Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.06.1991, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Heimsókn Willy Brandts Willy Brandt er tvímæla- laust einn af fremstu stjórnmálaleiðtogum Evrópu á þessari öld. Ungur að árum snerist hann gegn nazism- anum og var landflótta um skeið. Hann vakti athygli og aðdáun í embætti borgarstjóra Vestur-Berlínar á mestu átakaárum kalda stríðsins. Þegar hann var utanríkisráð- herra Vestur-Þýzkalands og síðar kanslari, ruddi hann brautina til bættra samskipta við Sovétríkin og þáverandi leppríki þeirra í Austur-Evr- ópu. En kannski segir það mesta sögu um pólitíska yfir- burði Willy Brandts, að hann hefur verið í hópi fremstu þjóðarleiðtoga heims hátt á annan áratug án þess að gegna öðru pólitísku ábyrgð- arstarfi en formennsku þýzka jafnaðarmannaflokksins, sem hann lét af fyrir nokkrum árum. Heimsókn Willy Brandts nú hefur orðið til þess að efla enn frekar skilning okkar á þeirri miklu pólitísku geijun, sem er í Evrópu um þessar mund- ir. Þar er allt á fleygiferð og ekki hægt að ganga út frá því sem vísu, að það sem er í dag, verði einnig á mprgun. Brandt hvetur okkur íslend- inga, Norðmenn og aðra, sem íhugum nú afstöðu okkar til Evrópubandalagsins að horf- ast í augu við þá spumingu, hvort skynsamlegra sé að sitja við borðið, þar sem ákvarðan- ir eru teknar eða láta nægja að sækjast eftir þeim við- skiptakjörum, sem viðunandi teljast í samskiptum við Evr- ópubandalagið. Svar okkar og annarra við þeirri spumingu fer auðvitað eftir aðstæðum hvers og eins. Það sem hentar t.d. Svíum þarf ekki að henta okkur íslendingum, svo að dæmi sé tekið. Þekking Brandts á norskri þjóðarsál, kemur vel fram í umijöllun hans um mismun- andi viðhorf Norðmanna og Svía til EB. Hann gerir sér vel grein fyrir áhyggjum Norðmanna af því, hvaða hlutverki sameinað Þýzkaland kunni að gegna í nýrri Evr- ópu, enda veittu Norðmenn honum skjól, þegar hann var landflótta frá Þýzkalandi. Lífsreynsla Svía í heimsstyij- öldinni síðari var auðvitað allt önnur en Norðmanna. Áhugi Brandts á framtíð Austur-Evrópuríkjanna er augljós, enda varð hann fyrst- ur stjórnmálamanna í Evrópu til þess að opna leiðir til auk- inna samskipta ríkja Vestur- og Austur-Evrópu fyrir rúm- um tveimur áratugum. Hann vill bersýnilega aðild Póllands, Tékkóslóvakíu og Ungveija- lands að Evrópubandalaginu eftir u.þ.b. áratug og hefur augljóslega efasemdir um, að Sovétríkin verði til í óbreyttri mynd. En sú pólitíska geijun, sem nú er svo mikil í Evrópu, snýr ekki einungis að tengslum þeirra ríkja, sem standa utan við EB, heldur einkennist hún líka af umræðum innan EB um framtíðarþróun þess. í fyrrakvöld sýndi Ríkis- sjónvarpið kafla úr viðtali brezkrar sjónvarpsstöðvar við Margréti Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, þar sem hún lýsti ákvörðun sinni um að fara ekki í þing- framboð á nýjan leik. En því fór hins vegar fjarri, að hún væri að tilkynna, að hún væri hætt þátttöku í stjórnmálum. Fremur mátti skilja Thatcher á þann veg, að hún vildi hafa meiri tíma til að sinna alþjóða- málum. Og afstaða hennar til framtíðar Evrópubandalags- ins er alveg skýr: hún vill hvorki sameiginlega evrópska mynt né bandaríki Evrópu. Umræður um þessa lykilþætti í evrópskum stjórnmálum eiga augljóslega eftir að aukast mjög, bæði í Bretlandi og í öðrum aðildarríkjum