Morgunblaðið - 30.06.1991, Síða 39

Morgunblaðið - 30.06.1991, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ) JflJCFl fligÁjanupgoM SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1991 HÁRSKURÐUR Þar hefur verið rakað og klippt í 90 ár Svohljóðandi auglýsing birtist í blaðinu ísafold, hér í Reykjavík 19. mai árið 1901, tilkynning um að fyrsta rakarastofan í höfuð- stað landsins var tekin til starfa: „íslenskur hárskerari, Arni Nikulásson klippir og rakar heinma hjá sér í Pósthússtræti nr. 14.2 til 4 síðdegis á miðvikudöguin og laugardöguin, eftir klukk- an 7 síðdegis á hveijum degi og ávalt á sunnudögum.“ Enn í dag, er 90 ár eru liðin frá því að Árni tók til starfa em fyrsti rakarinn í Reykjavík, er starfrækt rakarastofa í sömu liúsakynnum, í hús- inu Kirkjutorg 6, á bak við Dómkirkjuna. Arni Nikk, eins og hann var jafnan kallaður af samborg- urum sínum í Reykjavík, starfaði óslitið við hárskeraiðnina í stof- unni sinni til ársins 1926, en það ár féll hann frá. Óskar sonur hans tók þá við og hlaut stofan þá nafnið Rakarstofa Óskars Árna- sonar. Þriðja kynslóðin í þessari rakaraætt kom til starfa með föð- ur sínum á rakarastofunni, bræð- urnir Friðþjófur og Haukur Óskarssynir. Haukur tók við stof- unni árið 1957 við fráfall föður síns. Breyttist nafnið þá enn, að þessu sinni í „Snyrtistofa Hauks Óskarssonar". Árið 1962 kom til starfa með Hauki ungur rakari, Guðlaugur Jónsson. Hann hafði numið iðnina hér heima, en fór í framhaldsnám til Parísar og Kaupmannahafnar. Guðlaugur tók við rekstrinum árið 1984, en Haukur féll frá árið 1989. Síðan Guðlaugur tók við rekstrinum heitir stofan einfald- lega „Snyrtistofan“. •>. Guðlaugur og fyrirrennarar Morgunblaðið/Sverrir Kúnni í stólnum, en Guðlaugur haltar sér upp að 90 ára gam- alli marmaraplötunni. hans hafa reynt að viðhalda uppr- unalegu stemmingunni eins og hægt er. Þannig er enn þann dag í dag hvít marmaraplata á vinnu- borðinu undir speglinum og til hliðar stendur virðulegur gamall rauðbrúnn Nationai peningakassi. Bæði platan og kassinn hafa fylgt stofunni alla tíð, eða frá því að Árni Nikk opnaði stofuna fyrir 90 árum. Ragnar Bjarnason sýnir gestum hvern- ig nota má Karaoke- söngkerfið með góð- um árangri. NÆTURLÍFIÐ Breytt o g betra Danshús Danshúsið í Glæsibæ heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt um þessar mundir og af því tilefni var efnt til afmælishófs eitt föstudagskvöldið ekki alls fyrir löngu. Um leið voru kynntar ýmsar breytingar sem gerðar hafa verið á sal- arkynnum og tækjabúnaði veitingahússins. Dansgólfið hefur verið stækkað og sviðinu breytt þannig að allir þeir 400 gest- ir, sem húsið rúmar, sjá nú betur en áður það sem þar fer fram. Þá hefur börum verið breytt, gamlir hafa horfið og nýir komið í þeirra stað. Nýtt og fullkomið hljóðkerfi hefur verið sett upp, og að sögn forsvars- manna Danshússins, feðg- anna Halldórs Júlíussonar og Magnúsar Halldórssonar, miðast breytingarnar að því að koma til móts við auknar kröfur nútímans varðandi veitingarekstur. Ein af þeim nýjungum sem bryddað hefur verið upp á í Danshúsinu er að þar hefur verið sett upp svokall- að Karaoke-söngkerfi, sem er eins konar hljómsveitar- undirleikur án söngvara, því undirleikur er spilaður í upp- haflegri útsetningu af geisladiski og geta gestir því troðið upp og sungið, við besta fáanlegan undirleik og er hægt að velja milli 1.200 mismunandi laga. Menn þurfa engan sérstakan und- irbúning annan en þann að þekkja lagið því textann er hægt að lesa samtímis af þar til gerðum skjá. Er ekki að efa að Karaoke-kerfið verður vinsælt, ekki síst í lokuðum samkvæmum, svo sem árshátíðum, þar sem uppákomur af þessu tagi jafnast á við bestu skemmti- atriði. I afmælishófinu gáfu söngvarar húshljómsveit.ar- innar sýnishorn af því hvernig nota má Karaoke- kerfið og auk þess kom Jó- hannes Kristjánsson eftir- herma í heimsókn og hafði í frammi gamanmál eins og honum einum er lagið. A eftir lék hlómsveitin Smeilir, ásamt söngvaranum Ragn- ari Bjarnasyni, fyrir