlist-
aimanna.
eftir Ama Aðstand-
Motthíosson endur
átaksins segja það m.a.
beinast að því að snúa við
þróun undanfarinna ára að
ekki séu gefnar út nema
fimm til sex plötur fyrri
hluta árs og síðan 30 til
40 síðustu tvo mánuði fyrir
jól. Á næstu vikum, en
átakið stendur til 17. ág-
úst, koma út tuttugu breið-
skífur með innlendri tón-
list, ýmist nýrri eða end-
urútgefinni. Á þeim breið-
skífum verða um 275 ís-
lensk lög, þar af tæpur
helmingur að heyrast í
fyrsta sinn, og alls verða
þetta 15 klukkustundir af
tónlist.
Sumarið er helsti tónlei-
katími ársins hér á landi,
enda á sjöunda tug sveify
sem þeytist um landið endi-
langt við tónleikahald og
ballspilamennsku og því
nokkuð í húfi að hægt verði
að koma útgáfunni á skyn-
samlegan grunn. Ef tekst
að færa a.m.k. þriðjung
Balivertið Sálin.
sumarslaginn
Bubbi, Rúnar og félagar.
útgáfunnar á ís-
lenskum plötum á
fyrri hluta ársins
á það eftir
breyta miklu um
þróun íslenskrar
tónlistar. Meðal-
kostnaðurviðútg-
áfu á plötu hér-
lendis hefur
hækkað til muna
undanfarin ár og
herma tölur að
það kosti á
fimmtu milljón
króna að gefa út
meðalplötu, sem
þarf þá að seljast
í tæpum fimm
þúsund eintökum til að
borga sig. Áhættan er því
mikil og skiljanlegt að
menn freistist til að gefa
fleiri eintökum. :
Virðisaukaskattur
á fslenskar hljómplöt-
ur hefur verið mönn-
um þyrnir i augum,
enda erfitt að
rökstyðja að bækur á
ísiensku séu . vask-
lausar en íslenskar
plötur ekki. Átakinu
er einnig ætlað að
þrýsta enn frekar á
að vaskurinn verðí
felldur niður af ís-
lenskum piötum, sem
allar líkur em á að
verði í haust.
Við þetta má svo
hjósmynd/Björg Sveinsdðttir bæta að í tilefni
plöturnar frekar út á jóla- átaksins er stefnt að því
markað, því þá seljast þær að helmingur tónlistar á
plötur sem á annað borð Rás 2 verði íslenskur.
seljast í tvöfalt til þrefalt
FORHERT
DANSFÍFL
SEGJA má að Todmobile hafi verið
í hljóðveri meira eða minna síðustu 3
ár, enda sent frá sér tvær breiðskíf-
ur, nokkur safnplötulög og sett enska
texta á flest það sem sveitin hefur
tekið upp fyrir íslenskan markað. Enn
er Todmobile í hljóðveri, enda sendir
sveitin frá sér tvö lög á væntanlegum
Bandalögum 4, og tvær breiðskífur á
árinu, aðra á ensku sem gefin verður
út í Skandinavíu.
Líkt og síðasta ár eru safnplötulögin
ekki dæmigerð fyrir það sem T'odmo-
bile er að fást við um þessar mundir. Að
sögn þeirra Þorvaldar Þorvaldssonar, sem
leggur áherslu á að Tödmobile sé ekki
danshljómsveit, og Eyþórs Arnalds verða
safnplötulögin forhert danstónlist þar sem
notaðir eru hljóðsmalar og viðlíka tól.
„Fólk hefur iðulega haldið því franm að
við notum tölvur mikið og því tími til
kominn að reyna slíkt. Við byggðum takt-
grunn á bútum úr ýmsum áttum, fórum
i plötusafnið með hljóðsmala og bútuðum
allskyns hljóð,“ segir Þorvaldur. „Allt
nema James Brown,“ skýtur Eyþór inn í.
