Morgunblaðið - 10.07.1991, Síða 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
153. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1991________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
FlóðíKína
Gífurleg flóð eru í Austur-Kína, allt frá Mansjúríu í norðri til Búrma í suðri, enda hafa verið þar stórrign-
ingar uppstyttulaust í heilan mánuð. Hafa tugþúsundir manna misst heimili sín og tala látinna nálgast
þúsundið. Þessi mynd var tekin í gær af vegfarendum í borginni Changzhou.
EB-áætlim um sam-
drátt í landbúnaði
Strasborg. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins hefur samþykkt nýja
áætlun um niðurskurð í landbúnaði og minni niðurgreiðslur. Er
meðal annars fyrirhugað að lækka verðiðj sem bændur fá fyrir korn-
ið, um þriðjung og smjörverðið um 15% I samþykkt Cairns-hópsins,
samtaka 14 landbúnaðarríkja, eru niðurgreiðslur Bandaríkjanna og
Evrópubandalagsins kallaðar „efnahagslegur vandalismi".
Róttækasti kafli áætlunarinnar
er um kornræktina en á næstu
þremur árum á að lækka verðið,
sem bændur fá fyrir hvert korn-
tonn, niður í 7.100 ísl. kr. en það
er 35% minna en nú ér greitt fyrir
kornið að jafnaði. Þá verður öllum
kornbændum, nema á smæstu bú-
unum, gert að taka úr ræktun 15%
landsins. Það verður þó bætt þeim
með beinum greiðslum nema jörðin
sé stærri en 50 hektarar. Meðaljörð-
in innan EB er 14 hektarar.
Mjólkurkvóta EB-bænda á að
minnka um 4% og nautakjöts- og
smjörverð til bænda á að lækka um
15% og verðið fyrir undanrennuna
um 5%.
Cairns-hópurinn, 14 ríki, sem
beijast fyrir óbrengluðum viðskipt-
um; með landbúnaðarvörur, hefur
verið á fundi í borginni Manaus í
Brazilíu og í ályktun frá honum er
farið hörðum orðum um niður-
greiðslufárið í Bandaríkjunum og
Evrópubandalaginu. Sagði Antonio
Cabrera, landbúnaðarráðherra
Brazilíu, að óréttlát samkeppni af
hálfu ríkra þjóða kæmi í veg fyrir,
að bændur í fátækum löndum gætu
fjárfest í tækjum og bætt ræktunar-
aðferðirnar. Það ylli því aftur, að
landið væri þrautpínt og í kjölfarið
sigldi svo uppblástur og jarðvegs-
eyðing.
Bretland:
Fækkað í her-
afla um 20%
London. Reuter.
Júgóslavía:
Serbar og Króatar berjast
þrátt fyrir friðarsamning
Búist við, að slóvenska þingið samþykki samninginn í dag
Belgrad, Ljuhljana, Zagreb, London. Reuter.
BARDAGAR brutust út í gær á
landamærum júgóslavnesku lýð-
veldanna Serbíu og Króatíu og
var að minnsta kosti vitað um
einn mann látinn og nokkra
særða. 10 embættismenn frá Evr-
ópubandalaginu eru komnir til
Júgóslavíu til að fylgjast með
framkvæmd friðaráætlunarinn-
ar, sem leiðtogar lýðveldanna
samþykktu fyrir milligöngu EB.
Þótt forseti slóvenska þingsins
hafi líkt áætluninni við uppgjöf
virðast flestir þingmenn og slóv-
enskur almenningur telja rétt að
samþykkja hana.
Hermenn úr júgóslavneska sam-
bandshernum börðust í gær við
króatíska þjóðvarðliða með skrið-
drekum og stórskotaliðsvopnum og
Bandaríkin:
Refsiaðgerðum gegn
Suður-Afríku aflétt
Washington. Reuter.
Bandaríkj astj órn mun tilkynna í dag að hún ætli að aflétta efna-
hagslegum refsiaðgerðum gegn Suður-Afríku að hluta til. Var það
haft eftir háttsettum embættismönnum.
George Bush Bandaríkjaforseti
ætlar að aflétta refsiaðgerðum sem
verið hafa í gildi frá 1986 vegna
þessa að öll fimm skilyrðin sem
sett voru til að fá þeim aflétt hafa
verið uppfyilt. Aðrar refsiaðgerðir
sem voru ekki bundnar sömu skil-
yrðum munu þó halda áfram, m.a.
bann við vopnasölu, bann við kjarn-
orkuviðskiptum og bann við því að
Suður-Afríka fái lán úr Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum.
