Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.06.1991, Qupperneq 24
Stríðshetjum fagnað í pappírssnjókomu. SIGURHÁTÍÐ SÆL OG BLÍÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991 Trilljónfalt húrra fyrir stríðshetjunum eftir Hannes Sigurðsson Ég mætti að sjálfsögðu á staðinn. Síðan égþrammaði einhvern tíma í fyrndinni með skátunum niður Laugaveginn á 17. júní hef ég alltaf verið dálítið veikur fyrir hverskonar skrúðgöngum. Haldinn þessari andiegu þráhyggju gat ég engan veginn stillt mig um að horfa á eina af mestu og skrautlegustu skrúðgöngum allra tíma, „Hernaðaráætlun velkomin heim“, sem fram fór á Manhattan sl. mánudagtil að fagna fijálsræðishetjunum góðu fyrir frækna frammistöðu á fremstu víglínu og hressa enn frekar upp á sjálfsímynd bandarisku þjóðarinnar. Samkvæmt stærsta dagblaði borgarinnar, The New York Times, tóku 24 þúsund hermenn, lúðrasveitir, skrautflokkar og heið- ursverðir þátt í þessari skrúðgöngu. Marsérað var upp Broadway frá Battery-garðinum að Worth-stræti (svokallað „Hetjugljúfur") með stríð- stólum ogóteljandi fánum. Tíu þús- und pundum af sneplum og sex þús- und tonnum af bréfborðum var sturt- að yfir alla dýrðina úr nærliggjandi skýjakljúfum. Yfir sjö þúsund lög- regluþjónar vöktuðu svæðið, en áæilað er að áhorfendaíjöldinn hafi verið um 4,7 milljónir, sem er nýtt met í sögu borgarinnar. Varnar- málaráðherrann Dick Cheney og hershöfðingjarnir Norman Schwarz- kopf og Colin L. Powell mættu til leiks ásamt u.þ.b. þijú þúsund hátt- settum þjóðfélagsþegnum. Kostnað- urinn við skrautsýninguna nemur 5,2 milljónum Bandaríkjadala. Það er eitt að lesa svona tölur á pappír og annað að vera umkringdur þeim í raunveruleikanum, ef þannig má segja. Magnað! Gjörsamlega yfir- þyrmandi, líkt og að vera viðstaddur hveija einustu skrúðfylkingu sem haldin hefur verið á íslandi frá stofn- un lýðveldisins — á sama tíma! „Heilu regnskógarnir“ af pappír komu svífandi niður á götuna og minn auma haus og liðið var svo hástemmt af hrifningu og upphróp- unum að mér féll eiginlega allur ketill í eld. Þar sem ég „stóð“ örfáa sentimetra fyrir ofan gangstéttina, „sundurkraminn" af fánaóðum þjóð- ernissinnum kiijandi „USA - USA - USA,“ tók ég að pirrast smávegis út í mannfjöldann og ekki síst sjálf- an mig fyrir að hafa álpast hingað niður eftir, en það er einmitt á stund- um sem þessum sem litli þjóðfélags- gagnrýnirinn espast dálítið upp í mér. Fullyrðingar, byggðar á miklum einföldunum, eru ávallt var- hugaverðar, en ég leyfi mér samt sem áður að slá því fram að íslend- ingar hafa yfirleitf mikla andstyggð á öllu sem flokka má undir hernaðar- brölt, ofbeldi, öfgar og væmni. Satt að segja er það mér fullkomlega óskiljanlegt hvernigjafn stórbrotin þjóð og Bandaríkin virðist nánast öll eins og hún leggur sig, frá toppi til táar, vera með sömu lausu tilfinn- ingaskrúfurnar. Meira að segja for- setinn var svo hrærður þegar hann minntist á dyggðir hersins á trúars- amkundu fyrir örfáum dögum að hann missti röddina um stund. Hvernig hegðar þá almúginn sér þegar hann skrúfar rækilega frá tárakirtlunum oggefur tilfinningum sínum og þjóðarstolti lausan taum- inn? Það er víst áb'yggilegt að hér var um enga 17. júní skrúðgöngu að ræða, hvorki hvað varðar inni- hald, útlit eða tilefni. Næstum hver einasti kjaftur var vopnaður amer- íska fánanum og vel flestir voru útplástraðir einhveijum slepjulegum slagorðum í formi barmmerkja og stuttermabola: „Ég elska Ameríku", „Við styðjum ykkur“, „Ég er stoltur að vera Bandaríkjamaður", „Þeir börðust hart“ (mynd af Cheney og Powell með Frelsisstyttuna í miðið, en úr kyndlinum blakta gulir dregl- ar) og „Þið eruð hetjurnar okkar“, að ógleymdu „Guð blessi Bandarík- in“. Fyrirþá sem vildu forðast of mikla velgju: „Gefum þeim (írökum) spark í rassinn" og „í rass og rófu með írak“. Og um sjálfan Saddam Hussein voru fjölmargar litríkar níð- útgáfur, en sú vinsælasta greinilega: „Eftirlýstur: Dauður, ekki lifandi.