Evrópu- bandalagsins. Af þessum sök- um er ómögulegt að vita, hvers konar Evrópubandalag það verður, sem ný aðildarríki ganga inn í á næstu árum. Fyrir okkur íslendinga er sá kostur áreiðanlega beztur að bíða átekta enn um sinn en leggja áherzlu á að tryggja viðskiptahagsmuni okkar og aðra hagsmuni með þátttöku í evrópska efnahagssvæðinu. Athyglisvert er, að eftir því sem umræður um Evrópumál- in aukast hér heima fyrir vex andstaðan við aðild að Evr- ópubandalaginu, ef marka má nýlega könnun Félagsvísinda- stofnunar og fyrri kannanir um sama efni. Það er líka ljóst, að afstaða fólks er að skýrast. Ef hægt er að tryggja óskoruð yfirráð okkar yfir fiskimiðunum og sjávarútveg- inum er fólk tilbúið til að íhuga alla kosti. arar sömu alþýðu. Stjórnmála- menn hafa yfirleitt ekki áhuga á fólki eða þörfum þess. Þeir hafa áhuga á atkvæðum. En þó fyrst og síðast á sjálfum sér. Sá er mestur stjórnmálamaður sem kann bezt að sveipa sig felubúningi tækifæranna. Hentistefna er freistingin. Og hin dæmigerða ósk- hyggja útsmoginna stjórnmála- manna eru þessi orð Napóleons, Stjómarskrá á að vera stutt og óljós. Og af hveiju á hún að vera stutt og óljós? Vegna þess þá eru þeir síður undir fastar leikreglur seldir. Eg tel aftur á móti að stjórn- arskrá eigi að vera þannig úr garði ger að augljóst sé hvenær hún er brotin. Lög eiga að vera nákvæm, sagði Voltaire, menn eru yfirleitt ailtaf að spilla lögum þegar þeir túlka þau. Og hann bætti því við að lög ættu aldrei að ganga gegn venju. Ef venjan er góð, sagði hann, eru lögin einskis virði. Verst er þó þegar lög stangast á við rétt- lætiskennd almennings. Þá leiða þau til lögbrota og upplausnar. Skattpíningarlög eru alltaf brotin. M. (meira næsta sunnudag.) 1 rq lifið X fj *er vonlítil áhætta. Ef það væri veðmál, tæki maður því ekki. Eitthvað á þessa leið er komizt að orði í leikriti Tom Stoppards, Rosencrantz og Guild- enstern eru dauðir. Fjölmiðlar sækjast helzt eftir söluhæfu fólki, þeim sem eru í embættum, þeim sem eru eitthvað þekktir. Það er alltaf verið að tala við sama fólkið, bæði hér og ann- ars staðar; og svo auðvitað alltaf verið að tala um sama fólkið sem verður að hvimleiðum kæk. Þetta er einsog þegar við strákamir vor- um að steypa blýdáta í gamla daga. Þeir komu allir eins úr mótunum. En við höfðum þó vit á að mála þá ekki alla eins. Við vorum sem- sagt skömminni til skárri en þessir hugmyndasnauðu fjölmiðlarar sem nú suða í fjölmiðlasólinni einsog mývargur. Eg gæti ímyndað mér hópurinn sem fjölmiðlarar hafa bundizt samtökum um að nefna „í umræðunni“ sé milli 50 og 100 manns, það er allt og sumt. Yfir- leitt eru þetta einhverskonar skemmtikraftar hvortsem þeir eru í pólitík eða annarri leiklist. Engu líkara en engin alþýða sé til, þau eru að- minnstakosti ekki dýr hlutabréfin í henni þótt ekki skorti fé- lagshyggjuna og snobbið niðrávið, ef það gæti skilað einhveijum at- kvæðum. Þá er talað við blessaða alþýðuna einsog hún skipti ein- hveiju máli. Það er heldur kátbros- legt. En svo er líka til einskonar fjölmiðlaalþýða og birtist viðstöðu- laust í Þjóðarsálinni (og Velvak- anda). Einatt sama fólkið. Tiltölu- lega fámennur hópur, en fyrirferð- armikill því meirihluti fólks lætur ekki í sér heyra. En Þjóðarsálin er sjaldnast upplyft af andlegri reisn. Hún einblínir á akarnið en ekki krónuna. Oftast einhvers staðar í nágrenni við lægðarmiðj- una. Fjölmiðlarnir eru víst ágæt- lega til þess fallnir að hleypa útaf kötlunum. Annars yrði ketil- sprenging. En hveiju er hleypt út? 1 Prí ÞEGAR EINRÆÐIS- A vJvf*seggirnir þurfa að láta ljós sitt skína er talað í nafni þess- HELGI spjall oi; jrjOAcrj'/zua HII/13I3T2A=I aia/,i MORGUNBLADIÐ- SUNNUDAGUR 50.