Á fundi Alþjóðaólympíunefndar-
innar sem haldinn var í Lausanne
í Sviss var samþykkt að leyfa
suður-afrískum íþróttamönnum að
taka þátt í Olympíuleikunum, en
við því hefur legið bann í tvo ára-
tugi. Nefndin heimilaði þátttöku
suður-afrískra íþróttamanna á sum-
arleikunum sem haldnir verða í
Barcelona á Spáni í júlí á næsta
ári. Þá er hugsanlegt, að þeir fái
að taka þátt i vetrarleikunum sem
haldnir verða í Albertville í Frakk-
landi í febrúar á næsta ári.
var vitað um einn mann fallinn og
þijá særða. Sagði Onecin Czitan,
innanríkisráðherra Króatíu, að sam-
bandsherinn hefði brotið friðar-
samninginn frá því á sunnudag og
stundaði nú beinan og óbeinan
hernað gegn lýðveldinu. Stóðu átök-
in í héraðinu Slavonia í Króatíu en
það liggur að Serbíu og þar býr
margt fólk af serbneskum ættum.
Tíu embættismenn landvarna- og
utanríkisráðuneytis Lúxemborgar,
Hollands og Portúgals komu í gær
til Belgrad, höfuðborgar Júgó-
slavíu, til að fylgjast með fram-
kvæmd friðarsamningsins og héldu
þeir umsvifalaust til Ljubljana í
Slóveníu og Zagreb í Króatíu. Verða
þessir eftirlitsmenn að lokum 50
og er þetta í fyrsta sinn, sem Evr-
ópubandalagið hefur beina milli-
göngu eða afskipti af málefnum
annars ríkis með þessum hætti.
Friðaráætlunin verður tekin fyrir
á slóvenska þinginu í dag og er
búist við, að hún verði samþykkt
þrátt fyrir þá yfirlýsingu France
Bucars þingforseta í gær, að hún
jafngilti uppgjöf fyrir Slóvena.
Milan Kucan, forseti Slóveníu,
sagði, að um væri að ræða frið eða
stríð og margir þingmenn sögðu,
að það, sem þegar hefði áunnist,
væri aðeins áfangi að fullu sjálf-
stæði Slóveníu.
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, gerði ástandið í Júgó-
slavíu að umtalsefni í ræðu, sem
hann flutti í Moskvu í gær, og
sagði, að það væri víti til varnaðar
öllum þeim, sem vildu slíta sundur
Sovétríkin. Sex sovétlýðveldanna
15 krefjast sjálfstæðis og fullra slita
við Sovétríkin en Gorbatsjov kvaðst
hafa heimildir fyrir því, að 70-80%
íbúa sumra þessara ríkja vildu vera
áfram í Sovétríkjunum.
BRESKA sljórnin hefur ákveðið
að fækka í hernum um 20%.
Skýrði Tom King landvarnaráð-
herra frá þessu í gær og sagði,
að þegar Varsjárbandalagið
hefði verið leyst upp hefði hugs-
anlegum fjandmönnum NATO-
ríkjanna á vígvellinum jafnframt
fækkað um eina milljón.
I breska hernum eru nú 308.000
menn en á næstu þremur árum
verður fækkað um 62.000 manns.
„Það er stefnt að því að herinn
verði fámennari en jafnframt betur
búinn og í raun öflugri og þjálfaðri
en verið hefur,“ sagði King, sem
lagði áherslu á, að Atlantshafs-
bandalagið yrði enn sem fyrr horn-
steinninn í vörnum Breta.
Búist er við, að útgjöld Breta til
varnarmála minnki um 6% á næstu
þremur árum en það er raunar
minna en sá samdráttur, sem orðið
hefur á síðustu fimm árum.
Reuter
Gonzalez íausturvegi
Felipe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, lauk í gær tveggja daga
heimsókn í Sovétríkjunum þar sem hann ræddi við helstu ráðamenn,
meðal annars Míkhaíl Gorbatsjov sovétforseta og Borís Jeltsín, for-
seta Rússlands. Er myndin af þeim Jeltsín en með ferðinni vildi
Gonzalez kynna sér fyrirhugaðar umbætur í sovésku efnahagslífi.