“ Háttalag áhorfendanna var allt hið skrílslegasta og sýndist mér mann- hafið að miklu leyti samanstanda af svipuðu liði og hipparnir forðuð- ust á sínum velmektarárum eins og heitan eldinn vegna þess að þeim fannst svona fólk bera með sér ódaun uppgjafar og borgaralegrar meðalmennsku. Til að kóróna við- burðinn skrifuðu orrustuþotur trekk í trekk „Frelsi" í skýin eins og ein- hverjar fljúgandi ijómasprautur, aldrei færri en átta á lofti í senn; skreyting sem vart var viðbætandi ofaná þessa dísætu glassúrköku. Handan götunnar, út óræðri átt, bárust slitrótt ræðuhöld frá háttsett- um herrum: „Colin Powell hershöfð- ingi ... skínandi tákn þess hvað það þýðir að vera Bandaríkjamað- ur... í Persaflóanum ... sannaði að við snerum ekki aftur höfði. Við litum fram á veg . .. veröld sem • byggð er á virðingu fyrir lögum og mannréttindum. Við erum verndarar hinna alþjóðlegu laga . . . bárum skjöld fyrir almenn mannréttindi... Okkar menn börðpst hart og vel... aldrei betur en nú á þessum þrauta- tímum ... reiðubúnir að færa hina miklu fórn . ..“ Kannski var ég með óráði, enda yfir þijátíu stiga hiti; kannski var enginn ræðuflutningur í nágrenninu, bara suðið í eyrunum á mér, sem kallaði fram í kollinum svipaðar predikanir og ég hafði svo margoft heyrt áður í sjónvarpinu og lesið í blöðum ogtímaritum. Og ekki bara margtuggðum fréttaflutn- ingi fjölmiðlanna, eða „heimildar- kvikmyndum“ er sýna niðursoðnar atvikasamblöndur þar sem „fjölda- morð“ eru leyst upp í heillandi „flug- eldasýningar" og endurfundir tár- fellandi ijölskyldumeðlima. Kvikmynda- og dægurlaga- stjörnur, stórar jafnt sem smáar, hafa gert sér mat úr stemmn- ingunni og reynt að draga að sér aukna athygli. Yfir eitt hundrað list- amenn sungu í laginu „Voices That Care“, sem samið var til að veita hermönnunum móralska stuðning. Aðrir fóru í sólótúra út í eyðimörk- ina á eigin vegum eða kostnað ríkis- ins, eins og leikarinn Robin Williams og söngkonan Whitney Houston. í tilefni hermannavísitasíu Whitneys var gefið út hátíðarmyndbandið „Welcome Home Heroes with Whit- ney Houston", þar sem brugðið er upp ýmsum hápunktum heimsóknar- innar í bland með brotum úr vinsæl- ustu lögunum hennar; Whitney stíg- ur upp í þotu; Whitney á flugvéla- móðurskipi; Whitney í stjórnklefa skoðandi tölvubúnað sjóhersins; Whitney syngur fyrir hermennina; Whitney gefur særðum landgöngu- liðum eiginhandaráritun, og Whitney duflar á fornfálegan hátt við sjóliða í fremstu áhorfendaröð, sem minnir á myndræmur af Marlene Dietrich í síðari heimsstyijöldinni. Það eru ekki einvörðungu arftak- ar Dietrich og Bob Hopes, þessa leið- inda „karlrembufrethólks", sem tróðu fram í skjoli sprengjuárás- anna. Þjóðarleiðtogarnir nutu geysi- mikilla vinsælda og eru þegar orðnir fullsjóaðir í skemmtanaiðnaðinum. Powell hershöfðingi strendur í ströngu þessa dagana, var að klippa á hátíðarborða og messar í anda „ameríska draumsins" yfir hausa- mótunum á blökkumannabörnunum í Bronx-hverfinu í New York, þar sem hann er sjálfur borinn og barn- fæddur. Klikkirút: „Sko, sjáið mig!“ Schwartzkopf hefur bætt um betur og skemmdir landsmönnum með þvílíkum eindæmum að sumir hafa getið hans sem hugsanlegs forseta- frambjóðanda, á meðan aðrir telja að best sé fyrir hann að halda sig áfram á „Madonnu-línunni“. Tíma- ritin People, Newsweek og Life hafa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.