Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991
5
Vestfirðir:
11 þúsund lítrar af
gasolíu láku af tanki
ALLT að 11 þúsund lítrar af
gasolíu láku úr 50 þús. lítra tanki
fyrir varaaflsstöð Orkubús Vest-
fjarða í Syðri-Dal við Bolung-
arvík fyrr í vikunni. Tankurinn
hafði verið lagður á bera jörð
og seig með þeim afleiðingum
að leiðsla gaf sig og olían lak út
í gljúpan sand. Engin ummerki
mengunar munu sjást á staðnum,
en auk þess sem jarðvegur er
gljúpur er gasolía rokkennd.
Tankurinn er í eigu Olíufélagsins
Skeljungs, sem lét Orkubúinu
hann í té síðastliðið haust. Krist-
ján Haraldsson orkubússljóri
segir að frágangur tanksins hafi
ekki verið í samræmi við lög og
reglur og telur það á ábyrgð olíu-
félagsins. Kristinn Björnsson for-
stjóri Skeljungs hafnar því alfar-
ið að félagið beri ábyrgð á frá-
gangi tanksins.
„Við höfum staðið í þeirri trú að
þetta væri þeirra birgðastöð jafnvel
þó við greiddum olíuna sem í hann
færi,“ sagði Kristján Haraldsson.
Hann sagði að Skeljungur hefði
fyllt á tankinn eingöngu til afnota
fyrir orkubúið ef til þyrfti að taka.
„Þeir eiga tankinn og við höfum
1 ekki greitt fyrir afnot af honum,“
sagði hann.
Kristinn Björnsson forstjóri
Skeljungs segir að fyrirtækið hafi
> orðið við beiðni orkubúsins um að
lána tankinn. Gengið hafi verið út
frá því að orkubúið sæi um að frá-
gangur yrði í samræmi við lög. Auk
þess sé viðurkennt að starfsmönn-
um orkubúsins hafi láðst að skrúfa
fyrir krana sem tryggt hefði að olía
hefði ekki lekið úr tankinum við það
að leiðslan rofnaði. „Við lánuðum
Rarik á sínum tíma tank á Seyðis-
ijörð. Þeir byggðu þró, komu tank-
inum fyrir og lögðu í allan þann
kostnað sem þarf til að tankurinn
sé eins og lög og reglur segja til
um. Það er eðlilegt. Þeir hafa sjálf-
ir umsjón með tankinum og berá
ábyrgð á honum. Sama gilti þegar
við lánuðum Orkubúi Vestfjarða
tank við varaaflsstöðina í Bolung-
arvík. Við erum í góðu samstarfi
við þessa viðskiptavini okkar en við
sögðum aldrei að við ætluðum að
ganga frá tankinum og koma hon-
um fyrir. Ef þetta væri tankur sem
við ætluðum að sjá um hefðum .við
að sjálfsögðu gert það sem okkur
ber að gera eins og á öllum okkar
olíustöðvum," sagði Kristinn.
Hann sagði að félagið hefði lánað
íjöldann allan af tönkum á
bóndabæi og jafnvel á virkjunar-
staði á reginfjöllum og aldrei hefði
komið annað til tals en að umráða-
menn tankanna önnuðust og bæru
ábyrgð á frágangi þeirra.
Kristinn sagðist vænta þess að
eiga n'ánari viðræður um málið við
orkubússtjóra þegar rannsóknar-
skýrslur lægju fyrir. Lögregla
vestra vinnur að rannsókn málsins
og einnig sagði Kristján Haraldsson
að Orkubúið hefði farið þess á leit
við Siglingamálstofnun að gerð yrði
úttekt á olíutönkum orkubúsins við
alla þéttbýlisstaði á Vestfjörðum.
Sú úttekt er ekki hafin.
SPARIÐ BENSÍN
AKIÐ Á
GOODfYEAR
GOOD/YCAR
60 ÁR
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S 695560 & 674363
A ISLANDI
MILLIVEGUR TIL MALLORKA
Sumum finnst vika of stutt
• •
Oðrum finnst tvær vikur of langt
Þess vegna bjóða Samvinnuferðir-Landsýn nýjung í sólarferðum sumarsins:
10 og 11 daga ferðir til Cala d'Or:
2.-13. júlí (11 nætur) og 20.-30. júlí (10 nætur)*.
Verðið er ótrúlegt, eða fró:
33.535.- m.v. fjóra í íbúð 39.045.- m.v. tvo í íbúð*
*ER ÞETTA TÍMALENGD 0G TÍMASETNING, SEM HENTAR ÞÉR?!
**Staðgreiðsluverð. Barnaafslóttur 2ja-12 óra: 7.000.- kr.
Basel
Vegna forfalla
eigum við laus
sæti í flugi til
Basel 14., 21. oq
28. júlí.
Verð pr. mann
18.500.-
Landsýn
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 6910 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70
• Símbréf 91 - 2 77 96 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 39 80
Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Simbréf 96 - 2 75 88 • Telex 2195