-JÚNÍ” 1991 a Asiðustu þrjátíu árum hafa setið hér tvær ríkisstjórnir, sem skildu eftir sig einhver þau verk, sem máli skiptu fýrir þjóðina, þegar litið er yfír far- inn veg í víðu sam- hengi. Önnur var Viðreisnarstjórnin, ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem sat hér á árabilinu 1959 til 1971 undir forsæti Ólafs Thors, Bjama Bene- diktssonar og Jóhanns Hafstein og mark- aði djúp spor í þjóðlífið. Hin var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem sat undir forsæti Geirs Hallgrímsson- ar á ámnum 1974 til 1978 og tryggði fullnaðarsigur í landhelgisbaráttunni með útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 rnílur. Báðum þessum ríkisstjórnum var það sameiginlegt, að það var sambland af ytri aðstæðum og stefnumörkun og metnaði þeirra sjálfra, sem Ieiddi til þess, að þeim auðnaðist að verða annað og meira en afgreiðslustjórnir, sem bjarga málum frá degi til dags. Þegar viðreisnarstjórnin tók við völdum var sú efnahags- og atvinnu- málastefna, sem rekin hafði verið í ýmsum myndum frá fyrstu árunum eftir stríð og byggðist á ýmiss konar hafta- og skömmt- unarkerfi, búin að ganga sér til húðar og jarðvegur fyrir þær grundvallarbreytingar, sem hún beitti sér fyrir með auknu frelsi á öllum sviðum. En það var líka markviss stefna þeirrar ríkisstjórnar, sem byggði á sannfæringu flokkanna, sem að henni stóðu að taka upp gjörbreytta stefnu, sem hún gerði. Utfærsla vinstri stjórnarinnar 1971 til 1974 í 50 sjómílur ruddi auðvitað brautina fyrir fullnaðarsigri í landhelgisbaráttunni en það var sú ákvörðun þingflokks Sjálf- stæðisflokksins síðla sumars 1973 að taka upp markvissa baráttu fyrir útfærslu í 200 sjómílur, sem sköpum skipti. Sú ákvörðun var tekin í framhaldi af áskorun hóps þekktra forystumanna og áhugamanna í sjávarútvegi um slíka útfærslu. Því fór hins vegar fjarri, að samstaða væri um þá stefnumörkun 'á~fh!31i stjórnmálaflokk- anna. Sjálfstæðisflokkurinn mátti búa við áhugaleysi vinstri flokkanna um málið en kosningasigur flokksins sumarið 1974 tryggði framgang þess. Samningar, sem gerðir voru í Osló í júníbyijun 1976, tryggðu fullrtactarsigur og á miðnætti hinn 1. desember 1976 sigldi síðasti brezki tog- arinn út úr íslenzkri fiskveiðilögsögu og hefur ekki sézt síðan. Mikill hagvöxtur áttunda áratugarins byggðist ekki sízt á útfærslu landhelginnar í 200 mílur. Þær ríkisstjórnir, sem setið hafa frá hausti 1978, hafa verið afgreiðslustjórnir, sem hafa rekið þjóðarbúið frá degi til dags án þess að marka nokkur spor í þjóðarsög- una. Að sumu leyti hefur það verið vegna þess, að þær hafa hvorki haft miklar hug- sjónir til að beijast fyrir eða metnað til þess að framfylgja slíkum hugsjónum. Að öðru leyti hafa ytri aðstæður ekki knúið á um úrslit í hinum veigamestu málum. Sumir segja, að fyrrverandi ríkisstjórn hafí náð slíkum árangri með stórminnk- andi verðbólgu. Því verður ekki haldið fram með nokkrum rökum, þar sem hvort tveggja fer saman, að sú ríkisstjórn átti minnstan þátt í þeim árangri og ekki er Ijóst, hvort hann verður varanlegur. Ríkis- stjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks náðu verðbólgunni verulega niður bæði á árabilinu 1974 til 1978 og líka á árunum 1983 til 1987 en ekki á þann veg, að sá árangur yrði varanlegur. