Morgunblaðið - 30.06.1991, Page 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991
ERLEIMT
IIMNLEIMT
EB-ríki
með fyrir-
vara á toll-
frelsi fisks
Ýmis ríki Evrópubandalagsins
hafa fyrirvara á því að fiskur frá
EFTA-ríkjunum fái tollfrelsi á
Evrópska efnahagssvæðinu.
Þetta kom fram á fundi EB og
efta í Salzburg. Ráðamenn í
EFTA líta svo á að EB hafi dreg-
ið í land frá því samkomulagi,
sem menn töldu sig hafa náð á
fundi í Lúxemborg.
Fleiri á móti EB-aðild
Skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar leiðir í ljós að
41,5% aðspurðra eru andvígir því
að sótt verði um aðild að EB, en
24,6% fylgjandi. Ef spurt er hvort
það myndi breyta afstöðu manna
ef full yfírráð yfír fískimiðunum
yrðu tryggð, snýst dæmið hins
vegar við og 51,3% segjast fylgj-
andi umsókn að því gefnu, en
andvígir eru 25,5%.
Nýr vígslubiskup að Hólum
Sr. Bolli
Gústavsson í
Laufási var
vígður
vígslubiskup
í Hólastifti
og flyzt nú
heim að Hól-
um.
ERLENT
Borgara-
styrjöld í
Jugóslavíu
Þing lýðveldanna Slóveníu og
Króatíu, sem eru tvö nyrstu lýð-
veldin í Júgóslavíu, lýstu yfír sjálf-
stæði seint á þriðjudag og sögðu
sig þar með úr sambandsríkinu
Júgóslavíu. Lýðveldin tvö eru
efnahagslega best stæð af lýð-
veldum Júgóslavíu og menning
þeirra er afar frábrugðin menn-
ingu suðlægari lýðveldanna, t.d.
eru trúarbrögðin mismunandi.
Þing sambandsríksisins heimilaði
hernum að skerast í leikinn, en
honum er að mestu stjómað af
Serbum, fjölmennasta þjóðemis-
hópnum í Júgóslavíu. Herinn hélt
innreið sína í Slóveníu á miðviku-
dag og á fímmtudag brutust út
mannskæð átök á milli hans og
vopnaðra sveita Slóvena. Barátt-
an stóð að mestu um yfírráð yfír
landamærastöðvum við landa-
mæri Austurríkis og Ítalíu. Her
Slóveníu iagði áhersiu á að eyði-
leggja þyrlur og skriðdreka sam-
bandshersins og varð nokkuð
ágengt. Janek Jansa, vamar-
málaráðherra Slóveníu sagði í
sjonvarpsviðtali seint á fimmtu-
dagskvöld að um 100 manns
hefðu fallið úr liði beggja. Erlend
ríki hafa ekki viðurkennt sjálf-
stæði lýðveldanna tveggja, en
talsmaður Slóveníustjómar
kvaðst bjartsýnn á að þess yrði
skammt bíða.
írakar sakaðir um
kjarnorkutilraunir
Á miðvikudag sökuðu Bandaríkja-
menn íraka um að hafa falið bún-
að til framleiðslu kjamavopna fyr-
ir eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóð-
anna. Fulltrúar nefdarinnar vildu
kanna svæði skammt frá Bagdad
en var ekki hleypt að fyrr en eft-
ir dúk og disk og fullvíst þykir
Sovétríkin:
Willy Brandt á íslandi
Willy Brandt, fyrrverandi
kanzlari Vestur-Þýzkalands kom
hingað til lands í stutta heimsókn
og hélt meðal annars fyrirlestur
um framtíð Evrópu í Háskólabíói.
Dularfullt rúðubrot
Ekki hefur verið upplýst að
fullu hvemig það átti sér stað
að einhver hlutur skauzt í gegn-
um tvær hliðarrúður bíls í
Grindavík. Talið var á tímabili
að þar hefði steinn, sem skotizt
hefði frá sláttuvél, verið á ferð-
inni, en vinnueftirlitið telur það
nú ólíklegt.
Fjórða sætið tryggt á EM í
bridge
íslenzka landsliðið í bridge
tryggði sér fjórða sætið á Evr-
ópumeistaramótinu í bridge á
írlandi og þar með sæti á heims-
meistaramótinu.
Skandia kaupir meirihluta í
tryggingafélagi
Sænska tryggingafélagið
Skandia hefur keypt meirihluta
í Reykvískri tiyggingu og dóttur-
fyrirtækjum þess.
að írakar hafí fjarlægt búnað af
svæðinu. James Baker, utanrík-
isráðherra Bandríkjanna og aðrir
embættismenn létu að því liggja
á fímmtudag að þeir muni ráðast
í hemaðaraðgerðir gegn írökum
ef þeir hætta ekki við kjarnorku-
fyrirætlanir sínar.
