Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 2
2 FRETTBR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JUNI 1991 EFNI Morgu nblaðið/Bj ami Spáð íkortið Erlendir ferðamenn eru áberandi á götum höfuðborgarinnar á þessum tíma árs og oftar en ekki fjölmennari snemma morguns um helgar en landinn, sem sefur út eftir vinnuvikuna. Þessar konur voru að iýna í kort af höfuðborginni snemma í gærmorgun, en hvert för þeirra var heitið er ekki vitað. Vistun ósakhæfra afbrotamanna: Starfsemi á Sogni hefst þegar í haust VISTHEIMILI fjjir ósakhæfa afbrotamenn verður að ölluin líkind- um að Sogni í Ölfusi og er stefnt að því að hefja starfsemi I. september næstkomandi. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráð- herra segir að verið sé að leggja lokahönd á samningagerð um afnot Sogns í þessu skyni. Sighvatur sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að það hafi verið forgangsverkefni síðan hann kom í ráðuneytið að finna skjóta lausn þessa máls. „Við höfum verið að leita hrað- leið að einhverjum svona stað und- anfarnar vikur, vegna þess að þegar ég kem inn í þetta ráðu- neyti, þá er eitt af því fyrsta sem lendir uppi á mínu borði mál þriggja ósakhæfra afbrotamanna sem sitja inni í venjulegum fang- elsum og eru að veslast upp þar,“ sagði Sighvatur. Sogn er í eigu Náttúrulækn- ingafélagsins og hefur SÁÁ haft það á leigu. Sighvatur segir að náðst hafi samkomulag um að SÁÁ flytjist yfír í húsnæði Heilsu- hælisins í Hveragerði þar til sam- tökin hafa komið upp aðstöðu sinni til eftirmeðferðar í Saltvík. Ráðu- neytið tekur Sogn á leigu og er Flugleiðir krefjast herts eftirlits með leiguflugi FLUGLEIÐIR hafa krafist þess með bréfi til flugmálastjóra að eftirlit með framkvæmd reglugerðar um leiguflug verði hert, ella verði það eftirlit falið flugeftirlitsnefnd. Flugmálastjóri hefur hafnað kvörtun Flugleiða og segir í svari sínu að á ferli slnum hafi Flugmálastjóm aldrei verið sýnd önnur eins vanvirða af hálfu flugrekstraraðila og með bréfi Flugleiða, sem Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri mark- aðssviðs Flugleiða, ritar, en hann0hefur fyrir hönd félagsins ítrekað erindið. í bréfí Fiugleiða segir að í allt sumar hafi Flugferðir-Sólarflug og síðar aðrar ferðaskrifstofur gefíð augljóslega til kynna með auglýsing- um að við sölu á „alferðum“ til Lon- don, Kaupmannahafnar og fleiri staða sé brotið ákvæði reglugerðar um leiguflug frá 1985 og ættu aug- lýsingarnar að vera Flugmálastjórn nægt tilefni til aðgerða. Flugleiðir segja ferðaskrifstofurnar selja far- gjald með leiguflugi án gistingar eða bílaleigubíls en slíkt mun óheimilt samkvæmt reglugerðinni. í bréfí Flugleiða segir að í ljósi brotanna sé furðulegt að Flugferðum-Sólar- flugi hafí verið veitt leyfí til frekara leiguflugs til Kaupmannahafnar frá og með 28. júní. Flugmálastjóri segir í svari sínu að Flugleiðum beri að beina kvörtun- arefni sínu til Verðiagsráðs sem um brot á lögum um verðlag, samkeppn- ishömlur og óréttmæta viðskipta- hætti væri að ræða. í ítrekunarbréfí Flugleiða er því vísað á bug. Þá segir í bréfi Flugleiða að allan maímánuð hafi leiguflug Atlants- flugs hf. verið framkvæmt með er- lendum leiguflugvélum þrátt fyrir að flugvélakostur væri til á íslandi til að sinna þessu flugi en í nágranna- löndunum tíðkist að flugmálastjómir