dansi fram á nótt og mátti þar heyra margar þekktar perl- ur frá löngum og litríkum ferli Ragnars á dægurtón- listarsviðinu. Feðgarnir Magnús Halldórsson, framkvæmdastjóri Danshússins, og Halldór Júlíusson veitinga- maður, við einn af nýju börunum. Sigurður Hákonarson, eig- andi dansskólans, sem er fyrir hópnum ytra sagði í samtali við Morgunblaðið að keppni þessi væri árlegur viðburður, haldin af breska danskennarasambandinu og því væru kröfurnar miklar. Islenskir keppendur hefðu oft tekið þátt í mótinu, en aldrei náð líkt því svona langt fyrr en nú. Hópurinn verður áfram í Englandi fram eftir sumri við dansnám og keppni. Jóhann Örn Ólafsson; með glæsilegan verðlauna- grip. Við hlið hans er Teressa Jay. SKOR MEÐ FRONSKUM RENNILAS STÆRÐIR: 22-30 VERD: 1.990 kr. LITIR: BLÁTT,GRÆNT 0G BLEIKT . . . aisKiimunmvim “ LAUGAVEGI 95 LÉTTIR 0G SKÓR Á ALLA FJÖLSKYIDUNA... BÍL 39 KARLAR Blessuð sólin elskar allt,.. meiraaðsegja karlrembur! Stundum er gaman að vera kvenremba og stundum er það ógurlega leiðinlegt. Eins og núna þegar ég „á“ að skrifa kvenrembupistil en er ekki í skapi til þess. Hvernig getur maður líka verið að æsa sig upp yfir t.d. ójafn- rétti, launamis- mun, klámi og kúgun í þesu líka dásamlega júniveðri? Hver nennir að lesa pistil um misvit- urleg fjárútlát ráðamanna úr ríkissjóði og milljarða gjaldþrot sem þjóðin þarf að borga þegar miðnætursólin baðar himininn? Nei, nú er veðrið til að fara ræki- lega á hausinn. Það er enginn í skapi til að gera neitt sérstakt „veður“ út af því. Og hvort við erum nú á þess- um sólskinsdögum að gerast aðilar að Evrópsku efnahags- bandalagi, íslenskir sumarbú- staðaeigendur á Laugarvatni að eignast þýska nágranna. Spán- verjar og Portúgalir fá hluta af síminnkandi aflakvóta hér við land er ekki áhugavert umræðu- efni í grillveislum vina og granna á þessum björtu og fögru kvöldum. Vaxtahækkanir og verðbólga standast ekki lengi samanburð við hvað „landinn“ er kominn með mikinn lit. Sko, allar freknurnar og förin eftir hlýra og strengi! Umræða um hvort til séu næg veð fyrir 500 milljóna króna láni úr Byggða- sjóði til rækjuvinnslunnar í landinu hljóðna í dægurmála- viðtölum við karla sem finnst það „synd“ hve bcrbrjósta kven- sóldýrkendum hefur fækkað í sundlaugunum. Nei, það liggur bara svo rosa- lega vel á öllum í þessu góða veðri að meira að segja yfirlýstar kvenrembur „bregðast" bros- andi við áreitni frá æstum varð- mönnum karlaveldisins. Við vorum stödd á einu dans- húsi borgarinnar með skyldfólki bóndans. Að borðinu kemur kunningi fjölskyldunnar og fer eitthvað að hvisla að bónda mínum. Ég heyri síðan bónda minn segja hátt og snjallt: „Segðu henni það bara sjállúr!" Kunninginn var ekki alveg á því svo bóndinn kemur með hann með sér til mín og segir: „Þess- um manni finnst pistlarnir þínir í Morgunblaðinu leiðinlegir og er hættur að lesa þá. Ég sagði honum bara að segja þér það sjálfur." Það getur verið ímynd- un í mér en mér fannst eins og bóndi minn væri ekkert sérstak- lega bugaður í röddinni þegar hann flutti þessa yfirlýsingu, þ.e.a.s. fyrir hönd skjólstæð- ingsins! Þarna stóð kunninginn nú fyrir framan mig, maður áV' miðjum aldri, þéttur á velli, hvergi banginn og beið eftir við- brögðum kvenrembunnar. „Jæja,“ sagði ég fremur glað- beitt, „svo þér finnast pistlarnir mínir svona leiðinlegir!" „Já,“ sagði kunninginn og virtist enn bara nokkuð góður með sig. „Hann treystir örugg- lega á einhverja stuðningsmenn i salnum," hugsaði ég. Á augna- bliki breyttist ég i Frú Rögnu Reykás og ég heyri mig segja: „Elsku vinur, mikið er ég glöð að heyra það. Veistu, um leið og þér fara að lika pistlarnir mínir er ég búin að vera - þá get ég hætt að skrifa!" Kunningj- anum líkaði hins vegar ekki þetta svar. Hann varð greinilega fyrir miklum vonbrigðum og vildi endilega ræða þetta betur! ' Enda þótt krosstré bregðist sem önnur tré þá vita lesendur að þessi veðurblíða endist ekki fram á vetur! eftir Helgu Thorberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.