Símstöðin í Vilnius hernumin
Sérsveitir so-
véska innanrík-
isráðuneytisins,
undir stjóm Bor-
is Púgo inn-
anríkisráðerra,
hemámu
símstöðina í Vil-
nius, höfuðborg
Litháens, á mið-
vikudag og tóku lögreglumenn
sem gættu stöðvarinnar til fanga.
Tveimur tímum síðar yfírgáfu þær
síðan staðinn, en Litháen var sam-
bandslaust við umheiminn á með-
an. Talsmaður Míkhaíls Gorb-
atsjovs Sovétleiðtoga sagði að
þessar aðgerðir væru e.t.v. tilraun
af hálfu harðlínumanna til þess
að eitra andrúmsloftið fyrir fund
Gorbatsjovs með leiðtogum sjö
helstu iðnríkj heims sem fara mun
fram í London í næsta mánuði.
Þingið hnekkir neitunarvaldi
Walesa
Lech Walesa,
forseti Póllands,
beitti á miðviku-
dag neitunar-
valdi í annað
sinn á hálfum
mánuði til þess
að koma í veg
fyrir samþykkt IjCch waiesa
umdeilds kosn-
ingalagafrumvarps og sendi það
aftur þinginu með ósk um breyt-
ingar. Þingið, sem að mestu er
skipað fyrrum félögum úr komm-
únistaflokknum, neitaði að verða
við þeirri ósk og hnekkti neitunar-
valdi Walesa með miklum meiri-
hluta á föstudaginn. Walesa er
því tilneyddur að gera frumvarpið
að lögum.
Boris Púgo
Vilja ná völdum með
stofnun lýðræðisflokks
Moskvu. Reuter.
GAVRIIL Popov, borgarstjóri Moskvu, hvatti í gær til stofnunar nýs
sovésks stjórnmálaflokks til þess að leiða lýðræði til öndvegis í valda-
stofnunum í Kreml, aðsetri Sovétsljórnarinnar. Viðræður hafa verið
í fullum gangi að stofnun nýrra sovéskra stjórnmálasamtaka og
meðal þeirra sem þátt hafa tekið í þeim eru Edúard Shevardnadze,
fyrrum utanríkisráðherra, og Garríj Kasparov, heimsmeistari í skák.
Popov lýsti stuðningi við stofnun
nýs flokks lýðræðissinna, Samein-
aða lýðræðisflokks Sovétríkjanna, í
ræðu á flokksþingi Lýðveldisfiokks
Rússlands. „Við þurfum samtök á
landsvísu til þess að koma umbótum
í kring frá miðjunni. Lokasigurinn
vinnst aðeins frá miðju stjómvalds-
ins,“ sagði Popov. Hann var á sínum
einn helsti frumkvöðull þess að
stjórnarandstæðingar stofnuðu með
sér regnhlífarsamtök, Lýðræðislegt
Rússland, til þess að ná auknum
áhrifum í sveitarstjórnum. Nú bend-
ir allt til þess að ýmsir forsprakkar
samtakanna séu að færast til hægri
og vilja stofna miðflokk sem jafnvel
gæti dregið Míkhaíl Gorbatsjcv
Sovétforseta og vonsvikna komm-
únista yfír í sínar raðir.
Kommúnistaleiðtogar í Síberíu
hafa hrundið af stað herferð með
það að markmiði að neyða Gorb-
atsjov til afsagnar sem leiðtogi
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna.
Tékkóslóvakía:
Deilt um hvort birta eigi
nöfn samstarfsmanna
öryggislögreglunnar
Kommúnisma mótmælt við styttu af Jósef Stalín á Wenceslaus-
torginu í Prag. Á spjaldinu stendur: „Aldrei að eilífu.“ 140 þús-
und manns áttu á einn eða annan hátt samstarf við hina ill-
ræmdu öryggislögreglu tékkneska rikisins (Stb) meðan á vald-
atíma kommúnista stóð. Vitað er um nöfn þeirra allflestra en
Tékkar velta því nú fyrir sér hvort eigi .að birta þau.
ÞAÐ ER óneitanlega áhyggju-
efni í hugum flestra Tékka að
um 140 þúsund manns áttu á
einn eða annan hátt samstarf
við hina illræmdu öryggislög-
reglu ríkisins (Stb) meðan á
valdatíma kommúnista í Tékkó-
slóvakíu stóð. Til eru gögn sem
sýna svart á hvítu hveijir það
voru sem unnu í þágu öryggis-
4ögreglunnar en fram að þessu
hafa menn ekki getað komið
sér saman um hvernig bregðast
eigi við í þessum efnum. I um-
ræðum sem fram fóru á tékk-
neska þinginu um þetta mál
voru menn einungis sammála
um að nauðsynlegt væri að
leggja fram og samþykkja
frumvarp um hvernig fara bæri
að. Mjög skiptar skoðanir eru
eftir sem áður uppi í nefndum
þingsins og e/tir stendur stóra
spurningin: Á að birta nöfnin
eða ekki?
