Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUK 3.Q. JÚNj 1991 21 Morgunblaðið/Svein Moe Vegna starfs síns hefur Sverrir verió með annan fótinn ó-Kola-skaga undanfarin ór. Myndin er frá námaborginni Nikkel þar sem mengun er gífurleg og gróður fær vart þrifist á stóru svæði í grenndinni. Börnin virð- ast þó kæra sig kollótt um það. þessum ferðalögum þarna austur fyrir. Fyrir tveimur árum reyndi heimamaður í Murmansk til dæmis að fá mig til að gefa sér upplýsing- ar um málefni sem komu starfi mínu nákvæmlega ekkert við. Þeg- ar ég kom heim hafði ég samband við utanríkisráðuneytið norska og sagði frá þessu. Síðan hef ég ekki orðið fyrir áreitni sem þessari. Hins vegar hefur norska leyniþjónustan alltaf reglulega samband við mig og spyr mig út úr. Það er svolítið sérstakt að þegar ég fer á fund í Murmansk, og hef jafnvel skipulagt að hitta aðeins einn mann í ferð- inni, virðast fleiri tugir manna vita um komu mína og erindi. Hvernig í ósköpunum stendur á þessu veit ég ekki!“ segir Sverrir. Að eyða peningum eða græða Sverrir hefur verið í rúmlega 10 ár í Noregi og segist ekki vera á leið heim til íslands. Hann uni vel hag sínum í Norður-Noregi og möguleikarnir í viðskiptunum við Sovétríkin séu ótæmandi. Eins og áður sagði starfaði Sverrir við ráð- gjafafyrirtæki í Vadsö áður en hann réðst til Barents-fyrirtækis- ins. Fyrirtækið í Vadsö var ráðgef- andi fyrir einkaaðila og opinberar stofnanir. Mörg fyrirtæki í Finn- mörku standa á brauðfótum og miklu opinberu fjármagni hefur verið dælt í rekstur þeirra til að treysta stoðir atvinnulífs í þessum dreifðu byggðum Noregs. Blaða- maður heyrði á máli manna í Kirke- ness að of mikið væri um að styrk- ir og framlög hins opinbera skiluðu sér ekki til fyrirtækjanna í fram- leiðslugreinunum heldur yrðu eftir í alls konar opinberum stofnunum og ráðgjafafyrirtækjum, sambæri- legu því sem Sverrir starfaði við í Vadsö. „Það er ábyggilega mikið til í þessu," segir Sverrir. „Það er allt of mikið um að kerfið srjálft og milliliðirnir hirði þessa opinberu aðstoð og svo þegar peningarnir koma inn í fyrirtæki í rekstri er þetta ekki orðið að neinu. Einnig verða fyrirtækin háð styrkjunum, hætta að betjast fyrir lífi sínu og hið nauðsynlega frumkvæði þeirra verður að engu. Það má kannski segja að hjá ráðgjafafyrirtækinu í Vadsö höfum við verið að fínna leiðir til að eyða peningum, en hér í Barentskompaníinu erum við að reyna að græða peninga." Aukin viðskipti á komandi árum í Finnmörku og víðar í Noregi fylgjast forystumenn í atvinnu- rekstri grannt með þróun mála í Sovétríkjunum með aukin viðskipti í huga. Sverrir Garðarsson segir að mikið sé um að Norðmenn fari yfír landanjærin og reyni að koma á viðskiptasamböndum. Þeir komi síðan heim og flaggi hróðugir vilja- yfirlýsingum framan í blaðamenn. Fái jafnvel opinbera styrki vegna slíkra pappíra, sem síðan reynist einskis virði. Viðskipti þjóðanna séu nú þegar veruleg og muni aukast enn á kom- andi árum. Menn þurfi þó að fara að settum reglum og það taki tíma að koma á traustum viðskiptum. Reynsla Sverris í þessum við- skiptum og árangur samstarfs- manna hans hefur vakið athygli og nú hefur Sverri boðist starf við verslunar- og útflutningsmiðstöð, sem sett verður á laggirnar í Kirke- nes í haust. Sverrir mun nú í sum- ar starfa að undirbúningi stofnunar þessa fyrirtækis. Ráðgert er að fimm manns starfi hjá fyrirtækinu, sem verður í eigu ríkis, sveitarfé- laga og einkaáðila. Verkefnin verða bæði að gera samninga við fyrir- tæki á Kola-skaganum og að veita norskum fyrirtækjum „fyrstu hjálp“ í viðskiptum austur fyrir landamærin. