Morgunblaðið - 30.06.1991, Page 6

Morgunblaðið - 30.06.1991, Page 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JUNÍ 1991 Karl Magnússon slöðvarstjóri í vélasal rafstöðvarinnar í Elliðaárdal. Morgunbiaðið/KGA Rafstöðin við Elliðaár 70 ára: „Starfsemin hefur alla tíð miðast við lífríki árinnar“ - segir Karl Magnússon stöðvarsljóri FYRIR 70 árum, hinn 27. júní 1921, vígði Kristján konungur X rafstöðina við Elliðaár og hófst þá starfsemi Rafmagnsveitu Reykja- víkur. í tilefni afmælisins verða starfsemi Rafmagnsveitunnar við Elliðaár og Elliðaárdalurinn kynnt almenningi milli kl. 14 og 16 í dag. Seiðaeldishúsið, rafstöðin og minjasafnið verða opin og starfs- menn verða til leiðbeiningar. Að sögn Karls Magnússonar stöðvar- stjóra EUiðaárstöðvarinnar hefur stöðin gegnt sama hlutverki frá upphafi þó starfsemi hennar hafi minnkað í gegnum tíðina með tilkomu nýrra stöðva. 011 tæki og vélar í stöðinni eru upprunaleg. j^arl hefur verið stöðvarstjóri laginu. Til merkis um það má nefna Elliðaárstöðvarinnar í þrett- án ár en hann hóf störf sem vél- stjóri við stöðina árið 1951 og hef- ur starfað þar síðan að undanskild- um nokkrum árum. „Hlutverk stöðvarinnar er í grundvallaratriðum það sama og það var þegar hún var ræst árið 1921 en síðustu 25 til 30 árin hef- ur hún eingöngu framleitt rafmagn yfír vetrarmánuðina, þar sem ekki var þörf fyrir aflið úr stöðinni eftir að Sogið var fullvirkjað. Um leið hefur laxinn fengið meira svigrúm en hann hefur fengið vatnið úr ánni til umráða yfir sumarmánuð- ina,“ sagði Karl. Náttúruvernd hefur frá fyrstu tíð verið efst á blaði meðal starfs- manna við rafstöðina í Elliðaánum. „Starfsemin við Elliðaámar hefur alla tíð tekið mikið mið af Iífríkinu í ánni og svo var löngu áður en náttúruvernd varð vinsæl í þjóðfé- að á meðan stöðin var rekin sem aðalstöð fyrir Reykjavíkurborg og þurfti að vera í gangi allan sólar- hringinn alla daga ársins, þá var laxinn tekinn í kistu fyrir neðan stöðina og fluttur upp fyrir stífluna til þess að geta Iifað,“ sagði Karl. I gegnum tíðina hafa starfsmenn Elliðaárstöðvarinnar þurft að koma í veg fyrir að Elliðaámar yrðu ísi lagðar. „Það hefur verið bardagi við ísinn frá upphafí og er enn í dag. Aðferðimar við að leysa þetta vandamál hafa hins vegar breyst. Áður fyrr sprengdum við fram krapastflur með dínamíti en í seinni tíð höfum við notað gröfur, því nú er Elliðaárdalurinn nánast í mið- bænum. Aðalvandræðastaðurinn í ánni er beint á móti nýbyggðinni í Selásnum við Vatnsveitubrúna og sprengingar þar gerðu íbúunum í nágrenninu bylt við,“ sagði Karl. Að sögn Karls var stærsta við- haldsaðgerðin sem framkvæmd hefur verið á stöðinni gerð þegar þrýstivatnspípumj sem leiða vatn að stöðinni frá Árbæjarstíflu, var skipt út fyrir nýja. „Viðhald stöðv- arinnar á seinni ámm hefur hins vegar ekki einungis miðast við notagildi vélanna heldur er stöðin orðin forngripur og gullmoli í margra augum. Þess vegna hefur engu verið breytt og nútímabúnaði ekki hleypt inn fyiir dyr heldur hefur allt