gangi úr skugga um slíkt áður en veitt séu leyfí til flugs með erlendum flugvélum. í svari sínu segir flug- málastjóri að þessar fullyrðingar um starfsreglur erlendra flugmála- stjóma séu ekki réttar en íjtrekunar- bréfí Flugleiða er fullyrt að Flugleið- um hafi verið synjað um leyfí til leiguflugs frá Norðurlöndum og Spáni nema sannað sé að þarlendum flugvélum sé tii að dreifa. stefnt að lokafrágangi samninga á næstu dögum um að afnot fáist af Sogni 15. júlí og starfsemi heimilisins geti hafist 1. september að afloknum nauðsynlegum breyt- ingum. Sighvatur sagði. þetta vera ákjósanlega lausn, þar sem starf- semi gæti hafist svo fljótt. Ríkisspítalar hafa tekið að sér rekstrarhliðina og þarf því ekki að ráða sérstakan forstjóra eða skrifstofulið, að sögn Sighvats. Brids: íslenskt lið á Norður- landamót Landslið íslands í brids, skipað spilurum 25 ára og yngri, tekur þátt í Norður- iandamóti sem hefst í Jyva- skyla í Finnlandi á mánudag. Lið frá Danmörku, Finn- landi, Noregi og Svíþjóð taka þátt í mótinu auk íslendinga. Norðurlandamót í þessum ald- ursflokki eru haldin annað hvert ár. íslenska liðið er skipað þeim Hrannari Erlingssyni, Matt- híasi Þorvaldssyni, Sveini R. Eiríkssyni og Steingrími G. Péturssyni. Fyrirliði og farar- stjóri er Guðmundur Sv. Her- mannsson. Enginn prestur sækir um ísafjörð eða Patreksfjörð Umsóknarfrestur um fjögur prestaköll sem hafa losnað, rann út 20. júní síðastliðinn. Aðeins var sótt um tvö prestaköll og sótti einn um hvort. Enginn sótti um Isafjarðarprestakall, sem auglýst var laust til umsóknar, og heldur ekki um Patreksfjörð. Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu sótti séra Bjami Karlsson, aðstoðarprestur í Laug- arnesprestakalli í Reykjavík, um Vestmannaeyjar og sr. Pétur Þór- arinsson, fyrrverandi sóknarprest- ur í Glerárprestakalli, um Laufás- prestakall. Sóknamefndir þessara prestakalla munu koma saman á næstunni með viðkomandi prófasti og taka afstöðu til umsóknanna. Enginn sótti hins vegar um Pat- reksijörð og ísafjörð. Sigmundur Guðbjarnason rektor HI á Háskólahátíð: Starfshættir EB líkir þeim sem hömluðu framförum í austri „EVRÓPUBANDALAGIÐ myndar annars vegar stóran og freist- andi markað, en hins vegar einkennist það af vaxandi miðstýr- ingu, stórfelldum niðurgreiðslum og víðtæku styrkjakerfi. Þessir starfshættir virðast furðu líkir þeim sem hömluðu gegn framför- um í austri og margir telja nú að hafi skapað mestan vanda í íslensku efnahagslífi.“ Þetta sagði Sigmundur Guðbjarnason há- skólarektor í ræðu sinni á Háskólahátíð í gær. Hann gerði meðal annars að umtalsefni þróun þjóðfélagsins í átt frá lýðræði og hvatti kandidata til að vera virkir þátttakendur í ákvörðunum um eigin örlög. „Virðið lýðræðið og gerið það virkt,“ sagði hann. Háskólarektor sagði stjómar- hætti hér á landi virðast þróast á þá lund, að valdið safnaðist á sífellt færri hendur. Þessi vantrú á lýðræðinu hefði komið vel fram í umræðum fyrir alþingiskosning- arnar í vor, hvað skýrast þegar rætt hefði verið um fiskveiðistefn- una og landsbyggðina, byggða- kvóta og ráðstöfun á honum ef til kæmi. Rektor ræddi um þróun Austur-Evrópu. Þegar hún væri loks að kasta af sér fjötyum mið- stýringar væri í Vestur-Evrópu myndað annað ríkjabandalag „sem byggir upp nýjan draum miðstýringar og valdasamþjöpp- unar