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, sem nú situr, hefur möguleika á að verða annað og meira en venjuleg afgreiðsiustjórn. Tvennt veldur: annars vegar er að draga til úrslita í nokkrum grundvallarmálum þjóðarinnar, sem kalla á ákvarðanir, sem geta skipt sköpum fyrir framtíðina. Hér er um að ræða EFTÁ-EB viðræður, fisk- veiðistefnuna, atvinnumál almennt, þ. á m. einkavæðingu, viðnám gegn einokun og hringamyndun og eflingu fijálsrar sam- keppni, ríkisfjármál og endursköpun vel- ferðarkerfisins. Hins vegar er ljóst, að inn- an ríkisstjórnarinnar er vilji og metnaður til þess að svara kalli tímans og taka þær ákvarðanir, sem máli skipta. Það gerist hins vegar ekki átakalaust. ÞÓTT ÓTRÚLEGT kunni að virðast má vel vera, að minni átök verði um hugs- anlega þátttöku okkar í evrópsku efnahagssvæði en hina málaflokkana, sem nefndir voru hér að framan. Náist samkomulag á svipuðum nótum og nú er rætt um, má búast við nokkuð almennum stuðningi við þátttöku í þessu efnahagssamstarfi. Auðvitað er ljóst, að núverandi stjórnarandstöðuflokk- ar eru að búa sig undir andstöðu, þrátt fyrir aðild að á.kvörðunum um málið í fyrri ríkisstjórn. Jafirframt er einhver hreyfing á ferðinni til þess að hefja skipulega and- stöðu við málið, eins og fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag, laugardag, og raun- ar hefur mátt sjá í greinum, sem birzt hafa hér í Morgunblaðintfað undanförnu. Umræðurnar verða harðar en líklegt að niðurstaðan verði jákvæð, nema ríkis- stjórnin misstígi sig í samningum um sjáv- arútvegsmál í lok viðræðna. Allt öðru máli gegnir um innanlandsmál- in. Verulegar líkur eru á harkalegum átök- um um fiskveiðistefnuna. Sjávarútvegs- ráðherra hefur enn ekki skipað nefnd þá, sem á að undirbúa endurskoðun núverandi laga um fiskveiðistjórnun og ástæðan er sú, að ekkert samkomulag hefur náðst um formennsku í nefndinni. Þær deilur eru auðvitað uphafið að því, sem koma skal. Fyrstu afskipti ríkisstjórnarinnar af at- vinnumálum benda til þess, að hún hygg- ist bijóta blað. Þær vísbendingar hafa þegar framkallað hörð viðbrögð úr ýmsum áttum. Sama mun gerast, ef og þegar fjár- málaráðherra leggur fram niðurskurðartil- lögur sínar næsta haust. Þess vegna er nauðsynlegt, að menn átti sig á forsendum þess, að árangur náist. Hér er verið að tala um róttækari uppskurð og umbætur í íslenzku þjóðlífi en gerð hefur verið tilraun til að fram- kvæma frá stofnun lýðveldis. Meginfor- sendan fyrir árangri er ekki sú, að ríkis- stjórninni auðnist að leggja fram tillögur vegna þess, að þær hugmyndir liggja í stórum dráttum fyrir, heldur hin, að stjórn- málaleiðtogarnir, ráðherramir og þing- mennirnir, tali við fólkið í landinu um þess- ar breytingar, geri grein fyrir stöðu mála, upplýsi þjóðina um fyrirætlanir sínar og vinni þeim fylgi. Þetta er ekki lítið verk. Þetta þjóðfélag er bundið í slíka fjötra margslunginna hagsmuna, vanabundinna viðhorfa, íhalds- semi og tregðu til að fallast á nokkrar breytingar, að það kostar ekkert minna en stórátök að ná fram þeim umbótum, sem geta tryggt þjóðinni viðunandi lífskjör í byijun næstu aldar. Spurningin