verið miðað við að halda stöðinni í upprunalegri mynd. Þetta markmið hefur tekist og gömlu vélarnar standa sig vel. Það má segja að þetta sé orðið Iifandi safn frekar en orkuver," sagði Karl. Að sögn Karis er fyrirhugað að nota stöðina eins lengi og hægt verður í þeirri mynd sem hún er í í dag. „Við getum framleitt þarna rúm 3 megavött af rafmagni. Til skamms tíma.hefur Rafmagnsveit- ao keypt allt sitt rafmagn af Lands- virkjun en framleiðsla Elliðaár- stöðvarinnar hefur gengið út á það að lækka toppinn yfir vetrarmán- uðina og því verður haldið áfram,“ sagði Karl. I tilefni afmælisins verður í dag dreift kynningarbæklingum í Ell- iðaárstöðinni um Rafmagnsveituna og Elliðaárdalinn en í honum er m.a. kort með gönguleiðum og ör- nefnum við Elliðaárnar. Evrópumótið í Killarney: Islensku spilararnir unnu taugastríðið gegn Hollendingum Brids GuðmundurSv. Hermannsson ÍSLENSKIR bridsáhugamenn geta glaðst yfir árangri islenska landsiðsins í brids, á Evrópumót- inu í Killarney á írlandi. Það hef- ur tryggt sér rétt til að keppa á heimsmeistaramótinu í brids, sem haldið verður í Yokohama í Japan í haust og verður þar í hópi 16 sterkustu landsliða heimsins. Það er mikið afrek að halda sér í hópi fjögurra efstu þjóðanna á Evrópumótinu nánast frá upphafi og sýnir að þessi árangur var enginn tilviljun. Það er nefnilega ótrúlegt álag á sál og líkama að spila tvo bridsleiki á dag, nær hvíldarlaust í 14 daga, þótt ekki bætist við álagið þegar góður árangur er í sjónmáli. Þess má raunar geta, að flestir spil- ararnir í efstu liðunum, utan því íslenska, eru nánast atvinnumenn í brids og ættu því að geta staðist þetta álag betur. Taugarnar léku stórt hlutverk þegar íslenska liðið spilaði við það hollenska, í 25. umferð mótsins. Þegar þessi lið mættust voru þau nær jöfn að stigum, og því ljóst að stór sigur myndi færa þeirri þjóð að minnsta kosti 4. sæti á mótinu, en fjögur efstu liðin fengu þátttökurétt í Japan. Eftir fyrri hálfleik áttu ís- lendingar 25 IMP-stig í forskot, en í þeim seinni fóru Hollendingarnir hreinlega á taugum, og ísland vann hálfleikinn 62-2. Þetta spil kom fyrir í seinni hálf- leiknum gegn Hollandi: N/AV Norður ♦ DG84 ¥ K842 ♦ - Vestur ♦ KG1063 Austur ♦ 3 *2 VÁ72 VG109 ♦ ÁKD854 ♦ G10762 ♦ 987 Suður ♦ ÁD52 ♦ ÁK109765 ¥D53 ♦ 93 ♦ 4 Við annað borðið sátu Aðalsteinn Jörgensen og Jón Baldursson NS og Broen og Mulder AV Vestur Norður Austur Suður Mulder AJ Broen JB 1 tígull pass 4 spaðar a.pass Slys helsta dánarorsök bama SUMARFRÍ eru hafin með tilheyrandi stússi, eins og bátsferðum, garðleikjum, matseld á grillum og öðru slíku. Fjöldi barna stund- ar einnig sumarstörf þar sem stórvirk vinnutæki eru notuð og hættur leynast víða. Sumar athafnir og kringumstæður eru þó hættulegri en aðrar og því sjálfsagt að leiða hugann að þeim og hvernig draga megi úr áhættum sem þeim fylgir. Sævar Halldórsson, yfirlæknir bamadeildar Landakotsspít- ala, kvaðst telja að slys væru al- gengasta dánarorsök bama hér á landi. Hann nefndi nokkur atriði sem hann