Morgunblaðið - 30.06.1991, Side 17

Morgunblaðið - 30.06.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991 17 Hún var lítil, skítug og svöng. Fereal. að sprengjurnar hafa sprungið. Það hafa nokkrir farist en ekki mjög oft...“ Ég klifraði í snatri upp úr bátn- um. Kinkaði kolli.,, Það er satt. Við höfum áreiðanlega verið hepp- in í dag. Megir þú verða heppinn áfram, Assam.“ Ég leitaði upplýsinga um það hversu margir óbreyttir borgarar hefðu farist í loftárásum banda- manna. Eftir því sprengjumagni að dæma sem þeir sögðust hafa sullað yfir borgina var með ólíkind- um að ekki hefðu borgarar látið lífið. Ég bjóst ekki við neinum kórréttum tölum en mig rak í rog- astans þegar ekki voru nefnd nema tvö tilvik, Amriabyrgið, þar sem nokkur hundruð manns dóu og svo þegar sprengjur lentu á íbúðarhúsi sem stóð rétt hjá símstöð. Þar lét- ust sjö manns. _En fleiri virtust þeir ekki vera. Ég hallast að því að þetta sé nærri lagi þó ótrúlegt sé. Einn daginn stakk Saad upp á að við hittum Fereal Abrahim. Hún missti tuttugu úr fjölskyldu sinni, bræður, frænkur og frændur og mágkonur í árásinni á byrgið. Hún býr í litlu húsi og fábrotnu, það var eins steikjandi heitt inni og úti því í þessum hluta var aðeins rafmagn þrjá tíma síðdegis. Hún tók á móti mér svartklædd, lágvær og fálát. Ég hafði á tilfinningunni að blaðamenn væru oft leiddir á hennar fund. Hún sagði að ástæðan fyrir að fjölskylda hennar var í Amriabyrg- inu þetta kvöld var að það var fjöl- skylduveisla. Sjálf var hún lasin og hélt sig heima. Þegar loftvarn- armerki voru gefin þusti veislufólk- ið í Amria og varð ekki af frekari gleði þá né síðar, sagði hún. Dótt- ir hennar 12 ára fór ekki í skóla í nokkrar vikur en síðan vopnahléð var hefur verið unnið í skólunum af miklu kappi sem annars staðar og um 90 prósent nemenda luku sínum prófum. Maðurinn hennar vinnur hjá hinu opinbera og hann fór til vinnu á hveijum degi. „Lífið varð að halda áfram,“ sagði hún. Bætti við: „Bandaríkjamenn vissu um öll hernaðarleg skotmörk. Því getur árásin á byrgið ekki verið tilviljun. Þeir þekktu Bagdad betur en við_ sem höfum búið hér alla ævi. Árásin var af grimmd og hatri. Það vissu margir að forsetinn kæmi síðar um kvöldið. Hann fór í byrgin á nóttunni og hughreysti fólk ... Bandaríkjamenn sleppa alltaf. Komast upp með allt. Nú síðast að drepa Rajiv Gandhi. „Þú segir mér fréttir," sagði ég. „Gandhi neitaði Bandaríkja- mönnum um að fá að setja bensín á vélar á indverskum flugvöllum ef þær voru að fara til árása á Irak. Ég hef bæði heyrt það í út- varpi og lesið um það í blöðunum. Og þá var að hefna sín á honum. Þetta er svo dæmigert fyrir Banda- ríkjamenn. Framtiðin?“ Hún fuss- aði. „Hvað ætli ég sjái í framtíð- inni ef ekki verður réttlæti í heim- inum. Ég er vondauf og öllum líð- ur illa. Og svo ungu mennirnir okkar sem fórnuðu lífinu þegar við stóðum ein gegn heijum þrjátíu þjóða.“ „Já, en það var nú þetta með Kúveit...“ sagði ég. „Kúveit og Kúveit. Við ætluðum að fara frá Kúveit. Það vissu það allir og Bush vissi það líka en hann þurfti að prófa fínu vopnin sín. Eitthvað varð hann að gera fyi/st hann gat ekki haldið uppi kald- astríðinu lengur. Hvað mér finnst um forsetann okkar. Hann er sam- einingartákn okkar en það eru margir á móti honum. En þeir sem eru á móti honum vita ekki betur hvernig þeir eiga að stjórna. Og enginn vill ófrið. Nema kannski Bush. Venjulegu manneskjumar, ég og þú, við viljum ekki stríð. En fáum við nokkurn tíma að ráða. Þó eru það við sem þjáumst. Við sem deyjum. Ekki Bush.“ Við fljúgum með glæsilegri þotu Atlantsflugs, Boeing 727-200 Nú einnig föstudagsflug Góðar fréttir fyrir þá mörgu sem ekki hafa getað fengið far með okkar ódýra flugi til Kaupmannahafnar á miðvikudögum, sem eru fullbókuð fram í septemberlok. Föstudagsflugin okkar til Kaupmannahafnar. Brottför frá Keflavík kl. 08:00 ogfrá Kaupmannahöfn kl. 14:00. Farþegaafgreiðsla á Kastrupflugvelli í góðum höndum hjá SAS auk íslensks fulltrúa okkar á flugvellinum. Sama lága verðið: 1 vika kr. 1 7.400 2 vikur kr. 17.900 3 vikur kr. 18.900 Þið getið valið um hótel og bílaleigur á afsláttarverðum okkar. Sumarhús á Sjálandi og framhaldsferðir með dönskum ferðaskrifstofum. KR, 14,700 HEATHROW Terminal 4 KLM B ROTTFARARDAGAR: 1.-8.MAÍ-2S. SEPT VERÐ: 1 VIKAKR. 14.700 2VIKUR KR. 15.800 3 VIKURKR. 16.900 MAÍ 15. 22. 29. JÚNÍ 5.12.19. 26. JÚLÍ3.10.17. 24. 31. ÁGÚST 7.14.21.28. SEPT.4.11.18. VERÐ: 1 VIKAKR. 16.900 2VIKUR KR. 17.700 3VIKUR KR. 18.800 ullbókað er marga brottfarardaga og fá sæti laus flesta hina. Þið getið valið um hótel og bílaleigur á afsláttarverðum okkar. Kastalahótel, fbúðir og sumarhús á ensku Rivierunni við Torquayflóann. Ferðir með enskum ferðaskrifstofum og framhaldsferðir í allar áttir hjá þjónustuskrifstofu okkar skammt frá Harrods í London. FLUGFEROIR 5DLRRFLUG Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331 öll verð eru staðgreiðsluverð miðað við gengi 1. feb. flugvallagjöld og forfallatrygging ekki innifalin f verðum. nil bl Metsölubku ) á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.