Morgunblaðið - 10.07.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 1991
Hafís á sigl-
ingarleið
iindan Hom-
ströndum
Bolungarvík.
TALSVERÐUR hafís er nú
skammt undan Hornströndum.
Rækjubáturinn FIosi ÍS frá Bol-
ungarvík tafðist um fjóra tíma á
siglingunni af rækjumiðunum
djúpt út af Húnaflóa til Bolung-
arvikur.
Að sögn Jóns Egilssonar skips-
stjóra á Flosa voru þeir á veiðum
um 70 mílur austnorðaustur af
Horni. Á leiðinni til Bolungarvíkur
sigldu þeir ásamt tveimur öðrum
bátum 20 til 30 mílur í gegnum
misþykkar ísspangir og gekk veru-
lega erfiðlega að komast í gegnum
tvær þeirra. Þéttust var þó síðasta
spöngin sem var um 22 mílur frá
Homi. Þoka var á þessum slóðum
sem gerði mun erfiðara fyrir en
aftur á móti var stillilogn og sléttur
sjór og sagði Jón að ekki hefði ver-
ið farandi þarna ef einhver hreyfmg
hefði verið.
Jón kvaðst hafa haft fréttir af
einhverjum bátum, sem fóru inn
fyrir ísspangimar og þurftu þeir
að sigla allt upp undir Selssker til
að komast inn fyrir ísinn þannig
að þar var hann kominn upp undir
grunnslóð.
Gunnar.
Miðnæturdans á Eyjafirði
Hafnar eru vikulegar miðnætursiglingar um Eyjafjörð með Hrís-
eyjarferjunni Sæfara. Farið er frá Torfunefsbryggju á Akureyri
klukkan 20 og siglt út með firðinum austanverðum út undir
Grenivík. Þá verður stefnan tekin á Hrísey, siglt norður fyrir
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
eyjuna og komið í höfn um klukkan 23. Skömmu fyrir miðnætti
er svo lagt af stað til Akureyrar á ný og þá slegið upp dansi á
dekkinu með miðnætursól við sjóndeildarhring. Komið er að landi
á Akureyri um klukkan 2 eftir miðnætti.
Mínna að gera í bygging-
ariðnaði en búist var við
- segir framkvæmdastjóri byggingarmanna
Morgunblaðið/Þorkell
Sigurður Sigurðsson bóndi í Efstadal í Laugardal við heyskap í gær.
Heyskapur gengur víðast hvar vel:
Heyfengur verður
vel yfir meðallagi
HEYSKAPUR gengur vel víðast hvar á landinu og dæmi eru um
að slætti sé sums staðar lokið. Miklir þurrkar hafa þó hamlað sprettu
og víða hafa bændur beðið með að slá í von um að fljótlega fari
að rigna. Þegar litið er til landsins í heild virðist heyfengur ætla
að verða vel yfir meðallagi og einnig er útlit fyrir að hey verði betri
en venjulega.
„ÞAÐ ER óvenjulega rólegt, miklu
rólegra en menn höfðu átt von á,“
sagði Sverrir Arngrímsson fram-
kvæmdastjóri Meistara- og verk-
takasambands byggingamanna í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann var spurður um ástand í
atvinnumálum byggingariðnaðar-
ins. Sverrir sagði einna mest vera
unnið við íbúðir aldraðra um þess-
HÖRÐUR Helgason, fyrrverandi
sendiherra, lést á Landspitalan-
um í gær, 68 ára að aldri. Hann
fæddist á Isafirði 27. mars árið
1923, sonur Helga Guðbjartsson-
ar kaupmanns þar og síðar í
Reykjavík og konu hans, Sigrún-
ar Júlíusdóttur.
Hörður varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1943 og
lauk síðan BA-prófi í þjóðfélags-
fræði frá Duke-háskóla í N-Carol-
ina árið 1947. Hann var starfsmað-
ur tollstjórans í Reykjavík á árunum
1947 til 1948 en hóf síðan störf í
utanríkisþjónustunni sem sendi-
ráðsritari í París árið 1948 og var
skipaður sendiráðsritari þar árið
1951.
Hann var skipaður aðstoðarfull-
trúi í Efnahagssamvinnustofnun
Evrópu árið 1949 og í ráð Atlants-
hafsbandalagsins árið 1952. Skip-
aður fyrsti sendiráðsritari í París
árið 1956 og sendiráðunautur árið
1960. Hörður tók við störfum í ut-
anríkisráðuneytinu árið 1960 og var
settur deildarstjóri og jafnframt
formaður varnarmálanefndar. Skip-
aður deildarstjóri árið 1963 og
sendiráðunautur í Washington árið
1966. Skipaður sendifulltrúi árið
1972. Varð skrifstofustjóri ut-
anríkisráðuneytisins árið 1973 og
veittur sendiherratitill árið 1976.