hefur orðið var við á sínum vinnu- stað, hlutum sem bömum stafar hætta af: Umferð, lyf og efni sem innihalda eitur og skilin em eftir á glámbekk, óvarðir pott- ar og ker í görðum og vinnuvélar í sveitum. Hann sagði að lyfjanotkun færi sífellt vaxandi hér á landi. „Við sjáum í vaxandi mæli lyfjaeitranir hjá börnum, slíkum tilfellum hefur fjölgað með ári hveiju. Þar er aðeins eitt til bóta - að hafa lyfin í læstum skáp. Önnur efni sem börn komast í eru sterk þvotta- efni sem innihalda lút eða sýru. Stórslys hafa hlotist af efnum sem innihalda lút. Með því að innbyrða slík efni geta böm brennt í sér innyflin, eyðilagt í sér vélindað og barkakýlið. Þetta em hlutir sem em geymd- BAKSVIÐ eftir Gudjón Gubmundsson ir undir vaska- skápnum á flestum heimil- um og aldrei er nógsamlega brýnt fyrir fólki að fara í gegnum þá skápa með reglulegu millibili og kanna hvort þar séu einhver þau efni sem inni- halda lút. Lútur er í mjög mörgum þessara efna, jafnvel í þvottaefni fyrir uppþvottavélar," sagði Sæv- ar. Hann sagði að einnig bæri að varast að skilja sígarettur eftir þar sem böm ná til. Nái ungt barn að borða tvær til þijár síga- rettur getur það leitt til dauða. Sakleysisleg lyf eins og magnyl geta einnig -verið banvæn. „Af járntöflum getur hlotist einhver alversta eitmn sem hugsast get- ur. Öll storkuþétta getur horfið úr blóðinu og blæðingar hafist í munni og endaþarmi. Sjúklingur- inn fer í sjokk og getur blætt út.“ Sævar sagði að slys í heitum pottum hefðu orðið nokkur und- anfarin ár, og hefðu börn annað- hvort látist í slíkum slysum eða hlotið alvarlegar heilaskemmdir af súrefnisskorti. Aldrei nokkurn tíma ætti að skilja potta eftir óvarða. Sama ætti við um bílslysin, ef þau yrðu börnum ekki að fjörtjóni þá hlytust stundum alvarlegar heilaskemmdir í slíkum slysum. Hann telur að þau börn séu trygg- ust í bílum sem em í bílstólum en hins vegar líði ekki sá dagur að hann sjái ekki laus börn í bíl- um, í fram- eða aftursætum. Hannes Hafstein, framkvæmd- astjóri Slysavarnafélags íslands, sagði að það væri einkum þrennt sem yrði að athuga varðandi heita potta: í fyrsta lagi að missa ekki sjónar af bömunum. í annan stað væri það sú hæð sem pottamir stæðu upp úr jörðinni. Yfirleitt væri aðeins um lágan kant að ræða og auðvelt fyrir óvita að skríða ofan í pottinn. Hæðin á pottbarminum þyrfti að vera í það minnsta tvö fet frá jörðu þar sem böm em. í þriðja lagi þyrfti að hafa yfírbreiðslur tiltækar og af- dráttarlaust að byrgja potta þegar farið er frá. Þá nefndi Sævar slys sem ge- rast á hveijum degi, byltur og högg. Fall úr hvers konar leik- tækjum eða hjólum. Ekki sé al- gengt að innvortis meiðsl hljótist af þess háttar byltum, en þó komi það fyrir að milta eða lifur rifni. Hannes sagði að börn ættu undantekningarlaust að vera með hjálma á höfði þegar þau fara út að hjóla. Sama gilti um leik á hjólabrettum. Sævar kvaðst telja að eitthvað hefði dregið úr vinnuvélaslysum, enda væri það sín tilfinning að betur væri gengið frá slíkum vél- um nú en