er sú, hvort stjórnmálamennirnir hafa kjark til þess að takast á við þetta viðfangsefni. Þrátt fyrir yfirgnæfandi fylgi í skoðana- könnun Félagsvísindastofnunar við gjald- töku vegna nýtingar á fiskimiðunum er pólitísk hætta fólgin í því fyrir alþingis- mann eða ráðherra að boða slíka stefnu í sjávarplássum landsins. Þótt fylgi almenn- ings við þessa stefnu sé mikið og þ. á m. í sjávarplássunum er andstaða ýmissa for- ystumanna í sjávarútvegi, m.a. forráða- manna sjávarútvegsfyrirtækja víðs vegar um Iandið, hörð og þeir geta haft mjög skoðanamótandi áhrif í sínu umhverfi. Þótt rökin fyrir því, að loka hinu gjald- þrota frystihúsi í Olafsvík og að vinna aflann í öðrum fískvinnslustöðvum í Ólafsvík og í næsta nágrenni séu augljós, getur verið pólitískt hættulegt fyrir þing- menn kjördæmisins eða bæjarfulltrúa á staðnum að mæla fyrir slíkri stefnu. Þótt rökin fyrir sameiningu sjávarútvegsfyrir- tækja á Árborgarsvæðinu séu augljós get- ur verið pólitískt hættulegt fyrir þingmenn kjördæmisins og sjávarútvegsráðherra að tala fyrir slíkri sameiningu í þessum bygð- arlögum, að minnsta kosti á Stokkseyri. Þótt rökin fyrir því að hætta fjárstuðiúngi Átök og óvinsældir REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 29. júní úr opinberum sjóðum við Álafoss séu aug- ljós getur verið pólitískt hættulegt fyrir þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra að tala máli þeirrar ákvörðun á Akureyri. Þótt rökin fyrir því, að endurskipu- leggja velferðarkerfið og skólakerfið til þess að ná tökum á ríkisfjármálum séu augljós getur verið pólitískt hættulegt fyr- ir fjármálaráðherra og stjómarflokkana báða að taka upp baráttu fyrir þeim breyt- ingum. Sú ríkisstjórn, sem tekst á við þessi verkefni verður ekki hátt skrifuð í skoð- anakönnunum fyrstu árin. Við hveija nýja skoðanakönnun, sem sýnir tap stjórnar- flokkanna, rísa upp flokksmenn, sem segja, að við svo búið megi ekki standa. Raunar er hægt að færa margvísleg rök fyrir því, að þeir stjórnmálamenn, sem taki forystu fyrir róttækri umbótastefnu af þessu tagi, geti orðið fórnarlömb eigin árangurs'. Þeir geti unnið málefnalegan sigur og skilið eftir sig markverðan árang- ur í starfi en jafnframt innsiglað endalok eigin stjórnmálaferils. Þetta er ástæðan fyrir því, að senn verð- ur tímabært, að ráðherrar og þingmenn stjórnarflokkanna tali við fólkið í landinu um fyrirætlanir sínar og áform. Það er aðeins ein leið til þess að takast á við for- dómana, tregðuna, íhaldssemina og hin rótgrónu og margslungnu hagsmunaöfl í þessu landi og það er að tala við fólkið sjálft og afla stuðnings þess við þær um- bætur í íslenzku þjóðlífi, sem sköpum skipta. Með almanna stuðningi verður hægt að knýja þessar umbætur fram. Án slíks stuðnings er það vonlaust. Nixon, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, orðaði þetta á þann veg, að hann vildi tala við hinn þögla meirihluta bandarísku þjóðarinnar. Núverandi ríkisstjórn þarf að tala við hinn þögla meirihluta íslenzku þjóðarinnar. Þar er að finna stuðning við þær umbætur, sem hér hafa verið nefndar. Þar er að fínna fólk, sem tekur skynsamlega, efnislega afstöðu til mála og er ekki bundið af alls kyns hagsmunum. Hvorki útgerðarmenn, hagsmunasam- tök bænda, né nokkrir aðrir hagsmunahóp- ar geta staðið gegn þeim gífurlega þunga, sem fylgt getur stuðningi hins þögla