Nýlegt dæmi þar sem kom í
ljós að ákveðnir þingmenn
voru nefndir á listum yfír sam-
starfsmenn Stb færði mönnum
sönnur á hversu vandmeðfarin
þessi mái eru í ljósi þess að við-
komandi hefur
engin tök á að
svara fyrir sig
og skýra sína
hlið mála. Það
er staðreynd að
menn komust í
tengsl við öryggislögregluna und-
ir mjög mismunandi kringum-
stæðum og í mörgum tilvikum
hefur Stb efiaust beitt þrýstingi,
kúgunum og hótunum um að við-
komandi missti vinnu sína eða
stöðu í þjóðfélaginu gerði hann
ekki eins og honum væri sagt.
Það höfðu ekki allir þor til að
setja sig upp á móti slíku. í ijósi
þessa telja flestir sanngjamt að
gefa fólki, sem sakað er um sam-
starf við Stb, kost á að mæta
fyrir rétt og gefa sínar skýringar
á málum.
Fortíð manna í sljórnkerfinu
könnuð
Á hinn bóginn er einnig sam-
staða um að menn sem hafa verið
í tengslum við Stb eigi ekki að
skipa æðri stöður í stjómmálum,
viðskiptalífínu, menntakerfínu,
stjórnkerfinu o.s.frv. Það verði því
að kanna fortíð manna sem skipa
eiga slíkar stöður til að ganga úr
skugga um hvort að þeir hafí
verið í tygjum við öryggislögregl-
una. Til þessa er búið að kanna
fortíð manna í ríkisstjóminni,
þinginu og skrifstofu forsetans
en meðal fólks era uppi háværar
raddir um að þessari skoðun eigi
að halda áfram neðar í valdakerf-
inu. Eigi síðan
að víkja þeim úr
störfum sem
sönnur er hægt
að færa á að
hafí starfað með
Stb.
Þó að samstarf við Stb í for-
íðinni beri að fordæma harðlega
lúta hins vegar flest skynsemisrök
að því að ekki eigi að birta opin-
berlega í heild sinni lista með
nöfnum samstarfsmanna öryggis-
lögreglunnar. Einfaldlega vegna
þess að slíkt myndi ekki þjóna
neinum tilgangi. Þar að auki væra
slíkar nafnbirtingar ekki í anda
þeirrar hugsjónar hinnar „frið-
samlegu byltingar" að fyrirgefa
eigi gamlar syndir. Loks má svo
nefna að nöfn stórlaxanna yrði
hvort sem er ekki að finna á list-
unum. Öryggislögreglan hafði
nægan tíma til að hagræða því
sem hún taldi sig þurfa að hag-
ræða.
Þeir ráðherrar sem svipuð mál
falla undir í Ungveijalandi og
Póllandi era sömu skoðunar. Ráð-
leggja þeir mönnum að gleyma
fortíðinni og takmarka aðgerðir
við þau svið þar sem öryggi og
hagsmunum ríkisins gæti verið
ógnað.
Samstarfsmenn Stb á
fjölmiðlum
Það er ekki síst á fjölmiðlunum
sem þörf er á því að hreinsa til
en þar era enn starfandi margir
stuðningsmenn gömlu kommún-
istastjómarinnar. Taka blaða-
menn enn þann dag í dag oft þátt
í herferðum sem hafa það að
markmiði að sá ranghugmyndum,
brengla staðreyndir eða reyna að
koma höggi á það umbótastarf
sem nú á sér stað í efnahagsmál-
um. Er talið hugsanlegt að rit-
stjórar sumra dagblaða séu enn í
tengslum við Stb. Flestir eru sam-
mála um að á slíkt sé ekki hægt
að fallast og því nauðsynlegt að
könnuð verði tengsl fjölmiðlafólks
við öryggislögregluna.
Hér getur ríkið hins vegar ekki
látið til sín taka heldur er það
eigenda fjölmiðla að ganga úr
skugga um áreiðanleika starfs-
fólks síns. Hefur sú hugmynd
verið lögð fram að starfsmenn
verði skyldaðir til að leggja fram
staðfestingu á því að nöfn þeirra
sé ekki að finna í skjalaskrám Stb.
Það er útbreidd skoðun í Tékkó-
slóvakíu þessa dagana að umburð-
arlyndi séu takmörk sett og að
ekki sé hægt að fyrirgefa hvað
sem er. Land sem sé að burðast
við að koma upp lýðræðislegu
þjóðskipulagi hafí ekki efni á að
vera með fólk í vinnu sem er reiðu-
búið að njósna um samborgara
sína.
Höfundur er tékluieskur
blaðamaður, búsettur í Prag.
BAKSVIÐ
eftir Jaroslav Novák