Hörður var skipaður sendiherra
í utanríkisþjónustunni árið 1976 og
ar mundir. Hjá Verktakasambandi
íslands fengust þær upplýsingar
að menn vonuðust eftir auknum
framkvæmdum á næstunni og
væru í burðarliðnum nokkur stór
verkefni í byggingariðnaðinum.
Að sögn Pálma Kristinssonar
framkvæmdastjóra Verktakasam-
bandsins er almennt talið þokkalegt
ástand í byggingariðnaðinum og
Hörður Helgason
varð ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins árið 1979 og ritari ut-
anríkismálanefndar frá sama tíma.
Hann varð fastafulltrúi íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum árið 1982 og
sendiherra í Danmörku árið 1986
pg þá jafnframt sendiherra í ísrael,
ftalíu og Tyrklandi. Hann Iét af
störfum í utanríkisþjónustunni 1.
desember síðastliðinn vegna heilsu-
brests.
Eftirlifandi eiginkona Harðar er
Sara Helgason. Þau eignuðust fimm
börn.
hann sagði að nokkur stór verkefni
væru í burðarliðnum þannig að menn
litu ekki svartsýnum augum til næstu
framtíðar.
Að sögn Sverris Amgrímssonar
eru ekki til nýjar upplýsingar um
óselt húsnæði á byggingarstigi eða
nýbyggt á höfuðborgarsvæðinu, en
samkvæmt athugun frá í vetur hafi
verið um að ræða á bilinu 200 til
300 íbúðir.
Hann sagði að á þessum árstíma
væri ekki óeðlilegt að tiltölulega
mikið væri óselt af íbúðum miðað
við aðra árstíma, þar sem bygginga-
meistarar og -verktakar miðuðu
gjaman við að steypa upp hús á
haustin, vinna innivinnuna á veturna,
þannig að íbúðirnar,væru tilbúnar
að vori og surnri.
Af hefðbundnu íbúðarhúsnæði
sagði hann að þróunin væri greini-
lega í átt til minni húsa en áður.
Stór einbýlishús væm nánast horfin
af verkefnaskránni, hins vegar væri
mikil eftirspurn eftir litlum raðhús-
um.
Reykjavík:
Nálægt
hitameti
HITINN mældist 23,2 stig í
Reykjavík í gær og er þetta
næst heitasti dagur sem hefur
mælst í Reykjavík síðan 9. júlí
1976 en þá fór hitinn upp í
24,3 stig. 30. júlí 1980 mældust
23,7 stig.
Mestur hiti á Iandinu í gær var
í Hjarðarlandi í Biskupstungum
en þar mældist hitinn 24,2 stig.
Næstmestur var hitinn á Hæli í
Hreppum, 24 stig.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum
hefur heyskapur gengið óvenju vel
hjá flestum bændum. Það háir þó
sprettu, þar eins og annars staðar,
að lítið hefur rignt undanfarnar vik-
ur. Af þessum sökum hefur nokkuð
orðið vart við bruna í túnum, einkum
þar sem tún em sendin.
Heyskapur gengur vel á Norður-
landi og að sögn Ævars Hjartarson-
ar, búnaðarráðunautar hjá Búnaðar-
sambandi Eyjafjarðar, komu flest tún
vel undan vetri. Ævar segir að afar
lítið sé um kal í túnum og að flestir
bændur séu vel á veg komnir með
slátt og sumir jafnvel búnir. Spretta
sé almennt góð þrátt fyrir þurrkana
að undanförnu og horfur séu á að
heyfengur sumarsins verði mikili og
góður. Tún hafi flest komið vel und-
an vetri og varia sé kalblettur sjáan-
legur í þeim.
Lítur út fyrir að í sumar verði sleg-
ið í tvígang um land allt og hefur
slíkt ekki gerst um árabil. Sums stað-
ar á austanverðu Norðurlandi hefur
slíkt ekki verið gert í mörg ár.
Maímánuður var votviðrasamur
víða um land og hefur það skipt
miklu máli hvað sprettu varðar það
sem af er sumri. Nær ekkert hefur
rignt á Austurlandi síðan í apríl og
hafa þurrkarnir að líkindum verið
mestir þar. Lítils háttar kuldakast
með næturfrosti fyrri hluta júnímán-
aðar varð heldur ekki til að bæta
sprettuna. Af þessu leiðir að ekki er
víst að heyfengur á Austurlandi verði
meiri en í venjulegu árferði.
Á Suðurlandi eru bændur almennt
langt komnir með heyskap og jafn-
vel búnir sums staðar í lágsveitum.
Búast má við mikilli sprettu ef það
rignir fljótlega en sunnlenskir bænd-
ur eru ekki vanir eins miklum þurrk-
um og þeim sem nú ríkja. Sunnlend-
ingar eru almennt ánægðir með hey-
gæði og gera þeir sér vonir um að
hægt verði að draga úr kjarnfóður-
gjöf í vetur af þeim sökum.
Hörður Helgason fyrr-
verandi sendiherra látinn