Til viðbótar er sveitin að taka upp enska
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Hljóðsmalaveisla Eyþór og Þoivaldur
hlusta af einbeifni.
texta fyrir plötu sem gefin verður út í
haust. Sú útgáfa verður samhliða ís-
lenskri plötu, enda leggur Todmobile
hcfuðáherslu á íslandsmarkað. „Það tekur
allt svo langan tima ytra og við viljum
halda áfram hér á meðan það er meðbyr.
Við erum enn að vinna á.“
HAMSLAUS PIRRINGUR
í NÝLIÐNUM Músíktilraunum vakti mikla athygli
laugvetnska sveitin Sagtmóðigur fyrir líflega sviðs-
framkomu og hamslausa túlkun. Fæstir áttu von á
öðru en þungarokki eða froðupoppi og Sagtmóðigur
var því sem ferskur andblær sem lyfti brúnum á við-
stöddum.
Sagtmóðigur er hugar-
fóstur nema við
Menntaskólann á Laugar-
vatni og í spjalli sögðu þeir
að allt hefði þetta hafist
með blaðinu Loksýru, sem
þeir settu af stað til að fá
útrás fyrir sköpunargleði.
„Meðalformúlan fór í taug-
arnar á okkur og við mynd-
uðum einskonar ómenning-
arklíku. í blaðinu birtum
við meðal annars ljóð og
ámóta, en tónlist var alltaf
snar þáttur og mótaði blað-
ið að miklu leyti. Við hlu-
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sagtmóðigur Uppreisn gegn popp/sveitaballaþvælunni.
stuðum mikið á tónlist og
þá á Napalm Death, Roll-
ing Stones, Bob Dylan,
Rapeman og Manchester-
rokkið, en íslenskar hljóm-
sveitir eins og Bless og
sérlega Ham voru ekki
minni þáttur. Eftir tvö blöð
ákváðum við að stofna
hljómsveit, sem varð undir-
eins pönksveit með fölsk-
um og fínum gíturum,
melódískum bassa og villt-
um söng. Textarnir eru
allir sprottnir af pirring og
reiði, en að spila veitir okk-
ur gífurlega útrás. Tónlist-
in er líka uppreisn gegn
popp/sveitaballaþvælunni,
sem við vorum löngu búnir
að fá okkur fullsadda á.“
Sveitarmenn hyggjast
taka sér leyfi frá spiliríi í
sumar, en taka þráðinn upp
að nýju þegar haustar. Því
er svo við þetta að bæta
að Sagtmóðigur mun eiga
lag á væntanlegri Snarl-
spólu, þeirri þriðju í röðini,
þar sem verður þverskurð-
ur af því sem helst er að
gerast neðanjarðar hér á
landi.
MORGUNBLAÐIÐ
MEINIIMINGARSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 16. JUNI 1991
ARTCH ATVEIM-
URVIIMUM
NORSKA þungarokksveitin Artch treður í kvöld upp
á risatónleikunum í Kaplakrika. Sveitarmönnum þyk-
ir þó ekki nóg að gert og annað kvöld leikur Artch
I Tveimur vinum.
Líklega vita flestir að
Artch hefur innan-
borðs rokksöngvarann
góðkunna Eirík Hauksson,
en sveitin kom hingað til
lands fyrir tveimur árum
og lék þá á tvennum tón-
leikum í Hótel íslandi. Á
tónleikunum í Tveimur vin-
um leikur sveitin vísast lög
af nýútkominni breiðskífu
sinni, sem fengið hefur
ágætis dóma ytra. Til upp-
hitunar verður rokksveitin
Bleeding Volcano.
Artch Norsk/ísienskt speed-metal.
USALIN hans Jóns míns
er komin á stað í tónleika-
hark sumarsins og leikur um
land allt á næstu vikum og
mánuðum, en alls eru sveit-
armenn búnir að bóka sig í
spilamennsku fram í októ-
ber. Ekki er nóg með það,
því sveitin er nú stödd ytra
til tónleikahalds og hefur
þegar leikið í Noregi og
Danmörku. Þrátt fyrir það
verður Sálin hér á landi á
þjóðhátíðardaginn og leikur
í Miðbænum þá um kvöldið.
I næstu viku leikur sveitin
síðan í Edinborg í Keflavík
á föstudag og á Hótel Akra-
nesi á laugardag.