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Gestirnir ásamt nemendum 8. og 9. bekkjar grunnskólans á Bíldudal og skólastjóranum, Nönnu Sjöfn Pétursdóttur. Grunnskólanemar frá Kulu- suk í heimsókn í Bíldudal Bíldudal. FJÓRIR nemendur úr 9. bekk grunnskólans í Kulusuk á Grænlandi komu í heimsókn til Bíldudals 23. mai ásamt einum kennara. Heimsóknin stóð yfir í þqá daga. Vinabæjasamband var stofnað á síðasta ári á milli Bíldudals og Kulusuk, og er þetta í annað sinn sem nemend- ur frá Kulusuk koma í heim- sókn. Það var Helgi Jónsson hjá Odin Air sem bauð Grænlendingunum til íslands. Byijað var á að sýna þeim Gullfoss og Geysi, síðan var ekið til Stykkishólms þar sém farið var með feijunni Baldri yfir Breiða- fjörð. Á Bijánslæk tók skólastjóri grunnskólans á Bíldudal, Nanna Sjöfn Pétursdóttir, á móti gestun- um. Um kvöldið var haldið diskótek í skólanum. Á laugardeginum var gestunum boðið til hádegisverðar, ásamt 9. bekk grunnskólans á Bíldudal. Að því loknu fengu gestirnir að taka þátt í Landsbankahlaupinu. Síðdegis var farið með þá inn að Fossi þar sem húsfreyjan, Esther Gísladóttir, tók á móti þeim í kaffí. Sveitin var síðan skoðuð og farið var á hestbak. Að því loknu var boðið til kvöldverðar hjá hrepp- stjóranum, Guðmundi Sævari Guð- jónssyni. Um kvöldið var síðan haldið diskótek í félagsheimilinu. Á sunnudeginum Iauk heimsókn- inni, sem var mjög skemmtileg, grunnskólans á Bíldudal í skóla- bæði fyrir gestina og heimamenn. ferðalag til Kulusuk, en þar búa Þess má geta í lokin, að á síðasta um 400 manns. ári fóru nemendur 9. bekkjar R. Schmidt Gamlir bílar í kvikmynd Óskum eftir að leigja eðá fá að láni eftirfarandi gerðir bifreiða til notkunar í kvikmynd, sem tekin verður upp í kringum Sel- foss nokkra daga fyrri hluta ágúst mánaðar. A. Fína drossíu, helst Dodge eða Ford, af árgerð fyrir eða um 1954. B. Tollstjórabíl - virðulegan sendiferðabíl, eða stationdrossíu árgerð fyrir eða um 1954. C. Vörubíl með palli (trukk) árgerð fyrir eða um 1954. Gamlir hlutir Óskum eftir að kaupa, leigja, lána eða fá gefins eftirfarandi hluti frá árunum milli 1950 og 1960 til notkunar sem leikmuni í kvikmynd, sem verður tekin upp í ágúst mánuði í kringum Selfoss. Gamaldags 17. júní handfána, David Crocket húfu á sex til sjö ára, indíánaskúf á sama aldur, marga eplakassa de luxe, kassabíla, ameríska sælgætisauglýsingu, dúfnakofa, biblíumyndir með dúfum á, einkennisbúning tollvarðar með gylltum hnöppum, þvottabala, snúrustaura, peysuföt, gamalt orgel, mjólkurflöskur,.leikfanga rafmagnsbíl, radíógrammófón. Þeir sem geta látið okkur í té fyrrgreinda bíla eða hluti eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 91-623441 milli kl. 11.00 og 13.00 mánudag, þriðjudag eða miðvikudag n.k. eða senda línu í pósthólf 7103 Reykjavík merkt: „Bflar og hlutir". Umsjónarmaður leikmyndar og búninga er Karl Júlíusson. F.I.L.M. FÉLAG INNAN LEIKINNA MYNDA, Framkvæmdastjóri Kristján Þórður Hrafnsson. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI Vegna breytinga hjá kaupanda höfum við til afgreiðslu strax KINGSLAND FJÖLKLIPPUR 85 SX Tilboðsverð kr. 1.660.000.- Verð án vsk EmfflWÉNU&M I & T hf., Smiðshöfða 6,112 Reykjavík, s. 674800.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.