Morgunblaðið - 30.06.1991, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRt I I jJJVI xSUXNUDAGUK 30. JÚNÍ 1991
VEIÐISKAPUR
'fftUG I
“BDJL
—. ■ _.-t_ ■ ■
Saga er með fjölbreytt úrval
bílaleigubíla víðs vegar um heim.
Einnig bjóðum við gott úrval
íbúða og sumarhúsa víðs vegar
um Evrópu.
Lúxemborg frá kr. 26.500,-
fimmtud. og föstud. - 2 vikur, flokkur A
Daun Eiffel og Biersdorff
Draumastaðir fjölskyldunnar.
Winterberg og Weingartner
Gisting í sérflokki
Kaupmannahöfn frá kr. 36.100,-
Föstudagar- 2 vikur, flokkur A
Amsterdam frá kr. 26.300,-
Mánud. og þriðjud. - 2 vikur, flokkur A
Við bjóðum einnig mjög gott úrval
fyrsta flokks íbúðargistingar á
Frönsku Rivierunni
- staðir í sérflokki.
Á Ítalíu erum við með gistingu við
Gardavatnið og í Bibione.
Bandaríkin
Verð á bíl í viku með kaskói og
ótakmörkuðum akstri.
Orlando Baltimore
X-Geometro 8.700,- 14.500,-
Z-Cavalier 10.200,- -
'C-Buick Skylark 11.600,- 16.000,-
V-Mini van 17.500,- 22.600,-
Staðgreiðsluverð á gengi 26.6.'91
Miðað er við 4 saman í bíl
Kjartan og frú Hrefna með laxinn (g)óða.
Morgunblaðið/gg
Fótbrotinn rak flóttann
hækjulaus
LAXVEIÐIMÖNNUM er yfirleitt ekki fysjað saman og þeir kalla
ekki allt ömmu sína ef því er að skipta. Kjartan Sveinsson ark-
ítekt er þar engin undantekning og skal nú greint frá því hvernig
á því stendur.
annig er mál vexti, að hann
var að veiða í Norðurá í
Borgarfírði fyrr í þessum
mánuði. Norðurá er erfið á, hún
er stórgrýtt og vatnsmikil og víð-
ast er um bratta skógarstíga að
far meðfram henni. Á öðrum degi
varð Kjartan fyrir því óláni að
fótbrotna við ána, en hann var
þá staddur við Myrkhyl, sem er
reyndar ekki langt frá veiðihús-
inu, aftur á móti er upp langa og
snarbratta götu að fara. Kjartan
lét sig hafa það að ganga þetta,
en eiginkona hans Hrefna Kristj-
ánsdóttir gerði hvað í hennar valdi
stóð til að hjálpa bónda sínum sem
arkaði-þetta all verulega kvalinn.
Nema hvað Kjartan þurfti auðvit-
að að leita læknis og þriðji veiði-
dagurinn í Norðuránni fór fyrir
lítið.
Nú er ekki öll sagan sögð. Kjart-
an kom frá lækni með vinstri fót-
inn í gifsi. Nú voru góð ráð dýr,
veiði fram undan í Laxá í Kjós.
Hvað var til ráða? Jú, það var
aðeins eitt til ráða, að sjálfsögðu:
Að sníða laxaplastpoka utan um
gifsið og halda rakleiðis í Kjósina,
skröltandi á tveimur hækjum.
Láta það svo bara ráðast hvernig
til tækist. Nú hamlaði búnaðurinn
Kjartani nokkuð á sumum stöð-
um, en annars staðar gat hann
drattast fram á bakka og kastað
sinni flugu. Þetta virtist get
agengið, nema þá helst ef hann
tæki upp á þeim óskunda að setja
í lax. Sem hann auðvitað gerði
og hafði þá auðvitað lagt hækj-
urnar frá sér augnablik og hallað
sér upp að kletti.
Þetta var í veiðistað sem heitir
Klingenberg og við skulum nú
gefa Kjartani sjálfum orðið. „Ég
var með fluguna hans Ásgeirs
Heiðars, Nóruna, og það greip
hana allt í einu lax. Hann var
ekki stór, svona 7 til 8 pund, en
alveg gjörsamlega stjörnuvitlaus.
Hann freyddi allan vatnsflötinn
og tók svo strikið niður úr. Ég
fékk ekki svigrúm til að grípa í
hækjur mínar og mátti fara af
stað á eftir laxinum, hoppandi á
einum fæti. Hrefna kom hlaup-
andi mér til halds og trausts og
studdi mig hluta leiðarinnar, en
þetta var mikil roka, því við náð-
um ekki laxinum fyrr en rétt fyr-
ir ofan Laxfoss. Þetta var ótrúlegt
og gaman að þessu, en ég get
varla mælt með því að menn séu
á laxveiðum slasaðir í svona bún-
aði.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
veitir árlega sérstaka viðurkenn-
ingu til þess veiðimanns sem þyk-
ir hafa skarað fram úr öðrum með
þeim hætti að bjóða veikindum
og/eða meiðslum byrgin og halda
á vit.vatnanna þótt þeir séu vart
í ástandi til þess. Nefnist viður-
kenningin „Footloose-flugan“.
Það er hér með bent á Kjartan
sem kandídat...
FERDASKRIFSTOFAN
Suöurgótu 7
S. 624040
FLUGLEIDIR
DANS
Islenskir
Englands-
meistarar
Á MYNDINNI er Englands-
meistarinn í Suður Ameríksum
samkvæmisdönsum i atvinnu-
mannaflokki. Englandsmeist-
arinn heitir Jóhann Örn Ólafs-
son og er eins og nafnið gefur
til kynna Islendingur. Um 20
keppendur frá Dansskóla Sig-
urðar voru meðal þátttakenda
í mótinu sem haldið var í Ips-
wich í Englandi í byijun júní.
Jóhann Örn var ekki einn um
afrekin, Þröstur Jóhannesson
sigraði í áhugamannadeildinni
að enskum valsi og telst því
ekki síður Englandsmeistari í
þeirri grein.