í Brussel“. Hann sagði þróunina í Vestur- Evrópu vissulega stefna í nýja heimsmynd, þar sem auðlindir og atvinnulíf færðust í siauknum mæli í fang fjölþjóðafyrirtækja og áhrifin í vaxandi mæli frá kjörnum fulltrúum til forstjóra stórfyrirtækjanna. Þá sagði rektor að íslendingar þyrftu eins og aðrar þjóðir að leita - bestu viðskiptakjara á hveijum tíma, en við mættum ekki láta þvinga okkur til samninga sem „veita aðeins stundarhag en háska þegar til lengri tíma er litið. Ekki megum við heldur láta ótta við einangrun villa okkur sýn því ís- lendingar hvorki vilja né geta ein- angrað sig í sífellt alþjóðlegri heimi.“ Sigmundur sagði Islendinga sækja nám til annarra landa í ríkari mæli en aðrar vestrænar þjóðir og þess vegna myndu þeir hvorki einangrast hér né innan takmarkaðra markaðssvæða, „þeir munu áfram leita tækifæra um allan heim,“ sagði háskóla- rektor. ► 1-44 Þjóðarbókhlaðan hef- urforgang ► Fyrirtveimur mánuðum tók 01- afur G. Einarsson við ráðherra- embætti menntamála, einu viða- mesta og flóknasta ráðuneytinu. Hér ræðir Elín Pálmadóttir blaða- maður við ráðherrann um hina margvíslegu málaflokka sem bíða úrlausnar/10 I Saddam City mun uppreisnin byrja ►Jóhanna Kristjónsdóttir blaða- maður var nýverið í Irak og heldur hér áfram greinaflokk sínum um ástandið í landinu. /16 Heimspekin er gagn- rýnið viðhorf til veru- leikans ►Rætt við Pál S. Ardal prófessor, sem í gær var skipaður heiðurs- doktor við Háskóla lslands /18 Sérfræðingur í við- skiptum á Kolaskaga ►Önnur grein Agústs Inga Jóns- sonar frá Norður-Noregi, en hér ræðir hann við Sverri Garðarsson starfsmann eina fyrirtækisins í Finnmörku, sem greiddi hluthöf- unum arð á síðasta ári /20 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► 1-28 Hvernig á að standa að viðhaldi húsa vegna steypu- skemmda ►Rætt við ýmsa aðila varðandi steypuskemmdir og aðgerðir til úrbóta/14 ► 1-32 Skín við sólu ►I Skagafírði má víða fínna blóm- lega byggð. Sauðárkrókur er „höf- uðborg" þeirra Skagfírðinga og þó Krókurinn teljist ekki stór á heimsmælikvarða, hefur heimaað- ilum tekist að sporna gegn byggðaröskun meðýmsum hætti./l Armstrong er enn á meðal vor ►Þó að tuttugu ár séu liðin frá dauða Louis Armstrong nýtur áhrifa hans enn og tónlist hans lifír góðu lífi./6 Fannst ég vera í betla- rastöðu ►Hlíf Svavarsdóttir, fyrrum list- dansstjóri Þjóðleikhússins, ræðir um málefni Islenska dansflokksins og Þjóðleikhússins í beinskeyttu og opinskáu viðtali við Súsönnu Svavarsdóttur blaðamann./lO Reytum ruglað saman ►Auðveldara var að stofna heim- ili hér áður fyrr enda kaupið þá hærra og kröfurnar minni. Sam- kvæmt lauslegri könnun kostar nú um hálfa milljón að kaupa nauð- synlegasta innbú og heimilistæki /14 Laxveiðimenn taka andköf ►Veiðihjólin eru nú farin að snú- ast í laxveiðiám landsins og hér fyallar Guðmundur Guðjónsson um stöðuna það sem af er sumri/16 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Útvarp/sjónvarp 40 Dagbók 8 Gárur 43 Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c Leiðari 22 Bjölmiðlar 18c Helgispjall 22 Kvikmyndir 20 Reykjavíkurbréf 22 Dægurtónlist 21 Myndasögur 26 Minningar 24c Brids 26 Bió/dans 26c Stjörnuspá 26 A fömum vegi 28c Skák 26 Velvakandi 28c Fólk í fréttum 38 Samsafnið 30c Karlar/Konur 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.