meiri- hluta við róttækar umbætur í þjóðarbúskap okkar. Þeir stjórnmálamenn, sem hafa kjark til þess að ráðast í þetta verkefni þurfa hvað úr hveiju að setja sig í sam- band við hinn þögla meirihluta. STEINGRÍMUR Hermannsson, for- maður Framsókn- arflokksins, er þekktur fyrir að slá úr og í. Þetta ein- kenndi ræðu hans á hádegisverðarfundi Framsóknarflokksins í gær, föstudag, þar sem hann talaði í fyrsta sinn að ráði um stöðu þjóðmála frá því, að núverandi ríkis- stjórn var mynduð. Þótt erfitt sé að festa hendur á skoðunum Steingríms Hermanns- sonar er ræða hans þó því miður vísbend- ing um, að hann hyggist taka forystu fyr- ir þeim þjóðmálaöflum, sem í raun vilja óbreytt ástand. Þetta á ekki sízt við um afstöðu hans til atvinnumála. Nú vill Morgunblaðið ekki gera Steingrími Hermannssyni upp skoðanir en þau sjónarmið, sem hann lýsti á þessum fundi varðandi t.d. Álafoss eru dæmigerð fyrir þá afstöðu, sem hér hefur ríkt of lengi. Formaður Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu, að það væri meira tjón fyrir þjóðfélagið að stöðva vinnslu Álafoss en að leggja fram fjár- muni til þess að halda rekstrinum áfram. Þótt Steingrímur Hermannsson tali hér í forystu fyrir óbreyttu ástandi? um Álafoss er þetta í raun sú stefna, sem ríkt hefur í atvinnumálum í alltof langan tíma. Það er ekki hægt að finna nokkur efnis- leg rök fyrir því, að það borgi sig betur fyrir þjóðarbúskap okkar að halda áfram að reka Álafoss með stórfelldu tapi en að gera þetta dæmi upp. Það er sársauka- minna í bráð en veldur lífskjaraskerðingu, þegar til lengi-i tíma er litið. Við íslendingar erum búnir að festa tugi milljarða í kaupum á of mörgum fiski- skipum. Þessi offjárfesting heldur niðri lífskjörum í landinu. Við höfum fest milljarða í of mörgum fiskvinnslustöðvum. Þessi offjárfesting heldur niðri lífskjörum fólks. Við eyðum gífurlegum fjármunum í olíu- kaup til að gera þessa offjárfestingu út á fiskimiðin. Þessi eyðsla heldur niðri lífskjörum fólks. Við eyðum gífurlegum fjármunum í veiðarfæri fyrir þessa offjárfestingu. Þessi eyðsla heldur niðri lífskjörum fólks. Við eyðum gífurlegum fjármunum í að halda of mörgum fiskvinnslustöðvum gangandi. Steingrímur Hermannsson hrós- ar sér og ríkisstjórn sinni af því m.a. Þessi eyðsla heldur niðri lífskjörum fólks. Við höfum árum saman varið óheyrileg- um fjármunum í umframframleiðslu í land- búnaði. Þessi eyðsla heldur niðri lífskjörum fólks. Og þannig mætti lengi telja. Ætlar Steingrímur Hermannsson að taka forystu fyrir óbreyttri stefnu? Hann getur ekki setið báðum megin við borðið. Hann verð- ur að taka afstöðu. Og afstaða hans skipt- ir máli vegna þess, að hann hefur þrátt fyrir allt, verið einn af áhrifamestu stjórn- málamönnum þessa lands árum saman. Formaður Framsóknarflokksins stendur ekkert síður á vegamótum en núverandi ríkisstjórn. „Það er aðeins ein leið til þess að takast á við for- dómana, tregð- una, íhaldssemina og hin rótgrónu og margslungnu hagsmunaöfl í þessu landi og það er að tala við fólk- ið sjálft og afla stuðnings þess við þær umbætur í íslenzku þjóðlífi, sem sköpum skipta. Með al- manna stuðningi verður hægt að knýja þessar um- bætur fram. Án slíks stuðnings er það vonlaust... Núverandi ríkis- stjórn þarf að tala við hinn þögla meirihluta íslenzku þjóðar- innar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.