áður. SVFÍ stendur fyrir átaki um þessar mundir ásamt fleiri aðilum til varnar slysum í tengslum við notkun dráttarvéla. Átakið beinist einkum að endurnýjun og notkun á hlífum yfir drifsköft dráttarvéla. Tígulopnun Aðalsteins er býsna létt, en gafst vel. Jónfékk 11 slagi í 4 spöðum og 450 fyrir. í hinum saln- um sátu Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson AV og Westra og Leufkens NS. Og íslensku spilar- arnir voru í baráttuskapi. Vestur Noröur Austur Suður ÞJ Westra GPA Leufkens ' pass pass 4 spaðar dobl 5 spaðar dobl a.pass Dobl Þorláks var til úttektar og er nokkuð hressilegt á þessum hætt- um. Það átti líka eftir að hafa áhrif síðar í spilinu. Westra tók svo vafa- sama, og raunar taugaveiklunarlega ákvörðun þegar hann sagði 5 spaða í stað þess að bíða einn sagnhring og sjá hvernig mál þróuðust. Þorlákur spilaði út tígulás gegn 5 spöðum og Leufkens trompaði. Hann spilaði spaða á kóng og laufi á kóng- inn sem Guðmundur tók með ás og spilaði hjartagosa. Hann fékk að rúlla á kónginn, og Leufkens tromp- aði .nú lauf heim, trompaði tígul í borði, og spilaði þaðan laufagosa. Guðmundur setti lítið og Leufkens var á krossgötum. Loks ákvað hann að Þorlákur væri líklegri til að eiga drottninguna eftir úttektardoblið. Leufkens trompaði því spaðann, í þeirri von að fella drottninguna, en fór einn niður fyrir bragðið. 11 stig til íslands. Hér er svo annað spil, sem sýnir sagnbaráttu íslendinganna. í þetta sinn voru Finnar þolendurnir. S/NS Vestur ♦ Á ¥84 ♦ DG74 Norður ♦ G952 ¥ Á932 ♦ ÁK98 ♦ Á Austur ♦ D8 ¥ G10765 ♦ 632 „ Suður . — ♦ G109864 ♦ K107643 +D32 ¥ KD ♦ 105 ♦ K75 Við annað borðið sátu Jón og Aðalsteinn NS og viðruðu biðsagna- kerfið sitt. Vestur Norður Austur pass 3 lauf pass pass pass 2 lauf pass pass pass 3 hjörtu pass 4 lauf pass 6 spaðar a.pass Suður 1 spaði 2 tíglar 3 tíglar 3 spaðar 4 tíglar Aðalsteinn setti biðsagnavélina í gang með 2 laufum og innákoma vesturs hafði lítil áhrif. Jón sýndi 6-2-2-3 skiptingu og lágmarkshendi og Aðalsteinn stökk þá í slemmuna sem Jón vann með því að svína fyr- ir spaðadrottningu. 1430 til íslands. Við hitt borðið settu Guðmundur og Þorlákur Finnana út áf laginu. Vestur Norður Austur Suður 2 tíglar pass 2 grönd pass 3 grönd 4 lauf 4 tíglar 5 lauf dobl pass 5 tíglar? pass pass(?) S.uður valdi að opna á 2 tíglum og sagði svo frá 6-lit í spaða og 9-11 punktun með 3 gröndum. Þá ákvað Guðmundur Páll að stríða Finnunum með 4 laufum, sögn sem fæstum hefði dottið í hug að gefa. Og það dugði til að rugla Finnana alveg í ríminu. Það leit út fyrir að norður væri að segja frá löngum tígullit, og á endanum passaði suður niður 5 tígla, sem reyndist ekki ábatasamt. ♦ ♦ ♦- Stærð gíg- keilunnar í FRÉTT Morgunblaðsins í gær af fundi stærstu hraunhvelfingar heims á Bláfjallasvæðinu, misrit- uðust upplýsingar um stærð hvelfingarinnar. Hið rétta er að op í toppi gígkeil- unnar er 4x4 metrar, en þvermál í botni er 48x60-70 metrar, eftir því hvar mælt er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.